Þjóðviljinn - 10.03.1987, Page 13

Þjóðviljinn - 10.03.1987, Page 13
HEIMURINN Bandaríkin Afhjúpar Poindexter Reagan? Vissi forsetinn að vopnagróðinn fór til Contraliða? Sex af tíu Bandaríkjamönnum telja Reagan vita meira um írans- skandalinn en hann fullyrðir Washington Post heldur því fram að John Poindexter, fyrrum yfirmaður Þjóðarör- yggisráðs Bandaríkjanna, sé nú reiðubúinn að leysa frá skjóðunni varðandi vopnasöi- una til íran og hvað orðið hafi um tuttugu milljónir dala sem grunur leikur á að lent hafi í hirslum Contraliða. Hefur blaðið eftir heimildum í Hvíta húsinu að verið geti að Po- indexter greini rannsóknarþing- nefnd öldungadeildarinnar frá því að hann hafi í tvígang sagt Reagan frá því í fyrra að gróði af vopnasölunni rynni til Contra- liða. Verði af slíkum vitnisburði Po- indexters er það mikið reiðarslag fyrir forsetann sem stendur fastar en fótunum á þeirri staðhæfingu sinni að hann hafi ekki vitað um fjárstreymið til Contra sveitanna enda væri hið gagnstæða það sama og að játa á sig lögbrot þar sem þingið þarf að samþykkja all- ar slíkar fjárveitingar. Öldungadeildarþingmennirnir sem sæti eiga í rannsóknarnefnd- inni íhuga nú þann möguleika að veita Poindexter, North ofursta og Richard nokkrum Secord, meðhjálpara þeirra, takmarkaða uppgjöf hugsanlegra saka. Ef af því yrði væru þeir knúnir í vitn- astúkuna og gætu ekki lengur skákað í skjóli fimmtu greinar stjórnarskrár Bandaríkjanna sem heimilar manni að neita að bera vitni ef framburður hans gæti leitt til eigin sakfellingar. Mikið fjör myndi færast í írans- vopnamálið ef þessir herramenn léttu á hjarta sínu og greindu samviskusamlega frá öllu því sem þeir vita um málið. Hætt er við að það kæmi sér ákaflega illa fyrir Reagan. Sem dæmi um það má nefna upplýsingar er komu fram í Tow- erskýrslunni um að ýmsir sam- verkamenn forsetans hafi skipu- lagt fjársöfnun til handa dekur- börnum sínum, Contraliðum, á meðal einkaaðila í Bandaríkjun- um og með því athæfi sínu farið á bak við þingið og brotið lög. í skýrslunni er vitnað í minn- Secord, til vinstri, og North í fullum skrúða. Það er forsetanum hugsanlega fyrir bestu að þeir haldi sér saman. ispunkta fyrrnefnds Norths sem hafði yfirumsjón með söfnun- inni: „Það fer ekki á milli mála að forsetinn veit af hverju hann hef- ur tekið á móti hópi manna og látið í ljós þakklæti fyrir „stuðn- ing þeirra við lýðræðisöflin" í Mið-Ameríku.“ Ef marka má það sem Poindex- ter og North hafa gefið í skyn undir rós um vitneskju Reagans um ólöglegan fjárstuðning við Contraliða þá er eins gott fyrir hann að þeir þegi einsog steinar. í glænýrri skoðanakönnun vikuritsins Newsweek kemur fram að sex af hverjum tíu þegn- um Ronalds Reagan telja að rannsókn þingnefndar öldunga- deildarinnar muni leiða í ljós að forsetinn viti mun meira um íran/ Contra-málið en hann vilji vera láta. Helmingur spurðra segir ávarp hans á miðvikudagskvöldið í engu hafa breytt áliti sínu á hon- um en fjórðungur taldi hann hafa bætt stöðu sína til hins betra og jafnmargir til hins verra. -ks. Reagan með fjandvini sínum John Poindexter er allt lék í lyndi. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða SVÆÐISUMSJÓNARMANN Á SUÐURNESJUM Viðkomandi þarf að vera: símvirki/símvirkja- meistari eða rafeindavirki/rafeindavirkjameistari. Laun skv. launakjörum ofangreindra stéttarfé- laga. Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjórinn í Kefla- vík, sími 92-1000. AÐALSKOÐUN BIFREIÐA Tengivagna, festivagna, bifhjóla og léttra bifhjóla 1987 í Mýra- og Borg- arfjarðarsýslu, fer fram við Bifreiða- eftirlitið í Borgarnesi, dagana 25. mars til 10. apríl kl. 10 - 12 og 13 - 16.30 Miðvikudaginn 25. mars í Borgarnesi Fimmtudaginn 26. mars í Borgarnesi Föstudaginn 27. mars í Borgarnesi Mánudaginn 30. mars í Borgarnesi Þriðjudaginn 31. mars í Borgarnesi Miðvikudaginn 1. apr. í Borgarnesi Fimmtudaginn 2. apr. Föstudaginn 3. Mánudaginn 6. Þriðjudaginn 7. apr. í Borgarnesi Miðvikudaginn 8. apr. í Borgarnesi Fimmtudaginn 9. apr. í Borgarnesi Föstudaginn 10. apr. í Borgarnesi í Borgarnesi apr. í Borgarnesi apr. í Borgarnesi Kl. 9- Kl. 9 Kl. 9 Kl. 9 Kl. 9 Kl. 9 Kl. 9 Kl. 9 Kl Kl. 9- Kl. 9- Kl. 9- Kl. 9 9- 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 12 og 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 13-16.30 Að Logalandi 13. apríl kl. 10- 12 og 13- 16.00 að Lamb- haga 14. apríl kl. 10-12 og 13-16.00 og í Hvalfirði 15. apríl kl. 10-12 og 13-16.00. Endurskoðun fer fram í Borgarnesi dagana 19.-21. maí kl. 9-12 og 13 - 16.30 . í Lambhaga 22. maí k. 10- 12 og í Hvalfirði sama dag kl. 13- 15.00. Bifreiðar skráðar 1985 og síðar sem eru einkabifreiðar eru ekki skoðunarskyldar. Framvísa ber kvittunum fyrir bifreiða- og tryggingagjöldum, ásamt gildu ökuleyfi. Skrifstofa Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 3. mars 1987 Skák Mikil barátta Sjötta skák Karpofs og Sókólofs fór tvisvar í bið enn. Karpof hóf taflið með því að leika drottningarpeði sínu fram um tvo reiti og andstæðingur hans brá fyrir sig drottningarind- verskri vörn. Skákin fór í bið eftir fjörutíu og einn leik. Daginn eftir settust þeir félagar andspænis hvor öðr- um á nýjan leik og héldu upp- teknum hætti. Eftir níutíu leiki og ellefu klukkustunda þrásetu við tafl- borðið fór skákin enn á ný í bið. Taflið verður síðan væntanlega leitt til lykta á miðvikudaginn. Staða heimsmeistarans fyrr- verandi þykir ívið betri, hann hefur biskup, riddara, hrók og peð gegn tveimur hrókum og peði Sókólofs. -ks. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Á laugardaginn tóku þeir fé- við að tefla sjöttu skákina í ein- lagar okkar Karpof og Sókólof vígi sínu og er henni ekki lokið Spánnl Kína Spánverjar finna myndir og Kínverjar vín Lítill hvítur hvutti var betri en enginn fyrir spænsku forn- leifafræðingana sem voru á vappi um hóla og hæðir í nám- unda við bæinn Logrono á Norður-Spáni um daginn. Fornleifafræðingarnir sögðust hafa haldið í humátt á eftir Txiki litla þar sem hann trítlaði inn í hellisskúta og uppgötvað þar á veggjum skýrar og fallegar svart- myndir sem líklega hafa verið teiknaðar á járnöld. En það eru fleiri fundvísir en spænskir hundar. Kínverskir vísindamenn rann- saka nú fljótandi innihald brons- krukku einnar sem fannst í graf- reit Sjang-ættarinnar í Henan- fylki og talin er hafa dúsað þar í þrjúþúsund ár. Er ekki lengur talið vafa undir- orpið að vökvi sá sé hið besta eðalvín og enn rammáfengt! -ks.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.