Þjóðviljinn - 08.08.1986, Blaðsíða 10
SUÐURLAND
MENGELE fjölhnífavagnar
Einn háþróaðasti fjölhnífavagn sem framleiddur er í dag
Til afgreiðslu strax
25 m-34 rúmmetra vagnar
33 hnífar
Tvöföld hásing og flokkdekk
Mjög góð greiðslukjör
Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum okkar í síma 91-651800.
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
— a (uAl
’-'°ð
hvað varðar ny u"9»^mnubankans_a
SAMVINNUBANKINN
Aðalbankl Bankastræti 7 Reykjavík og18 útlbú um land allt
Minningarkapella sr. Jóns Steingrímssonar Eldklerks er hiö reisulegasta hús
og setur mikinn svip á Kirkjubæjarklaustur. Ljósm.: Sig.
Kirkjubæjarklaustur
Þar sem hraunið
stöðvaðist
Á Kirkjubæjarklaustri er að finna elstu
menjar um kristilegt trúarlíf í landinu
Umhverfi Kirkjubæjar-
klaustúrs í V-Skaftafellssýslu er
stórbrotiö og margþætt. Þar er að
finna blómlega sveit með miklum
gróðri og búsæld. Þar sjáum við
einnig merki Skaftárelda; lífvana
hraun og eyðilega sanda. En það
sem vekur ekki síður athygli og
ánægju ferðamanna er hin mikla
veðursæld á Klaustri og má enda .
sjá hve gróður á allur hægt um vik
með að ná vexti og þroska.
Trékrossinn stendur þar sem altari
gömlu kirkjunnar á Klaustri stóð. Fyrir
utan kórvegg er legsteinn hjónanna
sr. Jóns Steingrímssonar og Þórunn-
ar Hannesdóttur. Ljósm.: Sig.
Þeir eru margir sögustaðirnir á
Suðurlandi og er Kirkjubæjar-
klaustur engin undantekning.
Þar sat eldklerkurinn sr. Jón
Steingrímsson og flutti forðum
Eldmessuna sem stöðvaði Eld-
hraunið mikla er rann í Skaftár-
eldum fyrir réttum 200 árum.
Þegar ekið er heim að Klaustri
komast menn ekki hjá því að reka
augun í fagurt mannvirki, minn-
ingarkapellu Sr. Jóns Steingríms-
sonar. Sr. Jón var þar prestur á
árunum 1778-1791. Þegar hann
flutti sína frægu messu árið 1783
stóð kirkjan í gamla kirkjugarð-
inum vestan minningarkapell-
unnar. Má glögglega sjá mörk
eftir gömlu kirkjuna þar.
Þessi sögufræga kirkja var á
Klaustri allt fram á 19. öldina, en
þá tók sandur mjög að spilla
gróðri þar og því ekki búsældar-
legt lengur. Var kirkjan þá tekin
ofan og ný reist að Prestbakka
árið 1859 og stendur hún enn.
Trúarlíf hvers konar hefur
lengi verið á Kirkjubæjarklaustrii
og vita menn raunar ekki gjörla
hvenær það hófst. Talið er að á
Kirkjubæ hafi risið fyrsta guðs-
hús í kristni af Pöpum löngu fyrir
landnám. Nunnuklaustur var
byggt á Kirkjubæ árið 1186 og var
það við lýði fram til siðaskipta.
Menjar um klaustrið sjást enn.
Það er margt á Kirkjubæjar-
klaustri sem minnir á nunnu-
klaustrið til forna. Þar eru ör-
nefni eins og Systrastapi þar sem
eru grafír tveggja systra sem
brenndar voru á báli fyrir að gera
sér dælt við skaftfellska sveina á
árum áður. Einnig steypist
Systrafoss úr Systravatni ofan við
byggðakjarnann og setur
skemmtilegan svip á allt um-
hverfið.
Minningarkapella sr. Jóns
Steingrímssonar var vígð á þjóð-
hátíð 17. júní 1974. Kapellan er
reist fyrir samskotafé, m.a. gáfu
100 bændur henni eitt haustlamb
hver í 6 ár. Auk þess þykir kapell-
an vænleg til áheita.
Smiður minningarkapellunnar
á Klaustri var Valdimar Auðuns-
son bóndi í Ásgarði í Landbroti
en arkitektar byggingarinnar eru
bræðurnir Helgi og Vilhjálmur
Hjálmarssynir.
—v.
DJÚÐVIIJINN
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. ágúst 1986