Þjóðviljinn - 10.03.1987, Síða 7

Þjóðviljinn - 10.03.1987, Síða 7
Eyjólfur Sveinsson er formaöur Vöku og stúdentaráðs. Vaka hefurflotið útá vinsældir hans. Hann gengur hins vegar út úr stúdentaráði við kosning- arnar á fimmtudaginn og þarmeð er Vaka nánast forystulaus. Takist vinstrimönnum að vinna mann í stúdentaráðskosn- ingunum á fímmtudaginn er ljóst að meirihluti hægrimanna er fall- inn. Birna Gunnlaugsdóttir, for - mannsefni vinstrimanna, sagði í spjalli við Þjóðviljann að í fyrra hefði einungis skort 48 atkvæði til að vinstrimenn næðu einum manni í viðbót, og möguleikarnir á að vinstrimönnum tækist að fella mcirihlutann upp á eigin spýtur að þessu sinni væru því miklir. I stúdentaráði eru nú 30 full- trúar. Meirihlutinn samanstend- ur af 12 fulltrúum Vöku, sem er háskólaútibú Heimdallar, og 4 fulltrúum Stígandi, klofnings- hóps úr Félagi Umbótasinna (Umba). Samtals hafa þessi öfl því 16 fulltrúa. Vinstrimenn þurfa því ekki að vinna nema einn mann af meirihlutanum, til að stjórnarandstaða þeirra og Umba telji 16 manns, og meiri- hluti hægrisinna sé fallinn. í viðtali við Þjóðviljann vildi hins vegar oddviti Umba, Krist- ján Sigtryggsson, sem nú situr í stúdentaráði fyrir þá, alls ekki útiloka að Umbar myndu stofna til meirihluta með Vöku og þar- með viðhalda í raun hægri meiri- hluta í ráðinu. „Þetta sýnir það eitt,“ sagði Birna Gunnlaugsdóttir, „að eina leiðin fyrir félagshyggjufólk til að tryggja að ekki verði hægri meiri- hluti áfram er að sjá til þess að vinstrimenn vinni einn mann í viðbót. Aðeins þannig er hægt að útiloka, að Vaka myndi áfram- haldandi meirihluta með Umb- um. Og við þurfum ekki nema einn mann,“ ítrekaði Birna. Vaka sigurviss Talsmenn Vöku eru þó mjög sigurvissir og telja að þeir muni sækja verulega á. í Morgunblað- inu hafa þeir gert því skóna að þeir muni ná tíu mönnum inn í stúdentaráðið í kosningunum á fimmtudaginn (9 í stúdentaráð og 1 í háskólaráð). Það byggja þeir á því, að oddviti þeirra og núverandi formaður stúdenta- ráðs, Eyjólfur Sveinsson, nýtur vinsælda meðal stúdenta. Eyjólf- ur gengur hins vegar úr stúdenta- ráði í kosningunum a fimmtudag- inn, og án hans eru hægrimenn nánast forystulausir. Margir, sem ella hefðu getað hugsað sér að kjósa Vöku, munu því sleppa því á fimmtudaginn. Flókin staða Staðan í stúdentapólitikinni er nokkuð flókin í dag. Alls eru 30 fulltrúar í stúdentaráði, og þar af 4 sem líka sitja í háskólaráði. Þessir fjórir eru raunar kosnir sérstaklega. Fulltrúar eru kosnir til tveggja ára í senn, þannig að árlega eru bara 15 kjörnir í einu. Vaka hefur nú 12 fulltrúa í stúdentaráði og hefur, einsog fyrr segir, meirihluta með 4 fyrrver- andi stúdentaráðsliðum Umba sem mynda nú klofningshópinn Stígandi. í stjórnarandstöðu eru 13 fulltrúar vinstrimanna og 1 fulltrúi, sem enn er eftir úr hópi Umba. Tveir fulltrúa Vöku og jafnmargir frá vinstrimönnum sitja líka í háskólaráði. Umbar á fallanda fæti Á fimmtudaginn er kosið til stúdentaráðs, og þá ganga alls 15 úr ráðinu og 15 nýir verða kjörn- ir. Verulegar breytingar verða ör- ugglega á valdahlutföllum í stúd- entaráði, vegna þess að þörfustu þjónar Vöku, klofningsfulltrú- arnir í Stígandi, hverfa nær allir úr ráðinu. Einungis einn verður eftir. Stígandi býður ekki heldur fram í kosningunum þannig að hópurinn er nánast úr sögunni. Af þeim 15 sem eftir sitja í stúdentaráði eru 7 vinstrimenn, 1 er Umbi, sem hefur starfað í stjórnarandstöðu með vinstri- mönnum, 6 eru í Vöku og svo er fulltrúinn úr Stígandi. Umbar eru á fallanda fæti, og klofningurinn í fyrra, sem kom í raun Vöku til valda, hefur mjög skert áhrif þeirra á meðal stúd- enta. Vökumenn spá raunar, að Umbar rnuni ekki ná neinum manni kjörnum í kosningunum á fimmtudaginn, en margt bendir þó til að þeir nái að minnsta kosti einum. Fáir telja þá þó munu ná fleiri en einum. Birna sterk í kosningunum í fyrra hlutu vinstrimenn 41,6 prósent at- kvæða og 7 menn kjörna. Vaka heldur því fram fullum fetum, að í kosningunum núna muni þeir tapa fylgi frá því í fyrra. Vinstrimenn hafa hins vegar haft allt frumkvæði að baráttunni gegn skerðingaráformum ríkis- stjórnarinnar í lánamálinu, með- al annars kom frá þeim hugmynd- in að samstarfsnefnd náms- mannahreyfingarinnar. Þeir hafa einnig átt sterkan leik með því að stilla upp Birnu Gunnlaugsdótt- ur, vinsælum oddvita vinstri- manna, sem formannsefni sínu. Fráfarandi formaður, Eyjólfur Sveinsson, naut álits margra ópó- litískra stúdenta, og margir þeirra munu geta hugsað sér að kjósa vinstrimenn út á Birnu sem formannsefni, af þeirri ástæðu einni að stúdentar þurfa nú á skeleggum talsmanni að halda. Engan slíkan er hins vegar að finna í röðum Vöku að Eyjólfi gengnum. Vegna þessa er líklegt að vinstrimenn haldi sama fylgi og í fyrra, og hljóti 7 menn í kosning- unum núna, þó ýmisleg teikn bendi til að þeir geti aukið fylgi sitt á fimmtudaginn. Blendin afstaða Umba Umbar hafa nú þegar 1 full- trúa, Kristján Sigtryggsson, sem verður áfram í ráðinu. í viðtali við Þjóðviljann í gær kvaðst Kristján vissulega líta á sig í stjórnarandstöðu gegn Vöku. „Það er líka rétt, að í fyrra var ég fylgjandi því að Umbar mynduðu meirihluta með vinstrimönnum, vegna þess að þeir unnu ótví- ræðan kosningasigur þá. Mér fannst þeir ættu að njóta þess.“ Hins vegar virðist afstaða Kristjáns til meirihlutasamstarfs að loknum kosningum nokkuð óljós. Þegar gengið var á hann, svaraði hann: „Ég vil ekki útiloka samstarf við Vöku“. Kristján vann í fyrra að mál- efnasamningi vinstrimanna og Umba og var þá fylgjandi sam- starfi þessara afla í ráðinu. Ágúst Ómar Ágústsson, efsti maður á lista Umba til stúdentaráðs, vann sömuleiðis að samningum, og var samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans einn þeirra sem börðust hvað harðast gegn samstarfi við Vöku. Kristján kvað þá félaga samstillta mjög, og ákvörðun um hvert þeir hölluðu sér að loknum kosning- um yrði tekin sameiginlega. Fellur hægri meirihlutinn? Einsog áður segir, munu vinstrimenn fá 7 menn kjörna, haldi þeir óbreyttu fylgi frá í fyrra.Fyrir voru þeir 7, sem voru kjörnir í kosningunum í fyrra. Samtals myndu þeir þá hafa 14 fulltrúa í stúdentaráði. Héldu Umbarnir tveir, Krist- ján og Ágúst Ómar, áfram and- stöðu sinni við Vöku og tækju höndum saman við vinstri menn, þá er ljóst að saman hefðu þessi öfl 16 fulltrúa og því hreinan meirihluta. Hægri meirihlutinn myndi þarmeð falla! Arna bjargar Vöku Að loknum kosningunum á fimmtudaginn á klofningshópur- inn Stígandi einungis einn full- trúa eftir í stúdentaráði, Ornu Guðmundsdóttur (Bjarnasonar, alþingismanns Framsóknar- flokksins). Arna staðfesti í viðtali við Þjóðviljann að hún íhugaði mjög sterklega að segja af sér störfum í stúdentaráði af „per- sónulegum ástæðum". Þegar hún var spurð hvort það kynni að breyta afstöðu hennar, ef einungis áframhaldandi vera hennar og stuðningur við Vöku í stúdentaráði myndi forða Vöku frá minnihluta, svaraði Arna:„Ef til vill. Við skulum bíöa og sjá hvað kemur upp úr kjörkössun- um.“ „Þetta sýnir það eitt,“ sagði formannsefni vinstrimanna, Birna Gunnlaugsdóttir, „að stúd- entar verða að tryggja að vinstri- menn vinni mann. Annars er möguleiki á að Vaka verði áfram í meirihluta með stuðningi Stíg- andi eða Umba.“ Össur Skarphéðinsson Birna Gunnlaugsdóttir, vinsæll oddviti vinstrimanna, hefurstarfað vel að málefnum stúdenta. Hún er formannsefni vinstrimanna. Hægri meirihlutinn getur fallið! Vinstrimenn geta fellt hœgri meirihlutann með því að vinna mann! Birna Gunnlaugsdóttir: 1 fyrra vantaði bara 48 atkvœði. Ovíst um afstöðu Umba - munu þeir starfa með Vöku? Kristján Sigtryggsson, oddviti Umba: Útilokaþað alls ekki! Þriðjudagur 10. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.