Þjóðviljinn - 18.12.1986, Page 3

Þjóðviljinn - 18.12.1986, Page 3
FRETTIR Framtíðin Mjótt á munum „Helstu óánægjuraddirnar komu frá konum sem vinna í bón- us við vélarnar en þær telja að með samningunum lækki þær í launum þrátt fyrir nýgerða leiðréttingu, sagði Guðríður Elí- asdóttir formaður Verkakvenna- félagsins Framtíðarinnar í Hafn- arfirði, en litlu munaði að fiskvinnslu- og ræstingakonur þar felldu samningana sem voru samþykktir með 5 atkvæða mun. Guðríður sagði að farið yrði fljótlega í að athuga hvort launa- lækkunin væri staðreynd, en ef svo væri yrði væntanlega reynt að ná fram leiðréttingu. Önnur félög sem vitað er til að hafi fjallað um samningana í vik- unni eru Iðja á Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri, Verslunarmannafélag Suðurnesja, Verkalýðsfélag Borgamess og Verslunar- mannafélag Reykjavíkur. í öllum þessum félögum voru samning- arnir samhljóða samþykktir utan Verslunarfélags Reykjavíkur en þar greiddu 24 atkvæði gegn samningunum en 64 vom þeim meðmæltir. -K.ÓI. Alverið Forsendur brostnar Tekjur afraforkusölu til Isal hundruðum miljóna króna lœgri en gert var ráðfyrir. Verðið ávallt í lágmarki. Raungildi verðsins aðeins 9,3 mills Svar iðnaðarráðherra leiðir í Ijós að allar forsendur samnings- ins um raforkuverð til álvcrsins eru brostnar. Það munar hund- ruðum miljóna á tekjuspá stjórn- arinnar 1984 og þeim tekjum sem við höfum raunverulega haft af sölunni sagði Hjörleifur Gutt- ormsson alþingismaður í samtali við Þjóðviljann í gær. í svari iðnaðarráðherra við fyr- irspum Hjörleifs um raforkusöl- una til ísal kemur fram að tekjur af sölunni hafa reynst mun lægri en menn ætluðu þegar samningur um hana var lagður fyrir alþingi í nóvember 1984. Þá var gert ráð fyrir að tekjur af raforkusölunni árin 1985, 1986, og 1987 yrðu rúmlega 2,5 miljarðar, en niður- staðan verður að öllum líkindum ekki nema 2,071 miljarður, eða 438 miljónum lægri. Þetta stafar fyrst og fremst af því að raforkusalan hefur verið minni en áætlað var og raforku- verðið hefur ávallt verið í lág- marki. í samningum var gert ráð fyrir að verðið yrði á bilinu 12,5- 18,5 mills, en það hefur verið nánast í lágmarki allt síðan samn- ingurinn var gerður. Auk þessa hefur raungildi verðsins lækkað vemlega vegna lækkunar á gengi bandaríkjadoll- ars og alþjóðlegrar verðbólgu, þannig að raungildi 12,5 mills er í dag aðeíns 9,3 mills. Lækkun á raungildi raforkuverðsins á tveggja ára tímabili nemur því hundruðum miljóna króna. í samningnum var kveðið á um að verðið á bilinu 12,5-18,5 mills skyldi verðtryggt, en þar sem verðið hefur verið í lágmarki hef- ur raungildi þess minnkað sem raun ber vitni. _gg Skattamálin Fyrirtækin vemduð Allar breytingatillögur Svavars Gestssonar við frumvarp um tekjuskatt og eignarskattfelldar. Svavar Gestsson: Byrðarnar lagðar áfólkið. Fyrirtœkin sleppa Þessi afgreiðsla stjórnarliða er aðeins staðfesting á þeirri stefnu stjórnarinnar að leggja skatt- byrðarnar á fólkið, en vernda fyrirtækin, sagði Svavar Gests- son formaður Alþýðubandalags- ins í samtali við Þjóðviljann í gær. Breytingartillögur bæði Svav- ars og fulltrúa Kvennalistans við frumvarp stjórnarinnar um tekjuskatt og eignaskatt voru all- ar felldar í gær. Stjórnarliðar greiddu allir sem einn atkvæði gegn tillögunum, en stjórnar- andstöðuþingmenn voru sam- þykkir. Tillögur Svavars miðuðu að því fyrst og fremst að lækka tekju- skattsgreiðslur einstaklinga um þriðjung á næsta ári, en hækka tekjuskatt fyrirtækjanna á móti. Þá var í tillögunum gert ráð fyrir að ýmsar frádráttarheimildir fyr- irtækja yrðu felldar niður. Einnig lagði Svavar til að sett yrðu í lögin ný og afgerandi ákvæði til þess að koma í veg fyrir að persónuleg eyðsla forráðamanna fyrirtækja verði flutt á reikning fyrirtækj- anna og að settar verði reglur um risnu á kostnað fyrirtækjanna. Svavar sagði í gær að embættis- menn hefðu mikinn áhuga á að fá slíkt ákvæði inn í lögin, enda hef- ur borið mikið á því að persónu- leg eyðsla hafi verið færð yfir í bækur fyrirtækja. Það vekur athygli að meðan ís- lensk fyrirtæki greiða aðeins 2- 3% af útgjöldum ríkisins, greiða bandarísk fyrirtæki 7-8% af út- gjöldum ríkisins þar í landi. -gg Gallerí Svart ö hvltu við Óðinstorg í Reykjavík hefur opnað sölusýningu á verkum ungra myndlistar- manna, og stendur hún til jóla. í tengslum við sýninguna verður jafnframt efnt til bókmenntakynningar, og munu þeir Einar Már Guðmundsson og Thor Vilhjálmsson lesa úr nýútkomnum bókum sínum á sunnudag kl. 16. Á sýn- ingunni getur að líta fjölbreytilegt úrval af því nýjasta sem er að gerast í íslenskri myndlist. Sýningin er opin frá 14-18 alla daga nema mánudaga. Á myndinni eru frá v. þau Hulda Hákon, Guðrún Krist- jánsdóttir og Helgi Þorgilsson, sem öll eiga verk á sýning- unni og að auki hundurinn Heiða Berlín. Mynd -Sig. Hafnarfjarðarkirkja Jólavaka Jólavaka við kertaljós verður haldin í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld og hefst hún kl. 20.30 en Jólavöku varð að aflýsa vegna veðurs á sunnudag. Ræðumaður verður Guðrún Helgadóttir alþingismaður og flytjendur tónlistar ungir og upp- rennandi listamenn, þau Guðný Árnadóttir, altsöngkona, Gunn- ar Guðbjörnsson, tenórsöngvari og Björn Davíð Kristjánsson, flautuleikari og svo Kór Hafnar- fjarðarkirkju undir stjórn Helga Bragasonar, organista. UPPREISNARGLEÐI Hverfisgötu 105, laugardaginn 20. des. kl. 21.00. Dagskrá: 22:00 - „Setningarræða”: Arthur Schargill - í sannleika sagt: Elísabet Þorgeirsdóttir les - ’68 = ’86?: Gerard Lemarquis spjallar um stúdentahreyfinguna í Frakklandi fyrr og nú. - Nýr heiðursfélagi ÆFR kynntur 24:00 - Dansað, drukkið og duflað fram eftir nóttu. Allir vinstri menn velkomnir - aðgangur ókeypis Æskulýðsfylkingin í Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.