Þjóðviljinn - 18.10.1986, Qupperneq 2
—SPURNINGIN-
Hvemig líst þér á 600 milljóna
orkuskattinn sem á aö leggja
á um næstu áramót?
Sigurður Hafsteinsson,
sjómaður:
Mér líst engan veginn á hann. Það er
alls ekki nógu gott að hækka bensín-
verðið aftur, og olíuverðshækkun
kemur illa niður á útgérð og sjó-
mönnum.
Gunnar Bjarnason,
húsasmiður:
Ég er ekki hrifinn af honum. Ég á 2
bíla þannig að bensínverðshækkun
þýðir umtalsverðan kostnað fyrir mig.
En ef eitthvað kemur á móti þessari
skattheimtu, til dæmis breytt skatt-
þrep þá má skoða það. Bílanotkun er
ekki munaður í dag, og þetta er
neysluskattur sem dregur úr keyrsl-
unni. Það er þó erfitt að keyra minna,
maður verður að komast til og frá
vinnu.
Þorbjörg Eðvarðsdóttir,
hárgreiðslunemi:
Mér líst ekki vel á hann. Ég nota bíl
mjög mikið og ek langar leiðir þannig
að bensínhækkun verður dýr fyrir
mig.
Jóhannes Guðmundsson,
lögreglumaður:
Ef þessi skattur nær að bjarga ein-
hverju fyrir þjóðarbúið þá finnst mér í
lagi að leggja hann á. Það er verst að
þetta fer alveg hrikalega með útgerð-
ina. Bensínverðið fer í sama farið og
áður, en ég treysti ríkisstjórninni al-
veg til þess að ráðstafa þessu fé á
öruggan hátt.
Kristín Konráðsdóttir,
afgreiðslustúlka:
Ég nota bíl talsvert og er ekki hrifin af
því ef það á að hækka bensínverðið.
Ég vil frekar sjá sjálf um að ráðstafa
peningunum, heldur en að láta ríkis-
stjórnina taka þá í skatta.
_____________FRÉTT1R__________
Húsnœðisstofnun
Greiðsluerfiðleika-
lánum hætt
Framlagið uppurið. Búið að veita yfir 2000 erfiðleikalán á
þessu ári. Vandinn virðist ekkert minnka hjá fólki
Húsnæðismálastjórn hefur
samþykkt að taka ekki lengur
við umsóknum um lán vegna
greiðsluerfiðleika húsbyggjenda
eða kaupenda þar sem það fjár-
magn er á þrotum sem ætlað var
til aðstoðar þessum aðOum. Hlut-
verki Ráðgjafarstöðvar Húsnæð-
isstofnunar hefur því verið breytt
þannig að hér eftir á að kanna
allar Ijárfestingar- og greiðsluá-
ætlanir sem berast með lánaum-
sóknum.
Frá því að byrjað var að taka
við umsóknum um lán vegna
greiðsluerfiðleika í ársbyrjun sl.
hafa ráðgjafarstöðinni borist
2.206 lánsumsóknir og þar af hafa
2.046 umsóknir verið afgreiddar.
Veitt hafa verið lán út á 1.767
íbúðir að upphæð tæpar 500 milj-
ónir og er meðallánið rúmar 280
þús. kr.
279 umsóknum hefur verið
hafnað en eftir á að afgreiða 160
umsóknir.
í fréttatilkynningu frá Hús-
næðisstofnun segir að það veki
athygli að mikill fjöldi þeirra sem
sótt hafa um lán vegna greiðslu-
erfiðleika hófu íbúðarbyggingu
eða sömdu um íbúðarkaup eftir
að mesta misgengistímanum lauk
um áramótin 1984. Þannig hafi
nær helmingur umsækjenda um
greiðsluerfiðleikana á þessu ári
keypt eða byggt íbúð á síðustu 3
árum. Af þessu er ljóst að vandi
íbúðarkaupenda er víða engu
minni en áður fyrr.
Þessir bráðhressu krakkar eru úr Æfinga- og Kennaraskólanum, í sjö og átta er Össur Skarphéðinsson ritstjóri sem reynir sig við atkvæði framtíðarinnar.
ára bekk. Þau komu í heimsókn til okkar í fyrradag að skoða Þjóðviljann og hér Mynd E.ÓI.
Leiðtogafundurinn
Ekki í vísitöluna
Verðlagsstofnun: Verðhækkanirsem urðu meðan á
fundinum stóð ólíklegar til þess að hafa áhrifá
framfœrsluvísitöluna
Leiðtogafundurinn
Talstöðvum
stolið
Aðfaranótt sl. miðvikudags 15.
okt. var stolið 12 Motorola hand-
talstöðvum úr flugskýli nr. 1 á
Reykjavíkurflugvelli. Hér er um
að ræða mjög dýrar talstöðvar,
en þær eru í eigu NBC News frétt-
astofunnar, sem hafði aðsetur í
áðurnefndu flugskýli meðan
leiðtogafundurinn fór fram.
NBC News fréttastofan heitir
góðum fundarlaunum til handa
þeim er getur gefið upplýsingar
sem að gagni mega koma til að
málið upplýsist og að þeir endur-
heimti talstöðvarnar. Einnig
voru teknar nokkrar vararaf-
hlöður.
Þeir sem geta gefið einhverjar
upplýsingar hafi samband við
Rannsóknarlögreglu ríkisins í
síma 44000.
■
Samskonar stöð og stolið var á
Reykjavíkurflugvelli.
Ég get nánast fullyrt að ef það
hafa átt sér stað einhverjar verð-
hækkanir á meðan á leiðtoga-
fundinum stóð, þá munu þær
ekki koma fram í framfærsiuvísi-
tölunni, sagði Guðmundur Sig-
urðsson yfirviðskiptafræðingur
Verðlagsstofnunar vegna um-
mæla Steingríms Hermannssonar
í útvarpinu í fyrradag þar sem
hann lýsti yfir áhyggjum sínum af
því að svo gæti orðið.
Guðmundur sagði að ekki
hefði verið gerð nein úttekt á því
hvort verðlag hafi hækkað meðan
á fundinum stóð, en slík úttekt
verði gerð um næstu mánaðamót
að venju. Sagði Guðmundur að
einu hækkanirnar sem þeir hafi
orðið varir við væru breytingar
hótelanna frá vetrarverði í
sumarverð, en vetrarverðið væri
nú komið á aftur.
-K.Ól.
>2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. október 1986