Þjóðviljinn - 21.11.1986, Síða 6
BORGARMÁL
Nesjavellir
Dýrkeypt framkvæmdagleði
Mikill ágreiningur umframkvœmdir á Nesjavöllum. Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins:
Orkuspá hitaveitustjóra röng. Óþarfafjáraustur upp á einn miljarð króna
Fjármagnskostnaður vegna
þessa áfanga nemur um 200 milj-
ónum króna á ári. Það er því lík-
legt að óþarfa fjáraustur sem
hlýst af þessari ótímabæru fram-
kvæmdagleði geti numið um ein-
um miljarði króna, segir m.a. í
bókun sem borgarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins lögðu fram á
borgarstjórnarfundi í gærkvöldi
eftir að samþykkt hafði verið að
hefja framkvæmdir við 1. áfanga
Nesjavallavirkjunar.
Deilt hefur verið um það um
langan tíma hvort tímabært sé að
fara út í þessar framkvæmdir nú.
Embættismenn borgarinnar og
borgarfulltrúar annarra flokka en
Alþýðubandalagsins telja að full
þörf verði fyrir 1. áfanga virkjun-
arinnar innan fárra ára, en borg-
arfulltrúar Alþýðubandalagsins
hafa beitt sér gegn því þar sem
þeir telja aðra kosti vænlegri.
Enginn ágreiningur er um hvort
virkja eigi á Nesjavöllum enda
sýna kannanir að það sé hag-
kvæmt, en menn greinir á um
hvenær hagkvæmt sé að hefja
þessar framkvæmdir.
Alþýðubandalagið hefur lagt
til að könnuð verði hagkvæmni
þess að nýta umframraforku frá
Landsvirkjun til þess að hita vatn
til húsahitunar. Ahugi hefur ver-
ið fyrir þessu hjá Landsvirkjun,
en síður hjá meirihluta borgar-
stjórnar. Alþýðubandalagsmenn
telja að með því að fara þessa leið
megi fresta framkvæmdum á
Nesjavöllum um nokkur ár, þar
til hagkvæmara verður að virkja
þar.
Eins og fram hefur komið er
framkvæmdaáætlun borgarinnar
byggð á spá Jóhannesar Zoega
hitaveítustjóra um aukna orku-
NYJUNG!
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Á RAFTÆKJUM
Er bilað raftæki á heimilinu t.d.
brauðrist, hraðsuðuketill, kaffivél,
vöfflujárn, straujárn, rakvél, ryksuga,
lampi eða eitthvert ámóta tæki? Ef
svo er komdu með það í
viðgerðarbílinn og reyndu
þjónustuna
Vlðgerðarbíll verður staðsettur við
eftirtaldar verslanir samkvæmt
tímatöflu
ÞRIÐJUDAGAR:
Grímsbær, Efstalandi26
kl. 1030 til 1230
Verslunin Ásgeir, Tindaseli 3
kl. 16°°til 1800
MIÐVIKUDAGAR:
Verslunin Árbæjarkjör, Rofabæ 9
kl. 1030til 1230
Kaupgarður, Engihjalla 8
kl. 16°°til 1800
FIMMTUDAGAR:
Verslunln Kjöt og fiskur,
Seljabraut 54
kl. 1030 til 1230
Hólagarður, Lóuhólum 2-6
kl.16°°til1800
FÖSTUDAGAR:
Verslunin Brelðholtskjör,
Arnarbakka 4-6
kl. 1030 til 1230
Fellagarðar, Eddufelli 7
ki.ieootino00
RARÆKJAVIOGEROIR
SÆVARS SÆMUNDSSONAR
VERKSTÆOt - VIÐGERÐARBlLL
ÁtFTAHÓLUM 4 - SlMI 72604
þörf á fram til aldamóta, en hún
er talin vera allt of há.
Þegar hafa verið lagðar 800
miljónir króna í rannsóknar á
Nesjavöllum. 1. áfanginn er að
auki talinn munu kosta 1800 milj-
ónir króna, þannig að alls verður
stofnkostnaður um 2.6 miljarðar
króna.
Sigurjón Pétursson sagði í gær
að ef virkj unarframkvæmdir ættu
að vera réttlætanlegar yrðu ekki
aðeins sumar, heldur allar for-
sendur fyrir þeim að vera réttar.
Hann benti á að þegar farið var út
í Kröfluvirkjun á sínum tíma var
greinilegt að markaður var fyrir
hendi, en allar tæknilegar for-
sendur brugðust. Nú væri ljóst að
allar tæknilegar forsendur væru í
lagi, en óljóst hvort nægur mark-
aður yrði fyrir þá orku sem fram-
leidd verður á Nesjavöllum og
það myndi óhjákvæmilega leiða
til aukinna álaga á borgarbúa í
hækkuðu verði á heitu vatni.
Davíð Oddsson borgarstjóri
fagnaði því hins vegar að sam-
staða hefði náðst um þetta mál í
borgarstjórn og gagnrýndi af-
stöðu Alþýðubandalagsins harð-
lega. -gg
Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins vildu fresta framkvæmdum á Nesjavöllum en meirihlutinn var annarrar skoðunar og
nú er Ijóst að 1. áfanga virkjunarinnar verður lokið innan fárra ára. Mynd Sig.
Aldraðir
Engar lausnir
em fyríitiugaðar
Tillögu um byggingu leiguíbúðafyrir aldraða vísað ínefnd
Það er auðvitað mjög alvarlegt
mál að nú skuli engar fram-
kvæmdir við leiguíbúðir fyrir
aldraða vera í gangi og ekki að sjá
að neitt slíkt sé fyrirhugað, sagði
Guðrún Ágústsdóttir Alþýðu-
bandalagi m.a. á borgarstjórn-
arfundinum í gærkvöldi þar sem
hún mælti fyrir tillögu minnihlut-
ans um hefja byggingu sérhann-
aðra leiguíbúða fyrir aldraða.
Tillögunni var vfsað til bygg-
ingarnefndar stofnana í þágu
aldraða, eða nefndarinnar með
langa nafnið eins og hún er stund-
um kölluð. í tillögu minnihlutans
er gert ráð fyrir að hönnun hefjist
í upphafi næsta árs og að fram-
kvæmdum verði hraðað eins og
kostur er.
Á sl. fjórum árurtfhafa einung-
is 69 íbúðir fyrir aldraða verið
teknar í notkun í sérhönnuðu
leiguhúsnæði, þ.e. Seljahlíðin,
og nú er svo komið að um 1100
aldraðir Reykvíkingar eru á bið-
lista hjá Félagsmálastofnun eftir
slíku húsnæði. Stór hluti þeirra er
talinn vera í brýnni neyð. 453 ein-
staklinganna á þessum lista eru
81 árs eða eldri og 63 eru 91 árs
eða eldri.
Guðrún Ágústsdóttir sagði
ljóst að húsnæðisvandi þeirra
sem eru á þessum biðlista yrði
ekki leystur á frjálsa markaðn-
um, en Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur lagt áherslu á að byggðar verði
söluíbúðir fyrir aldraða. Þannig
hefur borgin styrkt ýmis félaga-
samtök til að byggja söluíbúðir,
en komið hefur í Ijós að aðeins
örfáir þeirra sem hafa verið á
biðlistum hjá Félagsmálastofnun
hafa átt möguleika á að kaupa
þær íbúðir.
-gg
Fiskmarkaður
Stofn-
fundur
haldinn
í næstu
viku
Fiskmarkaðsmál í Reykjavík
eru komin í fullan gang og er
fyrirhugað að stofna hlutafélag
um rekstur slíks fyrirtækis í næstu
viku. Talsverð undirbúnings-
vinna hefur verið lögð í málið og
gífurlegur áhugi hefur verið fyrir
stofnun markaðar. Ráðgert er að
starfsemin hefji rekstur í Faxa-
skála, sem nú er eign Eimskipaf-
élagsins.
-gg
Heilsugœsla
r
Ahugaleysi og seinagangur
Hœg uppbygging heilsugæsluþjónustu íReykjavík. Lœknar
þola ekki lengur við. Hulda Olafsdóttir Kvennalista: Hraða
verður framkvæmdum
Sjálfstæðisflokkurinn var
gagnrýndur á síðasta kjörtímabili
fyrir áhugaleysi og seinagang í
uppbyggingu heilsugæsluþjón-
ustu og sú gagnrýni á fullan rétt á
sér enn í dag, sagði Kristín Á.
Ólafsdóttir borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins á borgar-
stjórnarfundi í gær, þar sem fjall-
að var um fyrirspurn minnihlut-
ans um heilsugæslu í Reykjavík.
Hulda Ólafsdóttur Kvenna-
lista tók undir þessa gagnrýni
Kristínar og sagði: „Ef Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlar að standa við
loforð sitt um að byggja eina
heilsugæslustöð á ári, er ljóst að
auka verður framkvæmda-
hraðann verulega." Hulda sagði
framkvæmdir hafa gengið allt of
hægt og benti á fyrirhugaða
heilsugæslustöð í Breiðholti þrjú
máli sínu til stuðnings, en þar
miðar framkvæmdum nánast
ekkert. Hulda gagnrýndi einnig
þau áform Sjálfstæðisflokksins
að hleypa einkageiranum í rekst-
ur heilsugæslustöðva, hugmynd
sem þegar hefur verið hrint í
framkvæmd.
Fram kom á fundinum að
vegna lélegrar aðstöðu í heilsu-
gæslustöðinni í Breiðholti þrjú,
sem er í allsendis ófullnægjandi
bráðabirgðahúsnæði, hafa fjöl-
margir Breiðhyltingar misst sinn
heimilislækni. Hann sendi skjól-
stæðingum bréf í síðasta mánuði
þar sem hann tilkynnti þeim að
hann þyldi ekki lengur við og nú
er sami læknir við störf á Seltjarn-
arnesi.
Katrín Fjeldsted Sjálfstæðis-
flokki sagði flokkinn hafa sett sér
það markmið á síðasta kjörtíma-
bili að byggja eina heilsugæslu-
stöð á ári og við það hefði hann
staðið. Hins vegar hefði það verk
verið mjög erfitt, þar sem fjár-
framlög ríkisins hefðu verið mjög
af skornum skammti.
-gg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. nóvember 1986