Þjóðviljinn - 03.06.1986, Page 2

Þjóðviljinn - 03.06.1986, Page 2
Alþýðubandalag . Fyrirheit um tímamót Svavar Gestsson: Tími til að annarhvor íhaldsflokkanna fái hvíldina og aðA flokkar ásamt Kvennalista nái sam- an ríkisstjórn í þessum kosningaúrslitum fel- ast fyrirheit um tímamót í ís- lenskri stjórnmálasögu. Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur geta greinilega ásamt Kvennalista stefnt á meirihluta í næstu alþing- iskosningum og það hljóta þessir flokkar að gera, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins í samtali við Þjóð- viljann eftir að úrslit byggða- kosninganna voru kunn. „Ef maður skoðar þessi úrslit get ég verið allánægður með frammistöðu Alþýðubandalags- fólks. Flokkurinn bætir við sig fylgi á 18 stöðum á landinu og bæjarfulltrúum í Kópavogi, Ól- afsvík, Bolungarvík, Dalvík, Ak- ureyri, Húsavík, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum, Vopnafirði, Stykkishólmi, Hvammstanga og Stokkseyri. Auk þess vantaði Alþýðuflokkur Alvarlegt fyrir Framsókn „Þessi kosningaúrslit eru sér- lega alvarleg fyrir Framsóknar- flokkinn, hann galt afhroð á landsbyggðinni,“ sagði Jón Bald- vin Hannibalsson formaður Al- þýðufloksins þegar Þjóðviljinn leitaði álits hans á úrslitum kosn- inganna. Alþýðuflokkurinn vann víða góða sigra, en hvernig setur for- maður flokksins þetta í samband við landsmálapólitíkina? „Þetta hrun Framsóknar- flokksins á landsbyggðinni hefur átt sér langan aðdraganda og ekki gott fyrir flokkinn að gera við því. Það er greinilegt að það er upp- reisnarhugur í bændastéttinni og Framsóknarflokkurinn sér fram á alvarlegan ósigur í næstu þing- kosningum. Þetta er ekki eins alvarlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn þar sem lífsnauðsynlegur meirihluti þeirra í borginni stóðst áhlaup minnihlutaflokkanna. Úrslitin eru samt alvarleg viðvörun og þeir tapa víða um land. En úr- slitin í Reykjavík staðfesta bæði það sem skoðanakannanir hafa sagt og áratuga reynsla hefur sýnt okkur að fast að helmingur kjós- FRÉTTIR Svavar Gestsson: Staðfestum stöðu flokksins sem helsta aflið gegn íhaldi. lítið upp á annars staðar að menn bættust við eins og t.d. Selfossi og Bolungarvík, Njarðvík, Hellis- sandi og Egilsstöðum,“ sagði Svavar ennfremur. „Alþýðubandalagið staðfestir stöðu sína sem stærsti andstæð- ingur íhaldsins í kaupstöðum og kauptúnum. Flokkurinn hefur t.d. jafn marga borgarfulltrúa í Reykjavík og hinir minnihluta- flokkarnir til samans. Við erum greinilega á réttri leið og ef okkur tekst að vinna vel fram að næstu þingkosningum er von til þess að tími svartsýni og öryggisleysis á þúsundum íslenskra heimila verði á enda,“ sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins. _ v Jón Baldvin: Greinilegur upp- reisnarhugur í bændastéttinni. enda A-listans í þingkosningum kýs A-listann ekki í borgarstjórn- arkosningum. Þetta er ekkert nýtt. Þannig að í Reykjavík eigum við inni mikið fylgi hjá Sjálfstæðisflokknum og inn- heimtum það með vöxtum og vaxtavöxtum í þingkosningum,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Seltjarnarnes Storkostlegur sigur „Þetta var í senn stórkostlegur og óvæntur sigur," sagði Guðrún Þorbergsdóttir efsti maður á lista Alþýðubandalagsins á Seltjarn- arnesi, en þar bætti flokkurinn við sig manni. „Við fundum að við höfðum meðbyr síðustu vikurnar og dag- ana fyrir kosningarnar, en áttum samt ekki von á að við myndum auka fylgi okkar svo mikið. Þessi úrslit sýna auðvitað að bæjarbúar eru orðnir langþreyttir á þeirri óstjórn sem verið hefur hér og aukið fylgi okkar þýðir aukið aðhald í bæjarstjórn, þann- ig að meirihlutinn hlýtur að breyta um starfsaðferðir að ein-t hverju leyti. Bolungarvík Enim himinlifandi Á Bolungarvík er vígi fallið, enda segir Kristinn H. Gunnars- son, efsti maður G-listans, mjög gott hljóð vera í mönnum þar. „Jú við erum himinlifandi,“ sagði hann. „Þetta er stærsti kosningasigur sem hér hefur ver- ið unninn. Næsta skrefið er að halda fund með sem flestum stuðningsmönnum okkar og ræða um hvernig standa skuli að meirihlutamyndun og hvaða mál menn vilja setja á oddinn. í fram- haldi af þessum fundi munum við svo hefja viðræður við þá aðila sem menn vilja.“ Hverju þakkið þið helst sigur- inn? „Það hefur verið mikil óánægja hér með gamla meirihlutann," sagði Kristinn, „menn hafa verið mjög óánægðir með hvernig hann stóð að málum og ákvarðana- tökur hans, og jafnframt með Jóhann Ársælsson: Réttum okk- ar hlut nokkuð vel. Guðrún Þorbergsdóttir Annars er mér nú efst í huga þakklæti til allra þeirra sem studdu okkar málstað í þessum kosningum," sagði Guðrún. —gg Kristinn H. Gunnarsson. vinnubrögð hans gagnvart minni- hlutanum. Þetta virðist hafa skipt verulegu máli í hugum fólks og greinilegt að það vill nýtt afl í bæjarstjórn. Eg hélt nú satt að segja að þetta væri ekki hægt. Það eru ekki nema rúm fjögur ár síðan við vorum ekki til, buðum fyrst fram hér í síðustu kosning- um, og nú erum við með 31.3 prósent," sagði Kristinn að lok- um. Kynjahlutföll Flestar konur af G listum Ef litið er á hlutfall kynjanna í bæjarstjórnum eftir þessar kosn- ingar kemur í ljós að meðaltal kvenna er aðeins 26.2% Ef kann- að er hlutfall kvenna eftir flokk- um kemur í ljós að Alþýðubanda- lagið er með flestar konur í bæjarstjórnum, eða 37.0%, kon- ur skipa sæti Framsóknarflokks- ins í 24.3% tilfella, hlutfallið er svipað hjá Sjálfstæðisflokki eða 24.2% og lægst er það hjá Al- þýðuflokki eða 23.8% Um kvennalista þarf ekki að ræða. Alþýðubandalagið Sterkustu vígin Fróðlegt er að athuga hvar Al- þýðubandalagið hefur náð best- um árangri í þessum byggðakosn- ingum. Mesta fylgið er auðvitað í Neskaupstað eða49.7% Þá koma þessir staðir: Stokkseyri 34.0%, Bolungarvík 31.3%, Vopna- fjörður 29.4%, Hellissandur 28.4%, Hvammstangi 28.4% og Kópavogur 27.9% Innan hvers kjördæmis nýtur flokkurinn mests fylgis sem hér segir: Kópavogur í Reykjanes- kjördæmi, Hellissandur á Vest- urlandi, Bolungarvík á Vest- fjörðum, Hvammstangi á Norð- urlandi vestra, Húsavík á Norð- urlandi eystra, Neskaupstaður á Austurlandi og Stokkseyri á Suð- urlandi. _ v Úrslitin G listinn 4200 atkv. í viðbót Eftir þessar kosningar (og raunar áður) er Sjálfstæðisflokk- urinn langstærsti stjórnmála- flokkurinn í landinu með 51.823 atkvæði samtals eða 42.7% Næst stærsti flokkurinn er Alþýðu- bandalagið með 23.420 atkvæði alls eða 19.3% og bætti flokkur- inn við sig 4200 atkvæðum nú. Alþýðuflokkurinn er sá minnsti af fjórflokkunum í bæjarstjórn- um með 16.135 atkvæði eða 13.3% - v. Akranes Góð uppskera „Mér finnst við hafa staðið vel að kosningabaráttunni og upp- skárum samkvæmt því,“ sagði Jó- hann Ársælsson annar maður á G-listanum á Akranesi, þar sem Alþýðubandalagið vann mann ásamt Alþýðuflokki, en Sjálf- stæðisflokkurinn galt afhroð og tapaði tveimur mönnum. „Við réttum okkar hlut nokk- uð vel og erum með um 20% at- kvæða, sem er næst hæsta hlutfall sem við höfum náð. Ég hafði nú ekki búist við að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði svo miklu, en þar á bæ var mikil óá- nægja með listann og málflutn- ingur þeirra var mjög óheppi- legur, svo þetta er svo sem ekki óeðlilegt," sagði Jóhann. —gg ÞAKMALNING SEM ENDIST málning,

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.