Þjóðviljinn - 09.01.1987, Blaðsíða 14
ALÞÝÐUBANDALAGK)
•w'
Unnur Björn Sigurjón Þuríður
Austurland
Byggðamálin í brennidepli
Alþýðubandalagið á Austurlandi efnir á næstunni til opinna funda þar sem
byggðamálin verða í brennipunkti. Þar flytja ávörp fulltrúar af framboðslista
flokksins í komandi alþingiskosningum m.a.: Unnur Sólrún Bragadóttir,
Björn Grétar Sveinsson, Sigurjón Bjarnason og Þuríður Backman. Alþing-
ismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson sitja fyrir svörum. Fund-
irnir verða sem hér segir:
Höfn í Hornafirði, fimmtudaginn 8. janúar kl. 20.30 í Miðgarði.
Djúpavogi, föstudaginn 9. janúar kl. 20.30 í Félagsaðstöðunni.
Breiðdalsvík, laugardaginn 10. janúar kl. 13.30 í Staðarborg.
Stöðvarfirði, laugardaginn 10. janúar kl. 17.00 í Samkomuhúsinu.
Fáskrúðsfirði, sunnudaginn 11. janúar kl. 14.00 í Skrúð.
Eskifirði, sunnudaginn 11. janúar kl. 20.30 í Valhöll.
Neskaupstað, miðvikudaginn 14. janúar kl. 20.30 í Egilsbúð.
Seyðisfirði, fimmtudaginn 15. janúar kl. 20.30 í Herðubreið.
Fundir verða síðar ákveðnir á Reyðarfirði og Borgarfirði.
Fundirnir eru ðllutn opinir._________Alþýðubandalagið.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráð - Fjárhagsáætlun
Bæjarmálaráð ABH er boðað til fundar í Skálanum Strandgötu 41
laugardaginn 10 janúar kl. 10.00.
Dagskrá: 1) Umræður um fjárhagsáætlun fyrir Hafnarfjarðarkaupstað
1987. Magnús Jón Árnason bæjarfulltrúi stýrir umræðum.
2) Onnur mál.
Allir nefndarmenn og varamenn peirra hvattir til að mæta vel og stundvís-
le9a- _________________________________Stjórn bæjarmálaráðs
Alþýðubandalagið Reykjaneskjördæmi
Kjördæmisráðsfundur
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi boðar til fund-
ar í Þinghóli, Kópavogi, mánudaginn 12. janúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Tillaga kjörnefndar að framboðslista fyrir komandi alþingis-
kosningar. 2) Kosningastarfið. 3) Önnur mál. .
Allir kjördæmisráðsfulltrúar hvattir til að mæta. Stjornm.
AB Norðurlandskjördæmi eystra
Aukakjördæmisþing
Aukakjördæmisþing Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra verð-
ur haldið sunnudaginn 11. janúar í Lárusarhúsi á Akureyri og hefst kl. 10
árdegis.
Á dagskrá: 1) Ákveðinn framboðslisti til Alþingiskosninga. 2) Kosninga-
undirbúningur, a) Málefnaáherslur, b) Útgáfa, c) Annað. 3) Stjórnmálaumræða
eftir því sem tími leyfir. - Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandlagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Laugardaginn 10. janúar milli kl. 10-12 verða Unnur S. Björnsdóttir for-
maður ABK og fulltrúi í tómstundaráði og Elsa S. Þorkelsdóttir fulltrúi í
félagsmálaráði á skrifstofu félagins í Þinghóli, Hamraborg 11.
Heitt á könnunni. Félagar eru hvattir til að líta inn.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur mánudaginn 12. janúar kl. 20.30 í Lárusarhúsi.
Dagskrá: Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar.
Stjórnin
Dagvist barna
vekur athygli á að í janúar og febrúar er opið fyrir
leyfisveitingar til daggæslu barna á einkaheimil-
um.
Vöntun er eingöngu í eldri hverfum borgarinnar.
Upplýsingar í símum 22360 og 27277.
Umsjónarfóstrur.
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
og Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkursvæðis
verða lokuð föstudaginn 9. janúar 1987 frá kl.
13.00, vegna jarðarfarar dr. med. Jóns Sigurðs-
sonar, fyrrverandi borgarlæknis.
Heiibrigðisráð Reykjavíkur.
Bylgja kynþáttahaturs
flæðir um Vestur-Evrópu
Mikið atvinnuleysi gerir illt verra. - Vafasamt hlutverk
fjölmiðla. -Innflytjendur eru enn „nauðsyn“
Meira að segja í Danmörku hafa menn tekið upp á því að brenna Ku-klux-klan
krossa í amerískum suðurríkjastíl...
Vaxandi kynþáttahatur,
sem nærist af gömlum og
nýjum fordómum og magn-
ast af langvarandi atvinnu-
leysi, setur í vaxandi mæli
svip sinn á daglegt líf Vest-
urevrópulanda og svo opin-
bera stjórnarstefnu. Þetta
kemur m.a. fram í því að
jafnvel lönd eins og Dan-
mörk og Holland, sem eiga
sér stolta hefð að því er
varðar viðtöku flótta-
manna, skella nú í vaxandi
mæli hurðum í lás fyrir
hverjum þeim úr þriðja
heimi sem leitar þar hælis.
Breytt efnahagsástand ræður
miklu um þessa dapurlegu þróun.
Okkar áratugur er mjög ólíkur
hinum sjötta og sjöunda, þegar
um það bil tólf miljónir innflytj-
enda voru gott ef ekki beinlínis
hvattir til að taka þátt í að byggja
upp aftur hina stríðshrjáðu Evr-
ópu, fjölga þar vinnandi fólki -
ekki síst í þeim greinum sem
velmegunarfólk vildi helst ekki
sinna...
Vaxandi fjandskapur í garð
fólks frá hinum fátæka þriðja
heimi leikur lausum hala í samfél-
ögunum - enda þótt aðeins einn
af hverjum 333 íbúum Frakk-
lands sé útlendingur, einn af 384 í
Bretlandi og einn af 617 í Vestur-
Þýskalandi - landi Gúnthers
Wallraffs sem hefur skrifað fræga
bók um málið. Fæstir leiða
nokkru sinni hugann að því að í
miklu fátækari löndum eins og
Jórdaníu og Sómalíu eru útlend-
ingar, flóttamenn reyndar, mar-
gfalt fleiri - eða einn af hverjum
fimm íbúum Jórdaníu og einn af
hverjum þrem íbúum Sómalíu.
Fjandskapurinn í garð innflytj-
enda kemur og niður á þeim sem
hafa orðið að leita hælis í Vestur-
Evrópu sem pólitískir flótta-
menn. Eitt hið óhugnanlegasta er
það, hve ört fjölgar ofbeldisverk-
um sem bitna á innfleytjendum -
til dæmis að taka, hafa í Frakk-
landi verið framin síðan árið 1981
160 morð sem rakin verða til kyn-
þáttahaturs. í einu hverfi
Lundúna (Redbridge) voru í
fyrra skráðar 112 árásir á þeld-
ökkt fólk frá fyrrverandi ný-
lendum Breta.
Við erum
að drukkna
Æsifréttaskrif blaða um
aukinn flóttamannastraum frá
löndum eins og Sri Lanka og fran
hafa mjög kynt undir geðflæktum
ótta evrópskra þjóðrembun anna
við að þeir muni drukkna í
mannmergð frá öðrum menning-
arsamfélögum. Þá hafa hermdar-
verk, hverrar ættar sem þau eru,
mjög kynt undir kynþáttahatur. f
Frakklandi hefur hægristjórnin
gefið lögreglu aukið umboð til
geðþóttahandtöku og hús-
rannsókna, og bitnar þetta ekki
síst á fólki úr Arabalöndum, sem
eins og liggur allt undir grun um
misferli.
Móðgandi ummæli um aðra
kynþætti eru að vera sjálfsagður
hlutur. Gömlum nasistaskrýtlum
er snúið af Gyðingum upp á
Tyrki. Úti fyrir búðum, þar sem
umsækjendur um pólit skt at-
hvarf eru geymdir, bera mótmæl-
endur skilti þar sem á stendur að
öllum útlendingum skuli út kast-
að eða: „í dag gefum við þeim
reiðhjól, á morgun dætur okkar“.
Vinsæl - og prúttin dagblöð
kynda mjög undir fordóma:
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
blökkumenn og Arabar eru þjóf-
óttir, skítugir, Asíumenn eru
eiturlyfjahöndlarar og þar fram
eftir götum.
Hægrisinnaðar stjórnir finna
hvaðan vindur blæs og taka veru-
legt tillit til áróðurs og vinsælda
kynþáttahatara eins og þeirra
sem saman eru komnir í „Þjóð-
fylkingunum" frönsku og bresku.
Ríkisstjórnir í Hollandi, Vestur-
Þýskalandi, Bretlandi, Frakk-
landi, Danmörku og Sviss hafa
hert á reglum um innflutning
fólks og gert umsækjendum um
pólitískt athvarf æ erfiðara fyrir.
Atvinnuátand
Útlendingahatrið er að flestra
dómi mjög tengt atvinnuleysi.
Þetta veit til dæmis foringi Þjóð-
fylkingarinnar frönsku, Le Pen -
en hann hefur háð kosningabar-
áttu undir plakötum sem á stend-
ur: - tvær miljónir innflytjenda -
tvær miljónir atvinnuleysingja.
En sá útreikningur að atvinnu-
leysi muni hverfa með innflytj-
endunum er rangur. Innflytjend-
ur eru aðeins 9 prósent af vinn-
andi fólki í Frakklandi og 86%
þeirra vinnur ófaglærð störf. Þeg-
ar árið 1974 var lokað á farand-
verkamenn frá löndum utan
Efnahagsbandalagsins. Margir
innflytjendur hafa fengið reiðufé
til að flytjast aftur heim. Meðan
tala innflytjenda meðal vinnandi
manna hefur staðið í stað hefur
atvinnuleysið fímmfaldast á tíu
árum í Frakklandi - úr 450 þús. í
2,4 miljónir eða því sem næst.
Reyndar er meira en nóg til af
heimildum sem benda í þá átt, að
fjöldabrottvísun innflytjenda frá
Vestur-Evrópuríkjum mundi
hafa í för með sér margskonar
vandkvæði fyrir efnhag viðkom-
andi landa - vegna þess m.a. að
þessir „gistiverkamenn" vinna
einatt þau erfiðu og fyrirlitnu
störf, sem enginn annar fæst til að
vinna - ekki heldur atvinnulausir
heimamenn.
AB tók saman.
Frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi
Nýbygging Fjölbrautaskóla Suðurlands verður
vígð og skólinn settur laugardaginn 10. janúar nk.
og hefst athöfnin kl. 14. Nemendur mæta kl.
12.30 við Selið. Allir eru velkomnirtil hátíðarinn-
ar. Sérlega er skírskotað til eldri nemenda
skólans. Húsið verður til sýnis þennan sama
laugardag til kl. 21.
Stundatöflur verða afhentar fimmtudaginn 15.
janúar kl. 14, þar í húsinu, gegn greiðslu
innritungargjalds, kr. 1500. Kennsla hefst sam-
kvæmt stundaskrá föstudaginn 16. janúar.
í öldungadeild hefst kennsla fimmtudaginn 15.
janúar. Innritunargjald kr. 3600 greiðist í fyrstu
kennsluvikunni.
Enn er hægt að taka við nemendum í dagskóla
og öldungadeild. Innritun fer fram á skrifstofu
skólans, sími 99-2111.
Skólameistari.