Þjóðviljinn - 03.06.1986, Side 3

Þjóðviljinn - 03.06.1986, Side 3
Neskaupstaður Mjög hressir „Viö erum mjög hressir Al- þýðubandalagsmenn í Neskaup- stað, við vorum nær því að ná 6. manni en að missa þann 5. og því erum við ánægðir,“ sagði Krist- inn V. Jóhannsson efsti maður á lista Alþýðubandalagsins í Nes- kaupstað. Um tíma í talningunni leit út fyrir að G-listinn tapaði manni og þar með meirihlutanum í bæjar- stjórn. Kristinn sagði að fyrir þá sem best þekktu til í Neskaupstað hefði þetta ekkert verið, því þeir vissu að utankjörstaðaatkvæðin myndu nær öll falla á Alþýðu- bandalagið. Kristinn sagði að hið svokall- aða óháða framboð sem nú kom fram, hefði sett strik í reikning- inn. Það höfðaði nær eingöngu til unga fólksins sem var að kjósa í fyrsta sinn og að auki fengið krataatkvæðin, þar sem A-listinn bauð ekki fram að þessu sinni. „Við stefndum að því að fá 50% atkvæða og það tókst. Hjá okkur var vel unnið fyrir kosning- Akureyri Breytt valdahlutföll í kjördæminu „Menn hafa unnið hér með eindæmum vel fyrir kosningarn- ar,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, efsti maður G-listans á Akureyri er Þjóðviljinn hafði samband við hana. „Þetta var þróttmikið starf og við höfum fundið mikinn með- byr í kosningabaráttunni. Við höfum nú þegar lýst yfir vilja til viðræðna við Alþýðu- flokkinn og Framsókn um mynd- un meirihluta, en Alþýðuflokk- urinn hefur það nokkuð í hendi sér hvað verður. Það er spurning hvort hann fer í samstarf með Sjálfstæðisflokknum. Það sem gerðist hér í kosning- unum má segja að gildi um allt kjördæmið. Framsóknarflokkur- inn missir mann á öllum stærstu þéttbýlissvæðunum og Alþýðu- bandalagið bætir við sig manni á þrem stærstu stöðunum. Þetta sýnir mjög breytt valdahlutföll í kjördæminu og einnig að félags- hyggjufólk er hætt að treysta á Framsóknarflokkinn. Dalvík Höfðum góða málefnastööu Á Dalvík bætti G-listinn við sig manni í kosningunum og Þjóð- viljinn hafði samband við efsta mann G-listans Svanfríði Jónas- dóttur. „Þetta var mjög gott, við fengum mjög góða kosningu,“ sagði Svanfríður. „Það má eigin- lega segja að við höfum endur- heimt mann frá kosningunum ’78, en þá fengum við tvo menn en misstum svo annan í síðustu kosningum. Það hafa verið miklar sveiflur hér á Dalvík, síðaast var mikil framsóknarsveifla en núna tapa þeir mönnum bæði til okkar og D-listans. Vinstra fólk hefur unnið mjög vel hér fyrir þessar kosningar og við höfðum mjög góða málefna- stöðu frá síðasta kjörtímabili. Það er nú komin upp alveg ný staða í bænum og ekkert farið að vinna úr heni enn,“ sagði Svan- fríður. Ing arnar og sú vinna hefur skilað sér ríkulega,“ sagði Kristinn. Kristinn sagði loks að að hans mati og fjölmargra annarra hefði það verið áberandi hversu mjög fréttamenn sjónvarpsins hældust yfir fyrstu tölunum og hefðu þeir á grundvelli þeirra marglýst því yfir að nú væri meirihlutinn fallinn. - S.dór/K.Ól. Sigríður Stefánsdóttir. Hér á Akureyri hefur verið sterkt vígi Framsóknarflokksins en nú eru hér þrír nokkuð jafn- stórir flokkar. Það má segja að þetta sé mjög merkileg kosninga- niðurstaða," sagði Sigríður að lokum. Ing Guðmundur Árni Stefánsson. FRETTIR Kópavogur Erum himinlifandi Við erum auðvitað himinlif- andi með þessa útkornu," sagði Heimir Pálsson efsti maður á G- listanum í Kópavogi sem bætti þriðja bæjarfulltrúa sínum við. „Eg held að ástæðurnar fyrir þessum úrslitum megi rekja til þess að Alþýðubandalagið hefur tekið þátt í meirihluta sem hefur starfað mjög vel, og þessi meiri- hluti eflist í þessum kosningum. Við rákum sterka kosningabar- áttu og hún skilaði auðvitað drjúgu fylgi. Ríkisstjórnarflokk- unum hefnist fyrir frammistöðu ríkisstjórnarinnar og allt varð þetta til þess að A-flokkarnir standa uppi sem sigurvegarar kosninganna. Þetta er fyrst og fremst glæsi- legur stuðningur við meirihlut- ann sem nú hefur setið í átta ár og við erum mjög ánægð með það. Mér finnst ekkert liggja fyrir ann- Reykjavík Vildum meira „Nei, ég er að vísu ekki mjög ánægður með þessa útkomu, við væntum okkur betri árangurs,“ sagði Sigurjón Pétursson einn þriggja borgarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík. „Þó ber að líta á það að við bætum heldur okkar hlut. Þetta eru önnur hagstæðustu kosninga- úrslit sem Sósíalistaflokkurinn og Alþýðubandalagið hafa fengið síðan 1950. En því er ekki að leyna að við vildum meira. Það er greinilegt að það hefur ekki tekist að hnekkja á nokkurn hátt veldi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og það hlýtur að koma til vegna vinsælda borg- arstjórans, því ekki gaf málefna- staða meirihlutans tilefni til sig- urs hans. Þetta þýðir því að ástandið í borgarstjórn verður óbreytt, „Þetta er tvímælalaus krafa kjósenda um breytingar. Þeir hafa greinilega fundið slíkum breytingum bestan farveg með því að kjósa jafnaðarmenn," sagði Guðmundur Árni Stefáns- son efsti maður á lista Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði, en Al- þýðuflokkurinn vann mikinn sigur þar í bæ um helgina - fékk 5 fulltrúa af 11 en hafði áður 2. Þennan sigur vildi Guðmundur þakka öflugri og samhentri sveit liðsmanna sem unnið hefði nótt að en að Alþýðubandalag, AI- þýðuflokkur og Framsóknar- flokkur haldi samstarfinu áfram, en við erum enn ekkert farin að ræða það af alvöru. Ég hlakka jú til að takast á við starfið í bæjarstjórn, annars hefði ég ekki farið út í þetta, “ sagði Heimir. —gg sem nýtan dag í kosningabarátt- unni. Aðspurður um væntanlegt meirihlutasamstarf benti hann á að 5 möguleikar væru fyrir hendi. „Það er okkur hinsvegar ekkert launungarmál,“ sagði Guðmund- ur, „að við munum snúa okkur til Alþýðubandalagsins. Ég á von á því að það fari nú bréf til þeirra þessa efnis. A-flokkarnir hafa sterka málefnastöðu og ég á ekki von á öðru en þeir geti vel unnið saman.“ - g.sv. Hafnarfjörður: VHjum A-flokka samstarf Heimir Pálsson: Ríkisstjórnar- flokkunum hefnist fyrir frammi- stöðu ríkisstjórnarinnar. Sigurjón Pétursson: Hætta á því að flokksræði Sjálfstæðisflokks- ins í borginni herðist. nema að því leyti að kjörnum fulltrúum hefur fækkað og það er veruleg hætta á því að í kjölfarið verði flokksræðið í borginni hert. Sjónarmið mun færri fá að heyrast við stjórnun borgarinnar á þessu kjörtímabili,“ sagði Sig- urjón. —gg Stokkseyri Samstilltur hópur „Við erum eiginlega ekki búin að átta okkur almennilega á þessu, það voru aðeins mestu bjartsýnis- menn sem þorðu að vona að við' bættum við okkur manni," sagði Margrét Frímannsdóttir efsti maður á G-lista á Stokkseyri og oddviti Stokkseyrarhrepps. „Við vorum ákveðin í að halda okkar og erum auðvitað himinlif- andi með að hafa náð þriðja manninum. Við höfum tekið þátt í meirihlutasamstarfi hér við ágætan orðstír og erum með góð- an og samstilltan hóp og það er fyrst og fremst þetta tvennt sem réði úrslitum að mínu mati,“ sagði Margrét. —gg Margrét Frímannsdóttir: Aðeins þeir bjartsýnustu spáðu þrem mönnum. Húsavík Þreifingar í gangi „Hér á Húsavík erum við mjög hress með kosningaúrslitin,“ sagði Valgerður Gunnarsdóttir sem skipar annað sæti G-listans þar, er Þjóðviljinn hafði sam- band við hana. „Það var mjög skemmtilegt að þetta skyldi fara svona og virðist að áherslumál okkar í kosninga- baráttunni hafi fallið í góðan jarðveg. Það er ekki enn ljóst hvernig þetta fer allt saman hér, ýmsar þreifingar eru í gangi nú þegar. Stuðningsmenn G-listans unnu ákaflega vel og markvisst í kosn- ingabaráttunni og við teljum það hafa skilað sér. Það var stór hóp- ur sem stóð að baki okkar og á hann þakkir skildar. Einnig álít ég að landsmálapólitík stjórnar- flokkanna hafi haft áhrif úti á landi. Það sést m.a. hér þar sem Framsóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn hafa verið í meirihluta sl. átta ár og missa svo meirihlutann núna,“ sagði Val- gerður að lokum. Ing G-listinn 12 staðir með meira en 4% viðbót Alþýðubandalagið bætti víða við sig verulegu fylgi, mest í Bol- ungarvík eða 18.1% samtals. Þar vantaði aðeins 7 atkvæði til að flokkurinn bætti við sig manni. Það var alls á 12 stöðum á landinu sem Alþýðubandalagið fékk meira en 4% fylgi eða þar um bil. Þeir eru: Bolungarvík (18.1%), Seltjarnarnes (8.4%), Dalvík (7.5%), Akureyri (6.7%), Vopnafjörður (6.7%), Vestmannaeyjar (6.5%), Akra- nes (5.5%), Stokkseyri (5.3%), Grindavík (4.7%), Kópavogur (4.6%), Stykkishólmur (3.9%) og Selfoss (4%). Alþýðubandalagið Víða vantaði herslumuninn Alþýðubandalagið var víða allnærri því að bæta við sig fleiri bæjarfulltrúum þegar atkvæði höfðu verið talin á sunnu- dagsnóttina. Við grípum niður í kosningatölum á nokkrum stöð- um. í Bolungarvík vantaði 7 at- kvæði til að 3. maðurinn kæmist í bæjarstjórn, í Njarðvík vantaði 10 atkvæði til að ná manni, á Sel- fossi vantaði einnig 10 atkvæði til að ná 2. manninum inn, í Grund- arfirði vantaði 15 atkvæði til að ná 2. manninum. Á Egilsstöðum vantaði 10 atkvæði til að ná 2. manninum og á Hellissandi van- taði aðeins 9 atkvæði til að 2. maður af G lista kæmist inn í sveitastjórnina. - En þetta hefst næst! Þriðjudagur 3. júní 1986 ÞJÓÐVILJiNN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.