Þjóðviljinn - 29.04.1986, Qupperneq 15
_________AFMÆU________
Tryggvi Gunnarsson
70 ára
Tryggvi Gunnarsson, vélstjóri
í Vestmannaeyjum er 70 ára í dag
þriðjudaginn 29. apríl. Þessi
mikli baráttujaxl okkar Eyja-
manna, fyrir jafnrétti, bræðralagi
og sósíalisma hefur ekki látið
deigan síga í gegnum tíðina, hug-
sjónum sínum um betra mannlíf
til framdráttar.
Sjómennskan hefir mestan
part verið hans starf, það hefur
fylgt þeim manni snyrtimennska
svo af hefur borið. Vélarrúmið í
þeim bát, sem hann hefur verið á
hefur verið sem lýsandi dæmi um
hvernig umgangur á að vera viz
vélar. Menn hefðu getað gengið
þar um í samkvæmisklæðum og
ekki séð bletti á þess vegna.
Um tíma var Tryggvi formaður
Vélstjórafélags Vestmannaeyja
og var þá starf líflegt á þeim bæ.
Um skeið sat Tryggvi í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja fyrir Sósi-
alistaflokkinn, Karl heitinn Guð-
jónsson var þá kominn á þing og
tók Tryggvi sæti hans sem vara-
maður.
Einn er sá bátur, sem mikið
hefir komið við sögu hjá
Tryggva, en það er Erlingur Ve
295, sem keyptur var á strandstað
vorið 1932 af föður Tryggva,
Gunnari heitnum Marel skipa-
smíðameistara sem hér var
þekktur dugnaðarforkur í iðn-
inni.
Eigandi var hann að Erling Ve
295 ásamt föður sínum í yfir 20 ár.
Árið 1976 seldi hann Erling til
sonar síns Gunnars Marels, vél-
stjóra og Stefáns Friðrikssonar,
skipstjóra og hefur þeim vel farn-
ast.SamaárhófT ryggvi störf h j á
hitaveitu Vestmannaeyja og hefir
verið þar síðan. Sér hann um dæl-
ustöðina fyrir okkur Eyjamenn
og sagan endurtekur sig, þar er
allt svo snyrtilegt, sem ljósmynd
úr „Bo bedre“! Mig minnir að frá
1971 sé Tryggvi búinn að vera
skipaskoðunamaður um vélbún-
að skipa.
Kona Tryggva, Ólafía Sigurð-
ardóttir (Lóa), hefur staðið með
manni sínum í hugsjónum morg-
undagsins frá þeirra fyrsta fundi.
Ég og konan mín sendum
Tryggva og Lóu baráttu- og
heillaóskir á þessum hans heið-
ursdegi. Við minnumst margra
skemmtilegra samverustunda hér
og erlendis með þeim hjónum.
Megi Eyjarnar eignast sem
flesta slíka sem Tryggvi er Gunn-
arsson.
Sig. Sig.
frá Vatnsdal.
FRAMBOÐS-
FRESTUR
til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 31.
maí 1986 rennur út þriöjudaginn 6. maí nk.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum
þann dag kl. 15.00 til 16.00 og kl. 23.00 til
24.00 í fundarsal Borgarstjórnar Reykjavíkur
að Skúlatúni 2, 5. hæð.
25. apríl 1986
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur,
Guðmundur Vignir Jósefsson,
Helgi V. Jónsson,
Guðríður Þorsteinsdóttir.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað vantar
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til starfa og
til sumarafleysinga. Góð vinnuaðstaða.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
97-7403.
Munið hina margrómuðu sumarblíðu á
Austfjörðum.
LAUSAR STOÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa við Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur.
Við heimahjúkrun:
Hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga á dag-,
og kvöld- og næturvaktir.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
22400.
Við Heilsugæslustöð
Hlíðasvæðis-Drápuhlíð 14-16:
Læknafulltrúa í 100% starf. Stúdentspróf eða
sambærileg menntun áskilin, ásamt góðri
vélritunar- og íslenskukunnáttu.
2 starfsmenn við símavörslu og móttöku, í 60%
starf hvorn.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu-
gæslustöðva í síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 5. maí.
Auglýsing
frá Úreldingarsjóði
í nýsamþykktum lögum á Alþingi um skiptaverð-
mæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins er
ákveðið að sta'rfsemi Úreldingarsjóðs fiskiskipa
Ijúki 14. maí 1986. Stjórn sjóðsins hefur því
ákveðið að auglýsa eftir umsóknum úr sjóðnum.
Umsóknarfrestur er til 8. maí 1986. Stjórn sjóðs-
ins mun fyrir 14. maí 1986 taka ákvörðun um
styrkveitingar á grundvelli þeirra reglna sem nú
gilda um sjóðinn og þeirra umsókna sem berast
til stjórnar sjóðsins fyrir 8. maí 1986. Það skip
sem hlýtur styrk til úreldingar, skal fyrir 20. júlí
1986, tekið varanlega úr rekstri samkvæmt regl-
um sjóðsins.
Með umsóknum skal fylgja veðbókarvottorð, árs-
reikningur seinasta árs og yfirlit yfir skuldastöðu.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum skal senda Sam-
ábyrgð (slands á fiskiskipum, Lágmúla 9, 108
Reykjavík.
Úreldingarsjóður fiskiskipa.
Umboð I Reykjavík
og nágrennl
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Austurströnd 17
Seltjamamesi
Versl. Meskjör, Ægisíðu 123
Bóka- og ritfangaversl. Úlfarsfell, Hagamel 67
Sjóbúðin v/Grandagarð
AÐALUMBOÐIÐ VESTURVERIAÐALSTRÆTI 6
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Skólavörðustíg 11
Passamyndir, Biðskýlinu Hlemmi
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Hátúni 2A
Bókabúðin liilja, Háaleitisbraut 58—60
Hreyfill, bensínafgreiðslan Pellsmúla24
Versl. PaulHeide, Glæsibæ
Rafvörur, Laugarnesveg 52
Skrifstofa Hrafnistu, Laugarási
Bókabúð Possvogs, Grímsbæ v/Bústaðaveg
Bókabúð Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7
Bókabúð Breiðholts, Amarbakka 2
Versl. Straumnes, Vesturberg 76
KÓPAVOGUR
Blómaskálinn v/Nýbýlaveg
Bókaversl. Veda, Hamraborg 5
Bókaversl. Veda, Engihjalla 4
Borgarbúðin, Hófgerði 30
GARÐABÆR
Bókaversl. Gríma, Garðaflötl6—18
HAFNARFJÖRÐUR
Skrifstofa Hrafnistu v/Skjólvang Hafnarfirði
tiári og Sjómannafélagið Strandgötu 11—13.
,o
>
___HAPPDRÆTTI +\Ó&y)
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna *