Þjóðviljinn - 18.10.1986, Blaðsíða 8
Jónas tekur lagið á vísnavinakvöldinu á Hótel Borg. Með honum á myndinni eru þeir Halldór Kristinsson og Troels Bendtsen, sem báðir voru I söngtrfóinu „Þrjú
á palli". Ljósm. RÁA.
Vísnavinir
Til söngs og skemmtunar
Vísur og kvœði Jónasar Arnasonar komin út á bók
Bókaforlagið Imbusteinn hef-
ur sent frá sér glæsilega út-
gáfu á vísum og kvæðum Jón-
asar Árnasonar ásamt til-
heyrandi nótum. Bókin, sem
heitirTil söngs, erlistilega
myndskreytt af myndlistar-
mönnunum Atla Má, Hring Jó-
hannessyni, Kjartani Guð-
jónssyni, TryggvaÓlafssyni,
Eiríki Smith, Jóhannesi Jó-
hannessyni, Steinþóri Sig-
urðssyni og Valtý Péturssyni.
í tilefni útkomu bókarinnar var
Jónas sérstakur gestur Vísnavina
á Hótel Borg í vikunni, þar sem
saman voru komnir margir þeir
tónlistarmenn sem átt hafa þátt í
aö gera söngtexta Jónasar þjóð-
kunna, þar á meðal þeir Troels
Bendtsen, Halldór Kristinsson
og Helgi Einarsson úr söng-
flokknum „Þrjú á palli“. Edda
Þórarinsdótir, sem var ómissandi
þáttur í söngtríóinu, var hins veg-
„En þótt hún syngi bara dirrindí, fannst mér vera þónokkurt vit í því". Mynd-
skreyting Eiríks Smith við alkunnan texta Jónasar.
ar fjarri góðu gamni þar sem hún
dvelur nú erlendis. Á Borginni
var sungið af hjartans lyst, en
Jónasar sagðist sakna þess tíma
þegar þau „Þrjú á palli“ voru
stöðugt að panta nýja texta, því
eftir að tríóið hætti hefði hann
sáralítið ort. Meðal annarra gesta
á vísnakvöldinu voru flestir þeir
myndlistarmenn, sem mynd-
skreytt hafa bókina.
Jónas var útnefndur heiðurs-
félagi félagsins Vísnavinir, og er
hann þriðji félaginn sem verður
þess heiðurs aðnjótandi. Hinir
voru þeir Ási í Bæ og Ásgeir
Ingvason. Af því tilefni lét Jónas
þess getið að hann væri líka
heiðursborgari í Oklahoma í
Bandaríkjunum, en þá viður-
kenningu hlaut hann af alkunnri
rausnarsemi Bandaríkjamanna
þegar hann sótti þar þing Al-
þjóða leikhúsráðsins.
Söngtextar Jónasar eru flestir
ortir við erlend þjóðlög, og er
sjaldnast um nákvæma þýðingu
að ræða, heldur er textinn oftast
ortur upp úr íslenskri reynslu höf-
undar með þeim hætti að lögin
eru flestum íslendingum orðin
töm sem alíslensk væru. Vísna-
bókin Til söngs er 125 síður í
stóru broti. Hún hefur að geyma
64 söngtexta með nótum og
myndskreytingum.
ólg.
Kvikmyndir
Stella í orlofi
Frumsýnd í Austurbæjarbíói í dag
Islenska gamanmyndin Stella í
orlofi verður frumsýnd í Austur-
bæjarbíói í Reykjavík og í Félags-
blói í Keflavík iaugardaginn 18.
október.
Stella í orlofi gerist í Reykjavík
og nágrenni sumarið 1986. Stella
er venjuleg húsmóðir og á 3 börn
með manni sínum Georg sem
rekur ullarfyrirtæki í borginni.
Til sögunnar kemur Salomon
Gustavson, sænskur meðalróni,
sem leitar til íslands til að fá
lækningu á drykkjuvandamáli
sínu. Þegar hann er stiginn á ís-
lenska grund, verður hann fyrir
því láni að hitta Stellu og fyrir
misskilning lendir hann með
henni og börnum hennar í orlofi.
Ekki er þetta orlof af rólegra tag-
inu hjá Svía greyinu, því á hann
herjar íslenskt nútímalíf í allri
sinni nekt: Læjónsklúburinn
Kiddi, bannaður bjór, túristaok-
ur til sveita, laxeldi, framhjáhald,
afvötnunaræði og aðrir aðskota-
hlutir, sem ekki verða tíundaðir
hér. En Stella R. Löve gerir allt
hvað hún getur til að gera honum
lífið sem áfallalausast og ánægju-
legast, hvort sem henni tekst það
eða ekki. Um það verða áhorf-
endur að dæma...
í myndinni koma fram allir
helstu gamanleikarar landsins,
svo sem Edda Björgvinsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson, Gestur
Einar Jónasson, Gísli Rúnar
Jónsson, Sigurður Sigurjónsson,
Eggert Þorleifsson, Bessi Bjarna-
son, Ása Hlín Svavarsdóttir og
margir fleiri. Framleiðandi
myndarinnar er Kvikmyndafé-
lagið Umbi sf.
Handrit gerði Guðný Hall-
dórsdóttir, kvikmyndatöku ann-
aðist Jan Pehrson frá Svíþjóð,
hljóð nam Martien Coucke frá
Belgíu og Kristín Pálsdóttir
klippti myndina. Leikmynd gerði
Halldór Þorgeirsson, tónlist Val-
geir Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri var Ingibjörg Briem og
leikstjóri að Stellu í oriofi var
Þórhildur Þorleifsdóttir.
Þórhallur Sigurðsson og Edda Björgvinsdóttir í hlutverkum Salomons Gustav-
son og Stellu R. Löve.
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. október 1986
---MENNINGAR----------
MOLAR
Leo Smith
Hljómplötuútgáfan Gramm
hefur gefið út plötu með banda-
ríska trompetleikaranum Leo
Smith í samvinnu við bandaríska
útgáfufyrirtækið Kabell. Platan
ber nafnið „Human rights" og
verður henni dreift á markað í
Evrópu og Bandaríkjunum. Leo
Smith var valinn athyglisverðasti
trompetleikari ársins árið 1980 af
jazztímaritinu Down Beat. Tón-
listin á nýju plötunni er undir
áhrifum frá fönk- og blús-tónlist,
en verkin eru öll frumsamin.
Hljómplatan er tileinkuð mann-
réttindabaráttu í S-Afríku, sem
endurspeglast í söngtextum.
Meðal hljóðfæraleikara er gítarl-
eikarinn Stanya (Þorsteinn
Magnússon).
Egg-leikhúsið
er nýkomið heim frá leiklistar-
hátíðinni í Dublin, þar sem það
sýndi einleik Viðars Eggerts-
sonar „Nor I... but...“ 70 sinnum
fyrir jafn marga áhorfendur og
leikrit Árna Ibsens „Skjaldbakan
kemst þangað líka" 11 sinnum.
Vöktu sýningarnar athygli og
hlutu mjög góða dóma
gagnrýnenda. í ferð Egg-
leikhússins voru Viðar Eggerts-
son leikari, Árni Ibsen höfundur
og leikstjóri, Gerla leikmynda- og
búningahönnuður, Árni Bald-
vinsson Ijósahönnuður og Mar-
grét Guttormsdóttir tæknimaður.
Egg-leikhúsið heldur nú senn á
leiklistarhátíð í Kaupmannahöfn,
sem haldin verður 22.-26. okt.
nk., en íslenski dansflokkurinn
mun einnig taka þátt í hátíðinni.
Þar mun Egg-leikhúsið sýna
Skjaldbökuna tvisvar. Flugleiðir
og Norræni menningarsjóðurinn
hafa styrkt ferðina.
Selma Kaldalóns
Út er komin hljómplata með 24
sönglögum eftir Selmu Kalda-
lóns. Selma er fædd árið 1919,
dóttir hjónanna Margrethe og
Sigvalda Kaldalóns, læknis og
tónskálds. Áður hefur Fálkinn
gefið út plötu með 12 lögum
Selmu og 10 lögum föður hennar
og árið 1983 gaf Selma út 27
sönglög á nótum, sem hún til-
einkaði foreldrum sínum. Selma
lést af slysförum í desember
1984 og er þessi plata gefin út af
Jóni Gunnlaugssyni eiginmanni
hennar og niðjum þeirra hjóna. Á
plötunni koma fram fjöldi kunnra
listamanna. Þeir eru: Kristinn
Sigmundsson, Elísabet F. Eiríks-
dóttir, Elín Sigurvinsdóttir, Júlíus
Vífill Ingvarsson, GuðrúnTómas-
dóttir og undirleikararnir Ólafur
Vignir Albertsson og Jónas Ingi-
mundarson.
Gangleri
Tímaritið Gangleri, síðara hefti
60. árgangs, er komið út. Það
flytur greinar um andleg og
heimspekileg mál og alls eru 17
greinar í þessu hefti, auk smáefn-
is. Meðal efnis má nefna minn-
ingargrein um J. Krishnamurti,
kafla úr bókinni „Zenhugur, hug-
ur byrjandans", viðtal um áhrif
lita og grein um uppiifun fósturs.
Þá er fyrri grein af tveimur um
Atlantis og Sigvaldi Hjálmarsson
skrifar um kyrrð. Gangleri er
ávallt 96 blaðsíður og kemur út
tvisvar á ári. Áskriftargjald er.kr.
500. Sími 39573. v