Þjóðviljinn - 08.03.1987, Blaðsíða 15
DOSTOJEVSKl VAR
FLOGAVEIKUR
Það er mikilvægt að sem flestir
kynni sér það því það er sorglegt
að verða vitni að fáfræði fólks
sem stendur ráðalaust frammi
fyrir einstaklingi í krampakasti
og veit ekkert hvað á að gera.
Við ljúkum þessu spjalli við
fjölskylduna í Stuðlaseli hér í
þeirri von að reynsla hennar geti
orðið öðrum til góðs og bendum
lesendum á að kynna sér innihald
bæklingsins vel.
Við birtum einnig kafla úr hon-
um annar staðar í opnunni þar
sem skýrt er hvernig bregðast
skal við krampaflogi. -vd.
Dr. Gunnar
Guðmundsson segir
frá rannsókn sinni á
fiogaveiki á íslandi
og fordómum
samfélagsins í
gegnum aldirnar
Gunnar Guðmundsson
prófessor í taugasjúkdómum
og yfirlæknir á taugalækn-
ingadeild Landspítalans, er
eini íslenski læknirinn sem
hefurskrifað doktorsritgerð
um flogaveiki. Það gerði hann
áárunum 1959-1966 eftirað
hafa unnið ýtarlega könnun á
um 1000 flogaveikisjúklingum
ílandinu. Hérsegirhannfrá
þessarri könnun í stuttu máli
og jafnframt frá því hvernig
hin ýmsu samfélög hafa leikið
flogaveika í gegnum aldirnar.
Ég byrjaði á því að spyrja hann
um orsakir flogaveiki:
„Flogaveiki er í raun ekki sjúk-
dómur, heldur einkenni um ein-
hverja skerðingu á heilastarf-
semi. Hún getur verið mjög víða
og einkennin fara eftir því í hvaða
hluta heilans skerðingin á sér
stað. Sumir fá krampakippi, aðrir
detta út stutta stund og svo fram-
vegis. Orsakirnar geta verið mis-
munandi og fara oft eftir því á
hvaða aldurstímabili viðkomandi
fær fyrst kast. Fái barn á fyrsta ári
kast er yfirleitt um vefrænar
skemmdir að ræða. Orsakir fyrir
slíku geta verið
fæðingarskemmdir, sýkingar,
heilabólga eða áverkar í fæðingu.
Illir andar
Fái viðkomandi fyrsta kast á
táningaaldri er oftast um floga-
HVERNIG Á AÐ BREGÐAST
VIÐ KRAMBAFLOGI?
Skyndihjálp
JA
Haltu ró þinni. Þá gerirðu mest gagn.
I Á Snúðuviðkomandiágrúfu(meðhöfuðiðtilhliðaroghökuna
a B fram). Það hindrar að tungan loki öndunarvegi. Séu kram-
"" m parnir mjög öflugir skaltu bíða þar til dregur úr þeim. Oftast
gerist það á innan við 5 mínútum.
NEI
Ekki flytja viðkomandi á meðan krampinn varir nema
það sé bráðnauðsynlegt öryggis hans vegna.
|k I I Ekki troða neinu upp í munn hans. Þú getur brotið í
C" I honum tennur. Athugaðu að sár á tungu grær en það
■ " " " gera brotnar tennur ekki.
NEI
JÁ
JÁ
JÁ
Ekki halda honum föstum eða reyna að hindra eða
stöðva krampann. Það tekst ekki.
Veittu honum stuðning og aðhlynningu þegar krampanum
er lokið og skýrðu honum frá því sem gerðist.
Leyfðu honum að hvíla sig eða sofa eftir krampann svo
hann nái að jafna sig.
Gakktu úr skugga um aö hann sé orðinn sjálfbjarga áður en
þú skilur við hann.
w s
I Jk Leitaðu læknishjálpar strax vari krampaflogið lengur en 10
-I Mjk mínútur, endurtaki það sig eða ef þú telur að viðkomandi af
m öðrum ástæðum þurfa læknishjálpar við.
Dr. Gunnar Guðmundsson: „Fólk gerirséralrangarhugmyndirumflog-
aveiki og fordómarnir þyngja enn byrði þeirra sem þjást af þessum
sjúkdómi.“ Mynd E ói.
veiki af óþekktum orsökum að
ræða, og svo er í um 60% allra
flogaveikitilfella. Við vitum að-
eins að einhverjar breytingar
hafa orðið í taugafrumunum sem
valda meðal annars truflunum í
hömlunarkerfinu.
Þegar fólk fær fyrsta kast eftir
tvítugt er oftast um vefrænar
skemmdir að ræða, til dæmis
höfuðáverka, heilabólgur og
æxli. í eldri aldursflokkunum ber
meira á heilaæðaskemmdum,
heilablóðföllum og hrörnunar-
sjúkdómi í heila sem orsök floga-
veiki.
Þær meðferðir sem hægt er að
beita við flogaveiki er lyfjameð-
ferð eða skurðaðgerð. Skurðað-
gerðir eru mjög sjaldgæfar og
þeim er aðeins hægt að beita í
sérstökum tilvikum. Lyfjameð-
ferð er mjög nauðsynleg og getur
í mjög mörgum tiívikum haldið
krömpunum niðri og stundum
læknast þeir af sjálfu sér án með-
ferðar án þess að við vitum alltaf
hvers vegna.
Þegar sjúklingur hefur verið
einkennalaus í tvö ár er reynt að
minnka lyfjameðferð og stundum
hætta henni.
Við vitum að flogaveiki er að
einhverju leyti ættgeng og núna
er ég, ásamt þeim Helga Krist-
bjarnarsyni, sem er doktor í líf-
eðlisfræði og geðlækningum, og
dr. Sturlu Friðrikssyni erfðafræð-
ingi, að kanna ættgengi floga-
veiki á íslandi í samvinnu við
Erfðafræðistofnunina en Sturla
er forstöðumaður hennar.
Þessa könnun framkvæmum
við með aðstoð tölvutækninnar
og þess má reyndar geta til gam-
ans að doktorsritgerð mín sem ég
lauk 1966 var fyrsta ritgerðin í
læknisfræði hérlendis sem var
gerð með aðstoð tölvutækninnar.
Einkennum flogaveiki hefur
verið lýst í heimildum frá alda-
öðli. í dagbókum Hammórabis,
sem skrifaðar voru 2000 árum
fyrir Krist, er talað um flogaveika
og þar kemur einmitt sérstaklega
fram álit þjóðfélagsins á þeim því
þeir eru ekki taldir áræðanlegir
vottar fyrir rétti.
í Mattheusar- og Lúkasar-
guðspjöllum Biblíunnar kemur
mjög greinilega fram viðhorf til
flogaveikra. Þeir eru taldir vera
haldnir af illum öndum og Jesús
segir við dreng í krampaflogi:
„O, þú rangsnúna og vandláta
kynslóð, hversu lengi á ég að vera
hjá yður og umbera yður.“ Síðan
hastaði hann á óhreina andann og
læknaði sveininn. Hann telur
veikina sem sagt refsingu fyrir
drýgðar syndir.
Hitler lét
gelda flogaveika
Allar götur gegnum miðaldir
eru gerðar teikningar þar sem
púkar koma út úr flogaveikum.
Það er ekki langt síðan Hitler var
við völd í Þýskalandi, hann lét
gelda alla flogaveika. í byrjun
aldarinnar og langt fram eftir
henni er talað um flogaveiki sem
næsta stig við fávitahátt sem or-
sakast af hnignun í fjölskyldunni.
Ástæðan fyrir þessu áliti er sú
að þær greinar sem eru skrifaðar
um flogaveika eru unnar upp úr
rannsóknum á flogaveikum á
geðveikrahælum. Þá var sú álykt-
un dregin að þær geðrænu
breytingar sem sáust á þessum
sjúklingum, sem voru oft mjög
illa farnir, væru sérkennandi fyrir
flogaveikina.
Þetta tíðkaðist langt fram á
fjórða áratug aldarinnar en svo
tekur við nýtt tímabil sem ein-
kennist af því að ekki má nefna
geðrænar breytingar í tengslum
við flogaveiki.
Þegar ég hóf könnun mína fyrir
30 árum var markmið mitt fyrst
og fremst að kanna hvaða jjörf
væri í heilbrigðiskerfinu fyrir
þjónustu við flogaveika.
Síðan fór ég að fá meiri áhuga á
flogaveiki sérstaklega og ákvað
að athuga hana betur í víðara
samhengi.
Bannað
að giftast
Ég kannaði meðal annars fé-
lagslegar aðstæður flogaveikra,
orsakir flogaveiki, tíðni hennar
og hve margir sjúklingar höfðu
fengið einhverja meðferð. Það
kom í ljós að 30% flogaveikra
höfðu aldrei fengið neina með-
ferð, sem sýnir á hve mismunandi
stigum þessi sjúkdómur getur
verið og einnig hvað lítið hefur
verið gert til að veita þeim með-
ferð. Auk þess bendir þetta til
þeirra fordóma sem voru gegn
flogaveikum.
Tíðni flogaveikra á íslandi er
um 0,5 - 0,6% af þjóðinni og það
eru sambærilegar tölur og í
Vestur-Evrópu og Bandaríkjun-
um.
Varðandi félagslegar aðstæður
athugaði ég hve margir floga-
veikra voru giftir, því á þessum
tíma var flogaveikum bannað að
giftast. Ég vissi um ákaflega mörg
sorgleg tilfelli þar sem menn
fengu ekki að giftast. Niðurstað-
an var sú meðal annars að hlut-
fallslega voru fleiri konur giftar
en karlar.
Ég athugaði einnig hve margir
flogaveikir voru með ökuskír-
teini, ég hafði áhuga á því vegna
þess að flogaveikum var alger-
lega bannað að aka bíl og er enn-
þá, nema þeir hafi verið ein-
kennalausir í tvö ár, hvort heldur
er með eða án lyfjameðferðar.
Þrátt fyrir það þá kom f ljós að
fleiri meðal flogaveikra óku bíl
en meðal fólks almennt.
Fœrri vinnuslys
og árekstrar
Ég fór í gegnum sakaskrár allra
þessarra 1000 sjúklinga og það
kom í ljós að það var meira um
afbrot meðal þeirra en annarra,
en það voru alltaf einhver minni-
háttar brot.
Tíðni árekstra hjá flogaveikum
er hins vegar ekki meiri en hjá
öðrum bílstjórum og þeim tölum
mínum ber saman við sambæri-
legar kannanir erlendis. Minna er
um vinnuslys hjá flogaveikum en
fólki almennt. Það má segja að
það sé svolítið einkennandi fyrir
flogaveika hvað þeir vinna vel og
samviskusamlega því þeir vita um
fötlunina og passa sig því betur en
aðrir.
Samt sem áður veit ég um
fjölda manna sem fá ekki vinnu
vegna þess að þeir eru floga-
veikir.
Ég kannaði einnig geðrænar
breytingar og þær voru umtals-
vert algengari hjá flogaveikum en
öðrum. Þá athugaði ég hve marg-
ir voru geðveikir og hve margir
taugaveiklaðir. Það kom í ljós að
þetta var meira áberandi hjá flog-
• aveikum en fólki almennt og
taugaveiklun var meira áberandi
hjá konum en körlum. Geðrænar
breytingar voru hins vegar al-
gengari meðal þeirra.
Ég kannaði einnig tíðni hug-
fötlunar og hún var hærri hjá
flogaveikum en öðrum, en það
byggist á því að margir sjúkling-
anna höfðu fengið slæma áverka,
annað hvort vegna slyss, eða í
fæðingu og þeir ollu um leið oft
vangefni.
Hitt er svo annað mál, burt frá
þessum niðurstöðum, að fjöldinn
allur af flogaveiku fólki er stór-
gáfaður og mörg helstu stór-
menni sögunnar voru flogaveik.
Það má nefna rnenn einsog Mú-
hammeð, Búddha, Pál postula,
Swedenborg, Sókrates, Sesar,
Kalígúla, Napóleon, Alexander
mikla, Newton, Péturmikla, Ric-
helieu kardínála, Handel, Pagan-
ini, Beethoven, Schumann,
Dante, Dickens, Moliere, Byr-
on, Dostojevskí, van Gogh og
Alfreð Nóbel.
Þessar geðrænu breytingar sem
ég hef nefnt eru þess eðlis að þær
há viðkomandi ekki á einn eða
neinn hátt við vinnu. Hin dæmi-
gerða mynd sem almenningur
hefur af flogaveiki er sljór froðu-
fellandi maður í krampakasti
liggjandi í götunni. Þessi mynd er
langt frá raunveruleikanum og
veldur þeim fordómum, sem gera
flogaveikina enn þyngri byrði en
ella og það ætti fólk að hafa í
huga.“ -vd.
Sunnudagur 8. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15