Þjóðviljinn - 14.06.1986, Page 5
Mikill áhugi meðal Sjálfstæðismanna. Framsóknarmenn tregari
en tilbúnir íslaginn. Tœkifœrið notað til uppskipta íforystusveit íhaldsins
Telja má nokkuð víst að styttra
sé í næstu þingkosningar en
margur gæti haldið. Sveitar-
stjórnarkosningum lýkur form-
lega í kvöld með kosningum í
dreifbýli og ef fer sem horfir þá fá
landsmenn ekki nema rúmlega
þriggja mánaða kosningafrí nú
yfir hásumarið, því flest bendir
nú til að boðað verði til þingkosn-
inga jafnvel þegar í september.
Af samtölum við stjórnmála-
menn og þá einkum stjórnarþing-
menn er ljóst að mikill áhugi er
fyrir því innan Sjálfstæðisflokks-
ins að efnt verði til þingkosninga
þegar í haust. Þar fara fremst í
flokki forystumenn Sambands
ungra Sjálfstæðismanna sem
samþykktu á fundi í gærkvöld að
rétt væri að efna til kosninga í
haust. Fjölmargir þingmenn
flokksins eru einnig á sömu
skoðun og þá einkum þingmenn
Reykjavíkur- og Reykjneskjör-
dæma sem telja ekki rétt að láta
stjórnina lifa fram á næsta vor
heldur verði umboðið endurný-
jað sem fyrst fyrir nýrri og sterkri
stjórn, helst með Alþýðuflokkn-
um.
Veik staða
stjornarinnar
Framsóknarmenn eru hins
vegar ekki eins áhugasamir um
kosningar. Pingflokkur þeirra
fundaði um þessi mál á
fimmtudag og kom þar fram að
réttara væri að reyna að sitja út
kjörtímabilið, en ef skærist í odda
við fjárlagaafgreiðsluna í haust
væri ekki annað í stöðunni en að
boða tii kosninga.
En hvað er það sem kallar á
háværar umræður og kröfur
innan stjórnarflokkana um kosn-
ingar þegar í haust? Ljóst er að
þar kemur ýmislegt til en einkum
nefna stjórnarþingmenn þrjú at-
riði: 1) Veik staða núverandi
stjórnar ef hún situr áfram og
skerst í 'Odda í kjarasamningum
næsta vor. 2) Mikill greiðsluhalli
ríkissjóðs og sjáanlegir erfið-
leikar við að ná saman um fjárlög
fyrir næsta ár. 3) Almennt slæm
útreið stjórnarflokkanna í ný-
liðnum sveitarstjórnarkosning-
um sem gæti orðið enn verri ef
beðið verður mikið lengur með
þingkosningar.
A móti óttast hins vegar margir
stjórnarþingmenn að haustkosn-
ingar geti verið hættulegar fyrir
stjórnarflokkana því þeir fái þá á
sig þann stimpil að þeir séu að
flýja undan vandanum og þori
ekki að takast á við erfiðleikana.
Auk þess sé staðan síður en svo
glæsileg í fjármálunum og ekki
gott að skila þannig af sér.
Ahugamenn um haustkosningar
svara því þá til að það sé óraun-
hæft að ætla að núverandi stjórn
nái saman um vænlega lausn og
því þurfi að tryggja að ný ríkis-
stjórn með tryggt umboð fái að
takast á við vandann næstu árin.
„Heyrist menn
vera inn á þessu“
Olafur G. Einarsson formaður
þingflokks Sjálfstæðismanna
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að hann væri ekki enn búinn
að festa sig í neinni ákveðinni
skoðun í þessum efnum. „Þessi
mál verða að ræðast í rólegheit-
um á réttum stöðum .og manna í
millum. Þessi umræða um
haustkosningar kom upp utan
dagskrár á síðasta þingflokks-
fundiog við erum með fundi aftur
síðar í mánuðinum og ég geri að
sjálfsögðu ráð fyrir að þetta verði
rætt þar“. Ólafur sagði að menn
vildu hafa nýtt umboð hvaða
stjórn sem yrði mynduð til að tak-
ast á við nýja kjarasamninga og
fjárlagavandann. „Mér heyrist
menn frekar vera inni á þessu og
teldi því heppilegast að það næð-
ist sem breiðust samstaða milli
þingflokkana um þetta. í dag
þykir mér líklegra að haustkosn-
ingar verði ofaná,“ sagði Ólafur.
„Ekkert kappsmál
en samt..“
Ingvar Gíslason þingmaður
Framsóknarmanna sagðist ekki
mjög trúaður á að það yrðu
haustkosningar en þingflokkur
Framsóknar hefði rætt þetta í vik-
unni og menn gerðu sér fulla
grein fyrir þessum möguleika og
væru tilbúnir í slaginn.
„Það kann vel að vera að menn
hafi einhverjar áhyggjur af næstu
kjarasamningum en samningar
koma alltaf á sínum tíma og við
getum ekki verið að horfa fram
hjáþví. Vandinn snýst fremur um
fjármálin og ég tel að við rekum
ekki rétta skattastefnu. Við
höfum fulla möguleika til að
halda uppi okkar velferðar-
þjóðfélagi með réttri skatta-
stefnu og ég vil frekar að það
skerist í odda með stjórnarflokk-
unum um þau mál en að menn
ákveði strax kosningar. Við erum
tilbúnir í kosningar en það er
okkur ekkert kappsmál að hafa
þær í haust,“ sagði Ingvar.
Ekki ofan
í samninga
Þeir sem sýnt hafa haustkosn-
ingum einna mestan áhuga eru
ungir Sjálfstæðismenn. Vilhjálm-
ur Egilsson formaður SUS hefur
lagt fram formlega tillögu um að
sambandið lýsi yfir áhuga sínum á
kosningum í haust. „Það er sama
við hvern maður talar, ungan sem
gamlan í hvaða flokki sem er,
menn virðast vera á einu máli um
nauðsyn haustkosninga. Hvað
mig snertir þá er þetta fyrst og
fremst spurning um næstu kjara-
samninga. Kosningar og kosning-
abarátta er hluti af lýðræðinu og
sá tími sem þjóðin velur sér ti' að
deila um stjórnmál. Það er ákaf-
lega erfitt að ná sátt og samstöðu
á vinnumarkaðinum á sama tíma
og slíkar deilur eru í hámarki,"
sagði Vilhjálmur í samtali við
Þjóðviljann í gær.
En það er vissulega fleira sem
hangir á spýtunni, einkum hjá
Sjálfstæðismönnum. Það er nóg
að lesa Morgunblaðið á milli lín-
anna síðustu dagana nú eftir
kosningar til að átta sig á þeim
átökum sem krauma undir niðri
hjá forystu Sjálfstæðisflokksins.
Davíð fyrir
Þorstein
Morgunblaðið hefur þegar gef-
ið út þá línu að nauðsynlegt sé að
stokka upp framboðslista flokks-
ins í Reykjavík fyrir næstu þing-
kosningar. Jafnhliða hamrar
blaðið á því í fréttum og greina-
skrifum að lakasta útkoma Sjálf-
stæðisflokksins í nýafstöðnum
sveitarstjórnarkosningum hafi
verið á Suðurlandi í kjördæmi
Þorsteins Pálssonar formanns
flokksins. Sigurvegarinn sé hins
vegar óumdeilanlega Davíð
Oddsson.
Eini þingmaður flokksins sem
hefur séð ástæðu til að taka
beinlínis upp hanskann fyrir Þor-
stein er Albert Guðmundsson
sem lýsti yfir fullri hollustu við
formanninn í samtali við Þjóð-
viljann í vikunni. Það má hins
vegar draga í efa hvort það sé
mikill styrkur fyrir Þorstein að fá
slíkan hollustueið frá þeim þing-
manni Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sem vísast stendur
höllustum fæti í þeim bræðravíg-
um sem Morgunblaðið boðar.
Hitt er víst að margir Sj álfstæð-
ismenn telja að Þorsteini Pálssyni
hafi tekist illa í þessum fyrstu
kosningum sínum sem formaður
Sjálfstæðisflokksins. Hann sé alls
ekki nógu sterkur né vinsæll for-
maður. Davíð borgarstjóri njóti
hins vegar hylli og ef næstu kosn-
ingar eigi ekki að verða frekara
áfall fyrir Sjálfstæðismenn en ný-
liðnar sveitarstjórnarkosningar
þá verði að leiða Davíð fram til
forystu á þinglistanum líka. Síðar
taki hann yfir sem formaður
flokksins eftir 1- 2 ár. Þetta er sú
lína sem Morgunblaðið er að
leggja og menn skulu gæta að því
að það er fordæmi fyrir því innan
Sjálfstæðisflokksins að sami
maður gegni embætti borgar-
stjóra og sitji jafnframt á þingi.
Dýrkeypt
stjórnarsamstarf
Af ummælum forystumanna
stjórnarflokkanna hér að framan
er ljóst að allt stefnir í þingkosn-
ingar í haust. Sjálfstæðismenn
hafa fullan hug á kosningum hið
fyrsta bæði til að komast út úr
óvinsælu stjórnarsamstarfi áður
en það verður um seinan og eins
til að keyra í gegn breytingar á
forystuliði meðan bæði formaður
flokksins og einnig fyrrum aðall-
eiðtogi flokksins í borginni eru í
mjög veikri stöðu. Annað sem
enn hefur ekki verið nefnt en
auðvitað svífur yfir vötnunum, er
Hafskipsmálið. Það er síður en
svo þægileg staða fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn að fara út í kosningar
eftir að byrjað er að rétta og opin-
bera fyrir almenningi öll þau
herlegheit sem þar hafa verið
upplýst.
Framsóknarmenn eru enn tví-
stígandi og víst er að Steingrímur
Hermannsson mun leggja allt
kapp á að stjórnin lafi út kjörtím-
abilið. Hann veit hins vegar að
það getur orðið honum og Fram-
sóknarflokknum dýrkeypt. Hann
mun því leggja allt kapp á að
stjórnarsamstarfið brotni á ein-
hverjum ákveðnum málum eins
og Ingvar Gíslason orðaði það og
þar stendur uppi ágreiningur
flokkanna til lausnar fjárlagagat-
inu. Auknir skattar, eða aukinn
niðurskurður. Hvort menn semja
eða þykjast slást þá er óhætt að
fullyrða að kjósendur og væntan-
legir frambjóðendur geta þegar
farið að búa sig undir nýjar kosn-
ingar á næstu mánuðum.
—Lúðvík Geirsson.
Laugardagur 14. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5