Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 17
________LEIÐARASÍÐA_________ Þjóðminja- safnið gjaldþrota Þjóðminjasafnið er svelt fjárhagslega og getur því ekki sinnt þeirri rannsóknarstarfsemi sem því ber. GuðmundurÓlafsson, forstöðumaður fornleifadeildar: Þjóðminjasafnið er gjaldþrota stofnun með miljóna skuldahala. Þór Magnússon þjóðminjavörður: Peningar liggja ekki á lausu er menningarstarfsemi er annars vegar Um þessar mundir er vertíð fornleifafræðinganna að hefjast. í sumar verður reku stungið í jörð á nokkrum stöðum og minjar um fortíð þjóðarinnar grafnar upp. Fyrsta skóflustunga þessa sumars var tekin í Kópavogi sl. fimmtudag en þar er verið að grafa í hól nokkurn sem gæti ver- ið upphaflegt bæjarstæði Digra- nesbæjar. Uppgröfturinn í Kópavogi er kostaður af bæjarsjóði Kópavogs en það hefur færst töluvert í vöxt að sveitarfélög standi fyrir forn- leifarannsóknum innan sinna bæjarmarka. Er það vissulega ánægjuleg þróun að sveitarfélög og jafnvel frjáls félagasamtök taki þátt í að fjármagna rannsókn á fortíðinni, en fyrst og fremst hlýtur það að vera hlutverk ríkis- sjóðs að sjá til þess að svo sé búið um hnútana að vísindaleg stofn- un einsog Þjóðminjasafnið geti sjálft ákvarðað hvaða verkefni eru brýnust og kostað rannsóknir á þeim. Reyndin er hinsvegar sú að Þjóðminjasafninu er skorinn svo þröngur stakkur peningalega að fjárveiting til þess nægir varla til daglegs reksturs safnsins, hvað þá að það hafi eitthvað aflögu til að veita í rannsóknir. „Þjóðminjasafnið er gjaldþrota stofnun og hefur verið það um árabil,“ sagði Guðmundur Ólafs- son, fornleifafræðingur og for- stöðumaður fornleifadeildar safnsins við blaðamann Þjóðvilj- ans. „Safnið er með miljóna skuldahala sem það hefur verið að dragast með ár frá ári og allar fjárveitingar til Þjóðminja- safnsins fara í daglegan rekstur, launakostnað, símareikninga, rafmagnsreikninga og viðhalds- kostnað, þannig að ekkert er eftir til rannsókna." Sagði Guðmundur að stjórnmálamenn sýndu starfsemi Þjóðminjasafnsins algjört skiln- ingsleysi. „Mennirnir vita ein- faldlega ekki hvað safn er og hafa afar takmarkaðan skilning á þeirri starfsemi sem hér fer fram. Þeir virðast líta á Þjóðminjasafn sem einhverja geymslustofnun fyrir eitthvert gamalt drasl.“ Fœreyingar og Grœnlendingar okkur fremri Við Þjóðminjasafnið starfa alls 17 manns og eru þá taldir með húsvörður, ræstingafólk og aðrir sem sinna ekki vísindastörfum. Fagfólk við safnið er innan við 10 Sú stofnun sem þetta hús hýsir er í algjöru fjársvelti hjá hinu opinbera. Aðbúnaður að þjóðminjasöfnum í Færeyjum og á Grænlandi er betri en hér á islandi. manns. Að sögn Guðmundar er þetta minna starfslið en á þjóð- minjasöfnum Færeyinga og Grænlendinga. „Þetta er algjört hneyksli. Ég er t.d. eini fasti starfsmaður forn- leifadeildarinnar en allir aðrir sem koma nálægt fornleifarann- sóknum eru lausráðnir yfir sumarið. Starfsmenn deildarinn- ar þyrftu einfaldlega að vera fimm sinnum fleiri til að hér væri viðunandi ástand og hægt væri að sinna brýnustu verkefnum.“ Mannfæðin á Þjóðminjasafn- inu gerir það að verkum að starfs- fólkið er stöðugt að sinna neyðartilfellum sem koma upp, einsog í Kópavogi, þarsem átti að fara að leggja veg beint í gegnum friðlýstar minjar, og er þá lítill sem enginn tími aflögu til að sinna rannsóknarstörfum. „Meginmeinsemd safnsins er mannfæðin. Sumrin eru notuð til að grafa og ef eðlilegur háttur væri hafður á þessu ætti hér að vera starfsfólk yfir veturinn til að rannsaka það sem grafið var upp um sumarið. En það starfsfólk sem er hér hefur ekkert næði til þess þar sem það er stöðugt að sinna ýmsum öðrum nauðsynja- verkefnum. Þeir uppgreftir sem verða á vegum Þjóðminjasafnsins í sum- ar eru fjármagnaðir af utanað- komandi aðilum. Sem dæmi má nefna að í sumar verður haldið áfram uppgreftrinum á Stóru- Borg, en hann hefur verið kost- aður af Þjóðhátíðarsjóði. Þá fer af stað uppgröftur á Þingvöllum seinna í sumar og verður grafið í búðir fornmanna og á Lögbergi. Þar var síðast grafið fyrir rúmum 100 árum af Sigurði Vigfússyni, fornleifafræðingi. Það er Þing- vallanefnd, sem kostar þann upp- gröft. „Ef Þjóðhátíðarsjóður hefði ekki komið til hefði enginn upp- gröftur verið á undanförnum árum. Þá hefur einnig vaknað áhugi hjá ýmsum sveitarfélögum um rannsóknir á gömlum minjum og ekki veitir af að utanaðkom- andi aðilar leggi þessu lið. Frjáls félagasamtök hafa einnig stutt fornleifarannsóknir fjárhagslega, t.d. átti Lionshreyfingin í Vestmannaeyjum stóran þátt í uppgreftrinum í Herjólfsdal." Guðmundur hefur mikinn áhuga á að félög kosti merkingu á friðlýstum minjum en mjög sjald- gæft er að minjar séu merktar hér en algengt í nágrannalöndum okkar. Slíkar merkingar geta komið í veg fyrir slys á borð við það sem hafði næstum gerst í Kópavogi. „Albrýnasta verkefni safnsins núna er að standa að fornleifa- skráningu, svo það sé á hreinu hvar áhugaverðar minjar eru og kortleggja þau svæði. En í stuttu máli sagt þá ríkir algjört neyðar- ástand í þessum málum. Ástand- ið hjá Þjóðminjasafninu er svip- að og ef ætti að reka Þjóðleikhús með tveim leikurum,“ sagði Guðmundur að lokum. Menningin útundan Þór Magnússon, þjóðminja- vörður, sagði að stjórnmála- mennirnir hefðu alltaf góð orð um Þjóðminjasafnið er málefni þess bæri á góma, en hinsvegar væri reyndin sú að peningarnir liggja ekki á lausu, einkum þegar menningarstarfsemi er annars vegar. Að sögn Þórs hafa fastir rekstr- arliðir safnsins gengið mjög á rannsóknarféð en rekstrar- kostnaðurinn hefur aukist und- anfarin ár en fjárveiting verið mjög rýr til safnsins á undan- förnum árum. Það sem hefur gert mögulegt að stunda vísindarannsóknir á vegum safnsins er annars vegar að safnið fær fjórðung af vaxta- tekjum Þjóðhátíðarsjóðs til rannsókna og hinsvegar að sveitarfélög hafa sýnt fornleifa- rannsóknum aukin skilning á undanförnum árum. Að lokum sagði Þór að hann vonaðist til þess að menntamála- ráðherra sýndi starfsemi safnsins aukinn skilning í framtíðinni. —Sáf LEIÐARI Menningararfurinn i hœttu Þaö hefur veriö sagt um nágranna okkar á hinum Norðurlöndunum aö þeir líti á ísland sem einskonar þjóðminjasafn hinnar fornu norrænu menningar. Hér hafa tengslin viö sameigin- legan menningararf okkar varöveist sem sést best á því aö íslensk tunga stendur næst þeirri tungu er töluð var í Skandinavíu á víkingatím- um. Hér voru sögurnar ritaðar, varðveittar og lesnar þjóðinni til dægrastyttingar og lærdóms á erfiðum tímum og enn þann dag í dag eru þess- ar sögur lifandi með þjóðinni þrátt fyrir það flæði skemmti- og upplýsingaefnis sem hellist yfir okkur daglega úr hjnum ýmsu fjölmiðlum. Þessi skoðun frændfólks okkar fer í taugarnar á mörgum, einnig þeim, sem eru stoltir af menn- ingararfi þjóðarinnar og gera sér grein fyrir mikilvægi (Dess að sú menning sé varðveitt og haldið við, því arfleifðin er jarðvegur nýrra vaxt- arsprota. Þrátt fyrir að enginn mótmæli mikil- vægi arfleifðarinnar virðist ríkja lítill skilningur meðal ráðamanna að sýna henni næga virð- ingu og skilning. Hún er góð til síns brúks á hátíðlegum stundum en að veita fjármagni til að hægt sé að stunda rannsóknir á menningararf- inum á ekki upp á pallborðið hjá ráðamönnum. Þjóðminjasafnið er gjaldþrota, segir forstöðu- maður fornleifadeildar Þjóðminjasafnsins í frétt- askýringu hér í blaðinu. Mannahald safnsins er minna en á sambærilegum söfnum nágranna okkar í Færeyjum og á Grænlandi. Fjárveiting til safnsins er skorin svo við nögl að rétt nægir til að halda daglegum rekstri í horfinu. Fjársveltið er slíkt að allar rannsóknir verða að sitja á hak- anum. Og þjóðminjavörður lýsir því yfir, að þrátt fyrir góð orð stjórnmálamanna þegar Þjóðminja- safnið er annarsvegar, er reyndin sú að pening- ar liggja ekki á lausu fyrir menninguna. Það sem hefur bjargað málum fyrir horn und- anfarin ár, er að áhugi hefur vaknað hjá sveitarfélögum og félgasamtökum um að styðja við rannsóknir. Þá hefur Þjóðminjasafnið fengið árlega örugga fjárveitingu úr Þjóðhátíðarsjóði, sem hefur gert kleift að hægt var að rannsaka minjarvið Stóru-Borg áðuren hafið gleypti þær. Undanfarin ár hefur átt sér stað viss endur- reisn okkar menningararfs. Ný og fersk útgáfa íslendingasagnanna á nútímastafsetningu, þar sem sögurnar eru gerðar aðgengilegar og upp- iýsingamiðlun fjölmiðlaheimsins er notuð til að rækta upp áhuga sem er til staðar, er til marks um það. Áhugi á rótum menningar okkar og sögu er engan veginn einskorðaður við örfáa sérvitringa og sérfræðinga. Rótlaust líf nútíma- mannsins fullnægir ekki tilvist hans. Við viljum vita úr hvaða jarðvegi við erum sprottin. , Ahugi kviknar ekki af sjálfu sér en áhuga er hægt að vekja einsog íslendingasagnaútgáfan er gott dæmi um. Allt sem þarf er vilji, vilji til að sýna það í verki að við berum virðingu fyrir forfeðrum okkar og lífsbaráttu þeirra og til að draga fram í dagsljósið þau ummerki tilveru þessa fólks sem jarðvegurinn hefur varðveitt í aldir. Það er hneyksli að neyðarástand skuli ríkja hjá þeirri stofnun sem gegnir því hlutverki að rannsaka og varðveita fortíð okkar. Það er neyðarlegt að hugsa til þess að Færeyingar og Grænlendingar skuli sjá sér fært að veita meira fjármagni til sambærilegra stofnana hjá sér en við hér. Við erum stolt af þeim afrekum sem forfeður okkar unnu, af því afreki þjóðarinnar að þrauka af harðindi og náttúruhamfarir við bág kjör í aldaraðir. Þessi þjóð má ekki láta það spyrjast um sig að á slíkum uppgangstímum sem nú ríkja, þá sjáum við okkur ekki fært að hlúa að arfinum sem okkur hefur verið treyst fyrir. Það eru gömul sannindi og síung að þjóð án menningar og sögu er engin þjóð og því tími til kominn að stjórnmálamennirnir vakni upp af dásvefninum og grípi til neyðarráðstöfunar því það ríkir neyðarástand í þessum efnum. —Sáf Sunnudagur 1. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.