Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA Nr. 519 / Z 3 z 7 7 w~ II 1 22 12 // 13 l¥ 15 f 16 )? ¥ ié )4 9 ll7 ¥ 2ö 2) 4 0? 21 23 )l SP zo T z4 25 )4- d T v // 3 >sr )¥ Zt> i/ * T T V 1*7 l 4 22 W 2$ 20 4- 2o V 3 ¥ út' 22 /s' Z7- 92 zt 7~ )1 4 2 30 w~ 10 1 20 4 (p 10 92 4- 9? 3Á "l /3 4 2> J5 i! u 5 Já> 20 4- $ // 3 3/ $ zo T S2 w~ T 9 /sr 'j 'i /s* 22 y 1/ Zd /5 SP 24 20 )!> T T le % Zo y 7 20 /íT /f 22 16> )? )4 2v Xo 20 f f 20 S2 T zi) 20 02 22 bi X4 T 5 92 3 3 22 02 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karl- mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 519“.. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinnings- hafa. 2J /8 22 15 € 15 T Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt. Verðlaun fyrir krossgátu nr. 516 hlýtur Júlíus Stefánsson, Álfatúni 2, 200 Kópavogi, en þau eru smásagnasafnið Það var nú þá, eftir Elías Mar, sem Letur gefur út. Lausnarorðið var Búkarest. Verðlaunin fyrir krossgátu nr. 519 eru barna- og unglinga- sagan Merki samuræjans eftir bandarísku skáldkonuna Katherine Paterson, Nótt gef- ur út. SKAK BRIDGE Sannindi á skákborði ísland - einn riðill Skákþrautir, dæmi og tafllok eru til margra hluta nytsamleg. Snjallir höfund- ar M inja ILstræn verk sem verða hund- ruðum og þúsundum til ánægju. Sumar þrautir hafa mikið fræðslugildi því þar eru allar hugmyndir svo skýrar. í tefldu tafli eru yfirleitt margir menn á borði og það dreifir athyglinni en í skákþraut eru engir menn hafðir með nema þeir sem nauðsynlegir eru. Einn kostur enn er við skákþrautir, að þær eru leysanlegar. Ef hvítur á að vinna þá vinnur hann og ef höfundurinn ætlast til að hvftur haldi jöfnu þá getur hann það, hversu ótrúlegt sem það kann að virðast. f kappskák veit maður aldrei með vissu hvort hægt er að vinna eða halda jöfnu ef því er að skipta fyrr en að skákinni lokinni og þá er eftir að sundurgreina skákina, finna góðu leikina og svo afleikjagrúann. Skákþrautir eru þvf eins konar opinberun sannleikans á taflborðinu. Nú svona í lok kosningabaráttu er ærin ástæða til að leita svölunar í sannindum skákþrautanna. Fullyrðingum stjómmálamanna þarf alltaf að taka með fyrirvara cn höfundum skákþrauta má trúa. Hér er ætlunin að taka til mcðferðar íítið stcf sem skákþrautahöfundar hafa unnið úr aftur og aftur en alltaf á örhtið nýjan hátt. Hér er ein frægasta skákþraut allra tíma. Hún er eftir Réti og hvítur á að halda jöfnu. Svarti kóngurinn stöðvar hvíta c-peðið auðveldlega og hvíti kóngurinn er langt á eftir svarta h-peðinu. Samt gengur dæmið upp því hvíti kóngurinn stefnir í tvær áttir og eina jvó. 1. Kg7-h4 2. Kf6 - Kb6 Eða 2. ... h3 3. Ke7 h2 4. c7 og báðir koma upp drottningu. 3. KeS - Kxc6 4. Kf4 Nú nær hvítur frípeði svarts. Hin leiðin var 3.... h3 4. Kd6 h25. c7og enn heldur hvítur jöfnu. í næsta dæmi hefur svartur ofurefli liðs en samt á hvítur að halda sínu. 1. b6 - Rd6 3. Kf6 - h4 2. Kxg7 - hS 4. KeS Nú hótar hvítur tvcnnu, að drepa riddarann og þá verða peðin jafnfljót upp í borð, eða að ná h-pcðinu (4. ... Rb7 5. Kf4) svo jafnteflið er tryggt. Þessi tafllok eru ekki mjög snúin svona rétt á eftir þraut Rétis. Nýrri sveiflu cr bætt við í næstu tveim tafllokum. Enn á hvítur að halda jafntcfli. 1. Kb7 - aS 2. Kc7 - KcS Annars rennur f-peðið upp og hvítur fær drottningu um lcið og svartur. 3. Kd7 - KdS 4. Ke7 - Ke4 5. Ke6 - Kxf4 6. KdS og hvftur nær peðinu. Svarti kóngurinn vamar þeim hvíta að komast fyrir h-peðið en hvítur beitir a- peðinu fyrir sig: 1. Kc8 - Kc6 4. Kc6 - hS 2. Kb8 - KbS S. KdS 3. Kb7 - Kxa5 Hvítur nær peðinu og jafntefli. Þessi síðasta þraut sýnir vel að skálínur em jafnlangar beinum línum á taflborðinu. Loks er svo dæmi úr tefldri skák. Þar eigast við Lasker og Tarrasch, einn í hópi þeirra frábæm skákmeistara sem aldrei auðnaðist að vinna heimsmeistaratitilinn þótt þcir hefðu alla burði til þess. Lasker hafði hvítt og virtist í vanda en bjargaði sér með leikbragði, líku og í síðustu tveim dæmum. Svartur hótar að rcnna pcðunum drott- ningarmegin upp og kóngurinn nær h- peðinu auðveldlega, jafnframt því að loka Íeið hvíta kóngsins fram á borðið. 1. h4 - Kg5 Hvað nú? 2. h5 Kxh5 3. Kf6 c4 4. bxc4 bxc4 5. Ke5 c3 6. bxc3 a4 7. Kd4 a3 og nú er c-peðið í vegi kóngsins. Svartur vinnur. En hvíti kóngurinn kemst á aðra skálínu með fyrmefndu leikbragði. 2. Kg6! - Kxh4 Annars kemst peðið í vald kóngsins. Nú dugar svarti ekki taflmátinn sem bent var á eftir 1. leik því peðið sem kæmi á c3 væri ekki í vegi hvíta kóngsins. Lokin urðu: 3. Kf5 - Kg3 5. KdS - Ke3 4. Ke4 - KÍ2 6. KxcS - Kd3 og kóngamir standa að lokum berir. Bridgesambandið hefur í hyggju að hrinda af stað landstvímenning í október i haust. Hugmyndina eiga þeir Asgeir P. As- björnsson og Vigfús Pálsson tölvumenn og munu þeir koma til með að undirbúa fram- kvæmdina i samráði við BSÍ. Meiningin er að öll félög á landinu, sem nú eru 47 talsins taki þátt í þessum landství- menning og spiluð verða 26-33 spil. Það „dekkar" frá 8-16 pör í riðlum (yfirseta skiptir ekki máli), þannig að öll félög geta verið með. Síðan verða spil númer 1-26 reiknuð út á landsvísu, en spil númer 27-33 á félagsvísu (fyrir þá sem spila þau númer á landinu). Þannig munu öll bridgefélögin spila sömu spilin sem ein hcild og tölvurnar sjá um útreikninginn, sem mun liggja mjög fljótlcga fyrir, eftir að síðasti riðillinn á landinu kæmi inn til útreiknings. Umsjónar- og trúnaðarmaður Bridge- sambandsins yrði Ólafur Lárusson, en hvert félag yrði að skipa trúnaðarmenn til að fyrirfram gefa spilin á hverjum stað. Allt þetta krefst að sjálfsögðu undirbúnings, sem stefnt verður að í september í haust. ÖIl keppnisgjöld í þessu móti munu renna í Guðmundarsjóðinn, húsbyggingar- sjóð Bridgesambands íslands. Nánar síðar. Sumarbridge 1986 að Borgartúni 18, á þriðjudögum og fimmtudögum, hefur farið vel af stað. Fyrstu vikuna mættu yfir 70 pör til leiks og þessa viku yfir 80 pör. Þriðjudaginn 27. maí var spilað í þremur riðlum og urðu úrslit þessi (efstu pör): A) Stig Anton Haraldsson - Úlfar Kristinsson 198 Gunnar Þórðarson - Sigfús Þórðarson 176 Esther Jakobsdóttir - Valgerður Kristjónsdóttir 173 Guðlaugur Sveinsson - Magnús Sverrisson 170 Guðmundur Aronsson - Jóhann Jóelsson 165 B) Jóhann Jónsson - Kristinn Sölvason 130 Einar Jónsson - Hjálmtýr Baldursson 130 Anna Sverrisdóttir - Karl Logason 128 Árni K. Bjarnason - ísak Örn Sigurðsson 123 C) Lárus Hermannsson - Sveinn Sigurgcirsson 98 Jaquie McGreal - Björn Theodórsson 96 Albert Þorsteinsson - Sigurður Emilsson 90 Þeir Gunnar Þórðarson og Sigfús Þórð- arson eru efstir í þriðjudagsspilamennsk- unni, mcð 34 stig hvor en næst eru þau hjónakorn Kristín Guðbjörnsdóttir og Björn Arnórsson með 32 stig. Á fimmtudeginum 29, maí, var spilað í 4 riðlumog urðu úrslit sem hér segir (efstu pör): A) Stig Guðmundur Kr. Sigurðsson - Erlendur Björgvinsson 246 Lárus Hermannsson - Sveinn Sigurgeirsson 240 Ásthildur Sigurgísladóttir - Lárus Arnórsson 231 Eyjólfur Magnússon - Steingrímur Þórisson 230 Murat Serdar - Þorbergur Ólafsson 230 B) Anton R. Gunnarsson - Friðjón Þórhallsson 194 Magnús Ólafsson - Páll Vaidimarsson 179 Asgeir P. Ásbjörnsson - Friðþjófur Einarsson 179 Sybil Kristinsdóttir - Matthías Þorvaldsson 160 Jón Þorvarðarson - Jörundur Þórðarson 160 C) Magnús Halldórsson - Sveinn Þorvaldsson 131 Hulda Hjálmarsdóttir - Þórarinn Andrewsson 125 Böðvar Magnússon - Rúnar Magnússon 124 Hjáimtýr Baldursson - Einar Jónsson 116 Jóhann Jónsson - Kristinn Sölvason 116 ÓLAFUR LÁRUSSON D) Helgi Ingvarsson - Gissur Ingólfsson 130 Magnús Aspelund - Steingrímur Jónasson 122 Erlendur Jónasson - Gunnar Jónsson 121 Dóra Friðleifsdóttir - Guðjón Ottósson 110 Og efstu spilarar í fimmtudagsspila- mennskunni eru: Anton R. Gunnarsson 38 stig, Magnús Aspelund og Stcingrímur Jónasson 36 stig hvor og fjöldi með 32 stig. Einsog áður hefur komið fram, ráða bronsstig alfarið röð efstu spilara að þessu sinni. Framvegis vcrður húsið opnað kl. 18.30 (hálfsjö) á þriðjudögum en kl. 18 (sex) á fimmtudögum. Um lcið og hver riðill fyllist (þ.e. þeir tveir fyrstu hvcrju sinni) hefst spilamennska. Sumarbridgc í Reykjavík 1986 er opinn öllu bridgeáhugafólki. Hvert spilakvöld er sjálfstæð keppni, þannig að tilvalið tæki- færi gcfst fyrir bridgespilara að reyna nýjan spilafélaga. Fyrir þá sem aldrei hafa áður spilað keppnisbridge er upplagt að þreifa fyrir sér í Sumarbridge. Þar eru meistarar jafnt sem byrjendur, á öllum aldri, af báð- um kynjum. Umsjónarmenn eru Ólafur og Hermann Lárussynir. 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júní 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.