Þjóðviljinn - 21.01.1987, Qupperneq 1
Miðvikudagur 21. janúar 1987 15. tölublað 52. órgangur
Sturlumálið
Vill að „hyskið“ kæri sig
Sverrir ver sig með umframeyðslu hjá Sturlu. Steingrímur J. Sigfússon: Röggsemi góð
ef réttlœti fylgir. Guðmundur Bjarnason: Rannsóknarnefnd í málið.
„Það er gott að hafa röggsama
valdsmenn cf þeir cru réttlátir
Röggsemi og ranglæti fara ákaf
lega illa saman“, sagði Steingrím
ur J. Sigfússon þingmaður m.a.
gær þegar hann gagnrýndi Sverr
Hermannsson menntamálaráð
herra fyrir gerræðisleg vinnu
brögð við brottrckstur fræðslU'
stjórans í Norðurlandi eystra.
Umræðu utan dagskrár um
fræðslustjóramálið varð ekki lok-
ið á alþingi í gær og verður henni
fram haldið á fimmtudag. Þó
Sverrir Hermannsson talaði í
tæpa tvo klukkutíma samtals,
virtust ræðuhöld hans ekki
sannfæra þá sem á eftir töluðu um
réttmæti gerða hans og gagnrýndi
Steingrímur J. Sigfússon einnig
að hann svaraði ekki einni af
þeim 10 fyrirspurnum sem hann
þó afhenti honum skriflega fyrir
umræðuna í gær. Þingmenn
gagnrýndu einkum að fræðslu-
stjóranum skyldi ekki hafa verið
vikið um stundarsakir meðan á
rannsókn sakargifta stæði eins og
lög gera ráð fyrir og sagðist for-
sætisráðherra á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun m.a. hafa
reynt að fá Sverri til að fara þá
leið til samkomulags en án árang-
urs.
Sverrir Hermannsson lagði í
málsvörn sinni áherslu á persón-
una Sturlu Kristjánsson, sem
hefði brotið trúnað og teldi að
tala í fjárlögum gæti ekki komið í
stað grunnskólalaganna og starf-
aði samkvæmt því. Sverrir sagði
m.a. að greiðslustaða fræðsluum-
dæmisins hefði verið 10 milljónir
í mínus um áramót og kennslu-
magn 22 stöðugildi umfram
heimildir. Nýjungar í starfi hefðu
verið teknir upp án fjárveitinga,
Sjálfstœðisflokkurinn
Kjörnefnd á
lokaspretti
Við erum komin á lokasprett-
inn með þetta. Ég á jafnvel
von á að við skilum okkar tillögu
til fulltrúaráðsins fyrir helgi, en
það gæti dregist eitthvað, sagði
Jón Steinar Gunnlaugsson for-
maður kjörnefndar Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Þar með virðist ætla að fara að
draga til tíðinda í framboðsmál-
um Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, því búist er við að um leið og
kjörnefnd hefur lokið störfum
verði boðaður fundur í fulltrúa-
ráði sjálfstæðisfélaganna.
Kjörnefnd er bundin af niður-
stöðum prófkjörs sem haldið var í
október í fyrra, en svo er hins
vegar ekki um fulltrúaráðið. Það
hefur endanlegt ákvörðunarvald
og getur breytt skipan listans. Og
þess fundar er beðið með eftir-
væntingu innan Sjálfstæðis-
flokksins, því ýmsir hópar þar
innan borðs hafa lýst yfir áhuga
sínum á að koma Albert Guð-
mundssyni úr efsta sæti listans.
-€g
húsnæði tekið á leigu og
innréttað án vitundar ráðuneytis-
ins og áætlanir um sérkennslu
væru allar í þoku.
Sverrir tók ákvörðun sína eftir
að fræðslustjórinn hafði setið
þriggja klukkutíma fund með
ráðuneytisstjóra og skrifstofu-
stjóra menntamálaráðuneytisins
9. janúar s.l.
Niðurstaðan var að fræðslu-
stjóri væri enn við sama
heygarðshornið, og teldi sig geta
gert sínar áætlanir og framfylgt
þeim án samráðs við ráðuneytið.
Því hefði hann orðið að taka til
sinna ráða. Skoraði hann á
fræðslustjórann og þá sem nú
slægju um hann skjaldborg að
leita réttar síns fyrir dómstólum.
Ef þeir ekki gerðu það nú þegar,
væri ljóst að þeir þyrðu það ekki,
og þá væru orð þeirra ómerk.
Sagði Sverrir „skjaldborgar-
menn“ vera „hyski" sem yrði
fljótt að gleyma Sturlu eftir kosn-
ingar og kvaðst hann þar eiga við
Alþýðubandalagsmenn, sem
hefðu stjórnað þessu öllu, bak
við tjöldin!
Enginn ræðuntanna varði að-
gerðir Sverris í þingsölunt í gær,
og Guðmundur Bjarnason Fram-
sóknarmaður frá Húsavík lagði
til að sett yrði sérstök
rannsóknarnefnd í málið. _
Sverrir Hermannsson í ráðherrasæti sínu á alþingi í gær. (mynd: EÓL)
Farmenn
Bakslag í viðræðumar
Guðmundur Hallvarðsson: Vinnubrögð viðsemjenda óvið-
unandi. Tökum upp allarfyrri kröfur um
grunnkaupshœkkanir og 80% yfirvinnuálag
Við eruin búnir að fá okkur
fullsadda af þessum vinnu-
brögðum, við höfum beðið um
viðræður um okkar kröfur en
enga svörun fengið ennþá, sagði
Guðmundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur í samtali við Þjóðviljann á
ellefta tímanum í gærkvöldi, en
þá stóðu fundir enn í deilu undir-
manna á farskipum og viðsemj-
enda þeirra.
Óvænt bakslag kom í viðræð-
urnar á miðnætti á mánudag og
kenna farmenn vinnubrögðum
við samningagerðina um það. Að
sögn Guðmundar náðist sam-
komulag um eina málsgrein á
mánudagsnóttina og skrifuðu far-
menn hana upp og afhentu við-
semjendum. Þeir prentuðu hana
síðan upp en breyttu innihaldinu
þannig að vinnusvið háseta var
víkkað út meir en samið var urn.
Málsgreinin var þá leiðrétt en
Guðmundur sagði þetta óviðun-
andi vinnubrögð. Þórarinn Þór-
arinsson, framkvæmdastjóri
V.S.Í. hefur vísað þessunt um-
mælum á bug. Undirmenn á far-
skipum ákváðu í framhaldi af
þessu að taka upp allar fyrri kröf-
ur sínar. Þær eru að grunnkaup
hækki úr 24.000 í 35.000 krónur á
mánuði fyrir lok þessa árs að álag
á yfirvinnu verði hækkað úr 60%
í 80%.
Fundur Snótar með viðsemj-
endum hófst um miðjan dag í gær
og stóð enn þegar blaðið fór í
prentun. Enginn árangur varð af
fundinum, en helsta krafa Snótar
er að starfsaldur verði metinn til
hækkana.
-vd.
Handbolti
Víðir
í Rostock
Strákarnir í handboltalands-
liðinu standa í ströngu í vikunni,
lcika fímm lciki á fímm dögum við
nokkur stcrkustu handknatt-
lcikslandslið hcims í Eystrasalts-
mótinu í Austur-Þýskalandi. Á
staðnum er íþróttafréttaritari
Þjóðviljans, Víðir Sigurðsson, og
sendir daglega heim fréttir og við-
töl.
í dag keppir íslenska liðið við
Austur-Þjóðverja, á morgun við
Vestur-Þjóðverja, á föstudag við
Pólverja, á laugardag við Sovét-
menn og á sunnudag við Svía.
Þrjár þjóðanna sex eiga framund-
an B-mót heimsmeistarakeppn-
innar og eru því í besta formi
hugsanlegu um þessar mundir, og
má búast við tvísýnu í öllum
leikjum.
Bein útsending frá fyrsta
leiknum er í sjónvarpi í dag og
hefst kl. 16.25. $já ^