Þjóðviljinn - 06.01.1987, Síða 6
MINNING
jgfc HEILSUGÆSLA
Æphf Hjúkrunarfræðingar -
Ijósmæður
Við eftirtaldar heilsugæslustöðvar eru stöður
hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra lausar til um-
sóknar nú þegar:
Heilsugæslustöðin á Patreksfirði, staða hjúkr-
unarforstjóra.
Heilsugæslustöð Miðbæjar, Reykjavík, staða
hjúkrunarfræðings.
Heilsugæslustöðin á Þórshöfn, staða hjúkrun-
arfræðings eða Ijósmóður.
Heilsugæslustöðin á Sauðárkróki, staða hjúkr-
unarfræðings.
Heilsugæslustöðin í Reykjahlíð, Mývatnssveit,
staða hjúkrunarfræðings.
Heilsugæslustöðin í Ólafsvík, staða hjúkrun-
arfræðings eða Ijósmóður.
Heilsugæslustöðin á Dalvík, 50% staða hjúkr-
unarfræðings.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu.
Reykjavík, 29. desember 1986
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Útboð
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
býður út skilti og merkingar innanhúss í nýrri
flugstöð. Verkinu skal vera lokið 31. mars 1987.
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkf-
ræðistofunni, Fellsmúla 26 Reykjavík frá og með
mánudeginum 5. jan. gegn 20.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Fyrirspurnirog óskirum upplýsingarskulu berast
Almennu verkfræðistofunni eigi síðar en 23. jan.
1987.
Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar,
Varnarmálaskrifstofu utaníkisráðuneytisins Skú-
lagötu 63,105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 föstudag-
inn 30. jan. 1987.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli.
N0LBRAUTASKÓUNN
BREIÐHOUl
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Skólastarf Fjölbrautaskólans í Breiðholti á vor-
önn 1987 hefst með almennum kennarafundi
mánudaginn 5. janúar kl. 9.00 - 12.00.
Sama dag verður sviðsstjórafundur kl. 13.00-
15.00 og deildarstjórafundur á sama tíma.
Miðvikudaginn 7. janúar verður nýnemakynning í
dagskólanum kl. 9.00- 16.00.
Fimmtudaginn 8. janúar verða nemendum Dag-
skóla F.B. afhentar stundatöflur kl. 13.00-
15.00.
Bóksala skólans verður opin kl. 10.00 - 16.00.
Innritun í Öldungadeild F.B. svo og val námsá-
fangaferfram 5.7. og 8. janúarkl. 18.00 - 21.00.
Námskynning í öldungadeild verður 12. janúar kl.
18.00.
Kennsla hefst í Dagskóla F.B. mánudaginn 12.
janúar samkvæmt stundaskrá.
Kennsla hefst í Öldungadeild F.B. þriðjudaginn
13. janúar samkvæmt stundaskrá.
Skólameistari
Geirlaug Guðmundsdóttir
Fœdd 2. nóv. 1900 - Dáin 21. des. 1986
Geirlaug Guömundsdóttir
húsfreyja að Hlíðarvegi 30a í
Kópavogi er látin. Mér þykir
hlýða að minnast þeirrar heiðurs-
konu með nokkrum orðum við
leiðarlok og þakka henni indælt
nágrenni í Kópavogi í mörg ár og
órofa tryggð og vináttu hennar og
fjölskyldu hennar allt frá bernsku
hennar.
Fyrir 1950 var Kópavogur á-
kaflega sérkennileg byggð. Mest-
allur Kópavogshálsinn og nesið
var reitaður niður í stórar lóðir og
á flestum þeirra stóðu lítil hús
sem upphaflega voru sumarbú-
staðir Reykvíkinga. En smám
saman voru þessir bústaðir teknir
til ársdvalar þótt framan af skorti
flest nútímaþægindi, svo sem
vatnsleiðslu og holræsakerfi.
Flestir „landnemar" Kópavogs
voru efnalitlir og þurftu ekki að
hugsa til þess að keppa um íbúðir
eða hús á fasteignamarkaði
Reykjavíkur. Á hinn bóginn voru
skipulagsyfirvöld ekki ströng í
Kópavogi og menn gátu búið um
sig eftir því hvernig áraði. Við
þessar frumbýlingsaðstæður
veitti ekki af að fólk stæði saman
enda einkenndi samheldni og
hjálpsemi byggðarlagið.
Árið 1948 brugðu bændahjón-
in á Hofi á Kjalarnesi búi og
keyptu lítið hús að Hlíðarvegi 20
(síðar 30a). Þau Daníel Magnús-
son (f. 1890, d. 1963) og Geirlaug
voru enn á góðum starfsaldri og
brugðu á það ráð að starfa við
landbúnað að nokkru leyti þótt
svo ætti að heita að nú væru þau
flutt á mölina. Þau reistu lítið
hænsnabú og ráku það um árabil
og höfðu jafnvel eina kú í fjósi
fyrst eftir að þau fluttu úr
sveitinni. Nágrannarnir fundu
fljótt að Daníel og Geirlaug voru
góðir gestir. Þau hjónin bæði
báru með sér reisn og höfðings-
skap hið ytra og kynni staðfestu
að hér voru valmenni á ferð, gest-
risnin og alúðleg og bæði sérlega
barngóð. Þótt þau væru komin í
„þéttbýlið" ánetjuðust þau aldrei
stressi og hamagangi nútímans og
því vöndu margir komur sínar til
þeirra. Þar var gott að sitja yfir
kaffibolla í öruggu trausti þess að
vera einmitt sá gestur sem best
væri velkominn. Mér er kunnugt
um að ýmsir nágrannar þeirra
hjóna litu á þau sem aldavini
sína.
Ég sem þetta rita hrósa happi
yfir því að kynnast Geirlaugu og
Daníel og börnum þeirra. Þegar
þau fluttu í Kópavog voru þrír
synir þeirra uppkomnir en dóttir-
in Lilja lítið eitt eldri en ég og þar
sem kjörinn leikfélagi. Ég var að-
eins 5 ára gamall og strax inni á
gafli á Hlíðarvegi 20 og þær minn-
ingar bernsku minnar og æsku
sem tengjast heimilinu þar eru
eins og perlur á bandi. Magnús
sonur þeirra rak smiðshöggið á
að kenna guttanum að telja. Þar
var merkur áfangi að komast yfir
tugina og þurfa ekki lengur að
segja tuttugu og tfu. Fyrsti vinnu-
veitandinn var Daníel og borgaði
okkur Lilju fyrir að selja hús-
freyjum í Kópavogi egg. Skák við
húsbóndann og ég hélt honum
fram þegar ég fór halloka í íþrótt-
inni fyrir móður minni: „Daníel
er miklu betri skákmaður en þú.“
Sælar stundir við eldhúsborðið
hjá Geirlaugu og bakkelsið hafði
áreiðanlega ekki misst neitt af
þeirri vegsemd sem víða tíðkast í
sveitum. Og fyrstu skrefin í
alvöru-launavinnu: aðstoðar-
maður hjá Daníel í byggingar-
vinnu. Þegar búið er að setja vatn
út í geilina í pússningarhræru er
mátulegt að taka jafnlangt hlé og
það tekur að fá sér í nefið. Hrær-
an jafnast á meðan. Og fyrir ekki
mörgum árum sannspurði ég að
orðstír minni hafi eitt sinn verið í
nokkurri hættu á Iilíðarvegi 20.
Húsbóndinn stóð við gluggann,
þegar undirritaður fór eins og
vígahnöttur um hverfið, og sagði:
„Ætli verði nokkurn tíma maður
úr honum Bjarna?“ þá átti ég mér
hauk í horni þar sem Geirlaug var
og hún mun hafa sett ofan í bónda
sinn og sagt að drengurinn væri
ekkert óefnilegri en aðrir. Fleira
mætti telja en hvort sem talið er
lengur eða skemur stendur það
eftir að þau hjónin taldi ég til vina
minna og þótti það dálítið skrítið
á unglingsárunum þegar orðið
„vinur“ gat helst ekkert þýtt
nema leikfélagi og um hálf öld
var á milli okkar.
Geirlaug var fædd í Stykkis-
hólmi 2. nóvember árið 1900,
dóttir hjónanna Charlottu Maríu
Jónsdóttur og Guðmundar Hall-
dórssonar skipstjóra. Hún ólst
þar upp til 18 ára aldurs en fór þá í
vist til Reykjavíkur. Síðar fór hún
í kaupavinnu að Lykkju á Kjal-
arnesi og kynntist þar Danfel sem
þar var fæddur og uppalinn. Þau
hófu búskap að Tindastöðum á
Kjalarnesi 1923 þar sem þau
bjuggu til 1942 en þá fluttu þau að
Hofi í sömu sveit þar sem þau
bjuggu þar til þau hættu búskap
1948. Það hef ég sannspurt að
þau hafi ekki síður verið vel séð
af sveitungum sínum á Kjalarnesi
en nágrönnum í Kópavogi. Geir-
laug og Daníel áttu saman fjögur
börn, sem öll eru á lífi, synina
Magnús, Guðmund og Þórólf og
dótturina Lilju sem áður er getið.
Daníel átti dóttur frá því fyrir
hjónaband, Huldu, en hún er
látin fyrir nokkrum árum.
Geirlaug Guðmundsdóttir var
fríð sýnum og bar sig vel eins og
áður er tekið fram. Ég held að
orðið „myndarskapur" lýsi henni
vel og þá ekki útlitinu einu heldur
líka verkum hennar og heimili. Á
æskuárum hennar var Stykkis-
hólmur hefðarbær í gömlum stíl
og hún kynntist rótgróinni borg-
arastétt Reykjavíkur þegar hún
kom fyrst suður. Þetta hvort
tveggja hafði áreiðanlega mikil
áhrif á hana. Ég býst við að hún
hafi aldrei skilið Hólminn að öllu
leyti við sig. Einhver fáguð tign
fylgdi henni hvar sem hún fór.
Geirlaug var einörð í skoðun-
um og sagði meiningu sína hik-
laust en þó var vandalaust að
ræða við hana og halda fram öðr-
um málstað. En hún gat hneyksl-
ast ákaflega djúpt ef hún þóttist
greina yfirdrepsskap og ómerki-
legheit af einhverju tagi og ekki
hefði ég kosið mér að verða fyrir
þótta hennar því að þá held ég
hefði hlotið að eiga hann skilið.
Hún dreifði ekki um sig boðum
eða bönnum en ég trúi ekki að
þar sem hún stjórnaði hafi hún
þurft að ítreka tilmæli a.m.k. datt
okkur börnunum ekki í hug að
hafa uppi efasemdir. Geirlaug
var glaðlynd og hressileg. Þegar
móðir mín sagði mér látið hennar
bætti hún við: „Mér bregður við
að missa hana því að ef mér
leiddist heimsótti ég Geirlaugu.“
Geirlaug var tvímælalaust
gæfumanneskja. í minningu
minni er mikil heiðríkja yfir sam-
bandi þeirra Daníels. Hún var
mikil fjölskyldukona og ef greina
mátti að hún léti vel yfir sér, eins
og sagt er, var það vegna þess að
henni fannst hún eiga góð börn
og afkomendur. Að sínu leyti
studdu börnin hana til að halda
sjálfstæði sínu og heimili til
hinstu stundar. Skömmu áður en
hún lést lét hún í ljós að henni
fyndist meira en kominn tími til
að fara heim og undirbúa jólin.
Að lokum þakka ég Geirlaugu
samfylgdina og mæli líka fyrir
hönd foreldra minna og systra.
Við og fleiri nágrannar hugsum
hlýtt til hennar þegar hún er nú
farin yfir móðuna miklu. í mínum
huga búa þau alltaf bæði í senn
Geirlaug og Daníel og nú finnst
mér með vissum hætti settur
punktur aftan við kafla ævi
minnar, kafla sem bregður yfir
birtu og fegurð.
Bjarni Ólafsson
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
DAGSKOLI
Stundatöflur nemenda verða afhentar
fimmtudaginn 8. janúar kl. 15 gegn greiðslu
gjalds í nemenda- og skólasjóð kr. 1.400.-
Nýnemar á vorönn ’87 fá þó stundatöflur hjá
umsjónarkennara kl. 13 sama dag.
Kennsla hefst skv. stundaskrá mánudaginn 12.
janúar.
ÖLDUNGADEILD
Enn er hægt að innritast í öldungadeild.
Vakin er athygli á fjölbreyttu framboði náms-
greina t.d. er kennsla í dönsku, ensku, þýsku,
frönsku, spænsku og ítölsku.
Staðfestingargjald kl. 500,- og skólagjald kr.
3.600.- greiðist við innritun, sem fer fram mið-
vikudaginn 7. og fimmtudaginn 8. janúar kl. 16-
19.
Stundatöflur verða einnig afhentar eldri nemend-
um á sama tíma gegn greiðslu skólagjalds.
Kennsla í öldungadeild hefst skv. stundaskrá
mánudaginn 12. janúar.
Deildarstjórafundur verður miðvikudaginn 7. jan-
úarkl. 14og kennarafundurfimmtudaginn 8. jan-
úar kl. 10.
Rektor