Þjóðviljinn - 18.10.1986, Side 16
UODVIUINN
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Leðjuslagurinn
Eykon
slettir
duglega
Albertmeð 11 metra.
Ragnhildur frammúr
Rúnari. María aftar á
merinni. SlakihjáÁs-
geiri. Samtals 82,65 dálk-
metrar
Eyjólfur Konráð er maður gær-
dagsins í leðjuslag Þjóðviljans
þar sem frambjóðendur Sjáif-
stæðisflokksins keppa um
myndarleg sigurlaun: mynd af
sér, fjölskyldu sinni og hundi í
ÞjóðvUJanum eftir helgi. Eykon
stökk úr níunda sæti í það fjórða
með tveimur glæsilegum heilsíð-
um I Mogga og DV, sem sameigin-
lega taka þátt sem keppnisvöllur.
Albert heldur enn forystu sinni
þrátt fyrir góðar tUraunir hjá
Bessí.
Enn deila keppendurnir um
fyrirk'omulag og stigagjöf, og
hafa þær deilur orðið svo háværar
að Staksteinar Morgunblaðsins
hafa skorist í leikinn. Þar segir að
ýmsir annmarkar hafi komið í
ljós við leðjuslag Þjóðviljans:
„Að því hlýtur að koma, fyrr en
síðar, að þetta fyrirkomulag
verði endurskoðað, jafnvel
stokkað upp.“
Sem fyrr eru háværastar raddir
keppenda sem auglýsa á Bylgj-
unni og krefjast stiga fyrir það.
Esther, Sólveig, Vilhjálmur og
Bessí munu hafa auglýst þar fyrir
um 120 þúsund samtals. Þá eru
mikil vandkvæði á að skipta milli
keppenda stigum fyrir heilsíðu-
auglýsingu á miðopnu Mogga í
gær, þar sem birt er sjónvarpsá-
varp Mikaíl Gorbatsjof til áhang-
enda. Bessíarmenn telja þetta sér
til tekna, en Geirsmenn segja að
flokkskerfið sé sviplíkt í hvorri
Keflavíkinni sem róið er og vilja
bæta Gorbatsjofsíðunum við
Haarde-stigin.
Ragga ráðherra bætti ráð sitt
nokkuð í gær, skaust úr neðsta
sætinu í tólfta, og Friðrk sópaði
Rúnari flugstjóra til hliðar. Mar-
ía er að dragast aftur úr og verður
að herða sig verulega í dag, og
sama má segja um Ásgeir kjöt-
verslunarmann.
Listi dagsins er svona:
1(1) Albert 1101 dsm
2 ( 2) Bessí 940 dsm
3(4)Guðm.H. 835 dsm
4 ( 9) Ey. Kon. 779 dsm
5 ( 3) Ásgeir H. 720 dsm
6 ( 8) B. Isleifur 635 dsm
7 ( 5) Sólveig 631 dsm
8( 7)JónH. 574 dsm
9 ( 6) María 488 dsm
10(10) Vilhjálmur 362 dsm
11 (12) Geir 345 dsm
12(15) Ragnhildur 289 dsm
13(11)Esther 200 dsm
14(14) Friðrik 200 dsm
15(13) Rúnar 166 dsm
Samtals eru keppendur búnir
að auglýsa í 82,65 dálkmetrum
(um 42 síður í dagblaði), og bætt-
ust í gær við heilir 20,2 metrar,
enda birtar 18 auglýsingar, þaraf
fjórar heilsíður. Moggi og DV
veita þá aðstoð að slá 30% af
verði, og borga keppendur 231
krónu fyrir dálksentímetrann.
Fylgist með í Þjóðviljanum.
Stígur Bessí frammúr á loka-
sprettinum? Hvar endar Eykon?
Hvernig endar einvígi Ragnhild-
ar og Rúnars flugstjóra? Ná þau
100 metrunum? Hver fær mynd
af sér og hundinum í Þjóðviljan-
um? -m
Síldarverð
Lækkar um 20%
Verðlagsnefnd sjávarútvegsins ákvað að lækka síldarverð að meðal-
taliyfir20%. Óskar Vigfússon: Þýðir 42% kjaraskerðingu fyrir síld-
arseljendur
Allt er nú í óvissu með hvort
takist að selja Sovétmönnum salt-
sfld og hefur viðræðum um frek-
ari kaup verið slitið eins og fram
kom í Þjóðviljanum í gær. Is-
lenska samninganefndin hafnaði
tilboði frá Sovétmönnum, sem
var 46% lægra en það verð sem
samið var um I fyrra. Þá ákvað
yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins i gær að lækka hráefnis-
verð á sfld að meðaltali yfir 20%.
Ákvörðunin var tekin gegn at-
kvæði fulltrúa síldarseljenda,
Óskari Vigfússyni. Mótmæli hans
voru byggð á því að lækkunin
hefði þær afleiðingar að síldarsjó-
menn myndu ekki ná hlut úr afla
sínum og að sfldarsjómenn
standa frammi fyrir 42% kjara-
skerðingu miðað við síðasta ár á
meðan almenn laun í landinu
hafa hækkað um 21%.
Kanadamenn og Norðmenn
sem hafa getað selt Sovét-
mönnum síld að undanfömu á
afar hagstæðu verði, en að sögn
Gunnar Flóvenz hjá Sfldarút-
vegsnefnd er þetta hagstæða verð
til komið vegna gífurlegra ríkis-
styrkja, sem hefðu farið hækk-
andi þrátt fyrir að öðru hefði ver-
ið haldið fram.
Núna er sfldarvertíðin að hefj-
ast og var ætlunin að salta
meginhluta aflans eins og verið
hefur undanfarin ár. Um 70%
hefur farið í salt en afgangurinn í
frystingu. Svo til öll saltsfldin hef-
ur verið seld til Sovétríkjanna,
enda hefur salan þangað vaxið úr
20.000 tunnum í 200.000 tunnur
sfðasta áratuginn.
Norðmenn bræða meginhlut-
ann af sínum síldarafla, eða 63%
á síðasta ári en salta einungis um
5% aflans. Hefur salan til Sovét-
ríkjanna undanfarin ár bjargað
aflanum frá því að lenda í
bræðslu, en þar fæst aðeins brot
af því verði sem fengist hefur fyrir
saltsíldina.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra hefur lýst því yfir að hann
telji eðlilegt að tengja saman
samninga um kaup á olíu og sölu
á sfld til Sovétríkjanna. Fram-
kvæmdastjóri LÍU hefur haft
uppi svipaðar yfirlýsingar. Ráðu-
neytisstjóri viðskiptaráðuneytis-
ins er farinn utan til Moskvu og
forstjórar olíufélaganna fara
þangað í dag. Viðræður um kaup
á olíu hefjast á mánudag og má
búast við að viðræður um kaup á
síld hefjist ekki fyrr en línur
skýrast um olíukaupin.
-v./K.ÓI.
Blaðaprent
Stefnt á Lyngháls
Viðrœður hafnar við byggingarverktaka um nýtt húsnœðifyrir Blaða-
prent í iðnaðarhverfinu neðan Árbœjar
Stjórn Blaðaprents hefur
ákveðið að hefja viðræður við
Árna Jóhannesson bygginga-
meistara um kaup á húsi sem í
smíðum er við Lyngháls, milli Ár-
bæjarhverfls og Vesturlandsveg-
ar. Til stendur að kaupa nýja
prentvél og er Ijóst að núverandi
húsnæði prentsmiðjunnar við
Síðumúlann hýsir hana illa.
Eigendur Blaðaprents eru
Þjóðviljinn, Tíminn og Alþýðu-
blaðið, og auk þessara blaða eru
þar prentaður Helgarpósturinn
og fjöldi annarra minni blaða.
Fyrirtækið var stofnað 1972 og
var framanaf ævi í fararbroddi í
penttækni. Þar voru blöðin sett'
og brotin um þangað til Vísir
hljóp úr samstarfinu, og hafa
blöðin síðan rekið eigin prent-
smiðjur til setningar og umbrots,
og húsnæðið við Síðumúla nýst
illa.
Gangi samningar, bygging og
pressukaup eftir áætlun má búast
við að Blaðaprent setjist að á
Lynghálsi síðla næsta árs.
Á Tímanum og Alþýðublaðinu
eru uppi hugmyndir um að flytja
ritstjómarskrifstofurnar með
prentsmiðjunni í Lyngháls, og
slíkar hugmyndir hafa einnig ver-
ið ræddar í stjóm Þjóðviljans en
engin ákvörðun tekin enn.
-m
versluninni Heimilistækjum í gær var allt iðandi af fólki með gallaða kapla í höndunum. Ljósm.: Sig.
Stöð 2
Afmglaramir ónothæfir
Um 1500-2000 kaupendur á afruglurumfengu gallaða kapla með tœkjunum
Um 1500-2000 kaupenda á af-
ruglurum fengu gallaða kapla í
hendurnar þegar þeir keyptu af-
ruglara og er þar komin skýring á
þeim erfíðleikum sem þessir
áskrifendur Stöðvar 2 hafa átt við
að ná fram ótruflaðri mynd á
tækjum sínum.
Kaplarnir, sem eru notaðir til
þess að tengja saman þau tvö tæki
sem afruglarinn er samansettur
úr, hafa verið kallaðir inní versl-
unina Heimilistæki aftur í
skiptum fyrir ógallaða kapla.
Mjög annasamt hefur verið hjá
tæknimönnum Heimilistækja síð-
ustu daga, en þeir hafa verið að
vinna langt frammá kvöld við að
aðstoða fólk við að tengja tækin
sem náðu ekki að afrugla mynd-
ina vegna gallaðra kapla.
Um 3000 pantanir á afruglur-
um hafa verið afgreiddar en sam-
tals um 5000 manns hafa lagt inn
pantanir.
-K.ÓI.
Slys
2 Norðmenn
slasast illa
Tveir skipverjar á norska
flutningaskipinu Tinnes slösuðust
illa þegar hnútur kom á skipið í 10
vindstigum og ólgusjó 100 milum
S-A af Vestmannaeyjum í gær.
Slysavarnafétagið hafði umsjón
með að bjarga mönnunum á
sjúkrahús í Reykjavík og var
þyrla bandaríska hersins fengin
til starfans.
Að sögn Jóhannesar Briem hjá
Slysavarnafélaginu voru menn-
irnir báðir brotnir, annar á hand-
legg og hinn rifbeinsbrotinn og
báðir höfðu skaddast á baki.
Annar mjög alvarlega.