Þjóðviljinn - 09.01.1987, Blaðsíða 1
Föstudagur 9. janúar 1987 5. tölublað 52. örgangur
Góðœrið
Met-
árhjá
fógetum
Nauðungarsölur áfasteignum hafa aldrei veriðfleiri
en ífyrra. Jukust úr28 í54 íReykjavík. Hafa nífaldast
áþremur árum. 58 nauðungarsölur hjáfógeta í Kefla-
vík. 11 áísafirði
etta var algjört metár hjá okk-
ur. Nauðungarsölur á síðasta
ári voru alls 54 talsins, nær helm-
ingi fleiri en þær voru í 1985,
sagði Jón Skaftason yfírborgarfó-
geti í Reykjavík í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Nauðungarsölur á íbúðar- og
atvinnuhúsnæði á landinu voru
fleiri á síðasta ári en nokkru sinni
fyrr. Jón sagði í samtali við blaðið
í gær að uppboðsbeiðnum hjá
embættinu hefði fjölgað verulega
í fyrra og skiptu þær þúsundum.
Nauðungarsölur í Reykjavík
voru 54 í fyrra. Árið 1985 voru
þær hins vegar 28,13 árið 1984, 6
árið 1983 og 7 árið 1982. Fjöldi
slíkra sala hefur þannig nífaldast
Starfsheiti kennara
Ríkið
græðir vel
Ráðuneytið selur kenn-
urum leyfisbréffyrir
rúmar3 miljónir
síðan árið 1983. „Það opnuðust
flóðgáttir í þessu hjá okkur í fyrra
og ástæðan fyrir því er auðvitað
fyrst og fremst sú að greiðslugeta
fólks er slakari en áður,“ sagði
Jón um þetta í gær.
Hjá bæjarfógetanum í Kefla-
vík voru nauðungarsölur enn
fleiri en í Reykjavík eða 58 alls.
Til samanburðar má geta þess að
árið 1985 voru nauðungarsölur
hjá embættinu í Keflavík 33 tals-
ins. Geysilegur fjörkippur hefur
komist í þessar sölur síðan í
haust, en í september voru söl-
urnar aðeins orðnar 22.
Nauðungarsölur hjá bæjarfóg-
etanum á Isafirði voru að sögn
Péturs Kr. Hafstein 11 í fyrra og
var það nokkur aukning frá árinu
áður. Þess ber að geta að íbúar í
umdæmi Péturs eru aðeins um 6
þúsund, þannig að hlutfallslega
hafa sölur þar verið mun fleiri en
t.d. í Reykjavík.
Elías Elíasson bæjarfógeti á
Akureyri hafði svipaða sögu að
segja. Þar voru nauðungarsölur
17 í fyrra, en einni færri árið 1985.
Árið 1984 fóru fram 14 nauðung-
arsölur á fasteignum á Akureyri.
-«g
Nauðungarsölur í Reykjavík á fyrra ári jafnast á við heila blokk.
Gamait baráttumál kcnnara
um lögverndun starfsheitis og
starfsréttinda komst í lögform-
lega höfn um áramótin, - en
mörgum kennaranum hnykkti
við þegar ráðuneytið bauðst til að
lögvernda hann. Leyfisbréfið
kostar nefnilega 750 krónur, og er
ekki fjarri lagi að ríkissjóður fái
um 3,4 miljónir fyrir sinn snúð
frá kennurum.
Fyrsta janúar gengu í gildi lög
um Iögverndun á starfsheiti og
starfsréttindum grunnskólakenn-
ara, framhaldsskólakennara og
skólastjóra, og geta nú aðeins
þeir notað þessi starfsheiti sem til
þess fá leyfi menntamálaráð-
herra.
Til slíks leyfis þarf leyfisbréf
sem ráðuneytið er nú byrjað að
selja og kostar 750 krónur sam-
kvæmt lögum um aukatekjur rík-
issjóðs. Eru kennarar þar á sama
báti og aðrar lögverndaðar stétt-
ir.
Félagsmenn Hins íslenska
kennarafélags eru um 1100, í
Kennarasambandi íslands eru
um 3200, og í félagi skólastjóra
um 300, samtals um 4600, að vísu
ekki alíir með réttindi. Laust á
slegið renna næstu vikur um 3,4
miljónir frá þessum hópi í ríkis-
sjóð, og þykir sumum dýrt drott-
ins orðið. -m
Sprengjur
Vélmenni bætist í flota Gæslunnar
Landhelgisgœslan kaupir margvíslegan öryggisbúnað fyrir sprengjusérfrœðinga
sína. Sprengjuheldur öryggisbúningur, vélmenni og röntgentœki
Landhelgisgæslan hefur fest
kaup á sérstökum sprengju-
heldum öryggisbúningi og öðrum
öryggistækjum fyrir sprengjusér-
fræðinga sína. Kostnaðurinn er
1,7 miyón króna. Fjárveitinga-
nefnd Alþingis heimilaði kaup á
þessum búnaði nú skömmu fyrir
jól.
Að sögn Gunnars Bergsveins-
sonar forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar er um að ræða einn örygg-
isbúning sem er sprengjuheldur
og sprengjusérfræðingar Gæsl-
unnar eiga að klæðast þegar þeir
gera sprengjur óvirkar eða at-
huga torkennilega hluti. Hingað
til hefur slíkur búningur, sem
kostar um 700 þús. krónur, ekki
verið til hérlendis en einn var
fenginn að láni frá breska hern-
um meðan á leiðtogafundinum
stóð.
Þá hefur verið keypt tæki til að
gegnumlýsa grunsamlega pakka
og að auki sérstakur fjarstýrður
búnaður sem hægt er að kanna
hluti með úr góðri fjarlægð og er
jafnframt hægt að nota þennan
búnað eða vélmenni til að stjórna
vatnsbyssu sem gæslan á og er
notuð til að gera sprengjur óvirk-
ar.
-Það er mikið öryggisatriði
fyrir okkur að hafa þennan búnað
sem við fáum í hendur innan tíð-
ar. Hingað til höfum við í raun
sem hafa unnið við að gera
sprengjur óvirkar og maður
andar léttar þegar þessi búnaður
verður kominn, sagði Gunnar
Bergsveinsson.
-•g-
Sjómenn/útvegsmenn
Enn í hnút
Sjómenn neita að setjast að samningaborðifyrr en Hafþór snýr til hafnar
Fundur sá sem ríkissáttasemj-
ari boðaði með sjómönnum,
farmönnum og útvegsmönnum í
gær bar engan árangur, en þar
ítrekuðu fulltrúar Alþýðusam-
bands Vcstfjarða, Bylgjunnar og
Sjómannasambandsins að þcir
muni ekki ganga til viðræðna fyrr
en rækjutogarinn Hafþór ÍS hef-
ur snúið til hafnar. Lítil hreyfing
mun því verða á samningavið-
ræðum þar til svo hefur orðið.
í gær óskuðu sjávarútvegsráð-
herra og viðskiptaráðherra eftir
fundum með fulltrúum samnings-
aðila og voru þeir haldnir sam-
dægurs, en þar kynntu aðilar
stöðuna fyrir ráðherrum.
í gær var gert hlé á viðræðum
undirmanna á kaupskipum og
vinnuveitendam og hefur annar
fundur verið boðaður klukkan 1 í
ddg' Sjá SÍÖU 3 -K.ÓI.