Þjóðviljinn - 18.12.1986, Síða 12

Þjóðviljinn - 18.12.1986, Síða 12
VfÐHORF Viðsjárverð landbúnaðarstefna Friðjón Guðmundsson skrifar. Seinni grein Nýbúgreinar Stjórnvöld hafa rekiö bullandi áróður fyrir loðdýrarækt. Auðvit- að er nauðsynlegt að auka fjöl- breytni í búskap og taka upp nýj- ar búgreinar, og er loðdýrarækt síður en svo undanskilin en öfgar og kollsteypur eru ekki til góðs. Menn verða að halda sig við jörð- ina. Loðdýrarækt er auðvitað allt annars eðlis en hefðbundnar bú- greinar, henni fylgja ekki lands- nytjar og hún á ekki allstaðar við m.a. vegna fjarlægðar frá fóður- stöðvunum. Hinar hefðbundnu búgreinar hljóta því alltaf að verða aðaluppistaðan í land- búnaðinum, burðarásinn sem heldur uppi byggðinni í sveitunum. Og eins og nú horfir eru af- komumöguleikar í loðdýrarækt ótryggir og því ekki varlegt fyrir bændur að byggja afkomu sína á þeirri búgrein eingöngu. Loð- dýrarækt og aðrar nýbúgreinar henta því best sem aukabúgrein- ar á meðan á það reynir hvernig til tekst. Það er því mín skoðun að það eigi að styrkja nýjar bú- greinar með fé úr Framleiðni- sjóði gegn skilyrðum um sam- drátt í framleiðslu búvöru, eða með takmörkun á framleiðslu á meðan árangur er að koma í Ijós, en ekki með kaupum á búmarki og fullvirðisrétti. Á sama hátt ætti að hjálpa bændum sem eiga í rekstrarerfiðleikum vegna skulda, en hafa búrekstrarað- stöðu að öðru leyti, með því að greiða niður skuldir þeirra að hluta til með fé úr Framleiðni- sjóði. Ég hefi áður á það bent hversu aðkallandi það er að skógrækt verði tekin upp sem atvinnubú- grein með tilstuðlan fjár úr Fram- leiðnisjóði, enda verði skógrækt- arbændum tryggð sambærileg laun og öðrum bændum. Skóg- rækt, þar sem hún á við, myndi stöðva fólksflótta úr sveitum á ör- uggari hátt en flestar aðrar bú- „Mér sýnist ótvírœtt að stjórnvöld hafi tapað áttunum í moldviðri efnis- hyggjunnar. Bœndaforystan erþeim undirgefin ogþaðan er engrar hjálpar að vænta án utanaðkomandiþrýstings. “ greinar. Skógrækt er langtíma- verkefni, sem vonandi á mikla framtíð fyrir sér. Þetta er sérstakt íhugunarefni einmitt nú þegar sveitirnar eiga svo mjög í vök að verjast. Menn eru að byrja að átta sig á því hversu stórt mál þetta er. Og hér þarf að bregða skjótt við. Pað þarf að gera þá kröfu að verulegum hluta þess fjár sem varið hefur verið til út- flutningsbóta, en nú til nýbú- greina, verði varið til atvinnu- skógræktar um langa framtíð, uns hún fer að skila arði. Þetta þarf að tryggja með lögum. Búvörulög og útflutningsbætur Áhrif búvörulaganna eru farin að segja til sín. Þegar lögin voru í smíðum reyndi ég af fremsta megni að vara við setningu þeirra, einkum hinum mikla sam- drætti í útflutningsbótaréttinum sem í þeim fólst. Lögin voru keyrð í gegnum Alþingi af fyllstu hörku og ofríki. í raun og veru voru þau samin á bak við bændur, á hinn lúalegasta hátt, og Alþingi fékk sama og engan tíma til að skoða þetta stóra mál. Það er í mínum huga sorgarsaga og póli- tískt hneyksli hvernig að setningu laganna var unnið og hvernig til tókst. Búvörulögin eru því langt frá því að vera heilagt verk sem ekki megi hrófla við né endur- skoða. Það er óðum að koma í Myrt fyrir málstaðinn Hörpuútgáfan á Akranesi hef- ur sent frá sér njósna- og spennubók eftir metsöluhöfund- inn JACK HIGGINS.. Um efnið segir í bókarkynn- ingu: Mikhail Kelly var fæddur af rússneskri móður, en faðir hans var IRA maður. Hann var þjálf- aður í sérstökum æfingabúðum hjá KGB sem njósnari og hefn- darverkamaður, sérhæfður í hvers konar dulbúnaði, til þess að villa um fyrir bresku leyniþjón- ustunni og IRA. Honum tókst að skapa meiri glundroða en nokk- um hafði órað fyrir. En skyndi- lega var hann líka orðinn hættu- legur húsbændunum hjá KGB og þá fór að hitna í kolunum... Gissir Ó. Erlingsson þýddi. Hvíta blómið hans Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafn- arfirði, hefur gefið út bókina Hvíta blómið hans eftir Barböru Cartland. Þetta er þrettánda bók- in, sem Skuggsjá gefur út eftir Barböru Cartland. Volkonski fursti er glæsilegur ungur maður, sem hefur ekki enn fundið þá konu, sem hann getur fellt sig við. En þegar hann sér hina fögru dansmey, Lokitu, fell- ur hann samstundis fyrir henni, eins og aðrir hafa gert á undan honum. En það er ekki auðvelt að nálgast hana. Hver er þessi Lokita í raun og veru og hvaðan er hún? Sigurður Steinsson þýddi bók- ina. ljós að lögin eru farin að skaða. hagsmuni dreifbýlisins og þar með hag landsmanna allra, og það mun halda áfram að gerast í vaxandi mæli ef ekkert verður að gert. Það sem gera þarf er að stöðva áframhaldandi samdrátt í búvöruframleiðslu a.m.k. til árs- ins 1990 og hægja um leið á þeim búháttabreytingum sem unnið hefur verið að nú um sinn, en hefja þess í stað undirbúning að atvinnuskógrækt. Jafnframt þarf að auka niðurgreiðslur á bú- vörum innanlands og hefja átak í markaðsmálum utan lands og innan. Á þessu tímabili þarf að stöðva auknar tilfærslur Fram- leiðnisjóðs frá útflutningsbótum til nýbúgreina, sbr. 36. og 37. gr. búvörulaga til þess að tryggja betur möguleika á sölu á land- búnaðarvörum til útlanda. Nú- gildandi búvörulög setja enga tryggingu fyrir útflutningsbótum eftir 1990, en lögin gera ráð fyrir því að ákvæði 36. og 37. gr. verði tekin til endurskoðunar að fjór- um árum liðnum eftir gildistöku þeirra, sem var 1. júlí 1985. Sem- sagt, ef landbúnaðarstefnan helst óbreytt eru allar horfur á að út- flutningsbætur á búvörur verði með öllu afnumdar eftir 1990. En hvernig ætla menn þá að fram- leiða búvörur til útflutnings? Um þetta er bara ekki talað. Útflutningsbætur virðast vera einskonar bannorð manna á meðal, eða feimnismál. Ég hefi aldrei litið á þær sem ölmusu til bænda, heldur sem stuðning sam- félagsins við þá þjóðfélagslegu nauðsyn að viðhalda byggð í sveitum. Útflutningsbætur skaða ekki þjóðarhag, og það má ekki svipta landbúnaðinn þessari vernd fyrr en hann er þess megn- ugur að standa án hennar. Út- flutningsbætur hafa verið stór- lega mistúlkaðar. Það hefur verið talið að þær hafi skaðað ríkissjóð að fullu um þær fjárhæðir sem til þeirra hefur verið varið. En það er auðvitað fráleitt, þessir pen- ingar hafa skilað sér að veru- legum hluta til baka, beinlínis í gegnum tolla og sölugjöld ríkis- sjóðs af innflutningi vegna gjald- eyristekna af útfluttum búvörum og iðnaðarvörum tengdum land- búnaði, og óbeinlínis vegna at- vinnuörvunar tengdri framleiðslu búvöru, úrvinnslu búvöru og iðn- aði. Það vefst kannski fyrir mönnum hversu stórir hlutir þetta eru, en þeir eru umtalsverð- ir. Að ganga fram hjá þessu er auðvitað mistúlkun á staðreynd- um. Ætli t.d. ullarvöru- og skinn- aiðnaðurinn myndi ekki finna fyrir því ef hráefnisframleiðsla til þessara iðngreina drægist stór- lega saman í landinu. Það er ekki um það deilt að það þurfi að setja búvöruframleiðslunni takmörk, heldur hitt hvar eigi að setja þessi takmörk. Stjórnvöld og markaðsmál Auðvitað er það skaði fyrir framleiðendur, þjóðarbú og ríki þegar markaðsaðstæður versna. En hvað gera stjórnvöld í mark- aðsmálum fyrir landbúnaðinn? Ekkert. Aðstoðarmaður land- búnaðarráðherra, aðalhöfundur búvörulaganna, lýsti því yfir í sjónvarpi nýlega að það væri ekki í verkahring stjórnvalda að hlut- ast til um markaðsmál landbún- aðarins. En hvað gera þau þegar að kreppir í markaðsmálum sjáv- arafurða? Þá er allt sett í gang til þess að halda uppi mörkuðum eins og sjálfsagt er. Það er ekki von að vel gangi í markaðsmálum landbúnaðarins þegar stjórnvöld torvelda flest: Gera m.a. hvort tveggja í senn að afnema útflutn- ingsbætur í áföngum og stór- lækka niðurgreiðslur á mjólkur- vörum og sauðfjárafurðum. Svo gefa þau sér þær forsendur að er- lendir markaðir fyrir búvörur séu vonlausir og heyri fortíðinni til, og slá því föstu að innanlands- markaður muni stöðugt halda áfram að dragast saman um ó- komin ár. Síðan koma þessir menn fram fyrir alþjóð og segja: Markaðsmál landbúnaðarins koma okkur ekkert við. Mælirinn er fullur. Fólki til sjávar og sveita ofbýður með- ferðin á bændum. Það er sárt og vonsvikið. Það er talað um að við borð liggi að hálfar og jafnvel heilar sýslur muni falla úr byggð. Það stefnir í algert óefni og ófær- ur ef ekki er tekið í taumana. Það yrði sorgarsaga og þjóðarskömm ef stórir landshlutar leggðust í eyði og það tjón yrði óbætanlegt. Svo stórkostleg mistök myndu fá harða dóma síðar. Bændur verða að gæta réttar síns Mér sýnist ótvírætt að stjórn- völd hafi tapað áttum í moldviðri efnishyggjunnar. Bændaforustan er þeim undirgefin og þaðan er engrar hjálpar að vænta án utan- aðkomandi þrýstings. Það er því deginum ljósara að bændur og dreifbýlisfólk verður sjálft að gæta réttar síns. Gallinn er bara sá að bændur eru, því miður, ekki nógu stéttvísir, m.a. sökum þess að hagsmunir þeirra rekast á inn- byrðis eins og nú er í pottinn búið. Ef árangur á að nást verða þeir að sameinast um aðalatriðin, en leggja niður torstreitu um aukaatriði, setja hag stéttarinnar ofar persónulegum hagsmunum, veita fyrirsvarsmönnum sínum strangt aðhald og umfram allt að láta þá ekki teyma sig út í brask. Jafnframt ættu þeir að leggjast á eitt um það að kalla þéttbýlisbúa til liðs við sig því ég hefi þá trú að þaðan muni einmitt stuðnings að vænta ef eftir væri leitað. Hér er stiklað á stóru, af miklu er að taka og margt er ósagt. Að lokum ætla ég að draga saman í stuttu máli það helsta sem gera þarf: 1. Það þarf að vinna með öllum tiltækum ráðum gegn þeirri eyðibýlastefnu sem nú hefur heltekið stjórnvöld, og ráðast jafnframt gegn hverskonar áróðri öðrum sem getur skaðað bændastéttina, hvað- an sem hann er kominn. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 18. desember 1986 2. Það þarf að stöðva kaup Framleiðnisjóðs á búmarki og fullvirðisrétti sem gerð eru í þeim tilgangi að leggja jarð- ir í eyði. 3. Það þarf að styrkja nýjar bú- greinar, þar með talin at- vinnuskógrækt, með fé úr Framleiðnisjóði gegn skilyrð- um um tímabundinn sam- drátt í framleiðslu, eða tak- mörkum á framleiðslu hefð- bundinna búgreina á meðan árangur er að koma í ljós, en ekki með kaupum á fullvirðisrétti. 4. Með hliðstæðum skilyrðum þarf að hjálpa bændum sem ekki virðast hafa rekstrar- grundvöll vegna fjármagns- kostnaðar, en búrekstrarað- stöðu að öðru leyti til að greiða skuldir sínar niður með fé úr Framleiðnisjóði svo þeim verði tryggð viðun- andi afkomuskilyrði. 5. Það þarf að vinna gegn á- formum stjórnvalda um stór- fellda „fækkun" bænda í hefðbundnum búgreinum, t.d. í 2000 eða 1800. Heildar- verðmæti búvöruframl- eiðslunnar benda til þess að innan bændastéttarinnar geti við núverandi aðstæður rúm- ast um eða yfir 4.600 bændur með 440 ærgilda bú. Aukabú- greinar eru þá taldar með. 6. Það þarf að stöðva auknar til- færslur Framleiðnisjóðs frá útflutningsbótum til nýbú- greina, sbr. 36. og 37. gr. bú- vörulaga til að tryggja mögu- leika á sölu landbúnaðarvara til útlanda framvegis. Um leið þarf að fresta áformum um frekari samdrátt en orð- inn er í framleiðslu á kinda- kjöti og mjólk allt til ársins 1990 a.m.k. og hægja jafn- framt á þeim búhátta- breytingum sem nú eru í gangi svo menn geti áttað sig á breyttum viðhorfum á með- an þeir eru að ná fótfestu í nýjum búgreinum. Það má alls ekki afnema útflutnings- bótaréttinn eftir 1990. 7. Það þarf nú þegar að hefja undirbúning að stórátaki í skógrækt þar sem skilyrði leyfa með það markmið í huga að gera hana að at- vinnubúgrein með tilstuðlan fjár úr Framleiðnisjóði um langa framtíð. Til þessa verk- efnis þarf að verja miklu fé, og tryggja með lögum að svo verði gert. 8. Þaðþarfaðtakauppstjórnun á allri kjötframleiðslu í landinu og flytja hana nær alla inn á svið lögbýla. Kjöt- framleiðslu utan kindakjöt skal miða við innanlands- þörf. Daga þarf úr nauta- kjötsframleiðslu. 9. Það þarf að setja „þak“ á stærð búa við 600-700 ær- gildi. Minni bú en 300 ærgildi verði undanþegin skerðingu við úthlutun fullvirðisréttar. 10. Það þarf að auka niður- greiðslur innanlands á mjólkurvörum og sauðfjár- afurðum. 11. Það þarf að stórefla mark- aðsmál innan lands og utan, og leita eftir erlendum mörk- uðum fyrir nýjar búvöruteg- undir, þar með talið skyr. Stjórnvöld þurfa að beita sér fyrir markaðsleit. 12. Úm þetta allt þarf íslenska þjóðin að sameinast áður en það er orðið of seint, þegar alls er gætt, er það allra hag- ur. Friðjón Guðmundsson er bóndi að Sandi í Aðaldal.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.