Þjóðviljinn - 08.03.1987, Blaðsíða 9
Jarð-
fræðin
sannar
Biblíu-
frásögn
Þegar Faraó neitað að leyfa
gyðingum að snúa aftur til ísrael
sagði Móses að 10 plágur myndu
hrjá landið. Ein þeirra var algjör
myrkvun í þrjá sólarhringa. Nú
hafa jarðfræðingar fært rök fyrir
því að þessi frásögn gæti reynst
sönn, því aska frá miklu eldgosi á
Santorini-eyju í suðurhluta Eyja-
hafs um 1500 f. kr., hefur fundist í
Nflardalnum. Eldgosið sendi um
13-15 rúmkflómetra af ösku upp í
loftið og gæti það hafa myrkvað
Egyptaland í nokkra sólarhringa.
Gosið hafði í för með sér mikla
flóðbylgju og er talið að hún hafi
eytt Mykena-menningunni á
Krít.
-Sáf/Illustreret videnskab
WÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Prestar deyja
úr eyðni
Eyðniveiran fer ekki í mann-
greinarálit, komist hún í snertingu
við vessa likamans. Gagnvart
henni skiptir engu þó þú heitir
séra Jón. Hann er í sömu hættu
og hann Jón okkar. Þetta hafa
kaþólskir prestar í Bandaríkjun-
um fengið að reyna.
Talið er að um 20% allra ka-
þólskra presta í Bandaríkjunum
séu hommar. Um helmingur
þeirra stundar virkt kynlíf. Alls
eru 57 þúsund kaþólskir prestar í
landinu og virkir hommar meðal
þeirra því um 5.700. Ómögulegt
er að segja til um hversu margir
þeirra hafa fengið eyðni en vitað
er um 12 sem hafa látist úr sjúk-
dómnum, og álíka margir eru nú
með sjúkdóminn á lokastigi.
Þetta hefur sett kaþólsku kirkj-
una í Bandaríkjunum í mikinn
vanda. Sumir prestanna hafa ver-
ið reknir frá söfnuði sínum, en
aðrir hafa kosið að yfirgefa hann
sjálfir hljóðlega. I einu tilfelli
sem vitað er um, var dánarorsök-
inni breytt. Á skýrslum er sagt að
presturinn hafi látist af völdum
heilaæxlis en það var eyðniveiran
sem felldi hann.
Pukrið er þó ekki allsstaðar
jafn mikið. Fransiskus-múnkur
einn var lagður inn á sjúkrahús
vegna eyðni. Klaustrið bauð hon-
um að eyða síðustu ævidögunum
innan veggja klaustursins, sem
hann þáði.
Vegna þessarar þróunar sendi
páfagarður frá sér hirðisbréf f
október sl þar sem sagt er að
hommar skapi óreiðu í sköpunar-
verkinu. Hommar eru lítt hrifnir
af þessari yfirlýsingu og er talið
að margir þeirra hyggist yfirgefa
kirkjuna. Slíkt óttast vitaskuld
kirkjuyfirvöld í Bandaríkjunum
því stórt skarð yrði þá hoggið í
hjörðina.
-Sáf/The Sunday Times
San Francisco hefur verið griða-
staður homma í Bandaríkjunum.
Þeir Rick Kerr og Bernard Griesel
eru báðir kaþólskir prestar,
hommar sem hafa komið úrfel-
um.
Ef þú ketur þig dreyma
um framandi lönd undir stýri
úttu mikla möguleika d
að draumarnir raetist!
Vaknoðu maður!
Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og
kæruleysi ökumanna eru langalgengustu or-
sakir umferðarslysa. Flest slysin, verstu óhöpp-
in, mestu meiðslin og flest dauðsföllin verða
þegar skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt,
auðir vegir o.s.frv. Þá slaka ökumenn á - og
stefna sjálfum sér og öðrum vegfarendum í
stórkostlega hættu. Breytum þessu strax!
(Niöurstaöa úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og
afleiöingum umferðarslysa).
SAMVINNU
TRYGGINGAR