Þjóðviljinn - 14.06.1986, Blaðsíða 16
Þjóðviljinn
Goodman
láftinn
Hinn frægi klarinettuleikari og
hljómsveitarstjóri Benny Good-
man lést úr hjartaslagi á heimili
sínu á Manhattan í gær.
Tónlist Goodmans er mörgum
íslendingum kunn ekki síst vegna
komu hans á Listahátíðina 1980.
K.Ól./Reuter
Landsbókasafnið
Gamalt handrit
Kortesar um ferð
Sigurður Hjartarson, kennari, fann gamalt íslenskt handrit um herferð Kortesar til Mexíkó,
ritað 1806 af Halldóri Jdkobssyni, sýslumannií Strandasýslu
Hvalur
Bátamir
útá
sunnudag
Vísindamenn komnir
tillandsins. 120hvalir
veiddirísumar.
Tveir af hvalbátum Hvals hf
munu leggja á veiðar nú á sunnu-
dag. Er undirbúningur í fullum
gangi þessa dagana og streyma
vísindamenn að erlcndis frá.
Stefán Andrésson, starfsmaður
Hvals hf., sagði við Þjóðviljann í
gær, að bátarnir færu út nú á
sunnudagskvöld. Er ráðgert að
veiða um 80 langreyðar og 40
sandreyðar í sumar, sem er u.þ.b.
helmings fækkun frá því í fyrra og
bara brot af þvt sem veitt var fyrir
þrem til fjórum árum.
Töluvert af erlendum vísinda-
mönnum eru komnir til Islands
vegna vísindaveiðanna en auk
þeirra munu íslenskir vísinda-
menn taka þátt í rannsóknunum.
Veiðarnar núna verða alfarið
undir stjórn vísindamannanna og
hafa þeir yfirumsjón með því
hvernig að þeim er staðið og geta
látið hætta veiðunum er þeir óska
þess.
Undanfarin ár hafa japanskir
starfsmenn unnið afurðirnar og
sagðist Stefán búast við að svo
yrði einnig í ár.
Sjá bls.3 ~Saf
Fundist hefur gamalt íslenskt
handrit um herför Kortesar til
Mexíkó á Landsbókasafninu, rit-
að af Halldóri Jakobssyni, sýslu-
manni í Strandasýsiu á fyrstu
árum 19. aldar. Handrit þetta er
einnig til stytt og endurskrifað af
Gísla Konráðssyni frá því um
1850.
Sigurður Hjartarson, kennari í
MH, fékk styrk úr Vísindasjóði
upp á 150 þúsund krónur til að
kanna ritunarsögu þessara hand-
rita og búa handrit Halldórs
undir prentun. Fer hann til Se-
villa á Spáni í haust og hefur á-
kveðið að eyða næsta ári í þetta
verk.
Að sögn Sigurðar hefur Hall-
dór Jakobsson líklega haft tvær
fyrirmyndir að sögu sinni, ann-
arsvegar bókina Hin sanna saga
landvinninga í Nýja-Spáni eftir
Bernal Díaz, liðforingja í her
Kortesar, og Sögu landvinninga í
Mexíkó eftir de Solís, sem var
sagnaritari Filippusar IV. Spán-
arkonungs og var hún útgefin
1651.
Sigurður stefnir að því að
handrit Halldórs verði klárt til út-
gáfu árið 1992 en þá er 500 ára
afmælis komu Kólumbusar til
Ameríku minnst um víðan heim.
Sjá viðtal við Sigurð Hjartar-
son í helgarblaði Þjóðviljans.Sáf
Hrepparnir
Kosið í dag
í dag fara fram hreppstjórnar-
kosningar í landinu og er kosið í
163 hreppum. í langflestum
þeirra er kosið óhlutbundinni
kosningu, en í 19 þeirra er um
listakosningu að ræða. Á kjör-
skrá eru tæplega 19.000 manns.
Arbœr
Arekstur
Harður árekstur varð í gær-
morgun á gatnamótum Suður-
landsvegar og Selásbrautar í Ár-
bænum. Stór amerískur bfll ók
aftan á smærri bifreið sem fór í
veg fyrir hann. Bifreiðin sem ekið
var á kastaðist út af veginum og
urðu ökumaður hennar og far-
þegi fyrir nokkrum meiðslum.
Munu þau ekki vera alvarleg.
Listapopp ‘86
Stórtónleikar
í Höllinni
4 heimsþekktar stórhljómsveitir ogfulltrúar
íslenska poppsins úr öllum landsfjórðungum
ástórtónleikum íLaugardalshöll 16. -17.
júní. Markið ersettá fjöruga og vímuefna-
lausa tónleika
4breskar heimsþekktar stór-
hljómsvcitir sækja ísland
heim um næstu helgi og taka þátt í
stórtónleikum Listapopps '86 í
Laugardalshöll á mánudaginn 16.
og þjóðhátíðardaginn 17. júní
Þetta eru stórhljómsveitirnar
Lloyd Cole and the Commotions,
Simply Red, Madness og Fine
Young Cannibals. Þá koma einn-
ig fram á tónleikunum 4 íslenskar
hljómsveitir og hljómlistamenn
úr öllum landsfjórðungum.
Hljómsveitin Grafík frá ísafirði,
Greifarnir frá Ilúsavík, söngvar-
inn Bjarni Tryggva frá Neskaup-
stað og Rikshaw frá Reykjavík.
Aðstandendur hátíðarinnar
sem Listahátíð og íþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur
standa á bakvið segja að fullur
hugur sé á að halda áfram með
slíkar popphátíðir, takist vel til
með þessa hátíð. Hún sé því próf-
steinn á framhaldið og miklu
skipti að vel takist til. Þvf sé lögð
megináhersla á að hátíðin verði
vímuefnalaus og hópur unglinga
hefur unnið að skreytingu í Höll-
inni og verður við gæslustörf á
tónleikunum.
Reiknað er með að selja um
9000 miða á tónleikana og höfðu
á fjórða þúsund miðar þegar selst
í gær. Miðaverði er stillt í hóf og
kostar 800 kr. inn á hvora hljóm-
leikana.
—lg-
Hljómsveitin Greifarnir frá Húsavík er fulltrúi Norðurlands á Listapoppi '86.
Mynd-Ari.
UX- LÍFSNAUÐSYNLEG OLÍA
„Þessi yfirlýsing er einskis virði“
Formaður Starfsmannafélags Þjóðviljans: Fráleittað notafólk svona í
viðkvæmri deilu
Þessi yfirlýsing er að mínu mati
einskis virði því þetta mál hefur
aldrei verið rætt á meðal starfs-
manna þessara deilda og í dag hef
ég heyrt á fólki að það er óánægt
með að vera notað með þessum
hætti í viðkvæmri deilu manna úti
í bæ, sagði Ingólfur Hjörleifsson
formaður Starfsmannafélags
Þjóðviljans er hann var inntur
álits á yfirlýsingu sem fjölmiðlum
var send í gær í nafni starfsmanna
nokkurra deilda Þjóðviljans.
í fréttatilkynningu sem rit-
stjórn barst í gær segir: „Vegna
blaðaskrifa að undanförnu um
óánægju ritstjórnar Þjóðviljans
með hugsanlega ráðningu Svav-
ars Gestssonar sem ritstjóra, vill
annað starfsfólk taka fram að það
harmar þessi viðhorf og býður
Svavar velkominn til starfa á ný.
Starfsfólk skrifstofu, auglýsinga-
deildar, prentsmiðju og af-
greiðslu Þjóðviljans."
„Það segir að mínu mati
nokkra sögu um virði þessarar yf-
irlýsingar að enginn starfsmanna
deildanna treysti sér til að skrifa
nafn sitt undir hana,“ sagði Ing-
ólfur Hjörleifsson formaður
Starfsmannafélags Þjóðviljans að
síðustu.
- v.