Þjóðviljinn - 21.11.1986, Side 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Austurland
Forval 22. -23. nóvember.
Síðari umferð forvals AB á Austurlandi vegna alþingiskosninga fer fram
dagana 22. og 23. nóvember. Formenn félaganna veita allar upplýsingar.
Þeir eru:
Vbpnafjörður: Guðmundur Wium s: 3326, Egilsstaðir, Hérað og Borgar-
fjörður: Kristinn Árnason s: 1286. Seyðisfjörður: Jóhann Jóhannsson s:
2425. Neskaupsstaður: Már Lárusson s:7331. Eskifjörður: Hjalti Sigurðs-
son. s:6367. Reyðarfjörður: Sveinn Jónsson s:4377. Fáskrúðsfjörður:
Magnús Stefánsson s: 5211 Stöðvarfjörður Ármann Jóhannsson s:5283.
Breiðdalsvík: Þorgrímur Sigfússon s:8817. Djúpivogur: Eysteinn Guðjóns-
son s: 8873. Höfn: Sigurður Geirsson s:8172.
Utnakjörstaðaatkvæðagreiðsla stendur frá 17. nóvember. Kosið verður
hjá formönnum og á aðalskrifstofu AB Hverfisgötu 105 í Reykjavík á skrif-
stofutíma.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðsla utankjörfundar vegna forvals ABR hefst næstu helgi og
stendur pann 23. og 24. nóvember frá kl. 13 - 15 að Hverfisgötu 105.
Vikuna 24. nóvember fram að kjördegi 29.-30. nóv. verður hægt að kjósa
að Hverfisgötu 105 frá kl. 10-12 og 17.15-19.15 daglega.
Vesturlandskjördæmi
Kjördæmisráðsfundur
Kjördæmisráð boðar til fundar sunnudaginn 23. nk. í Röðli,Brákarbraut 3,
Borgarnesi. Fundarefni: 1) Niðurstaða forvals. 2) Önnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Neskaupstað
Seinni hluti forvals
Seinni hluti forvals fer fram að Egilsbraut 11, laugardaginn 22. og 23.
nóvember nk. Opið verður frá kl. 13 - 18 báða dagana.
Þeir sem ekki verða heima fyrrgreinda daga hafi samband við Má Lárusson
s. 7331, Lilju Huldu Auðunsdóttur s. 7327 og Bjarna Aðalsteinsson s. 7583.
Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. - Stjórn ABN.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Viðtalstími borgarfulltrúa
Næstkomandi laugardag tekur Sigurjón Pétursson
borgarfulltrúi á móti viðmælendum á Hverfisgötu
105, 4. hæð, milli kl. 13 og 14.
Norðurland eystra
Norður-Þingeyingar athugið!
Alþýðubandalagið boðar til almennra stjórnmálafunda um helgina á eftir-
farandi stöðum:
Kópaskeri föstudaginn 21. nóv. kl. 20.30 í grunnskólanum.
Raufarhöfn laugardaginn 22. nóv. kl. 17.00 í félagsheimilinu.
Þórshöfn sunnudaginn 23. nóv. kl. 20.30 í félagsheimilinu.
Steingrímur J. Sigfússon alþm. kemur á fundina og ræðir
stjórnmálaviðhorfið, atvinnu- og byggðamál. Allir velkomnir. - Alþýðu-
bandalagið.
Alþýðubandalagið Akranesi
Fullveldisfagnaður
Fullveldisfagnaður verður í Rein laugardaginn 29 nóv. við kertaljós og léttar
veitingar. Njótum kvöldsins við upplestur, hljóðfæraslátt og söng.
Húsið opnað kl. 20.30. Nánar auglýst síðar.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Nefndarfólk athugið!
Að starfa í nefndum, nefnist námskeið sem haldið verður i Þinghóli 24. 25.
og 26. nóvember kl. 20.30 - 22.30, fyrir aðal- og varafulltrúa ABK í nefndum
á vegum bæjarins.
Leiðbeinendur: Tryggvi Þór Aðalsteinsson og Heimir Pálsson.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Framvegis verður heitt á könnunni alla laugardaga milli kl. 10 -12 í Þinghóli
Hamraborg 11 og þar munu bæjarfulltrúar flokksins vera til viðræðu um
bæjar- og flokksmál.
Heimir Pálsson hellir í bollana laugardaginn 22. nóvember. Félagar og aðrir
bæjarbúar eru hvattir til að líta inn.
Stjórnin.
VEISLUR - SAMKVÆMI
Skútan h/f hefur nú opnaö glæsilegan sal, kjörinn
fyrirárshátíðar, veislur, fundi félagasamtaka og alls
kyns samkvæmi. Leggjum áherslu ágóöan matog
þjónustu.
SKÚTAN HF.
Dalshrauni 15, Hafnarfirði, stmi 51810 og 651810.
36 þúsund
króna
lágmarks-
laun -
óskertar
vísitölu
bætur
Kröfur Samtaka
kvennaá
vinnumarkaði
Stjórnvöld og atvinnurekendur
hafa lagst á eitt að halda niðri
launum stórra hópa kvenna á
vinnumarkaði þannig að þær sjá
sér ekki farborða. Innan verka-
lýsðhreyfingarinnar hafa konur
ekki heldur átt upp á pallborðið
sem þurft hafi að leita eftir at-
kvæði þeirra, segir m.a. í ályktun
sem ráðstefna Samtaka kvenna á
vinnumarkaði sendi frá sér um
síðustu helgi, en ráðstefnan var
haldin undir yfirskriftinni Kröfur
kvenna í komandi samningum.
í ályktuninni segir enn fremur:
Lægstu laun ná ekki 20 þúsund
krónum á mánuði og þorri
kvenna fær greitt eftir töxtum
sem eru á bilinu 23-28 þúsund
krónur. Þessi laun nægja engan
veginn til framfærslu og því
neyðast konur til að taka allri
þeirri yfirvinnu og aukavinnu
sem býðst, með ófyrirsjánlegum
afleiðingum fyrir börn og heimili.
Láglaunastefna síðustu ára og
félagslegur niðurskurður hefur
bitnað harðast á konum. Konur
vita hvaða afleiðingar þessi
mannfjandsamlega stefna hefur á
þá kynslóð sem nú er að vaxa úr
grasi. Þess vegna krefjumst við
þess af verkalýðsforystunni að nú
verði settar fram kröfur sem taka
mið af raunverulegum þörfum -
kröfur sem barist verður fyrir til
sigurs. Það mun ekki standa á
konum að knýja slíkar kröfur
fram.
Síðastliðinn vetur settu
Samtök kvenna á vinnumarkaði
fram kröfu um 30 þúsund króna
lágmarkslaun, núna samsvarar
það 36 þúsund krónum ef tekið er
mið af nýlegri launahækkun þing-
manna.
Ráðstefna krefst þess af verka-
lýðsforystan geri þessa kröfu að
sinni og jafnframt verði krafist
fullrar og óskertrar vísitölutrygg-
ingar launa.
I komandi samningum duga
engar bráðabirgðalausnir heldur
verður að ganga til alvöru samn-
inga sem bæta kjör launafólks á
næsta ári. Konur hafa ekki efni á
að bíða næstu kosninga og nýrrar
ríkisstjórnar.
Ráðstefnan hvetur launakonur
um allt land að þjappa sér saman
um þessar kröfur.
St. Jósefsspítali, Landakoti
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar, langar
ykkur ekki til aö starfa á 22 legurýma lyflækninga-
deild, ll-A? Stefnt er aö sérhæföri hjúkrun. Að-
lögunarprógramm sniöið eftir þörfum starfsfólks.
Góöur starfsandi.
Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra
í síma 19600-220 alla virka daga.
Aukavinna
Okkur vantar fólk í áskriftarsöfnun fyrir Þjóövilj-
ann.
Ágæt iaun í boöi fyrir röskar manneskjur. Upplýs-
ingar í síma 681333 og 681663.
þJÓÐVILJINN
's&Mu Laus staða
éíl'p Staða háskólamenntaðs fulltrúa í menntamálaráðuneytinu,
./.h1, .7.' háskóla- og alþjóðadeild, er laus til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsókn með ýtarlegum upplýsingum um menntun og starfsferil
sendist menntamálaráðuneylinu, Hverfisgötu 6,105 Reykjavík fyrir
15. desember nk.
Menntamálaráðuneytið,
17. nóvember 1986.
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir október-mánuö
1986, hafi hann ekki verið greiddur f síðasta lagi
25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaöan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuö, talið frá og
meö 16. desember.
Fjármálaráðuneytið, 17. nóvember 1986.
St. Jósefsspítali
Landakoti
HAFNARBÚÐIR
Þurfum á góðu fólki að halda, bæöi í býtibúr og
við ræstingar. Upplýsingar í síma 19600-259 alla
virka daga frá kl. 10-14.
Reykjavík 18.11. 1986.
Blikkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ.
Önnumst hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
46711
Það bætir heilsu og hag
að bera út Þjóðviqann