Þjóðviljinn - 09.01.1987, Blaðsíða 8
GLÆTAN
Ragnar að sannfæra þá Ara Gísla, Tómas og Hauk á stjórnarfundi í fyrrakvöld. Mynd: Þ.A.E.
Krakkar, komið úr felum
Það var í október að við
sögðum fráfyrirhugaðri
smásagna- og Ijóðasam-
keppni menntaskólanna, í
viðtali við upphafsmann
hennar, Tómas Tómasson.
Við heyrðum að skilafrestur
væri að renna út og brugðum
okkur því á stjórnarfund hjá
Úffa (Utgáfufélagi framhalds-
skólanna), bæði til að rifja upp
fyrir okkur og forvitnast um
hvaðavatn hefði runniðtil
sjávarsíðan þá.
Það var Ari Gísli Bragason,
skáld og forseti Listafélags
Menntaskólans í Reykjavík, sem
varð fyrir svörum og við báðum
hann að rekja gang mála síðan
síðast:
Ekki bara
menntaskólarnir
„Um það leyti sem þið rædduð
við Tómas hafði hann samband
við menn í öllum menntaskólum,
viðraði hugmyndina við þá og
fékk mjög góðar undirtektir. En
undirtektirnar voru ekki bara
góðar þar, heldur og í öðrum
framhaldsskólum. Svo góðar að
það var fast leitað eftir því að
keppnin yrði stækkuð að umfangi
og næði til allra framhaldsskóla á
íslandi - fjörutíuogtveggja að
tölu.
Þetta gekk eftir, nema hvað
Húsmæðraskólinn á Húsavík
varð útundan. Þá var boðaður
fundur og þar komust menn að
samkomulagi um að Menntaskól-
arnir í Hamrahlíð, Kópavogi og
Reykjavík, ásamt með Kvenn-
askólanum og Fjölbraut í
Breiðholti, skyldu bera hitann og
þungann af samkeppninni.
Stjórnin er svo skipuð einum
fulltrúa frá hverjum skóla, gjald-
kerinn úr F.B., ég úr M.R., Tóm-
as úr Hamrahlíðinni, en hann er
ritari og gegnir störfum formanns
þar eð Hrafn Jökulsson úr
Kvennaskólanum sagði því
embætti af sér, þar sem hann
hætti í námi um áramótin. Loks
er svo Haukur Guðmundsson úr
M.K.“
Fyrsti febrúar
Og stjórnin hefur vœntanlega
komið sér saman um fyrirkomu-
lag samkeppninnar?
„Já, efni ber að skila inn fyrir
fyrsta febrúar. Ég endurtek fyrir
fýrsta febrúar, því nú fer hver að
verða síðastur með það. Send-
andinn þarf að vera fæddur eftir
1963 og stunda nám í framhalds-
skóla. Hann sendir söguna í póst-
hólf 1730, 101 Reykjavík, eða
kemur efninu beint til stjórnar-
innar. Hann sendir inn undir dul-
nefni en hefur rétt nafn í lokuðu
umslagi merkt dulnefninu."
Mikil gróska
Hefur eitthvert efni borist inn?
„Já, það er töluvert og enn
meir á leiðinni - a.m.k. ef marka
undirtektir í skólunum. Öll um-
ræða hefur verið á einn veg, já-
kvæð, og það sannar okkur að
þetta er þarft framtak.
Enda er þetta löngu tímabært.
Það yrkja allir einhverntíma á
lífsleiðinni - eða svo segja þeir.
Og þá flestir þegar þeir eru ein-
mitt á þessum aldri. En vettvang
vantar þá alltaf.“
Ungtfólk er sumsé ekki hœtt að
yrkja?
„Langt því frá. Það er mikil
gróska núna, þrátt fyrir vídeóið
og fjölmiðlabrjálæði, sem sést
m.a. á því hve margir ungir höf-
undar hafa verið að gefa út, þótt
mest sé það á eigin vegum. Það er
synd hve stöðnuð, nú eða hrædd,
forlögin eru. Að leggja ekki
meira uppúr því að koma ungum
höfundum á framfæri en raun
ber.
Úr þessu erum við að reyna að
bæta og ætlum ekki að láta staðar
numið við þessa samkeppni.
Okkur hefur dottið ýmislegt
fleira í hug, t.d. að gefa út lista-
verk, lagasmíðar o.fl.“
En eru menn ekki að mestu
hættir að lesa Ijóð og smásögur?
„Nei, en þetta á undir högg að
sækja. Þó einkum ljóðið. En
hvorutveggja sækir á og það er
okkar spá að þau muni sigra bæði
bláar og hvítar vídeóleigur á
endanum.
En hvernig er meðpeningamál-
in? Farið þið ekki á hausinn á
þessu?
„Ekki held ég það. M.H.,
M.R. og F.B. hafa lagt fram
fimmtán þúsund hver og M.K.
tíu. Við væntum þess að hinir
skólarnir fylgi fordæmi okkar.
Svo höfum við fengið mjög góðan
mann, Ragnar Halldórsson, til að
safna styrkjum frá fyrirtækjum
og við væntum þess auðvitað að
bókin seljist.“
Eitthvað að lokum?
„Ég vil bara beina orðum mín-
um til þeirra sem þjást af kjark-
leysi. Sennileg hefur ekkert myrt
jafn marga rithöfunda og það.
Hræðslan við að leyfa öðrum að
lesa hugsmíðar sínar. En þeim
sem eiga við hana að etja vil ég
segja að þeir eru ekki einir á báti
og það er löngu orðið tímabært
að við komum úr felum.
Það er bara að drífa sig í ki-
stuna og leita. Ég þykist næsta
viss um að þar leynist fleira en
bara viskíflaska ...
Skólaljóð/M.R.
nú fyrir jólin
Nú fyrir jólin gaf Framtíðin,
málfundafélag Mennta-
skólans í Reykjavík, út Skóla-
Ijóð samkvæmt gamalli hefð.
Undirtitillinn er „ Vísir að úrvali
Ijóða er birtust í Skólablaðinu
og Skinnfaxa". Á þetta bindi
að spanna tímabilið frá 1976
til 1986 og má segja að mjór
sé mikils vísir.
Eru skáldin níu og kalla sig:
Guðmund Karl, Magnús Þor-
kelsson, Ragnar, Borgþór frá
Eiði, Skáldu, Sigríði Matthías-
dóttur, Ingvar Sverrisson, Ara
Gísla Bragason og Hrafn Jökuls-
son.
Er þetta í fimmta eða sjötta
skipti sem Framtíðin gefur út
slíkt úrval, en formálinn er tví-
saga í þessu efni. Verð þess er 100
kr.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. janúar 1987