Þjóðviljinn - 28.09.1986, Qupperneq 5
Gleiðbrosandi Sovétmeistarar: Karpoff, Pólúgajevskí, Kasparoff, Tal.
Skák
Hvaða möguleika
á hann svosem...
Gluggað í bók um Kasparoff eftir Kasparoff
London, 1983, - Kortsnoj og
Kasparoff tefla í undanúrslitum
um áskorendaréttinn. Kortsnoj
vann fyrstu skákina, önnur jafn-
tefli, þriðja jafntefli, fjórða jafn-
tefli. Kasparoff frestaði fimmtu
skákinni til að styrkja sjálfan sig;
- það var augljóst að hann yrði að
taka sig á. Fimmta skákin endar í
litlausu jafntefli og staðan er 3-2
fyrir Kortsnoj.
Snemma morguns 4. desemb-
er, daginn sem tefla á sjöttu
skákina, hringir síminn í hótel-
herbergi Kasparoffs og á línunni
frá Moskvu er Botvinnik, kenn-
ari Kasparoffs: „Manstu hvað
gerðist fyrir fimmtíu árum?“
Kasparoff er varla vaknaður, en
svarar eftir nokkurt hlé: „Já, þá
varstu að tefla einvígi við Flohr.“
Botvinnik: „Já, og hvemig gekk
mér?“ Kasparoff: „Mig minnir að
þú hafir tapað fyrstu skákinni og
þeirri sjöttu, en unnið níundu og
tíundu.“ Botvinnik: „Parna
sérðu hvað þú ert í góðri stöðu, -
ekki einusinni búinn að tapa
þeirri sjöttu!“ Smáþögn. „Petta
er allt í lagi hjá þér“ bætir Bo-
tvinnik við, „svolítinn sjálfsaga
og þú vinnur einvígið."
Kasparoff vann sjöttu skákina,
komst yfir í sjöundu og sigraði
glæsilega með vinningum í ní-
undu skákinni og elleftu: 7-4, -
Botvinnik hafði á réttu að standa.
Frá þesu segir meðal annars í
nýrri bók eftir heimsmeistarann
Garí Kasparoff sem nú situr í
Leníngrad og etur hörðu kappi
við fjandvin sinn Anatolí Karp-
off.
Bókin kom út í enskri þýðingu
á þessu ári og heitir á þeirri tungu
„Test of time“, Þolraun í tíma /
Tíminn reyndur, eða álíka. Titill-
inn er reyndar illþýðanlegur og
vísar í margar áttir: klukkan er
þáttur af taflmennsku, Kasparoff
hefur skotist uppá stjörnuhiminn
á undraskömmum tíma, og síð-
asti kafli bókarinnar ber sama
nafn og bókin sjálf, en þar er
fjallað um áskorendaeinvígi
þeirra Smisloffs sem á þeim tíma
var þrisvar sinnum eldri en félagi
Garí.
Kasparoff rekur í bókinni feril
sinn í 22 köflum, þarsem uppi-
staðan er auðvitað skákir og
skákskýringar, en framanvið og
innum koma hugleiðingar
meistarans um einstök mót og
þáttaskil í eigin frama, og það
vekur athygli að í gegnum þýð-
inguna skín þróttmikill stíll,
hraðfleygur og lipur.
Kasparoff skýrir í bókinni
skákir sínar við meðal annars Al-
burt, Andersson, Beljavskí,
Karpoff, Kortsnoj, Larsen, Naj-
dorf, Petrosjan, Portisch, Spas-
skí, Tal, Timman, Vaganjan og
Júsupoff. Og einvígið við Smis-
loff 1984, fær heilan kafla, - og
áður en við grípum niður í elleftu
skák þeirra félaga er ráð að lesa
inngang að Smisloffs þætti.
Vilnius, Hvíta höllin í Lista-
safninu... Hér hófst áskorenda-
einvígið 10. mars, - milli tveggja
meistara sem ekki líktust hið
minnsta. Án þess að tiltaka smá-
atriði er rétt að minna lesandann
á að meðan einvígið stóð hélt
annar þeirra hátíðlegt 63. ára af-
mæli sitt, og rétt eftir að einvíginu
lauk varð hinn 21 árs.
Vígvöllur
byrjananna
Eitt áttu þeir þó sameiginlegt.
Þegar verið var að ræða sigurlík-
ur keppenda fyrir einvígið
heyrðist oftlega sama spumingin:
„Hvaða möguleika á hann svo-
sem á þessum aldri?“ Að vísu
skildi hver þessi orð sínum skiln-
ingi...
Smisloff var þannig í þeirri
stöðu að þurfa að sýna frammá að
hann byggi enn yfir nægum þrótti
til grimmilegrar og óvæginnar
baráttu, - ég þurfti aftur að finna
hjá mér þá eiginleika sem vegið
gætu upp á móti algerum skorti á
nauðsynlegri reynslu.
Svæðamótin, fyrsta umferð
áskorendaeinvígjanna, undan-
úrslitin gegn Kortsnoj, - að
standast þessar þolraunir var
okkur að vissu leyti sigur á tíman-
um. Þau aldursmat sem áður giltu
um þátttakendur í einvíginu um
áskorunarréttinn höfðum við
slegið í báða enda, en að lokum
hlaut þessi aldursteygja okkar að
slitna!
Ég og aðstoðarmenn mínir
urðum að leysa ýmsan vanda fyrir
einvígið við Smisloff. Við urðum
að vinna úr þeirri reynslu sem
fengist hafði í einvígjunum gegn
Beljavskí og Kortsnoj til að koma
í veg fyrir að fyrri mistök endur-
tækju sig. Og við urðum að kanna
vandlega skákir hins fyrrverandi
heimsmeistara, Smisloffs, og
finna hvar hinn væntanlegi and-
stæðingur minn væri veikastur
fyrir. Eg komst heldur ekki hjá
því að leggjast í víðtækar og ræki-
legar byrjanarannsóknir; í
keppni á svo háu stigi, verður
ekki komist langt nema byrjunin
sé vel tefld, sérstaklega gegn jafn
heilsteyptum skákmanni og
Smisloff.
Einvígi skákmanna í fremstu
röð verður oft einskonar
tilraunavígvöllur fyrir ákveðin
byrjunarkerfi. Skák eftir skák
reyna skákmennirnir fyrst og
fremst að sanna að hinar skap-
andi hugmyndir þeirra standist.
Það er ljóst að sigur í þeirri fræði-
legu hólmgöngu er líklegur til að
leiða af sér velgengni í sjálfu ein-
víginu. Og í þessari vígstöðu
skipta störf aðstoðarmannanna
miklu meðan einvígið stendur,
þar sem sífellt verður að rétta af
og endurbæta þau kerfi sem í
gangi eru.
Kasparoff lýsir því síðan að í
einvíginu gegn Beljavskí skipti
miklu máli óalgengt afbrigði af
Drottningarbragði, og þeir
Kortsnoj hófu fjórar skákir af ell-
efu með Katalónskri vörn.
Kasparoff og Smisloff börðust
hinsvegar á tvennum vígstöðv-
um: í fjórum skákum var tefld
Tarrasch-vörn og í öðrum fjórum
Cambridge-Springs-afbrigðið af
drottningarbragði. - Það var
sigur minn í þessum ör-
einvígjum, segir Kasparoff, -
sem tryggði mér vinninginn í ein-
víginu sjálfu.
Við skulum hinsvegar glugga í
11. skák þeirra félaga, þar sem
Smisloff beitti Tsigorin-vörn
gegn hvítum mönnum Kaspa-
roffs.
Hvítt: Kasparoff
Svart: Smisloff
1. d4 - d5
2. Rf3 - Rc6
3. c4 - Bg4
í skýringum við skák sem Smisloff
tefldi við Gligoric eitt sinn segir hann
að þessi vörn „eigi meiri athygli skilið
en raun ber vitni, sérstaklega ef svart-
ur ætlar á virkt spil mannanna." (Úr-
valsskákir Smisloffs, útg. 1983). Ég
átti von á því að Tsigorin vörn yrði
notuð í einvíginu en ég sundurgreindi
hana ekki nákvæmlega. Hvers
vegna? Því má svara með hálfkæringi
Petrosjans: „Ef andstæðingur þinn
vill tefla Hollensku vömina, hvers
vegna ættir þú þá að hindra hann í
því?“ Þessi gamanyrði eiga við marg-
ar byrjanir og Tsigorin vöm er ein
þeirra.
Ég býst við að Smisloff sé í rauninni
sömu skoðunar og hann hafi einungis
beitt þessari vöm vegna stöðunnar í
einvíginu (Kasparoff hafði unnið
þrjár skákir en Smisloff enga þegar
þessi skák var tefld). Það var einfald-
lega þannig í þessari skák að virkni
mannanna var svarti meira virði en
biskupapar hvíts og peðamiðborð.
4. cxdS - Bxf3
5. gxf3 - DxdS
6. e3 - eS
10. Hbl - b6
11. f4!? - exf4
12. e4 - Rg-e7
7. Rc3 - Bb4 13. Df3 - 0-0
8. Bd2 - Bxc3 14. Bxf4 - Da3
9. bxc3 - Dd6 15. Be2! - Í5!
Eftir 15. ... Dxa2 16. 0-0 þyrfti
svartur ekki aðeins að kljást við „hag-
ræðið af biskupaparinu og hreyfan-
legt peðamiðborð“, heldur einnig
hótanirnar Bxc7, Hal og d4-d5.
16. 0-0 ...
abcdefgh
16. ... - fxe4?
Slæmur afleikur. Eftir 16. ... Rg6
17. Bxc7 De718. exf5 Dxc719. Dd5+
Kh8 20. fxg6 Re7! væri staðan óljós
en svartur hefði góða mótspilsmögu-
leika.
17. Dxe4 - Dxc3
Nú er miðborð hvíts horfið og peð
að auki en yfirburðir biskupanna yfir
riddarana em svo miklir að eftir
nokkra leiki hefur hvítur vinnings-
stöðu.
18. Be3! - ...
Hvítur hótar Hcl (og d4-d5 í
sumum tilfellum) og hótunin verður
hættulegri þegar biskupinn hefur
hörfað úr skotlínu hróksins. Ég skil
ekki fyllilega hvers vegna ákveðinn
Fengsœll heimsmeistari: Garí Kasparoff [ fríi.
virðulegur stórmeistari mælti hér
með 18. Hf-dl og enn síður hvers
vegna einn kollegi hans hafði þetta
nánast orðrétt eftir honum.
18. ... - Da3
19. Bd3!! - Dd6
Allir aðrir leikir leiða til taps: 19.
... g6 20. Bc4+ Kg7 21. d5 eða 19. ...
Rf5 20. De6+ eða 19.... Hf5 20. Hb5
(einfaldast) Hxb5 21. Bxb5 Dd6 22.
Hcl.
20. Dxh7+ - Kf7
abcdefgh
Ef svartur gæti þraukað í þessari
stöðu mætti auðvitað efast um rétt-
mæti 18. leiks hvíts, en hvítur á vissu-
lega nokkrar vinningsleiðir, t.d. 21.
Bc4+ Ke8 22. Hf-el og „það er
hræðilegt að sjá svörtu stöðuna" (er
haft eftir Tal).
21. Hb5!
Kröftugasta framhaldið.
21. ... - Rxd4
22. De4? - ...
En þetta er afleikur. Hér leiddi 22.
Bxd4 Dxd4 23. Hg5! til vinnings, t.d.
23.... Ke6(23. ...Hh824. Bc4+!)24.
Dh3+ Kd6(24.... Kf625. Hf5+!)25.
Be2! Rd5 26. Hxd5+. Nú þarf svartur
hvorki að leika 22. ... Rxb5 (23.
Bc4+ Kf6 24. Dh4+ o.s.frv.) né 22.
... c5 (23. Bxd4 og 24. Bc4+!).
22. ... - Ha-d8!
Mér sást yfir þetta svar. Nú, eftir
tímatapið (23. Hg5 Hh8) var mál til
komiö að þvinga fram jafntefiið.
23. Bxd4 - Dxd4
24. Hf5+ - Rxf5
25. Dxf5+ - Kg8
26. Dh7+ - Kf7
Jafntefli.
jt/m
J t\cWWu r i\ I.
NAMSKEIÐ í MYNDBANDAGERÐ
Fyrirhugað er að hefja sex vikna námskeið mið-
vikudaginn 1. okt. nk. Kennsla fer fram í Miðbæj-
arskóla og verða kenndar 4 kennslustundir 2
kvöld í viku.
Megináhersla verður lögð á:
Kvikmyndasögu, mynduppbyggingu, eðli og
notkun myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð
auk æfingar í meðferð tækjabúnaðar ásamt upp-
töku, klippingu og hljóðsetningu eigin myndefnis
nemenda.
Innritun næstu daga á skrifstofu Námsflokkanna
frá 13-21 í símum 12992 og 14106.
Fóstrur - starfsfólk
Dagheimilið Steinahlíð óskar eftir starfsmanni
milli kl. 13 og 18.30.
Menntun og/eða reynsla æskileg. Upplýsingar í
síma 33280.
Sunnudagur 28. september 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5