Þjóðviljinn - 19.02.1986, Blaðsíða 14
SKAK
Reykjavíkurskákmótið
Barist í botn í hörku-umferð
Sjöunda umferðin í Reykjavík-
urskákmótinu var hörð og aesandi
og má segja að allar skákir hafi
verið tefldar í botn. Það er varla
hægt að segja að eitt einasta stór-
meistarajafnteili hafi verið sam-
ið.
Skákir
ígær
(7. umferð)
Miles-Hansen
Jóhanh-Larsen 0-1
Nikolic-Saloff
Gheorghiu-Byrnes 1-0
Tal-Adianto 1-0
Helgi-Alburt
Quinteros-Lein bið
Jón L.-Geller 0-1
Guðmundur Sig.-Margeir '/2-V2
Kudrin-De Firrrnan V2-V2
Karl-Seirawan
Welin-Benjamin bið
J.Kristiansen-Fedorowicz.... V2-V2
Zaltsman-Reshevsky
vand der Sterren-Dehmelt 0-1
Ásgeir-L.Christiansen 0-1
Donaldson-Dlugy V2-V2
Ólafur-Browne
Ligterink-Hoi 1-0
Þröstur Þ.-Schussler 0-1
Wilder-Bragi 1-0
Kogan-Hannes V2-V2
Yrjölá-Herzog 1-0
Benedikt-Remlinger
Davíð-Björgvin...r. 1-0
Róbert-Guömundur H biö
Jón G.-Jung 0-1
Burger-Þorsteinn
Sævar-Schiller 0-1
Pyhala-Leifur 1-0
Haukur-GuðmundurG
Karklins-ÞrösturÁ 1-0
Hilmar-Lárus 0-1
Haraldur-Dan .... 0-1
Tómas-Kristján
Jóhannes-Áskell 1-0
Halldór-Arni V2-V2
Miles tefldi við Hansen en
komst ekkert áfram í biskupa-
endatafli en þvældi það þó fram
að bið. Það má reikna Hansen
efstan með 6 vinninga eftir um-
ferðina en næstu menn eru aðeins
hálfum vinningi á eftir honum.
Larsen vann Jóhann í æsispenn-
andi skák og Gheorghiu sigraði
Byrne eftir snarpa atlögu í lokin.
Nikolic hefur sælu peði meira
. gegn Salov og gæti komist í 5 Vi
vinnings flokkinn ef honum tekst
að nýta það.
Guðmundur og Margeir tefldu
saman og fengu upp stöðu þar
sem báðir stóðu vel. Hvorugur
gat raskað jafnvæginu sér í hag og
því var samið jafntefli eftir nokk-
urt þóf. Helgi fékk upp betra
endatafl gegn Alburt, hafði bisk-
upaparið í oþinni stöðu og eru
miklar líkur á að hann vinni bið-
skákina. Pá verður hann í hópi
efstu manna. Jón L. fórnaði
tveim mönnum fyrir hrók og
veittist að kóngi Gellers en Rúss-
inn sneri á hann og vann.
Yfirleitt voru titilhafarnir
þunghentir og máttu margir ís-
lendingar í neðri deildinni sætta
sig við lítinn hlut. En þá er bara
að reyna aftur á morgun.
Skák kvöldsins var viðureign
Jóhanns og Larsens. Eftir þunga
byrjun þar sem báðir leituðu færa
komu upp miklar flækjur.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Larsen
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - c5 3. d5 - g6 4.
Rc3 - d6 5. e4 - Bg7 6. 14 - 0-0 7.
Rf3 - e6 8. dxe6 - fxe6 9. Bd3 - Rc6
10. 0-0 - a6 11. a4 - b6 12. Rg5 -
Ha7 13. Ha3 - He7 14. Bbl - Rd4.
Upp er komin hvöss staða.
Hvítur leitar færa á kóngsvæng en
svartur beintir spjótum sínum að
miðborðinu. Hvítur hefur meira
rými en miðborðið er viðkvæmt
og svartur á marga möguleika á
að brjóta það upp.
15. Be3 - Bb7 16. Del - e5 17. f5
- h6 18. Rh3 - gxf5 19. exf5 - De8
20. Dh4 - e’4.
Skemmtileg framrás. Hrókur-
inn á a3 ætlar sér yfir á kóngs-
vænginn en þangað kemst hann
aldrei í þessari skák. Nú er bisk-
upinn bundinn á e3 því annars
veður svarta e-peðið áfram og er í
vegi hróksins. Svartur hefur náð
frumkvæðinu.
21. Dg3 - Rh5 22. Dg4 - Kh8 23.
Rf4 - Rxf4 24. Hxf4 - Be5 25. Hf2 -
26. Khl - Rxh2 27. Dh4 h5!
Tryggir svarta riddaranum g4-
reitinn. Eftir að staðan opnast má
hvítur alltaf vara sig á að verða
mát í borðinu meðan riddarinn er
á g4. Hér voru báðir keppendur
komnir í tímahrak.
28. f6 - Hh7 29. Bxe4 - ...
Nú opnast staðan og það
reynist svarti í hag en það er óvíst
hvað hvítur hefði átt að gera.
Staðan er svo flókin að ekki er
unnt að ráða fram úr því í fljótu
bragði.
29. ... - Bxe4 30. Rxe4 - Rg4 31.
Hf5 - Bxb2 32. Rxd6 - ...
abcdefgh
25. ... - Rf3+
Ef riddarinn er drepinn kemur
hrókurinn til g8 og drottningin
fellur.
abcdefgh
32. ... - Dg6 33. Hb3 - Bxf6 34.
Bg5 - Bg7 35. Hxf8+ - Bxf8
Nú er riddarinn á d6 í vand-
ræðum. Hvítur reynir árangurs-
laust að bjarga honum í næstu
leikjum.
36. Bf4 - Hd7 37. Hxb6 - Bxd6
38. Bxd6 - Hxd6 39. Hb8+ - Kg7
40. Hb7+ - Kh6 41. Del - He6 42.
Dd2+ - Dg5
Hvítur gafst upp því 43. Hh7+
Kxh7 44. Dxg5 ... gengur ekki
vegna44. ... Hel mát. Riddarinn
á g4 lék aðalhlutverkið í þessari
skemmtilegu skák.
Efstir
5]/2 v.:
Hansen (biö), larsen, Gheerghiu
5 v.:
Tal, Geller
4V2 v.:
Miles (biö), Nikoliö (biö), Saloff (biö),
Jóhann, Byrne, Adianto, Margeir, De
Firmian, Guömundur Sigurjónsson,
Kudrin, Dehmelt
4 v. og bið:
Helgi, Lein, Alburt, Quinteros
Biðskákir
í fyrrakvöld
úr 4. umferð:
Yrjölá-Pröstur Á..........'/2- '/2
úr 5. umferð:
Miles-DeFirmian.............1-0
J. Kristiansen-Jón L........0-1
Ásgeir-Dlugy..............V2-V2
Yrjölá-Kristján...........Vz-'k
úr 6. umferð:
Seirawan-Saloff............0-1
Larsen-Zaltsman.............1-0
Lein-Donaldson..............1-0
Dlugy-Hoi................'/2-V2
Remlinger-Burger..........V2-V2
Jung-Björgvin.............V2-V2
Herzog-Karklins.............1-0
Kristján-Benedikt..........0-1
Dan-JónG...................0-1
ÞrösturÁ.-Hilmar............biö
Tómas-Lárus.................bið
HVAÐ ER AÐ GERAST IALÞÝÐUBANDALAGINU?
LAL-félagar athugið!
LAL-félagar og annað áhugafólk um landbúnaðarmál er boðað til
fundar í Miðgarði Hverfisgötu 105 4. hæð nk. föstudag 21. febrúar
á milli kl. 15 og 19.
Miðstjórnarmenn á leið í bæinn eru sérstaklega hvattir til að
mæta. Á dagskrá fundarins verður staða landbúnaðarins, bú-
marksmálið, stefnumótun í landbúnaðinum o.fl. - Stjórn LAL.
Alþýðubandalagiö í Njarðvík
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Njarðvík heldur félagsfund fimmtudaginn 20.
febrúar kl. 20.30 í matsal Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur. Dag-
skrá: 1) Undirbúningur fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á vori
komanda. 2) Inntaka nýrra félaga. 3) Önnur mál.
Allir Alþýðubandalagsfélagar og aðrir stuðningsmenn eru hvattir
til að mæta. - Undirbúningsnefndin.
Málefnahópar Alþýöubandalagsins
Hafið áhrif!
Vettvangur flokksins fyrir umræður og stefnumótun. Hóparnir eru
opnir öllum félögum og stuðningsmönnum Alþýðubandalagsins. I
þeim sitja fulltrúar þingflokks og framkvæmdastjórnar.
Herinn - Nato - friðarbaráttan: 2. fundur miðvikudaginn 19.
febrúar kl. 20.00. Meðal viðfangsefna: skilgreining áfanga aö því
lokamarkmiði að ísland verði herlaust, hlutlaust og friðlýst land.
Fleiri hópar fara af stað á næstunni: Valddreifing - lýðræði,
jafnréttismál, sjávarútvegsmál o.fl.
Fundarstaður er Miðgarður, Hverfisgötu 105, 4. hæð.
Fjárhags- og viðskiptamál: Næsti fundur verður í Miðgarði,
Hverfisgötu 105, þriðjudaginn 25. febrúar kl. 20.30. Rætt um: 1.
Seðlabankinn. 2. Neytendavernd.
Mennta- og menningarmál: Næsti fundur ákveðinn síðar. AB og
verkalýðshreyfingin: Næsti fundir ákveðinn síðar.
Félagar og stuðningsmenn! Skráið ykkur í málefnahópa Al-
þýðubandalagsins hið fyrsta á skrifstofu flokksins Hverfisgötu
105 og látið skrá ykkur á fundi. Síminn er 17500.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Opið kynningarkvöld verður í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18
fimmtudaginn 20. febrúar klukkan 20.00.
Kaffiveitingar.
Kynnt verður framkvæmd forvals og undirbúningur kosninga;
starfs fyrir bæjarstjórnarkosningar. Allir þeir sem láta sig Alþýðú-
bandalagið einhverju skipta eru hvattir til að koma og kynnast
starfinu og taka þátt í því.
Stjórn ABA
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins
22. og 23. febrúar. Fundarstaður: Miðgarður Hverfisgata 105.
Laugardagur 22. febrúar.
Kl. 10.00 - Efnahags- og atvinnumál. Framsögumenn verða
Finnbogi Jónsson, Guðrún Hallgrimsdóttir, Már Guðmundsson,
Ragnar Árnason og Vilborg Harðardóttir. - Almennar umræður.
Kl. 12.00 - Matarhlé en kl. 13.00 halda umræður áfram. Kl.
15.00 verður gefið kaffihlé.
Kl.*15.20 - Verkalýðsmálaráð Alþýðubandalagsins. Onnur
mái.
Kl. 17.00 - Starfshópar um efnahags- og atvinnumál og e.t.v.
um önnur mál. Búast má við kvöldvinnu starfshópa.
Sunnudagur 23. febrúar.
Kl. 09.00 - Starfshópar Ijúka störfum.
Kl. 10.30 - Skil starfshópa.
Kl. 12.00 - Matarhlé. Miðstjórnarkonur funda um væntanlega
kvennastefnu.
Kl. 13.00 - Afgreiðsla á efnahags- og atvinnumálum. Afgreiðsla
á öðrum málum.
Stefnt er að því að fundinum Ijúki fyrir kl. 17.00.
AB Akranes
Góufagnaður AB
verður haldinn í Rein laugardaginn 1. mars
og hefst hann kl. 20.30 með boröhaldi.
Húsið opnað kl. 20.00.
Dagskrá: 1) Ávarp Össurar Skarphéð-
inssonar ritstjóra Þjóðviljans, 2) Fjölbreytt
skemmtiatriði, 3) Diskótekið Dísa sér um
undirleik fyrir dansi.
Miðasala í Rein mánudaginn 24. febrúar
kl. 20.30-22.00, sími 1630. Skemmti-
nefndin.
Alþýöubandalagsfélag Ólafsvíkur
Forval
Vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor, fer fram forval sunnudag-
inn 23. febrúar í Félagsheimili Ólafsvíkur frá kl. 13-17.
Rétt til þátttöku hafa allir félagsmenn og yfirlýstir stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins. Eftirtaldír eru í framboði í forvalinu: Guð-
mundur Jónsson, trésmiður, Haraldur Guðmundsson, skip-
stjóri, Heiðar Friðriksson, verkamaður, Herbert Hjelm, verka-
maður, Margrét Jónasdóttir, húsmóðir og verkamaður, Rúnar
Benjamínsson, vélstjóri, Sigríður Sigurðardóttir, húsmóðir og
verkamaður, Sigurjón Egilsson, sjómaður.
Þeir sem vilja kjósa utankjörstaðar snúi sér til einhvers eftirtal-
inna: Jóhannes Ragnarsson s: 6438, Heiðar Friðriksson s: 6364,
Rúnar Benjamínsson s: 6395 og Sigríður Sigurðardóttir s: 6536.
Félagar eru hvattir til að taka þátt í forvalinu. - Alþýðubanda-
lagsfélag Ólafsvíkur.
MMHSKSiMa
Árshátíð
verður haldin laugardaginn 1. mars nk. í Rein. Hátíðin hefst með
borðhaldi kl. 20.00. Fjölbreytt skemmtiatriði. Nánar auglýst síðar.
- Skemmtinefndin.
Almennur félagsfundur
verður haldinn mánudaginn 24. febrúar kl. 20.30 að Kirkjuvegi 7.
Fundarefni: Uppstillinganefnd leggur frarn tillögur sínar um fram-
boðslista vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor.
Félagar eru hvattir til að mæta. Heitt á könnunni. - Uppstillinga-
nefnd.
AB Dalvík
Félagsfundur á fimmtudagskvöld kl. 21, í Jónínubúð. Rædd verða
framboðsmál vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor.
Stjórnin.
AB Kópavogur
Bæjarmálaráð
boðar til fundar fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20.30 í Þinghóli.
Dagskrá: 1) Atvinnumál, 2)Önnur Mál. - Stjórnin.
ÆSKULÝÐSFYLKiNGIN
Fimmtudagurinn 20. febrúar
Aðalfundur ÆFR
Vegna aðgerðardaga gegn ríkisstjórninni frestast aðalfundur
ÆFR til fimmtudagsins 20. febrúar. Fundurinn verður haldinn að
Miðgarði, Hverfisgötu 105 og hefst hann kl. 19.30.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf, 2) borgarstjórnarkosning-
ar, 3) önnur mál.
Nýir félgar velkomnir í baráttuna.
Stjórnin.
Þriðjudagur 25. febrúar kl. 20.30
Fundaröð um
sósíalisma
Baldur Óskarsson segir frá dvöl sinni í
Tansaníu og sýnir myndir.
Allir velkonnir!
Stjórnin
Baldur
isaswaacBBatxsii
14 SÍÐA - ÞJÓÐViLJINN Miðvikudagur 19. febrúar 1986