Þjóðviljinn - 25.03.1986, Page 1
ÍÞRÓTTIR
MANNLÍF
HEIMURINN
Mjólkurfrœðingar
Sviptir samningsréttinum
Ríkisstjórnin ákveðurað setja deiluna íkjaradóm ogsvipta þarmeð mjólkurfrœðinga
samningsrétti. Geir Jónsson formaður Mjólkurfrœðingafélagsins: samningaleið alls ekki
fullreynd. Svavar Gestsson: óvirðing við alþingi, markleysa hjá ráðherra
Ríkisstjórnin keyrði í gær-
kvöldi í gegnum neðri deild
gerðardómslög á Mjólkurfræð-
ingafélag Islands og braut verk-
fail félagsins þar með á bak aftur.
Samningafundi deiluaðila var
slitið síðdegis i gær, en þá höfðu
mjólkurfræðingar dregið til baka
allar sérkröfur sínar nema eina er
varðar fæðis- og flutningsgreiðsl-
ur. Þingmenn Abl. og Kvenna-
lista greiddu atkvæði á móti
frumvarpi stjórnarinnar í neðri
deild, en Alþýðuflokkur og BJ
sátu hjá. Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ lýsti í gær yfir and-
stöðu við gerðardómslögin og
Guðmundur J. Guðmundsson
Abl. upplýsti í umræðum að
krafa mjólkurfræðinga væri ein-
ungis til samræmingar við það
sem aðrir starfsmenn hefðu fyrir.
„Við teljum alls ekki fullreynt
að ná sáttum í þessari deilu og
fordæmum því þessi gerðardóms-
lög. í stað þess að halda samn-
ingaviðræðum áfram leggja
stjórnvöld og vinnuveitendur of-
urkapp á að keyra þetta mál í
gerðardóm. Þetta er mjög alvar-
legur hlutur þar sem verið er að
taka af okkur samningsréttinn og
þetta getur haft alvarlegar afleið-
ingar“, sagði Geir Jónsson for-
maður Mjólkurfræðingafélagsins
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Samninganefnd mjólkurfræðinga
fylgdist með umræðum um gerð-
ardómsfrumvarpið en í því er gert
ráð fyrir að Hæstiréttur skipi þrjá
fulltrúa í kjaradóm til að ákveða
kaup og kjör mjólkurfræðinga og
á dómurinn samkvæmt frum-
varpinu að leggja til grundvallar
síðastgildandi kjarasamning fé-
lagsins og þær ícjara- og launa-
breytingar sem samist hefur um
frá sl. áramótum. í greinargerð
með frumvarpinu sem Jón Helga-
son landbúnaðarráðherra lagði
fram segir að kröfur mjólkur-
fræðinga feli í sér „verulegar
hækkanir og frávik umfram það
sem felst í samningum ASl og
vinnuveitenda" auk þess sem
slíkirsamningar myndu „riðla því
breiða samkomulagi sem náðst
hefur og spilla vinnufriði". Krafa
mjólkurfræðinga um fæðis- og
flutningskostnað er metin uppá
4% kauphækkun en slíkar
greiðslur eru fyrir í samningum
margra iðnaðarmannafélaga.
Svavar Gestsson gagnrýndi
harðlega málsmeðferð landbún-
aðarráðherra stjórnarflokkanna
á þessu máli. Krafðist hann þess
að ráðherrar kæmu strax á samn-
ingaviðræðum deiluaðila. Lítið
bæri í milli og það væri óvirðing
við Alþingi að nota það sem
sjálfsafgreiðslustofnun í slíkum
stórmálum sem þessum. Vísaði
Svavar jafnframt greinargerð
frumvarpsins frá sem markleysu
þar sem bornar væru á borð rang-
ar fullyrðingar um stöðu mála.
Jafnframt upplýsti Svavar að
Mjólkursamsalan hefði hótað að
hækka mjólkurlítrann um 5 aura
ef krafa mjólkurfræðinga yrði
samþykkt. Sagði hann að Mjólk-
ursamsalan og milliliðir landbún-
aðarins væru vel borgunarmenn
fyrir þeim 5 aurum. - lg.
Skálað í mjólk fyrir utan þinghúsið í þann mund sem ráðherra mælti fyrir Mjólkurfræðingafélagsins, Héðinn Þorsteinsson og Kristján Larsen. Ljósm
kjaradómslögunum í gær: Guðmundur Sigurgeirsson, Geir Jónsson formaður E.ÓI.
Vetrarvertíð
Loðnuveiðar
Misskilningur
Þetta er óskiljanlegt
Börkur NK fékk meira verðfyrir 1200 lestir afloðnu í Danmörku en
fengist hefði fyrirmjöl og lýsi úrfarminum unnum hérálandi. Enginn
virðist kunna skýringu á þessu máli
Þorskganga
í Faxaflóa
í síðustu viku var mjög góð
veiði hjá bátum I Faxaflóa og er
Ijóst að þorskganga er komin í
flóann. Trillur frá Akranesi voru
með 2-9 tonn í róðri í síðustu viku
en nú er páskastoppið hafið hjá
þeim og mega þær ekki leggja aft-
ur fyrr en eftir páskahelgina.
Stærri bátar frá Akranesi voru
með þetta 20-40 lestir af tveggja
nátta flski fyrir helgi. í dag hefst
svo páskastoppið hjá öllum stærri
vertíðarbátum.
Enn er mokveiði í Breiðafirði
og eins útaf Jökli en þangað hafa
stærri bátarnir frá Akranesi róið
að undanförnu. Ástæðan fyrir
þessari þorskgöngu í Faxaflóann
er að þangað hefur gengið loðna
og þorskurinn því að elta æti.
- S.dór.
Loðnuskipið Börkur NK sigldi
fyrir nokkru með 1200 lestir af
loðnu til Danmerkur og seldi þar.
Loðnan hafði 7% fltumagn og
16% þurrefni. I Danmörku fcng-
ust 64 aurar danskir fyrir kílóið
og að auki 4 aurar sém áhöfnin
fékk á kíló fyrir að landa aflan-
um. Það fengust sem sé 3,8 milj-
ónir íslenskar fyrir þessi 1200
tonn. Ef þeim hefði verið landað
hér heima og lýsi og mjöl unnið í
verksmiðju hefðu fengist 3,4 milj-
ónir króna fyrir afurðirnar full-
unnar.
Úr farminum hefðu fengist 84
tonn af lýsi og 192 tonn af mjöli.
Eðli málsins samkvæmt ætti verð-
mætaaukning að eiga sér stað
með því að fullvinna hráefnið, en
Danir geta greitt hærra verð fyrir
hráefni en við fáum fyrir vöruna
fullunna.
Guðmundur Bjarnason hjá
Síldarvinnslunni í Neskaupstað
sagði í samtali við Þjóðviljann að
hann kynni enga skýringu á þessu
máli, hér töluðu bara stað-
reyndir. Jón Reynir forstjóri
Síldarverksmiðja ríkisins sagðist
aðspurður ekki hafa fulla skýr-
ingu á málinu. Hann benti þó á
atriði sem skipta máli, svo sem
betri nýtingu hjá Dönum, verks-
miðjan starfar allt árið. Spyrja
mætti hvort Danir hefðu neyðst
til að tapa á þessum farmi til að
fylla uppí sölusamning, sem þeir
yrðu að standa við. Þá sagði hann
það staðreynd að dýrara væri að
reka loðnubræðslur hér á landi en
í Danmörku. Samt er þetta ekki
skýringin á þessum mikla mun.
Loks má svo benda á að Danir
greiða mun hærri vinnulaun en
greidd eru hér á landi. Þeir
sekkja mjölið sem er dýrara en að
hafa það laust eins og hér, en þeir
selja mjöl á sömu mörkuðum og
við íslendingar.
- S.dór.
Ríkur í
gröfinni?
Bonn — Grafarar sem fyrir mis-
skilning grófu einfættan betl-
ara í kistu milljónamærings
meðan sá ríki lá á viöhafnar-
börum ætla nú að höfða mál til
að ná inn fyrir kostnaði og
koma sökinni á einhvern ann-
an.
Vandræðalegir útfararstjórar
segja sér til málsbóta að kærulaus
hjúkrunarkona á háskólasjúkra-
húsinu í Bonn hafi látið lík flæk-
ingsins í hendur greftrunarmanna
sem komu á sjúkrahúsið til að
sækja milljónamæringinn. Bless-
aður ölmusumaðurinn lá síðan
grafinn í viku í gröf ríka manns-
ins. Þá áttaði starfsfólk sjúkra-
hússins sig á mistökunum og ríka
ekkjan krafðist leiðréttingar, og
5.000 marka.
IH/Reuter