Þjóðviljinn - 18.12.1986, Page 1

Þjóðviljinn - 18.12.1986, Page 1
Fimmtudagur 18. desember 1986 289. tölublað 51. árgangur Vísitölusvikin Atti að fela upplýsingamar Stefán Ingólfsson Fasteignamatinu: Ekki 12 miljónir heldur minnst 112 miljónir. Upplýsingarnar virðast koma illa við ráðherra. Sigtúnshópurinn: Viljumfulla leiðréttingu „Alexander Stefánsson fer með staðlausa stafi þegar hann segir að lánþegar eigi einungis 12 milj- ónir króna inni hjá bygginga- sjóði. Upphæðin nemur a.m.k. um 112-15 miljónum króna, segir Stefán Ingólfsson hjá Fasteigna- mati ríkisins um yfirlýsingar fél- agsmálaráðherra varðandi of- reiknaðarar lánskjaravísitölu á lánum Húsnæðisstofnunar sl. 3 ár. Þessar 12 miljónir sem ráð- herran talar um eru einungis þeir vextir og afborganir sem lánþeg- ar hafa verið að greiða ofaná þann höfuðstól sem ofreiknuð lánskjaravísitala hefur fært sjóðnum, en hann er tæpar 100 miljónir. Upphæðin sem lánþeg- ar eiga inni hjá Húsnæðisstofnun skoðuð út frá öllum verðtryggð- um lánum sem stofnunin hefur veitt á tímabilinu nemur nú 240- 400 miljónum, að sögn Stefáns. Þessar upplýsingar hafa komið illa við ráðherra sem réðst harka- lega að Stefáni á Alþingi fyrir að veita almenningi þessar upplýs- ingar. „Með þeim orðum er ráð- herra að hagræða sannleikanum og gera mig að sökudólg fyrir sinn eigin klaufaskap“ segir Stefán. Að ósekju væri verið að vega að. honum sem fagmanni á sama tíma og verið væri að hrekja hann frá Fasteignamatinu vegna þess að hann hefði staðið of djarflega að því að veita fólki upplýsingar sem vissulega allir þegnarnir ættu rétt að fá. Björn Ólafsson einn forsvars- manna Sigtúnshópsins sem hleypti umræðunni af stað um 3% svikin, sagði í gær menn myndu ekki sætta sig við annað en fulla leiðréttingu „Við tökum fyllilega undir skiln- ing Stefáns Ingólfssonar á þessu máli og við munum halda barátt- unni áfram svo lengi sem þarf.“ -K.Ól./-vd. Bóksala Thor, Þuríður og Guðnín „Grámosinn glóir” og „Saman í hring” efst á bóksölulista þjóðviljans Thor Vilhjálmsson, Þuríður Pálsdóttir og Guðrún Helgadóttir eru metsöluhöfundar bóka- haustsins hingaðtil samkvæmt sölulista sem Þjóðviljinn hefur gert eftir upplýsingum fímm bókaverslana. Saman í hring Guðrúnar Helgadóttur er í ótvíræðu fyrsta sæti á lista barna- og unglinga- bóka, en á almenna listanum er mjótt á mununum milli Grámosa Thors, minningabókar Þuríðar Pálsdóttur söngkonu og nýjustu framleiðslu Alistairs MacLeans á íslandi Svarta riddaranum. Listinn er tekinn saman á grundvelli upplýsinga frá versl- unarstjórum í Bókabúð Lárusar Blöndal, Bókaverslunar Sigfúsar Eymundsson, Bókabúðar Máls og Menningar, Bókadeildar Hag- kaups og Bókabúðar Jónasar Jó- hannssonar á Akureyri. Bóka- búðarmennirnir tóku fram að upplýsingar gefnar á miðri jóla- vertíð hlytu að vera ónákvæmar og minntu á að nú fara í hönd þeir Frakkland Reyndi að bíta löggu Nancy - Frönsk táningsstúlka sem reyndi að bíta lögregiu- þjón þegar hundur hennar vildi það ekki, var í gær dæmd í þriggja mánaða skilorðsbund- ið fangelsi og sektuð um 18.000 krónur íslenskar. Stúlkan var eitthvað að deila við lögregluþjóninn í heimabæ sínum í austurhluta Frakklands, sleppti Elsasshundinum og skipaði, „b£ttu!“. Hundurinn óhlýðnaðist svo stúlkan reyndi það sjálf. Úr því varð þó lítið ann- að en formælingar í garð lögg- unnar. -IH/Reuter þrír til fjórir dagar þegar meiri- hluti íslenskra bóka er keyptur. Almenni listinn er þessi: 1. Grámosinn glóir Thor Vilhjálmsson 2. Líf mitt og gleði Þuríður Pálsdóttir/Jónína Michaelsdóttir 3. Svarti riddarinn Alistair MacLean 4. Úr snöru fuglarans Sigurður A. Magnússon 5. Purpuraliturinn Alice Walker, þýð. Ólöf Eldjárn. 6. Tímaþjófurinn Steinunn Sigurðardóttir. 7. Alíslensk fyndni Magnús Óskarsson. 8. Hófí - dagbók fegurðar- drottningar Hólmfríður Karlsdóttir/ Jón Gústafsson. 9. Og svo kom sólin upp Jónas Jónasson 10. Allt önnur Ella Elln Þórarinsdóttir/ Ingólfur Margeirsson Þær bækur sem næstar komu voru Níu lyklar Ólafs Jóhanns Ólafssonar, annað bindi endur- minninga Huldu Á. Stefánsdótt- ur, Æskan, og Kvæðabók Jóns Helgasonar. Þá var vakin athygli á mikilli sölu fuglabókar Hjálm- ars R. Bárðasonar fyrr á árinu. Listinn yfir barna- og ungling- bækur er þessi: 1. Saman í hring Guðrún Helgadóttir 2. Með stjörnur í augum Andrés Indriðason 3. Jólasveinarnir Iðunn Steinsdóttir 4. Enga stæla Andrés Indriðason 5. Kæri sáli Sigtryggur Jónsson 6. Ein af strákunum Ulf Stark. Þýð. Njörður P. Njarð- vík. 7. Ástarbréf til Ara Eðvarð Ingólfsson. -m „Heims um ból, helg eru jól“ sungu krakkarmr i Laugarnesskóla þegar litlu jólin gengu þar í garð I gær en þessa dagana er venð að halda uppá litlu jólin í flestum grunnskólum landsins. Mynd E.Oi. Gleraugnasalar Samráð um verð rannsakað Verðlagsstofnun kannar hvort gleraugnasalar hafa ólöglegt samráð við verðlagningu á glerjum Verðlagsstofnun hefur nú til at- hugunar hvort gleraugnaverslan- ir hafí með sér ólöglegt samráð um verð á glerjum í gleraugu. „Við höfum undir höndum gögn frá Félagi gleraugnavers- lana á íslandi, verðlista og verð- útreikninga, sem benda til þess að gleraugnaverslanir hafi með sér samráð um verð“ sagði Krist- inn Briem deildarstjóri hjá Verð- lagsstofnun í samtali við Þjóðvilj- ann. „Þetta er í athugun þar sem slfkt samráð er ólöglegt sam- kvæmt 21.grein laga um sam- keppnishömlur. Okkur virðist sem flestir gleraugnasalar fari eftir þessum verðlista þegar þeir ákveða verð á glerjum en verð á gleraugnaumgjörðum er nokkuð mismunandi.“ -yj. 6 dagar tiljóla Sjöundi var Hurðaskellir, - sá var nokkuð klúr, effólkið vildi í rökkrinu fá sér vœran dúr. Hann var ekki sérlega hnugginn yfir því, þó harkalega marraði hjörunum (.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.