Þjóðviljinn - 29.04.1986, Blaðsíða 7
aTer út'ihátiöa-
Músiktilraunir 1986
Æðislegt
stuð í
Tónabæ
Stuftift er alveg rosalegt á mannskapnum. (Mynd: Sig).
Þaö var mikil stemning á föstudagskvöldiö síðasta í
Tónabæ en þá var úrslitakvöld Músiktilrauna 1986. Átta
hljómsveitir kepptu til sigurs og var hart barist enda til
mikils aö vinna: þrjár efstu hljómsveitirnar fá stúdíótíma í
verölaun.
Það er Tónabær og Rás tvö, sem standa aö Músíktil-
raunum. Fyrst eru þrjú undanrásakvöld en fjóröa kvöldiö
keppa sigurvegarar undanrása til úrslita. ( þetta sinn var
hlutfall hljómsveita utan af landi nokkuö stórt eins og sést
m.a. á því aö tvær af þremur efstu hljómsveitunum voru
utan af landi.
Sigurvegararnir eru Greifarnir frá Húsavík, næstir
koma Drykkir innbyrðis frá Akureyri og í þriöja sæti er
Voice frá Reykjavík. Þessar hljómsveitir fá stúdíótíma í
Stemmu, Mjöt og Hljóðrita og nú bíðum við bara eftir
plötunum.
Þær er nýbúnar aft mála sól á kinnina á Greifanum Jóhanni Inga Valdimarsyni bassaleikara og augnaráðið er blítt á
báða bóga. (mynd: sig.).
DJðÐVIUINN
Umsjón:
Ingunn
Ásdísardóttir
Þriftjudagur 29. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7