Þjóðviljinn - 29.04.1986, Page 3
FRÉTTIR
Bankarnir
„Blóðtaka“ fyrír minni banka
Gengiðfrá850milljónkrónalánitilríkissjóðsílokvikunnar. Bankarnir lána ríkissjóði um 50% af
bindingu innlánsaukningar á árinu. Stefán Gunnarsson, Alþýðubankanum: Kemur verst út
hjá minni bönkum. Valur Valsson, Iðnaðarbankanum: Kemur niður á þjónustu bankanna
Búist er við að viðræðum þeim
sem Seðlabanki íslands, fyrir
hönd ríkissjóðs, hefur átt við
banka og sparisjóði um að þeir
kaupi skuldabréf af ríkissjóði
fyrir 850 milljónir króna, Ijúki nú
í vikunni.
í kjarasamningunum í vetur
var sett það skilyrði að ríkissjóð-
ur fjármagnaði kostnaðinn af
samningunum með lánum af inn-
lendum markaði, annars vegar
frá lífeyrissjóðunum og hinsvegar
frá innlendum lánastofnunum.
Að sögn Stefáns Gunnars-
sonar, bankastjóra Alþýðubank-
ans, mun Alþýðubankinn þurfa
að lána ríkissjóði um 40 milljónir
króna vegna þessa en auk þess er
bankanum gert að kaupa fyrir
4% af innlánsaukningu sl. árs og
sagði Stefán að það væru um 20
milljónir króna. Ofan á þetta
bætist svo 18% almenn bindi-
skylda bankanna.
„Allt í allt gerir þetta um 50%
bindingu miðað við spádóma um
innlánsaukningu á árinu og slíkt
hlýtur að vera mikil blóðtaka
fyrir-bankana og koma niður á
annarri útlánastarfsemi þeirra,
bæði til fyrirtækja og einstakl-
inga. Það er því fyrirsjáanlegt að
samdráttur veröi í framkvæmd-
um hjá fyrirtækjum."
Stefán sagði að þessi blóðtaka
kæmi verr niður á minni bönkum
og sparisjóðum, því samfara sam-
drætti í útlánastarfsemi má alltaf
búast við samdrætti í innlána-
aukningu.
Skuldabréf þau sem hér um
ræðir eru til fimm ára og er talað
um að þau verði verðtryggð auk
7% vaxta, sem bönkunum þykja
lágir vextir þar sem ríkissjóður er
samtímis að selja skuldabréf með
9% vöxtum.
Valur Valsson, bankastjóri
Iðnaðarbankans, sagði við Þjóð-
viljann, að þær lánsþarfir sem
ríkið hefur í ár, hljóti að þrengja
mjög um á almennum lánamark-
aði, en enn væri of snemmt að
segja hvar þetta kæmi verst
niður. Sagði hann að bankamenn
hefðu gert sér grein fyrir þessu
strax eftir að samningarnir voru
undirritaðir og því hefði þetta
ekki komið þeim á óvart.
„t>að er öllum ljóst að hér er
um mjög stórar fjárhæðir að ræða
sem eru mikill hluti innlánsaukn-
ingarinnar og auðvitað mun það
þrengja töluvert þá þjónustu sem
bankarnir geta veitt öðrum,"
sagði Valur einnig.
—Sáf
Fiskimjölsverð
Prestskosningar
Eldþurrkun úrelt
Fyrir loftþurrkað mjölfrá Krossanesverksmiðjunni
fœst 10% hœrra verð enfyrir eldþurrkað. Aðeins loft-
eða gufuþurrkað mjöl notað til loðdýra- ogfiskirœkt-
ar. Mjögdýrtað breyta verksmiðjum úr eldþurrkun
yfir í loft- eða gufuþurrkun
Frétt Þjóðviljans á dögunum
um að loðnuveiðiskipið
Börkur NK hefði fengið hærra
verð fyrir loðnufarm í Danmörku
en fengist hefði fyrir mjöl og lýsi
unnið úr farminum hér heima,
hefur að vonum vakið mikla at-
hygli og umtal. Hvað vcldur
þessu? spyrja menn. Einn aðili
hafði samband við Þjóðviljann og
benti á að allt fiskimjöl hér á landi
væri eldþurrkað og þótt það lé-
legasta mjölið og lægst verð feng-
ist fyrir það. Eldþurrkað mjöl er
ekki notað til fískeldis eða til loð-
dýrafóðrunar, heldur gufu- eða
loftþurrkað mjöl.
Aðeins ein verksmiðja hér á
landi er ekki með eldþurrkun en
það er Krossanesverksmiðjan.
Hún hefur fengið allt að 10%
hærra verð fyrir sitt mjöl en
verksmiðjurnar sem nota eldþur-
rkun. Eftir gagngerar breytingar
hefur Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði náð olíueyðslu við eld-
þurrkun niður í 35% af fram-
leiðslukostnaði en algengast er
að verksmiðjurnar séu með olí-
ukostnað um og yfir 50% af fram-
leiðslukostnaði.
Það er samdóma álit manna
sem Þjóðviljinn ræddi við ígærað
kostnaður við að breyta verk-
smiðjunum úr eldþurrkun yfir í
loft- eða gufuþurrkun væri mjög
mikill og á mörkunum að það
borgaði sig fyrir þær, nema að
vinnslan gæti orðið jafnari og
stöðug allt árið. Jón Reynir for-
stjóri SR benti á að menn vissu
aldrei fyrirfram hve mikið hrá-
efni bærist að yfir árið. Loðnu-
veiðar hafa verið frá rúmlega
miljón lestum og niður í ekki
neitt, þegar þær voru bannaðar.
Hitt er ljóst að þetta atriði með
eldþurrkun og gufu eða loft-
þurrkuna skiptir verulega máli
um afkomu verksmiðjanna.
- S.dór
Menning
Vordagar Samtakanna 78
Ikvöld, þriðjudag, hefjast svo-
nefndir Vordagar Samtakanna
’78, félags lesbía og homma á ís-
landi. Vordagar eru fímm talsins
og á þeim er boðið upp á sam-
fellda lista- og menningardagskrá
sem lýkur með dansleik á laugar-
dagskvöldið. Allir dagskrárliðir
fara fram í húsakynnum samtak-
anna í Brautarholti 18,4. hæð, að
frátöldum dansleiknum sem
verður í Risinu, Hverfisgötu 105.
Dagskrá Vordaga verður þannig:
Þriðjudaginn 29. apríl hefjast
Vordagarnir kl. 20.00 með opnun
myndlistarsýningar. Örn Karls-
son sýnir collage- og vatnslita-
myndir frá undanförnum árum
og verða þær til sýnis alla Vor-
dagana. - Síðar um kvöldið verð-
ur sýnd kvikmynd sem einkum
höfðar til kvenþjóðarinnar.
Miðvikudaginn 30. apríl er
opið hús í Brautarholti 18 frá kl.
20.00, en kl. 21.00 hefst fjöl-
breytt listadagskrá. Megas mun
flytja valda kafla úr „Dagbók
Önnu Frík“, píslarsögu í bundnu
máli eftir Böðvar Björnsson.
Lesið verður úr „Villidrengjun-
um“ eftir William Burroughs og
sjálfsævisögu Quentin Crisps,
„Nöktum opinberum embættis-
manni“. Félagar úr Samtökunum
’78 flytja atriði úr leikritinu
„Bent“ eftir Martin Sherman.
Fimmtudaginn 1. maí verður
verkalýðskaffi og róttækar kökur
á boðstólum frá kl. 15.00. Um
fimmleytið verður sýnd kvik-
myndin „Hnefaréttur frelsisins“
eftir Rainer Werner Fassbinder.
Þar segir Fassbinder söguna af
litla manninum sem smám saman
lærist að skilja að í heimi homm-
anna er heldur ekki sama hvort
menn heita Jón eða séra Jón. -
Holl hugvekja í tilefni dagsins.
Föstudaginn 2. maí er opið hús
frá kl. 20.00 en um kl. 21.00 er
flutt samfelld dagskrá um les-
bíska tónlist og texta. Þá verður
bandaríska skáldkonan Alice
Walker kynnt, lesinn kafli úr
frægustu bók hennar, „Purpura-
litnum“ og kvenmenning mun
ríkja fram eftir kvöldi.
Vordögunum lýkur síðan með
gleðskap á almennum dansleik
sem Samtökin ’78 halda í Risinu,
Hverfisgötu 105, laugardaginn 3.
maí, frá kl. 23.00-03.00.
Árekstur í Síðumúla. Rétt fyrir hádegi í gærmorgun varð árekstur fyrir
framan Síðumúla þrettán. Tvær bifreiðir af Volvogerð rákust saman er fólksbif-
reið ætlaði að beygja út af húsagötunni og inn á aðalgötuna en ók þá fyrir
flutningabíl sem kom eftir aðalgötunni. Eins og sést á myndinni hefur fólksbíll-
inn lent inn undir flutningabílinn og framhluti hans skemmst mjög illa. Ekki urðu
nein slys á mönnum.
Guðfræði
nemar
mótmæla
Aðalfundur Félags
guðfrœðinema:
Prestskosningar
eru hneisa. Skorað á
alþingi að leggja þœr af
Félag guðfræðinema í Háskóla
Islands hcfur skorað á alþingi að
beita sér nú þegar fyrir því að
prestskosningar verði lagðar af.
Félagið hnykkir á þessari
áskorun í bréfi sem sent hefur
verið öllum alþingismönnum.
í ályktun sem samþykkt var á
aðalfundi félagsins fyrir skörnmu
segir að fundarmönnum þyki
„hneisa að prestar skuli einir
embættismanna þurfa að ganga í
gegnum tíma- og fjárfrekar kosn-
ingar til að fá stöðu“.
Þessi krafa hefur oft áður kom-
ið upp, þannig hefur kirkjuþing
oft lagt til að þessar kosningar
verði afnumdar. Guðfræðinem-
arnir segja í bréfi sínu til alþingis-
manna að í kjölfar prestskosn-
inga hafi gjár myndast í raðir
presta og safnaða, „og liggur í
augum uppi hversu mjög slíkt fer
í bága við alla viðleitni kristinna
manna til einingar og bræðralags,
og getur hindrað eðlilegan vöxt
og viðgang kirkjulegs starfs.“
Mál þetta fékk ekki umfjöllun
á alþingi nú fyrir þingslit, hvað
svo sem síðar verður.
-gg
HLUTABREF
TIL SÖLU
Hlutabréf í íshúsfélagi ísfiröinga h.f., eru til
sölu. Um er að ræöa hlutabréf í eigu
Togaraútgeröarfélags ísafjaröar h.f., sem
eru að nafnverði kr. 1.272.110.- og teljast
13,5% af heildarhlutafjáreign.
— • —
Tilboð skal sendaTryggva Guðmundssyni
hdl, Hrannargötu 2, ísafirði. S:94-3940, sem
jafnframt veitir nánari upplýsingar ef óskað
er.
Þriðjudagur 29. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3