Þjóðviljinn - 21.11.1986, Qupperneq 13
New York
Mafíósar
fundnir
sekir
New York - Átta karlar voru í
fyrradag fundnir sekir fyrir
dómstóli í New York fyrir að
hafa skipulagt helstu glæpa-
verk Mafíunnar þar í borg und-
anfarin ár.
Kviðdómur sjö kvenna og
fimm karla fann mennina seka
um 22 atriði sem þeir höfðu verið
kærðir fyrir. Meðal ákæruatriða
voru morð, okurlánastarfsemi,
mútufé til verkalýðsfélaga og
fjárkúgun.
Dómur hefur ekki verið kveð-
inn upp en Mafíósarnir eiga yfir
höfði sér að minnsta kosti 20 ára
fangelsi. Þrír hinna átta manna
eru taldir æðstu menn í glæpafjöl-
skyldum New York borgar, Col-
ombo fjölskyldunnar, Lucchese-
og Genovesefjölskyldnanna.
HEIMURINN
Sameinuðu Þjóðirnar
Bandaríkin fordæmd
Bandaríkin voru ígœr fordœmd á Allsherjarþingi Sameinuðu
Þjóðannafyrir loftárásirnar á Líbýu í apríl síðastliðnum með
79 atkvœðum gegn 28. 33þjóðir sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR /nr r n,
HJÖRLEIFSSON K t U I t K
New York - Alisherjarþing
Sameinuðu Þjóðanna for-
dæmdi í gær árás Bandaríkj-
anna á Líbýu í apríl síð-
astliðnum sem brot á alþjóða-
lögum og því lýst yfir að Libýa
ætti rétt á skaðabótum.
Yfirlýsing um fordæminguna
var samþykkt með 79 atkvæðum
gegn 28, 38 þjóðir sátu hjá. 27
þjóðir stóðu að yfirlýsingunni,
þar á meðal Sovétríkin, Kúba,
Sýrland og íran. í yfirlýsingunni
segir að árásin sé „brot á sáttmála
Sameinuðu Þjóðanna og á al-
þjóðalögum." Einnig eru Banda-
ríkin hvött til að láta af því að
nota hótanir um valdbeitingu til
að leysa deilur sínar við Líbýu.
í yfirlýsingunni er einnig lögð
áhersla á rétt Líbýu „til að fá við-
eigandi bætur fyrir þann skaða
sem hlaust af árásinni, hvað varð-
ar mannslíf og önnur verðmæti."
Líbýa færði málið fyrir allsherjar-
þingið eftir að Bandaríkin, Bret-
land og Frakkland beittu neitun-
arvaldi sínu til að koma í veg fyrir
að ályktun um fordæmingu á
Bandaríkin yrði samþykkt í Ör-
yggisráði Sameinuðu Þjóðanna.
Ekki er hægt að beita slíku valdi á
fundum Allsherjarþingsins.
Gaddafi hefur að undanförnu
leitað stuðnings Þriðja heims
landa, þar á meðal hjá Sam-
tökum Óháðra ríkja, Sameining-
arsamtökum Afríkuríkja og hjá
Samtökum Arabaríkja.
Umræðan um þetta mál hófst í
gær. Þá sagði fulltrúi Líbýu að
land hans væri skotmark „villi-
mannslegra og ofbeldishneigðra“
árása frá hendi Bandaríkjanna.
Einnig efnahagslegra refsiað-
gerða og ófrægingarherferðar.
Fulltrúi Bandaríkjanna á Alls-
herjarþinginu sagði að nægar
sannanir væru fyrir því að Líbýa
hefði stundað hryðjuverk. Hann
sagði einnig að loftárásir Banda-
ríkjanna hefðu verið í sjálfsvörn
gegn „miðstöð hryðjuverkaáætl-
ana í Líbýu.“
Utanríkisstefna
baukinn í gær.
Reagans fékk
Bandaríkin/íranmálið
Heiður þjóðarinnar í veði
Washington - Stuðningsmenn
jafnt sem andstæðingar Ron-
alds Reagans Bandaríkjafor-
seta á bandaríska þinginu
kröfðust í gær fullnægjandi
skýringa á þvf sem þeir nefndu
ógreinilegan málflutning for-
setans í vörn sinni fyrir því að
hafa sent vopn til íran.
Margir þingmenn hvöttu einn-
ig til þess að aðferðir æðstu
manna í Hvíta Húsinu við mörk-
un bandarískrar utanríkisstefnu
yrðu endurskoðaðar. Þeir sömu
þingmenn tilkynntu einnig að
Páfinn
Gagniýnir
takmörkun
barneigna
Jóhannes Páll páfi.
Ekki par hrifinn af
takmörkun
barneigna
Singapore - Jóhannes Páll páfi
gagnrýndi í gær harkalega
áætlun Singaporestjórnar um
takmörkun barneigna, páfinn
er nú á ferð um Asíulönd.
Jóhannes Páll hélt ræðu á
íþróttaleikvangi í Singapore en
hann er nú þar í opinberri heim-
sókn. Hann sagði að kaþólska
kirkjan styddi þau hjón sem
„berjast fyrir því að fá á ábyrgan
hátt að stunda þau grundvallar-
mannréttindi að mynda fjöl-
skyldu," eins og hann orðaði það.
Singapore er nú orðið geysi-
lega fjölmennt og stjórnvöld þar
áætla nú að losa um þær ströngu
fjárhagslegu skuldbindingar sem
settar hafa verið á fjölskyldur
sem eiga meira en tvö börn. Nú
virðist sem konur í efnuðum fjöl-
skyldum forðist að eignast börn í
Singapore og útlit er fyrir að fólki
þar taki að fækka um árið 2020.
þeir hygðust þrýsta á um að þing-
ið fengi hér eftir mun greiðari að-
gang að upplýsingum um leyni-
legar aðgerðir í framtíðinni. Þeir
sögðu að forsetinn hefði verið
mótsagnakenndur á fundi í fyrri-
nótt með fréttamönnum.
Fundinum var sjónvarpað um
öll Bandaríkin. Á fundinum
sagðist Reagan mundu taka fulla
ábyrgð á hinum umdeildu tengsl-
um við íran. Sömuleiðis afneitaði
hann því að vopnin hefðu átt að
greiða fyrir því að bandarískir
gíslar í Líbanon yrðu látnir lausir.
Iranstjórn er í nánum tengslum
við Jihad samtökin í Líbanon sem
talin eru hafa Bandaríkjamenn í
gíslingu.
Reagan gekk mjög erfiðlega að
sannfæra fréttamenn um að hin
18 mánaða aðgerð hefði á engan
hátt tengst bandarískum gíslum í
Líbanon. Öldungadeildarþing-
maðurinn Sam Nunn sagði í gær
að Reagan hefði sett fram svo
margar fullyrðingar á blaða-
mannafundinum sem stönguðust
á, að líklega yrði að krefjast frek-
ari skýringa af honum. „Virðing
þjóðarinnar er í veði,“ sagði
Nunn og bætti við: „Þetta tóma-
rúm sem hefur myndast varðandi
trúverðugleika Bandaríkjanna er
ekki gott og við verðum að takast
á við það.“
Einn stuðningsmaður Reagans
á þingi, Richard Cheney, sagði
að forsetinn og aðstoðarmenn
hans (Þjóðaröryggisráðið) ættu
að gefa þinginu öruggar og ná-
kvæmar upplýsingar um þessa
aðgerð.
Ayatollah Khomeini, leiðtogi
íran, afneitaði í gær tilraunum
Bandaríkjanna til að endurnýja á
einhvern hátt tengsl ríkjanna og
sagði að sú deila sem nú væri í
Bandaríkjunum vegna vopnasöl-
unnar væri „mikil sprenging í
Svarta húsinu.“
Bandaríska stórblaðið Was-
hington Post, sagði í frétt í gær að
Robert MacFarlane sem nýlega
lét af starfi Þjóðaröryggisráð-
gjafa, hefði lýst því yfir að það
hefðu verið mistök að láta ír-
önum í té vopn. MacFarlane
stjórnaði þessari aðgerð í maí síð-
astliðnum.
Khomeini erkiklerkur. „Sprenging í Svarta húsinu," segir hann um deilur í
Bandaríkjunum um vopnaflutninga til íran.
S viss/Efnaiðnaður
Efast
um
öiyggi
Könnun í borginni Basel
í Sviss, þarsem mikð
eiturefnaslys varð um
mánaðamótin, hefur leitt
í Ijós að fjölmargir íbúar
borgarinnar telja að
öryggi sé mjög áfátt hjá
efnafyrirtœkjum
borgarinnar og telja að
ástandið íþessum málum
muni ekki batna
Basel - Borgarbúar í borginni
Basel í Sviss telja margir að
efnaiðnaðarfyrirtæki í Sviss
hafi ekki gætt nægilega mikils
öryggis varðandi hættu á slys-
um (líkingu við það sem varð í
borginni í upphafi þessa mán-
aðar.
í könnun sem rannsóknar-
stofnun í Sviss gerði í síðustu viku
kemur fram að 67 prósent að-
spurðra telja að ekki sé gætt
nægilegs öryggis hjá fyrrnefndum
fyrirtækjum, aðeins fimm prós-
ent aðspurðra telja að nægilegs
öryggis sé gætt. Úrtakið í könnu-
ninni var 600 manns.
Könnunin leiddi í ljós að fólk á
aldrinum 15 til 34 ára hafði mest-
ar efasemdir um öryggismál fyrir-
tækjanna.
Að undanförnu hefur komið
fram mikil gagnrýni á svissnesk
yfirvöld um að þau hafi ekki
nægilegt eftirlit með efnafram-
leiðslufyrirtækjum í landinu.
Einnig vekur athygli að aðeins 23
prósent aðspurðra telja að gerðar
verði ráðstafanir til að koma í veg
fyrir að slys sem Rínarslysið um
mánaðarmótin endurtaki sig.
Meðal annars hefur komið í
ljós að þar í landi leyfist fyrirtækj-
um að framleiða efni sem bönnuð
eru með öllu í Danmörku Hol-
landi og V-Þýskalandi.
Spánn
Fóstureyðing fyrir fréttamenn
Barcelona - Hópur spænskra
kvenréttindakvenna fram-
kvæmdi á miðvikudaginn fóst-
ureyðingu fyrir fréttamenn í
Barcelona til að vekja athygli á
kröfum sínum um frjálslegri
fóstureyðingalöggjöf.
Sex konur tóku þátt í aðgerð-
inni á 30 ára gamalli konu, að-
gerðin stóð yfir í 20 mínútur.
Takmörkuð löggjöf um fóstur-
eyðingar var samþykkt á spænska
þinginu í fyrra en þúsundir
spænskra kvenna sækja samt sem
áður enn til manna sem ekki hafa
leyfi til slíkra aðgerða, til að kom-
ast hjá því umstangi sem fylgir því
að fá opinbert leyfi fyrir fóstur-
eyðingaraðgerð. Núgildandi fóst-
ureyðingalöggjöf leyfir aðeins
fóstureyðingar ef um er að ræða
fórnarlamb nauðgunar, ef talið er
að fóstrið fæðist vanskapað eða
ef móðurinni er talin búin hætta
af því að fæða barnið.
Búist er við því að stjórn sósíal-
ista muni gefa út reglugerð í lok
mánaðarins um víðari túlkun lög-
gjafarinnar þar sem innifalin
verður andleg og félagsleg vel-
ferð konunnar sem hlut á að máli.
í Malaga, sunnar á Spáni, hófu
þrír læknar og einn læknastúdent
hungurverkfall til að mótmæla
því að hafa verið settir í fangelsi
fyrir að framkvæma ólöglegar
fóstureyðingar. Einn læknirinn
viðurkenndi að hafa framkvæmt
4000 fóstureyðingar í Malaga.
Opinberar tölur sýna að tæplega
200 fóstureyðingar hafa verið
framkvæmdar frá því hin nýju lög
tóku gildi í ágúst síðastliðnum.
Ríkisstyrkt stofnun um málefni
kvenna í landinu hefur hins vegar
upplýst að líkleg tala yfir ólög-
legar fóstureyðingar á ári hverju
sé um það bil 100.000.
Föstudagur 21. nóvember 1986; ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13