Þjóðviljinn - 15.03.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 15.03.1987, Blaðsíða 4
GLÆTAN Hjörtur Howser, hljómborð Baldvin Sigurðsson, bassi Rúnar Þórisson, gítar Rafn Jónsson, trommur Andrea Gylfadóttir, söngur Grafík í viðtali á stein- steyptum skóm Við spilum koníaks- rokk! Það var hér um árið þegar íslenskatónlistarbylgjan í kringum 1980 reis sem hæst með ótal konsertum, bílskúra- böndum og misgæfulegum poppstjörnum, að vesturá Isafirði stofnuðu nokkrir ungir menn hljómsveit í kringum músík sem þeir höfðu skapað. Hljómsveitin hét Grafík. Og nú - löngu eftir að þessi alda er hnigin - heldur Grafík velli, trúlega eina sveitin sem eftir |er af þeim sem stofnaðar voru 'á þessum tíma. Af brautryðj- endunum eru aðeins tveir eftir: þeir Rafn Jónsson trom- mari og Rúnar Þórisson gítar- leikari. Hjörtur Howser hljóm- borðsleikari bættist síðar í hópinn og í fyrrahaust gengu þau Baldvin Sigurðsson bassaleikari og Andrea Gylfa- dóttir til liðs við hljómsveitina. Þar með urðu tímamót, - aldr- ei áður hafði kvenmaður sungið með Grafík. En það hafa svo sem oft áður orðið tímamót hjá hljómsveitinni, fjölmargir hafa leikið með henni um lengri eða skemmri tíma, sumir hætt, aðrir verið reknir eins og gengur. í vor er væntanleg ný plata frá Grafík. Tónlistin á henni ætti að koma mörgum á óvart. Húsið er hætt að gráta. Blaðamaður Þjóðviljans hitti Grafíkerana heima hjá Andreu söngkonu. Rúnar mætir fyrstur. Eg spyr um bernskutónlist hljómsveitarinnar. Rúnar:Við vorum á bresku lín- unni og undir miklum áhrifum frá Cure. Ég held nú samt að þau hafi ekki verið neitt óeðlilega mikil: Músík er alltaf samsuða af margs konar áhrifum. Annars vorum við hálfgerð önder-gránd- grúppa til að byrja með, við kom- um ekki til Reykjavíkur fyrr en eftir að fyrsta platan okkar, „Út í kuldann”, kom út. - Þetta voru blómlegir tímar í kringum 80. En hvað finnst þér um ungliðahljómsveitirnar um þessar mundir? Rúnar: Hm... Rauðir fletir eru athyglisverðir... Greifarnir? Ég tek þá nú ekki sérstaklega alvar- lega. Bæði þeir og Skriðjöklarnir eru í þessu til að skemmta sjálfum sér og áheyrendum og það er virðingarvert. En músíkin er ekki mjög merkileg. - En gömlu mennirnir í brans- anum? Rúnar: Ég hef alltaf gaman af Megasi og Bubbi á ágæta spretti... Annars vil ég helst ekki kommenta mikið á aðra lista- menn í þessum bransa. - Allt í lagi. En segðu mér frá Grafík í staðinn. Gekk eitthvað á þegar mannaskiptin urðu í haust? Rúnar: Nei, nei — það fór allt fram í friði og spekt. Annars höfum við ekki spilað mjög mikið opinberlega síðan Andrea og Baldvin komu inn í hljóm- sveitina, en meira einbeitt okkur að því að móta tónlistina. Við höfum tekið svona eitt og eitt g*gg- - Þannig að þið hafið ekki ofan af fyrir ykkur með þessu móti? Rúnar: Nei, en ætli við séum ekki í svona hálfu starfi í hljóm- sveitinni. Við gætum náttúrulega spilað á böllum og lifað þannig. En reynslan sýnir að svoleiðis bönd lognast yfirleitt fljótlega út af... Klassík og rokk Nú er Andrea komin til sög- unnar og ég spyr hvort hún hafi nokkuð komið nálægt tónlist áður en hún fór að syngja með Grafík. Andrea: Ég hafði ekkert kom- ið nálægt þessum bransa áður. En ég hef verið í Tónlistarskólanum í mörg ár, að læra bæði söng og á hljóðfæri, aðallega selló. - Og hvernig er það fyrir klass- ískt menntaðan tónlistarmann að fara nú að syngja rokk og popp? Andrea: Það er gaman að því. Nei ég hef ekki orðið vör við að kollegar mínir fussi neitt yfir þessu, en ég hef heldur ekkert blásið rokk-feril minn upp. Rúnar: Það eru alltaf vissir fordómar í garð poppsins hjá þeim sem eru í klassíkinni og öfugt: Sumum popptónlistar- mönnum finnst sígild tónlist öll vera eins. En þetta stafar að mestu leyti af vanþekkingu. Koníaksgrúppa í þessum svifum koma þeir Baldvin, Hjörtur og Rafn. Bald- vin situr lengst af hljóður, en Hjörtur bætir það upp og gott betur. Ég spyr hvort þeim hafi fundist tónlistin breytast mikið við að fá söngkonu. Rafn: Já hún breyttist mjög mikið. Það er allt annar blær. Hjörtur: Svo eru menn líka búnir að hlaupa af sér hornin núna, þó við spilum ennþá rokk. Tónlistin er þroskaðri...vand- aðri... Þetta kemur með aldrin- um, sjáðu Stones til dæmis. Þeir spila sama gamla góða rokkið. Það er bara vandaðra. - Einmitt. Er ekki mikið sukk í kringum hljómsveitir? Rafn:Það er prinsip hjá þessari hljómsveit að meðlimir hennar séu ekki undir áhrifum áfengis eða annarra vanabindandi fíkni- efna meðan hljómsveitin er að spila... Hjörtur: Ég hef aldrei séð neinn drekka á sviði... Rafn: Þessi hljómsveit er ábyggilega sú minnst sukkaða (Þessi yfirlýsing drukknar í allsherjar hlátri.) Hjörtur: Ef eitthvað merkilegt er að gerast, þá dreypum við gjarnan á koníaki og kaffi... Grafík er koníaksgrúppa. Til dæmis á fimmtudaginn, föstudag- inn, laugardaginn, sunnudaginn, 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.