Þjóðviljinn - 28.09.1986, Síða 20
Ættartengsl
Katrínar
Læknirinn og borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, Katrín
Fjeldsted, beitti sér hat-
rammlega fyrir því að eigend-
ur Sprengisands við Reykja-
nesbraut fengju að leggja
innkeyrslu af brautinni að
veitingastaðnum, Þetta knúði
læknirinn ( gegnum kerfið
þrátt fyrir mikla mótstöðu allra
umferðarsérfræðinga borgar-
innar. Katrín setti mjög ofan
eftir að Þjóðviljinn upplýsti að
hún er systkinabarn eins af
aðaleigendum Sprengisands,
Tomma margfrægs, eða
Tómasar Tómassonar sem
væntanlega réði stuðningi
hennar í málinu.
Nú er hins vegar komið í
Ijós að tengsl Katrínar við
Sprengisand eru mun sterkari
en baragegnumTomma. Fyr-
irtækið Bakhús hf á nefnilega
Sprengisand. Og einn af hlut-
höfum þess og aðalmaður er
lögfræðingur að nafni Skúli
Fjeldsted. Skúli er sonur Ág-
ústar Fjeldsted sem er bróðir
bæði föður Katrínar læknis og
móður Tomma. Þannig að
Katrín, Tommi og Skúli eru öll
systkinabörn. Hagsmuna-
tengslin eru því heldur betur
augljós.
I viðtali við HP sagði Katrín
að hún hefð ekki notið neins
fjárhagsstuðnings frá fænda
sínum Tomma. Saman eiga
þau hins vegar ásamt fleiri
ættingjum fasteign, þriðju
hæðina í Nýja Bíói í Reykja-
vík. Og í prófkjörsslagnum
leyfðu frændur hennar Katr-
ínu lækni góðfúslega að gera
eign fjölskyldunnar að bæki-
stöðvum kosningabaráttunn-
ar. En það heitir kannski ekki
stuðningur á máli Reykjavík-
uríhaldsins, sem hefur séð
það svartara í þeim efnum.
Þess má geta að meðal
umferðarsérfræðinga borgar-
innar ríkir mikil gremja út af
afskiptum og ummælum Katr-
ínar í málinu. Eftir að borgar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins
höfðu saumað harkalega að
Katrínu á síðasta borgar-
stjórnarfundi varð lækninum
það á að segja að rök umferð-
arsérfræðinganna í málinu
væru ómerk. í kjölfar þess
mun ónefndur háttsettur sér-
fræðingur (og svart íhald)
hafa skotið því að Davíð
Oddssyni að Katrín væri ber-
sýnilega á rangri hillu. Fyrst
hún hefði þvílíkt ógnarvit á
umferðarmálum væri rétt og
sjálfsagt að fá hana til að
hætta störfum við heilsugæsl-
ustöðina í Fossvogi og gera
hana að yfirmanni umferð-
ardeildar borgarinnar. Davíð
mun ekki hafa brosað...B
Karlrembuvígi
að falla
Gætið ykkar karlrembusvín
allra flokka - sfðasta vígið er
að falla. Samúel, blað
karlrembunnar á (slandi virð-
ist vera að láta af villu síns
vegar. Allt bendir til að næsta
tölublað verði nær eingöngu
skrifað af konum úr hópi
„free-lance“ blaðamanna.
Þessar konur munu vera Elín
Albertsdóttir, Rósa Guð-
bjartsdóttir sem einnig starf-
ar á Bylgjunni, Bryndís Krist-
jánsdóttlr, sem auk skrifa í
Samúel sér um Eldhúsið í
Vikunni, og svo Margrét
Haraldsdóttir sem unnið hef-
ur á Alþýðublaðinu. Svo
kyrfilega hafa þessar gal-
vösku konur kveðið karl-
pungana á Samúel í kútinn að
þær munu nú næstum því
vera búnar að koma því til
leiðar að í næsta tölublaði
verði ekki mynd af allsberri
konu einsog vanalega, -
heldur allsberum karli.
EFÞÚÁTT
SRARISKf RTEINI
RÍKISSJÓÐS SEM
ERINNLEYSANLEGT
1. OKTÓBER
ÞVI RIKISSJOÐUR
BÝÐUR ÞÉR NY
SKÍRTEINI MED
6.5% ÁRSVOXTUM
UMFRAM
VERÐTRYGGINGU
OG ADEINS TIL
TVEGGJA ÁRA
Þú skalt hugsa þig um tvisvar áður
en þú fellur fyrir einhverjum
þeirra tilboða sem nú rignir yfir þig.
t*að er þinn hagur að ríkissjóður
ávaxti peningana þína áfram - í
formi nýs skírteinis; ávöxtunin er
góð og skírteinin eru laus eftir rétt
rúmlega tvö ár (gjalddagi er 10.
janúar 1989).
En það segir ekki aila söguna.
f*ótt sumir bjóði álitlegri vexti en
ríkissjóður eru spariskírteinin engu
að síður um margt betri kostur. Þau
eru innlent lánsfé og draga því úr
erlendri skuldasöfnun, þau eru eign-
arskattsfrjáls (eignarskattur er nú
1,2% á ári) og þau eru öruggasta
fjárfesting sem völ er á; þeim fylgir
engin áhætta.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
GOH FÓLK / SÍA