Þjóðviljinn - 21.11.1986, Page 3
FRETTIR
Kjarnorkufrysting
Meirihluti gegn Matthíasi?
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarmanna,
hafnaði í gær þeirri túlkun utan-
ríkisráðherra að fslendingum sé
ekki fært að styðja frystingartil-
lögu Svíþjóðar og Mexíkó hjá
Sameinuðu þjóðunum, þar sem
hún sé í ósamræmi við ályktun
alþingis um afvopnun frá 23. maí
1985. Þvert á móti sagði Páll að
„það væri rökrétt framhald á á-
íyktun aiþingis að styðja tillögu
Svíþjóðar og Mexíkó og fylgja þar
öðrum Norðurlöndum.“
Fyrir alþingi liggur tillaga
Hjörleifs Guttormssonar um að
alþingi taki afstöðu til þessa máls
áður en allsherjarþingið afgreiðir
tillöguna endanlega. Hann sagði
m.a. að það væri óþolandi að
utanríkisráðherra túlkaði sam-
þykkt alþingis frá 1985 eins og
gert hefði verið - með hjásetu á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Hjörleifur spurði utanríkisráð-
herra hvort hann vildi ekki að
þingviljinn kæmi í ljós í þessu
mikilvæga máli. Matthías Á.
Mathiesen kaus að láta sem hann
heyrði ekki þá spurningu og
þagði.
Ráðherrann sagði hins vegar til
varnar ítrekaðri hjásetu íslands
að engar þær forsendur hefðu
breyst sem gerðu það að verkum
að Island ætti að breyta sinni fyrri
Bonnie Tyler
Syngur
í Reykjavík
og á Akureyri
Poppsöngkonan Bonnie Tyler
er væntanleg hingað' til lands í
byrjun desember og heldur hún
tónleika í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Skipuleggjandi tónleikanna
Tony Sandis sagði í samtali við
Þjóðviljann að sjálfsagt væri það í
fyrsta sinn sem frægur
poppsöngvari erlendur, héldi
tónleika á Akureyri. Áætlað er
að Tyler komi til landsins 4. des-
ember, brýni raust sína í Laugar-
dagshöllinni 5. desember og í
íþróttahöllinni á Akureyri dag-
inn eftir. _IH
Jafnréttisráð
Konan
sem
getur
allt
Ráðstefna í
Sóknarhúsinu á morgun
Jafnréttisráð heldur á morgun
ráðstefnu í Sóknarhúsinu, sem
ber yfirskriftina Fjölskyldan og
framtíðin. Flutt verða erindi um
félagsleg atriði og framtíðaráhrif
þeirra á fjölskylduna og jafnrétti,
um „konuna sem getur allt“ eða
togstreitu kvenna milli vinnu og
heimilis.
Þá verður einnig fjallað um
breytingar á fjölskyldunni og
fluttur verður stuttur leikþáttur.
Þátttöku skal tilkynna til
Jafnréttisráðs í síma 27420 eða
27077. -vd.
afstöðu til tillögu Svíþjóðar og
Mexíkó. Afvopnunarmál hefðu
þar að auki tekið nýja stefnu.
Menn væru ekki lengur að ræða
um frystingu, heldur fækkun
kjarnorkuvopna og jafnvel út-
rýmingu þeirra á ákveðnu árabili.
Það væri því þvert á viðræður
stórveldanna eftir Reykjavíkurf-
undinn að alþingi samþykkti nú
tillögu um frystingu, auk þess
sem tillaga Svíþjóðar og Mexíkó
væri í veigamiklum atriðum ekki í
samræmi við ályktun alþingis frá
1985.
Kristín Ástgeirsdóttir lýsti
stuðningi Kvennalistans við til-
lögu Hjörleifs og sagðist ekki sjá
neina þá breytingu í viðræðum
stórveldanna, sem ráðherra vís-
aði til. Alþingi yrði að taka skel-
egga afstöðu í stað þess að bíða
bara átekta.
Páll Pétursson sagði það
óþarfa feimni hjá ráðherranum
að vilja ekki tala um frystingu þó
menn hefðu í bjartsýni sinni talað
um enn stærri skref í átt til af-
vopnunar. Frysting væri áfangi í
sjálfu sér. Loks tók Páll fram að
stjörnustríðsáætlunin væri for-
kastanleg og íslendingar yrðu að
leggjast gegn henni. - ÁI.
Hernaður
Kirkjan styður frystingu
Kirkjuþing varar við auknum
hernaðarumsvifum hér á landi og
hvetur stjórnvöld til að leita ann-
arra leiða til að tryggja öryggi
okkar en leið vígbúnaðarins. Þá
lýsir þingið stuðningi við kröfuna
um frystingu kjarnorkuvopna.
Kirkjuþingi lauk í gær og var þá
samþykkt samhljóða tillaga um
friðarmál, þar sem áður greind
afstaða kemur fram. f tillögunni
er því fagnað að ísland skuli hafa
orðið vettvangur leiðtogafundar-
ins og vonast til að árangur verði
af fundinum. Þá er lýst stuðningi
við ályktun Alþingis um að ísland
verði áfram kjarnorkuvopna-
laust.
Jafnframt var samþykkt álykt-
un um lánamál einstaklinga og
kirkjuráði falið að kanna hvort
vegið sé að hjónabandinu í
skattalögum, lögum um Húsnæð-
isstofnun og lánasjóð íslenskra
námsmanna.
Kirkjuráð er æðsta stofnun
kirkjunnar milli þinga og lauk
þinginu á að kosið var í það.
Tveir fulltrúar leikmanna, þeir
Gunnlaugur Finnsson frá Hvilft
og Kristján Þorgeirsson Mosfells-
sveit. Þá var annar fulltrúi presta,
Jónas Gíslason endurkjörinn.
Séra Jón Einarsson, Saurbæ, sit-
ur nú í fyrsta sinn í ráðinu og kem-
ur í stað Sigurðar Guðmunds-
sonar, vígslubiskups. Biskup er
sjálfkjörinn formaður ráðsins.
-Sáf/m
Glasgowferðirnar
Fleiri um rauða hliðið
Um 20-30 manns hafa á sl. 2-3 dögum verið teknir eða gefið sigfram með umframvarning
Á síðustu dögum hafa um 20-30
Glasgowfarþegar á Keflavíkur-
flugvelli gefið sig fram eða verið
tcknir með varning sem mctinn er
hærra að verðmæti en 7 þúsund
krónur sem er hámarksverðmæti
þess varnings sem leyfilegt er að
flytja inn í landið án þess að
jöfnunargjald og söluskattur sé
greiddur af vörunni.
Þetta er ágiskun Sverris Lút-
herssonar hjá Farþega- og áhafn-
ardeild Tollgæslunnar, en að
sögn Sverris er þessu fólki gert að
borga 3% af verðmæti vörunnar í
jöfnunargjald og allt uppí 16%
söluskatt. Ef varan er keypt í
EFTA-landi er söluskatturinn
enginn.
Eftir að umræðan um Glas-
gowferðirnar fór af stað og að-
gerðirnar í kjölfarið hefur fólk,
að sögn Sigfúsar Kristjánssonar
yfirtollgæslumanns á Keflavíkur-
flugvelli, í auknum mæli farið í
gegnum rauða hliðið svokallaða
og gefið upp umframvarning sem
venjulega er fatnaður. „Oft hafa
orðið mikil sárindi hjá fólki, sér-
staklega vegna þess að svo fáir
þekkja þessar reglur," sagði Sig-
fús.
Hjá tolladeild fjármálaráðu-
neytisins fengust þær upplýsingar
að reglurnar um 7 þúsund krónur
I Glasgow eða á Laugaveginum? Verðmunurinn er mikíll, sérstaklega ef ferðamaðurinn „gleymir" að mæta í rauða hliðið
(mynd: l.g.).
hámarksverðmæti væru frá því í
vor og að ekki stæði til þess að
breyta þeim. Reglurnar væru
hliðstæðar þeim sem giltu á hinu
Norðurlöndunum.
Hjá Verðlagsstofnun fengust
þær upplýsingar að ekki hafi ný-
lega verið gerð verðkönnun á
fatnaði hér á landi. Almennt mat
manna virðist þó vera að verð
fatnaðar sé mun meira hér á landi
en í Skotlandi, þrátt fyrir það að
þetta séu vörur sem kaupmenn
borga ekki tolla af séu þær
keyptar inn frá EBE- eða EFTA-
löndum. Að mati Jóhannesar
Gunnarssonar formanns Neyt-
endasamtakanna er verðmunur-
inn óskiljanlegur í þessu ljósi og
því full ástæða til þess að kanna
hvort verðlagsbreytingar hafi far-
ið úr böndunum frá því að álagn-
ing var gefin frjáls í fyrra.
- K.ÓI.
Prófkjörspest
Svæsin nafnlaus bréf
Karvel og kosningastjóri hansfá nafnlausar
sendingar
Þeim Karvel Pálmasyni þing-
manni Alþýðuflokksins og Birni
Inga Bjarnasyni kosningastjóra
hans í prófkjöri flokksins á Vest-
fjörðum hafa nýlega borist nafn-
laus bréf, þar sem vegið er að
þeim á ýmsan hátt.
„Ég hef fengið þrjú eða fjögur
slík bréf, eitt á ári undanfarin
þrjú ár,“ sagði Karvel.
-Telur þú að bréfin standi í
sambandi við prófkjörsbaráttu
þína fyrir vestan?
„Ég held að það sé augljóst. Ég
lít svo á að það sé sjúkdómur sem
ræður ferðinni hjá svona einstak-
lingum. Mér varð töluvert um
þegar ég fékk fyrsta bréfið en nú
tekur maður þessu einsog óeðli-
legri farandpest sem kemur upp í
kringum hvert prófkjör. Hér er
vart um heilbrigðan mann að
ræða og hvað sem manni finnst í
pólitík þá hélt ég að menn gengju
ekki þessa götu.“
Aðspurður kvaðst Karvel ekki
hafa tekið ákvörðun um hvort
hann muni kæra málið til
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Björn Ingi kvaðst hafa grun-
semdir um hver hefði sent bréf
það sem honum barst í síðustu
viku, en vildi ekki að svo stöddu
nefna nein nöfn.
„Málið fær eðlilega meðferð
sem er ákveðin af þeim sem málið
snertir, það er að segja mér og
samstarfsmönnum mínum í
Verkalýðsfélaginu Skildi á Flat-
eyri,“ sagði Björn Ingi. „Ég hef
áður fengið slík nafnlaus bréf en
engin svona svæsin. Bréfið er
tvær síður að lengd og í því er
vegið að mér og mörgum félögum
mínum og þeir dregnir inn í hluti
sem þeir eiga engan þátt í. Það
eru þau atriði sem við ætlum að
verja á eðlilegan hátt, þetta er
spurning um heiður minn og fé-
laga minna.“
-vd.
MARKAÐURINN
Grensásvegi 50
auglýsir:
HLJOMTÆKI
Kassettutæki
Magnarar
Hátalarar
Ferðatæki
Litasjónvörp
Hljómtækjaskápar
Bíltæki
Tölvur og fleira
frá kr. 7.000.-
frá kr. 7.000.-
frá kr. 2.500.-
frá kr. 4.000.-
frá kr. 8.000,-
SKIÐAVÖRUR
Okkur vantar nú þegar í
sölu skíöavörur af flestum
stærðum og geröum.
MARKAÐURINN
Grensásvegi 50
Sími 83350.
Föstudagur 21. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3