Þjóðviljinn - 14.08.1986, Síða 10

Þjóðviljinn - 14.08.1986, Síða 10
Reykj avík 77/ fþndans me Bæjarfógetinn undarlegi sem stjórnaði uppreisn tómthúsmanna „Jón gamli Guömundsson, sem þrátt fyrir allt hringlið sá margt giöggt, kvartaði opt undan því, að vér hefðum enga meðalstétt (bourgeois- ie) hér á landi. Hann gat ekki annað, bourgeoisiefrelsi var fyrirmynd hans; en ég segi: Til fjandans með bourgeoisíið, lofum alþýðunni að koma fram og frelsi íslands skal verða ekki aðeins oss og niðj- um vorum til farsældar en öðr- um þjóðum til fyrirmyndar." Þessi spámannlegu og allt að byltingarsinnuðu orð voru skrifuð í sendibréfi sumarið 1878 og sá sem hélt um penn- ann var enginn ómerkingur, heldur sjálfur bæjarfógetinn í Reykjavík. Hann hét Jón Jónsson og var einhver litrík- asti og sérkennilegasti embættis- og stjórnmálamað- ur okkar á síðustu öld. Hann lét ekki sitja við orðin tóm heldur hvatti tómthúsmenn til dáða og í bæjarstjórnarkosn- ingum í janúar 1879 tóku þeir völdin af borgarastéttinni. Þeir atburðir og framganga Jóns ollu miklum úlfaþyt í höfuð- staðnum og verður hér nokk- uðfráþvísagt. Frá því aö farið var að kjósa til bæjarstjórnar í Reykjavík höfðu borgarar haft þar tögl og hagldir enda var bæjarstjórnin allt til árs- ins 1872 eins konar stéttaþing þar sem borgarar höfðu skv. lögum meirihluta. Þeir höfðu rétt til að kjósa fimm bæjarfulltrúa en tómthúsmenn aðeins einn. Borg- arar voru embættismenn, kaup- menn, verslunarstjórar og iðn- meistarar en tómthúsmenn voru aðrir húsráðendur svo sem fiski- menn og daglaunamenn sem áttu torfbæi í Vesturbæ, Grjótaþorpi, Þingholtum og Skuggahverfi. Vinnumenn, lausafólk og konur höfðu ekki kosningarétt og ekki heldur þeir tómthúsmenn sem borguðu minna en 2 ríkisdali í bæjargjöld. Árið 1872 var reglu- gerð breytt þannig að kjósendum var skipt í tvo flokka. Meirihluti bæjarfulltrúa var þá kosinn af öllum bæjarbúum, sem uppfylltu viss skilyrði, en minni hlutinn af fimmtungi kjósenda sem mest gjöld greiddu til bæjarins. Þar með var kominn grundvöllur fyrir því að tómthúsmenn gætu náð meiri hluta í bæjarstjórn. Meðan borgarastéttin í Reykjavík réði öllu í bæjarstjórn hafði hún haft tilhneigingu til að leggja auknar álögur á tómt- húsmannastéttina og aiþingi sömuleiðis þar sem vöxtur þéttbýlis var þymir í augum bænda sem þar réðu lögum og lofum. Þeir vildu koma í veg fyrir að vinnufólk settist að á mölinni. Lengi hafði það tíðkast að fiski- menn legðu árlega einn hlut af dagsafla til eflingar sjúkrahúsum og var þetta framlag kallað spít- alafiskur. Undir lok sjöunda ára- tugarins var ákveðið á alþingi að stórauka álögur á fiskimenn til að bæta læknisþjónustuna og olli þetta mikilli ólgu við sjávarsíð- una. Reykvískir sjómenn höfðu forystu í mótmælum og kröfðust þess þá m.a. að fá aukin ítök í bæjarstjórn. Reglugerðin frá 1872 var að nokkru leyti ávöxtur mótmæla þeirra. En þó að fræj- um óánægju væri sáð vantaði tómthúsmenn forystuafl sem gæti sameinað þá um hagsmunamál sín. Þrátt fyrir breyttar kosning- areglur réðu borgarar áfram lögum og lofum í bæjarstjórn- inni. Þá kom kynlegur kvistur til sögu. Það var Jón Jónsson ritari. Krypplingur með eldmóð Jón var fæddur í Reykjavík árið 1841 og var faðir hans dóm- ari hér í landsyfirréttinum en móðir hans dönsk. Fjölskyldan fluttist til Danmerkur, meðan Jón var barn að aldri, þar sem faðir hans tók við embætti bæjar- fógeta í Álaborg, og þar ólst hann upp. Hann átti frernur bága æsku þar sem hann var að nokkru leyti krypplingur en með harðfylgi og eldmóði tókst honum að ljúka lagaprófi við Kaupmannahafnar- háskóla með bestu einkunn. Þeg- ar landshöfðingjaembætti var stofnað á íslandi 1872 var Jón skipaður landshöfðingjaritari. Eftir það var hann jafnan kallað- ur Jón ritari. Hann fór fljótt að skipta sér af þjóðmálum, gaf um tíma út blaðið Víkverja, sem var undanfari ísafoldar, og sat á þingi fyrir Skagfirðinga. Hann var skipaður lögreglustjóri í fjár- kláðamálinu 1875 og gekk svo hart fram að það tókst endanlega að kveða þann vágest niður. Við- urkenndi alþingi þrek hans og dugnað í því máli með því að veita honum eitt þúsund krónur sem viðurkenningu í heiðurs- skyni fyrir útrýmingu fjárkláð- ans. Var þá vegur Jóns einna hæstur hér á landi og hinn 6. júní 1878 var hann settur bæjarfógeti í Reykjavík. Ekki hafði Jón setið lengi í bæjarfógetaembætti er honum hafði tekist að setja allt á annan endann í hinum kyrrláta höfuðstað, slíkt var offors hans. Allt vitlaust í Reykjavík Jón Jónsson landritari og bæjarfógeti: Eldhugi og krypplingur. Hann var þeirrar skoðunar að frelsið ætti að breiða sig út að neðan og upp eftir og tókst að fylkja tómthúsmönnum gegn höfðingjunum. Jón ritari lét þegar í stað gefa út ýmsar reglugerðir í Reykjavík og fylgdi þeim eftir með hörku. Hann bannaði harða reið og átti það til að elta reiðmenn uppi hlaupandi, þrátt fyrir bæklun sína, og sekta þá ef hann taldi þá fara of geyst. Hann bannaði staupasölu í búðum og fyrir- skipaði að .veitingamenn mættu ekki selja vín eftir miðnætti. Stefndi hann þeim hiklaust ef þeir sáust á fótum etir þann tíma eða þeirra fólk. Fékk hann kaup- menn mjög upp á móti sér. Hann yfirheyrði fólk klukkutímum saman, jafnt á helgum dögum sem virkum, og stundum langt fram á nótt ef honum þótti þess með þurfa. Það sem mestu uppnámi olli samt var herför hans gegn hvers konar ósiðvendni. Hann sagði hjónaleysum í sambúð stríð á hendur og ruddist jafnvel inn á þess háttar hjónaleysi um nætur til að sanna að þau svæfu saman. Meðal þeirra sem urðu fyrir þessu voru tveir íslenskir kaup- menn í bænum, þeir Eyþór Felix- son (afi Ásgeirs Ásgeirssonar forseta) og Guðmundur Lamb- ertsen. Þeir höfðu báðir skilið við konur sínar og höfðu hjásvæfur í húsum sínum. Þeim fyrrnefnda og lagskonu hans lét bæjarfóget- inn stinga í svarthol og pína til sagna um samlíf þeirra. Má nærri geta að þessir vel metnu borgarar hugsuðu honum þegjandi þörf- ina. Tvær stúlkur lét Jón setja í varðhald fyrir það eitt að þær sáust seint á ferð að kveldi. Lét hann skoða þær en þær reyndust hreinar meyjar. Yfirréttardóm- arar ónýttu jafnan dóma fyrir Jóni og líkaði honum það stórilla. Eins og fyrr sagði var Jón ritari aðeins settur bæjarfógeti en ekki skipaður. Hann sótti um emb- ættið um haustið en nú hefur yfir- völdum líklega verið farið að blöskra framferði Jóns því að þau veittu Theódór Jónassen bæjar- fógetastöðuna en ekki honum. Andstæðingar kölluðu Jón hundadaga-fógetann þar sem hann hafði ríkt á hundadögum eins og Jörundur forðum. Þjóðfrelsið breiði sig út að neðan Eftir áramótin 1879 átti að kjósa 5 menn til bæjarstjórnar og sá Jón sér nú leik á borði að klek- kja á andstæðingum sínum, höfð- ingjunum í Reykjavík, og láta jafnframt hugsjónir sínar rætast. Virðist Jón Ólafsson ritstjóri hafa verið samherji hans í þessum áformum. í bréfinu, sem vitnað var til í upphafi greinar, segir Jón ritari að nafni hans Ólafsson hafi fyrstur allra manna haldið þeirri pólitík fram að láta þjóðfrelsið breiða sig út að neðan og upp eftir. Hann segir: „Gætum við fengið menntaða og frelsiselsk- andi alþýðu við að styðjast er sig- rinn vís, að öðru kosti verðr stjórnarskrá og frelsi á íslandi að- eins heimskuleg og auðnulaus eptiröpun eptir constitutionum inna miklu þjóða.“ í desember 1878 hélt Jón þrjá fyrirlestra um stjórnfrelsi og bæj- arstjórn og voru þeir haldnir í

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.