Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 12
Laus staða Laus er til umsóknar staöa lektors í hjúkrunar- fræði við námsbraut í hjúkrunarfræði í læknadeild Háskóla íslands. Aðalkennslugrein er hjúkrun sjúklinga á handlækninga- og lyflækningadeildum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísinda- störf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6, 105 Reykjavík, fyrir 1. júlí 1986 Menntamálaráðuneytið 30. maí 1986 Neskaupstaður Fóstrur Fóstru vantar að dagheimilinu Sólvöllum Nes- kaupstað frá 18. ágúst n.k. Nánari uppl. gefur forstöðumaður Steinunn Steinþórsdóttir í síma 97-7485 eða 97-7721. Félagsmálaráð snn ^fin k JP Ba im.,,. nylnnH 1 ril Itm GULLKORN 325 g r ^ LENI ELDHÚSRÚLLUR 4 rl. W.C. PAPPÍR 8 rl. FRÖNSK tá GULEPLI ctjohnson , 300 ml uiax HANDSAPUKREM ÞVOTTADUF 600 t Parsfl g ^HAFRAKEX ^ m/hnetubítum 170 g HOLTABÓT 6 pk. KARTÖFLUS með papríku með saíti og pipai venjulegar KRÚFUR f 70g [ ...vöruverÓ í lágmarki Barnafólk Stjórnmála- menn eru frjósamir Víða í Evrópu hafa stjórnvöld áhyggjur af dalandi frjósemi þegna sinna. I Noregi ganga þing- menn á undan með góðu fordæmi hvað frjósemi snertir. Þeir eru að meðaltaii meira barnafólk en norðmenn yfirleitt. Meðalbarnafjöldi í norskri fjölskyldu er nú 1,66 börn. Norskir þingmenn eiga hins veg- ar að meðaltali 2,53 börn og samt eru 13 barnlausir. Viðskiptaráðherrann í fráfarandi stjórn borgaraflokkanna, As- björn Haugstvedt, og þingforset- inn, Thor Knudsen, eru mestir barnamenn, eiga sex börn hver. Sex þingmenn eiga fimm börn og 26 fjögur börn. Af þingflokkun- um eru kristilegir frjósamastir, meðalbarnafjöldinn í þingflokki Kristilega þjóðarflokksins er 3,3 börn. Og af því við erum að segja frá barnafjölda stjórnmálamanna datt okkur í hug að rýna í fram- boðslista Kvennalistans og íhaldsins þar sem getið er um barnafjölda frambjóðenda. í ljós kemur að íhaldsmenn eru meira barnafólk en kvennalistakonurn- ar. Samanlagður barnafjöldi 30 íhaldsframbjóðenda er 89 en hjá Kvennalistanum eiga frambjóð- endur samanlagt 83 börn. Kvennalistinn átti þó barnflesta frambjóðandann, Laufey „ömmu“ í Grjótaþorpi sem hefur sett átta börn í heiminn. Báðir listarnir eru þó töluvert yfir með- albarnafjölda hjá þjóðinni og séu þessi listar dæmigerðir fyrir ís- lenska stjórnmálamenn eru þeir töluvert frjósamari en norskir kollegar þeirra. Það munar tæp- lega hálfu barni. —ÞH Furður Heilinn er eins og bókasafn Mannsheilinn kemur vísinda- mönnum æ meir á óvart eftir því sem þeir rannsaka hann betur. Nú hafa bandarískir vísindamenn uppgötvað að minnisbanki heil- ans en mun nákvæmar skipu- lagður en þeir höfðu gert sér í hugarlund. 34 ára bandaríkjamaður fékk blóðtappa og þegar hann hafði jafnað sig eftir hann var allt með felldu utan það að hann gat ómögulega munað heitin á hinum ýmsu tegundum grænmetis og ávaxta. Vísindamenn fengu áhuga á málinu og þaulprófuðu hæfileika og þekkingu mannsins. Niðurstaða þeirra var sú að minnisbanki heilans er eins og skipulagður af nákvæmasta bókasafnsfræðingi. Verði hann fyrir áfalli geta dottið út nöfn á mjög afmörkuðum þáttum, td. fiskum, grænmeti og ávöxtum, bflum eða ljósmyndavélum, án þess að aðrir hlutar verði fyrir skemmdum. Út frá rannsóknum á mannin- um komust vísindamennirnir einnig að þeirri niðurstöðu að heiti hlutanna eru ekki geymd á sama stað í minnisbankanum og upplýsingar um eiginleika og notagildi þeirra. —ÞH/Illustreret Videnskab 12- SÍÐA —ÞJÓÐVILJINN-------- IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Innritun fyrir skólaárið 1986-1987 Innritun fer fram dagana 2.-5. júní, aö báðum dögum meðtöldum. Innritað verður í eftirtalið nám: 1. Samningsbundið iðnnám. 2. Grunndeild málmiðna. 3. Grunndeild tréiðna. 4. Grunndeild rafiðna. 5. Grunndeild háriðna. 6. Grunndeild fataiðna. 7. Grunndeild bókiðna. 8. Framhaldsdeild í vélvirkjun og rennismíði. 9. Framhaldsdeild írafvirkjun og rafvélavirkjun. 10. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun. 11. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun. 12. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði. 13. Framhaldsdeild í húsasmíði. 14. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði. 15. Framhaldsdeild í hárgreiðslu. 16. Framhaldsdeild í hárskurði. 17. Framhaldsdeild í bókiðnum. 18. Fornám. 19. Almennt nám. 20. Tækniteiknun. 21. Meistaranám. 22. Rafsuðu. 23. Tölvubraut. 24. Tæknifræðibraut. 25. Öldungadeild í bókagerðargreinum. 26. Öldungadeild í grunnnámi rafiðna og raf- eindavirkjun. Innritun fer fram í Iðnskólanum frá kl. 10.00- 18.00 alla innritunardagana og í Miðbæjarskól- anum 2. og 3. júní. Iðnskólinn í Reykjavík. m Áhugasamir kennarar! Ef þið eruð að leita ykkur að skemmtilegum vinnufélögum og áhugaverðum skóla þá ættuð þið að leita upplýsinga hjá okkur um Grunnskól- ann á ísafirði. Við þurfum kennara í almenna bekkjarkennslu, myndmennt, smíðar, tónmennt, heimilisfræði, tungumál, raungreinar og í sérkennslu. Enn fremur viljum við ráða skólasafnvörð. Flutningur til ísafjarðar verður ykkur að kostnað- arlausu og að sjálfsögðu fáið þið íbúð fyrir sann- gjarna leigu. Allar nánari upplýsingar gefur Jón Baldvin Hannesson skólastjóri í símum 94-3044 (vs.) og 94-4294 (hs.). Útboð Hveragerðishreppur óskar eftir tilboðum í klæð- ingu gatna í Hveragerði. Helstu magntölur: Jöfnunarlag 575 m3. Tvöföld klæðing 11.000 m2 Útboðsgögn eru afhent hjá Verkfræðiskrifstof- unni Fjarhitun hf., Borgartúni 17, Reykjavík eða á skrifstofu Hveragerðishrepps gegn kr. 5.000.- skilatryggingu, eftir kl. 13 á mánudaginn 2. júní nk. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Hveragerð- ishrepps fyrir kl. 11, þriðjudaginn 10. júní 1986. Rannsóknastyrkur Menntastofnun íslands og Bandaríkjanna (Ful- brightstofnunin) vill bjóða íslenskum fræðimanni styrk (u.þ.b. kr. 200.000) til að stunda rannsóknir í Bandaríkjunum 1987-1988. Umsóknir ásamt staðfestingu á rannsóknarað- stöðu við mennta- eða rannsóknarstofnun í Bandaríkjunum, skulu berast stofnuninni fyrir 3. október nk. _____________> ...'iá '■ “>y______

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.