Þjóðviljinn - 09.03.1986, Síða 11

Þjóðviljinn - 09.03.1986, Síða 11
Garðyrkjan er tiltölulega ung atvinnugrein á íslandi. Fyrsta gróðurhúsið var byggt árið 1923 að Reykjum í Mos- fellssveit á vegum þeirra Guð- mundar Jónssonar og Bjarna Ásgeirssonar. Á næstu árum fjölgaði þeim hægt en ávallt miðaði þó í áttina. Árið 1939 tók Garðyrkju- skóli ríkisins á Reykjum í Olf- usi til starfa. Fram að þeim tíma urðu þeir, sem leggja vildu fyrir sig garðyrkjunám, þar sem saman fór bókleg og verkleg kennsla, að stunda það erlendis. Flestir munu ís- lendingarnir hafa numið í Danmörku þar sem garðyrkj- an stóð á gömlum merg. Einn þessara Danmerkurfara, Benedikt Guðlaugsson, varð átt- ræður nú fyrir nokkrum vikum. Hann er meðal hinna fyrstu ís- lendinga, sem gerðu garðyrkjuna að ævistarfi. Hann byggði sér garðyrkjubýli uppi í Reykholts- dal og rak það í 40 ár. Og enn er hann tengdur garðyrkjunni því síðan hann hætti í Borgarfirðin- um hefur hann unnið hjá Sölufé- lagi garðyrkjumanna. Blaðið kom að máli við Benedikt og bað hann að segja lesendum þess eitthvað frá liðnum árum og réði hann sjálfur ferðinni. Úr Dölum og af Ströndum - Pað er þá’kannski best, sagði Benedikt, - að byrja á því að segja ítarlega deili á sjálfum mér, þó að það skipti nú ekki miklu máli. Ég er blanda af Stranda- og Dalamanni. Faðir minn, Guð- laugur Guðmundsson, var frá Borgum í Hrútafirði, ættaður úr Dölum, en móðir mín, Sigurlína Guðmundsdóttir af Ströndum. Foreldrar mínir bjuggu fyrst á Hlaðhamri í Hrútafirði. Fluttu þaðan að Brunná í Dölum. Síðan að Kletti í Geiradal og þar fædd- ist ég 1. desember 1905. Loks fluttu þau svo að Bakka í Geira- dal þar sem móðir mín dó frá 7 ungum börnum 30. nóv. 1912. Ég varð þannig 7 ára daginn eftir að hún dó. Þar með var búskap föður míns lokið og heimilið leystist upp. En þar sem augljóst þótti að hverju dró með heilsu móður minnar var okkur börnun- um ráðstafað áður en hún dó. - Og hvað beið svo þessa 7 ára móðurlausa snáða? - Ég lenti í góðum höndum eins og ég held við öll, sem tekin voru í fóstur. Ég fór til móðursystur minnar, Önnu Guðmundsdóttur, á Eyjum í Strandasýslu og leið þar vel. Það gerðist svo sem ekk- ert markvert en yfir sumartímann var ég lánaður sem smali á tvo bæi þarna í sveitinni. 150 kindur og 50 tófur Haustið 1920 fór ég svo frá Eyjum til annarar móðursystur minnar, Guðrúnar, sem bjó í Bæ á Selströnd, ásamt manni sínum, Jóhanni Jónssyni. Þar stundaði ég m.a. fjárgæslu að vetrinum, við annan mann, úti í Grímsey á Steingrímsfirði. Það fannst mér bæði skemmtilegt og lærdómsríkt og fjarri því að við fyndum nokk- uð til einmanaleika, þarna úti í eyjunni. Grímsey er gömul bú- jörð frá Bæ og áttu Bæjarmenn eyjuna í félagi. Þeir höfðu þarna 150 kindur og 50 tófur. Guð- mundur í Bæ, mótbýlismaður Jó- hanns, var grenjaskytta, safnaði yrðlingunum saman, ól þá fyrst heima en flutti þá svo út í Grímsey. Þar var þeim gefið fyrst í stað en síðan lifðu þeir mikið á skelfiski úr fjörunni og svo sjálf- sagt fugli, einkum lunda. Yrðlingarnir voru svo skotnir þegar kom fram í febrúar og skinnin hirt. Hreppstjórinn taldi yrðlingana þegar þeir voru fluttir fram og svo skinnin þegar þau voru seld því allt varð nú að stemma. Og það gerði það víst líka alltaf nema frostaveturinn 1918 en þá lagði fjörðinn og eitthvað af yrðlingum mun hafa sloppið í land. Þarna kynntist maður tófunum vel. Þær urðu alveg eins og heimilishundar, hirtu bara bit- ana, sem maður henti frá sér út á hlaðið. - Hvað stóðstu lengi við í Bæ? - Ég var þar í tvö ár en fór þá inn að Bræðrabrekku í Bitru til frænku minnar, Guðrúnar Skúla- dóttur og manns hennar, Eysteins Eymundssonar. Sá Ey- mundur var Þingeyingur, frá Syðri-Brekkum í Þistilfirði. Hjá þeim var ég vinnumaður í tvö ár. Ég var nú víst búinn að fá nóg af föstum vistum og ákvað að prófa lausamennsku um hríð, var m.a. kaupamaður suður í Saurbæ. En þetta var hálfgerður flækingur og upp úr öllu saman fékk ég brjósthimnubólgu 1923 og var sendur á Vífilsstaði. Sem betur fór hresstist ég fljótt og losnaði af Vífilsstöðum eftir 3 mánuði. Sumardvöl ö Langanesi - Og máttirðu þá strax fara að vinna? - Að minnsta kosti gerði ég það því fljótlega eftir að ég kom af hælinu hitti ég Jóhannes Jónsson, afa Jóhannesar Arasonar út- varpsþular, sem allir kannast við. Hann bjó á Ytra-Lóni á Langa- nesi og vildi óður og uppvægur fá mig í kaupavinnu um sumarið. Þetta voru mér með öllu ókunnar slóðir svo ég sló til. Leist líka vel á manninn. Og ég sá svo sannarlega ekki eftir að hafa farið norður. Þau Jóhannes og Þuríður kona hans, voru bæði Þingeyingar og ein- stakar ágætis manneskjur. Þuríð- ur var frá Grenjaðarstað, mikil tónlistarkona og alltaf spilandi og syngjandi. Og svo var þetta eitt hið mesta sólskinssumar, sem þarna hafði komið. Þarna var ég í 6 mánuði og kunni ákaflega vel við mig. Steini og Prósi Einhvernveginn bárust mér þær fréttir, að Bjarna í Ásgarði vantaði vetrarmann. Ég hringdi í hann og er ekki að orðlengja það að hann réði mig strax. Það var hreint ekki ónýtt að kynnast því ágæta menningarheimili. Vinna var að vísu mikil en henni var ég nú ekki óvanur en fæði ágætt og góð aðhlynning á allan hátt. Bjarni í Ásgarði var stórbrot- inn maður og eftirminnilegur á alla grein. Hann átti það til að gera sér mannamun en á öfuga lund við aðra. Hann var ákaflega góður og hlýr við smælingja og þá, sem minna máttu sín, en síður við þá, sem meiri háttar töldust. Þorstein sýslumann í Búðardai, nefndi hann aldrei annað en Steina og Ásgeir prófastur í Hvammi var Prósi. „Hvað er þér á höndum, Steini?" Hvað vilt þú nú, Prósi?" Já, það er gaman að hafa kynnst Bjarna í Ásgarði. Úr einu í annað Einhvern veginn átti garðyr- kjan alltaf ítök í mér án þess að ég væri þó, þegar þarna var komið, á nokkurn hátt ákveðinn í að leggja hana fyrir mig. Svo ég réði mig nú til vinnu í Gróðrarstöðinni í Reykjavík, hjá Ragnari Ás- geirssyni. Ég kom þangað 11. maí og þá var þar allt í blóma. En rétt á eftir gerði mikið frost og kulda. Varð því stutt í veru minni hjá Ragnari og var ég nú atvinnulaus. Þá er það sem Vilborg Guðna- dóttir, amma Vigdísar forseta, hvetur mig til þess að fara vestur að Svelgsá í Helgafellssveit. Og þar var nú ekki tjaldað til einnar nætur því á Svelgsá var ég vinnu- maður í 4 ár. Það slapti alltaf í mér að reyna að komast í einhvern skóla. Og núlétégverðaaðþvíaðsækjaum skólavist á Hvítárbakka og fékk hana. En frekar stutt varð nú í náminu því ég veiktist öðru sinni af brjósthimnubólgu. Var ég þá fyrst sendur heim en síðan á Víf- ilsstaðahælið. - Þú hefðir nú ekk- ert þurft að koma, sagði Sigurður Magnússon læknir við mig, - en úr því þú ert samt kominn er best að þú verðir hér eitthvað. Líklega verið í blóðinu En garðyrkjan lét mig ekki í friði. Eg talaði við Bjarna Ás- geirsson á Reykjum og fékk þar vinnu 1. febrúar 1930. - Hvað heldurðu að hafi eink- um vakið með þér þessa löngum til að fást við garðyrkjustörf? - Ja, það er kannski ekki gott að segja um það. Frænka mín í Eyjum hafði mikinn áhuga á blómum og öllum gróðri. Hún sáði stundum korni og hafði í gluggunum hjá sér. Á Eyjum var ég látinn safna allskonar plöntum til að sjóða te og þá varð ég nátt- úrlega að þekkja þær eitthvað. Móðir mín hafði einnig áhuga á blómum. Ég man að hún flutti t.d. burkna ofan úr fjalli og gróð- ursetti heima við bæ, kannski hefur þetta verið kveikjan en sjálfur hef ég alltaf haft auga fyrir blómum og gróðri yfirleitt. Ætli þetta hafi ekki bara verið í blóð- inu. Farið utan Það var náttúrlega ekki um neitt nám á Reykjum að ræða nema einhverja verklega tilsögn og því varð það smátt og smátt ásetningur minn að reyna að komast til Danmerkur. Tyberg, garðyrkjumaður á Reykjum, hvatti mig til þess og sótti fyrir mig um skólavist á Baader- gartnerskole á Jótlandi og þang- að fór ég 1. okt. 1932. Námið var bæði bóklegt og verklegt en skólastjórinn ráð- lagði mér að sinna meira verklega náminu á meðan ég væri að kom- ast niður í málinu. En raunar var bóklegt nám jafnhliða verkiega náminu 2 tíma í viku. Og á fyrir- lestrana mátti ég hlusta þegar ég vildi. Ég vann með náminu og fékk fyrir það 25 kr. á mánuði en mánaðarlaun fullnuma garð- yrkjumanns voru þá 50 kr. - Voru einhverjir íslendingar samtíða þér þarna? - Þeir voru nú ekki margir í námi úti í Danmörku þá. Til að byrja með var ég eini Islendin- gurinn þarna í skólanum en svo komu þeir Haukur Baldvinsson og Sigurður Sveinsson. Haukur rak lengi garðyrkjustöð í Hvera- gerði. Sigurður var kennari við Garðyrkjuskólann á Reykjum og síðar garðyrkjuráðunautur Reykjvíkurborgar. En upp úr þessu fóru þeir að koma út hver af öðrum. - Og hvernig féll þér svo í skólanum? - Jú, maður lærði þarna margti að sjálfsögðu, en þetta var hörku- vinna og slæmur aðbúnaður úti við en fæðið var á hinn bóginn gott. Og ekki megum við sleppa því að í skólanum kynntist ég konunni minni, Petru, svo ég sótti nú fleira út en námið. Hún var þarna vinnukona. En það voru fáar stúlkur í skólanum. Mig minnir að þær hafi bara verið þrjár. Konur lögðu ekki svo mikið fyrir sig garðyrkjunám á þessum árum en það átti eftir að breytast. - Hvað tók námið langan tíma? - Það tók eitt og hálft ár. Það var erfitt að krjúpa lang- tímum saman á hnjánum við að planta og að því kom að ég fékk einhverja gigt og þá var mér sagt upp með viku fyrirvara. Fór ég þá fyrst til foreldra Petru en varð svo að fara á spítala. Er ég losnaði þaðan dreif ég mig heim í júlí 1935. Og næstu árin vann ég svo ' við garðyrkjustörf hjá Stefáni í 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. mars 1986 Reksturinn kominn á góðan rekspöl. Við sjáum á gafla 5 gróðhúsa. -mhg rabbar við Benedikt Guðlaugsson, sem reisti garðyrkjubýli uppi í Reykholtsdal og rak í 40 ár Víðigerði í vetrarklæðum. Reykjahlíð. Við giftum okkur 15. maí 1937. Leitað að landi - Nú rakstu lengi garðyrkju- stöð uppi í Reykholtsdal, hvenær byrjaðirðu þann rekstur? - Já, það hafði verið að brjótast í mér um skeið að byrja sjálfstæð- an rekstur. En aðstaða til þess lá nú yfirleitt ekki á lausu. Mér datt í hug að bera niður uppi í Borgar- firði og við skruppum þangað 1937. Fórum með Laxfossi upp í Borgarnes og hjóluðum þaðan upp í Reykholtsdal. Jú, mér var allstaðar tekið vel en ég fékk eng- in þau vilyrði sem á var að byggja. Mér leist vel á landið við Deildartunguhver. En ég fékk hvorki já né nei hjá Jóni og með- an ég fékk ekki alveg afsvar vildi ég ekki leggja árar í bát. Annars var Jón í Deildartungu mesti ágætismaður og vildi styðja allt, sem til framfara horfði. Hann stofnaði gróðurhúsafélagið í Reykholtsdalnum, sem rekið var á félagslegum grundvelli. Árni Helgason, sem búsettur var í Ameríku, átti þá Efri-Reyki í Árnessýslu. Hann k vaö mig geta fengið jörðina leigða ef um semd- ist. Ég brá mér austur en leisr ekkert á mig þar. Jón tekur til sinna röða Og nú hringi ég upp í Deildar- tungu og segi Jóni á ég sé búinn að segja upp hjá Stefáni í Reykja- hlíð. „Mikill helvítis asni ertu,“ segir Jón. „Það getur vel verið en ég kem uppeftir að tala við þig“. „Nei, gerðu það ekki, það kostar þig peninga, ég ætla að koma suður". Og Jón kom suður, samningar tókust og við fórum uppeftir. Og þarna fengum við á leigu 1 ha lands og 2 sekl. af heitu vatni. „Þú hefur ekkert að gera með meira, það er bara auka- kostnaður,“ sagði Jón. Við vor- um auðvitað húsnæðislaus en fengum leigt hjá Jóni og þau hjónin fluttu úr svefnherberginu sínu og létu okkur það eftir. Og áður en við fórum úr Reykjavík sagði Jón: „Þið skuluð hafa næg- an mat með ykkur uppeftir svo þið þurfið ekki að segja ykkur til sveitar strax fyrsta árið“. Hann taldi tryggara að sjá fyrir öllu. Jón var afskaplega heilsteyptur maður og þau hjón bæði. Ég hef aldrei kynnst hjálpsamara fólki en þeim. Nýbýlastjórnin treg í taumi - Og nú hafið þið hafist handa? - Já, við drifum okkur strax í j það að koma upp 150 ferm. gróð-1 urhúsi. Leó bróðir minn vann að ; því með mér og styrkti okkur fjárhagslega. Ég hafði hugsað mér að þetta yrði nýbýli og nú byrjaði stríðið við nýbýlastjórn. Jú, jú, ég fékk nóg af loforðum en engar efndir. Og ef hefði ekki notið Hermanns Jónassonar þá hefði ég aldrei fengið krónu. En það endaði nú með því að ég fékk 2000 kr. lán og nýbýlið Víðigerði varð að veru- leika. - Hvað heldurðu að þetta 150 ferm. gróðurhús hafi kostað? - Ég veit það ekki því engin vinna var skrifuð. íbúðarhúsi komum við svo upp 1941. - Hvað ræktaðirðu einkum til Benedikt Guðlaugsson fyrrum garðyrkjubóndi í Víðigerði í Reykholtsdal. Myndr'Sig. að byrja með? - Það voru eingöngu tómatar. Vaðnesbræður seldu fyrir mig í Reykjavík á meðan þeir gátu en svo tók Eggert Kristjánsson við. Það voru engin samtök um söl- una og þetta fór mikið í kostnað. í ágúst þarna um sumarið seldi ég t.d. fyrir 800 kr. en ég fékk ekki nema 300 kr. af því í eigin vasa, hitt fór í afföll og kostnað. Garð- yrkjumenn í nánd við Reykjavík seldu sjálfir. Kassinn átti að kosta 5 kr. en hann var kannski kominn niður í 2 kr. um kvöldið. Það var ekkert skipulag á sölunni og eng- in samtök, menn reyndu bara hver sem betur gat að losna við vöruna. Flestum varð auðvitað fljótlega ljóst að þannig gat þetta ekki gengið og því var Sölufélag garðyrkjumanna stofnað 1940. Án þeirra samtaka hefði þetta allt hrunið. Og þarna var Jón í Deildartungu forystumaður eins og víðar. Nú, áður en yfir lauk var ég svo kominn út í allskonar ræktun svo sem á banönum, vínberjum o.fl. - Hvenær lauk svo búskap þín- um í Víðigerði? - Ég hætti þar 1970. Var þá búinn að vera þar í 40 ár og kom- inn með um 1000 ferm. undir gler. Við hjónin vorum orðin heilsulin og þótti ekki rétt að vera að basla þarna áfram og það því síður sem Kristján sonur okkar var reiðubúinn að taka við þó að hann væri þá við húsgagnasmíði úti í Danmörku. Hann er nú for- maður Sölufélagsins. - Og hvernig var svo afkoman þessi 40 ár? Hún var náttúrlega erfið framanaf og aldrei voru þetta nú nein uppgrip. En maður lifði þó af þessu og tókst að standa í skilum. Og raunar gátum við veitt okkur ýmislegt eins og t.d. að skreppa til Danmerkur. Við sjáum ekkert eftir því að hafa eytt þessum árum þarna. Það var draumurinn að eignast sína eigin garðyrkjustöð og það tókst, með góðra manna hjálp. - Þú minntist á son ykkar, Kristján, sem heldur merkinu uppi í Víðigerði. Eigið þið fleiri börn? - Jú, við eigum annan son, Gunnar, sem vinnur í Stálvík, kvæntur Jónu Steinmarsdóttur frá Akureyri. Kona Kristjáns heitir Erla Kristjánsdóttir. Svo eru dæturnar tvær: Guðrún, gift Hannesi Kolbeins og Kristín, bú- sett á Akranesi og rekur þar verslunina Blómaríki. Hennar maður er Kristján Guðmunds-| son. i - Varla hefurðu nú unað því að sitja auðum höndum eftir að til Reykjavíkur kom, hafi heilsan leyft annað? Ennþó tengdur garðyrkjunni - Nei, ég byrjaði fljótlega að vinna í Sölufélagsbúðinni hjá Þorvaldi, og vann þar um hríð. En þetta er ekkert orðið. Og ég vil láta það koma fram, að ég tel að Þorvaldur hafi alveg bjargað fyrirtækinu. Og hafi ég nokkurntíma gert gagn þá er það fólgið í því að hafa átt þátt í að ráða hann þangað. Þegar ég lít til baka þá tel ég að við eigum mest að þakka þeim Deildartunguhjónum. Án þeirra aðstoðar og hjálpfýsi hefðum við naumast numið land þarna í Reykholtsdalnum þar sem við lifðum og störfuðum í 40 ár og leið vel. -mhg mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 Sunnudagur 9.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.