Þjóðviljinn - 15.03.1987, Page 5
IMkéIv
Ifiáí&^MtK
i|||||
'Ksil
nE**s&%3gí
gSfípla
rc^^sspe
J
!*':•'?<.; ~v*$.V'-r- •■ Mm
í.V-^"-í',iV .
P»'A •' a“- • ' W|
r. V-\.Ov<r •'.> ■ i W 'V^. V
.
iM^fgsas Ipp
p v4 V' <'VgTi .W'>»i
;S- . .. .. . ■_■••,'■'
V-'S 'V^VVi
IpfiltS^Pt
- ekki á mánudaginn, - á þriðju-
daginn...
Þórir: Sukkið hefur minnkað
rosalega mikið. Menn eru reknir
fyrir svoleiðis lagað núorðið. Við
drekkum ekki á konsertum, við
reynum líka að leggja mikið í þá.
Hjörtur: En eins og allir vita þá
eru dansleikir miklu frjálslegra
form...
- Hvernig er samkomulagið
innan hljómsveitarinnar?
Hjörtur: Er ekki búið að reka
minnsta kosti tíu manns? Nei,
annars, samkomulagið er mjög
gott...
Rafn: Með fullri virðingu fyrir
öllum þeim sem hafa verið í
Grafík þá get ég sagt að mórall-
inn hafi aldrei verið betri.
Hjörtur:Það sem gerir útslagið
er að við erum öll vinir. Við hitt-
umst ekkert bara til að spila og
æfa, heldur líka þar fyrir utan.
Það er til dæmis starfandi vídeó-
klúbbur í Grafík...
Andrea: Eina skilyrðið fyrir
inngöngu er að þegja á meðan
myndirnar eru...
Hjörtur: Já, einmitt. Þegja.
Hmm... Svo er starfandi matar-
klúbbur í tengslum við vídeó-
klúbbinn. Hann er að vísu bara
dulin afsökun fyrir fólk svo að
það geti drukkið rauðvín.
Líf og sorgir Elvis
- Snúum okkur að öðru. Hver
semur lögin í hljómsveitinni?
Rúnar: Við gerum það að
mestu leyti í sameiningu. Einn
kemur með hugmynd sem við
vinnum síðan út frá.
- En textarnir?
Hjörtur: Við semjum þá ýmist
sér eða saman og stundum sund-
ur...
- Og um hvað fjalla þeir?
Rafn: Allt frá því að fara út að
skemmta sér og detta í’ða til þess
að paufast heim út úr drukkinn
og svekktur! Nei, ekki bara, við
höfum til dæmis samið texta um
þjóðarskútuna!
Hjörtur: Og um fegurð! Litlar
prinsessur...
Rafn: Og áhrif ameríkansér-
ingarinnar á íslandi. Þetta var nú
bara fyrir Þjóðviljann!
Hjörtur: Svo er einn texti um
Elvis. Líf hans og sorgir... Er ég
ekki skáldlegur?
Andrea: Hann hefði getað sagt
þetta sjálfur!
Hjörtur: En stundum semjum
við líka lög og texta eftir pöntun-
um. Það var til dæmis kvartað
undan, því að við gerðum ekki
nógu mörg hitt-lög. Við redduð-
um þvi snarlega og sömdum
fjögur lög sem eiga eftir að slá
svoleiðis í gegn í sumar að þú get-
ur ekki opnað neina útvarpsstöð
án þess að við séum þar. - Fólk
endar með því að flýja í kanann!
Andrea: Það er gott að vera
bjartsýnn!
Plata í apríl
- Og hvenær koma þessir
smellir út?
Rúnar: Við frumflytjum þá á
miðvikudagskvöldið í næstu viku
í beinni útsendingu í sjónvarpinu
og Rás 2.
Hjörtur: Platan kemur svo í
apríl, „Á steinsteyptum skóm“.
Andrea: Ef einhver vill gefa
hana út.
Rafn: Við vorum svo að segja
búin að fá útgefanda, en hann
hætti við. Hafði víst ekki efni á
þessu.
Hjörtur: Þetta er þrælódýr
plata. Tók ekki nema 100 tíma í
stúdíói. Upptökurnar voru gerð-
ar í Hljóðrita með digital-tækni.
Þetta er fyrsta íslenska platan
sem er þannig unnin hér heima.
Fyrir bragðið verður hljóðið
miklu tærara og aðgreinir hljóð-
færin betur.
- Er Grafík vinsæl? Er til að
mynda starfandi aðdáendaklúbb-
ur?
Rúnar: Vinsældirnar hafa nú
verið svona upp og ofan í gegnum
árin. Þegar „Get ég tekið sjéns”
kom út urðum við þekkt á lands-
vísu. En við leggjum enga ofurá-
herslu á vinsældirnar.
Hjörtur: Þegar „Stansaðu,
dansaðu, öskraðu” kom út hjá
Mjöt var stofnaður aðdáenda-
klúbbur. Fólkið átti að fá merki
og boli og fréttabréf frá hljóm-
sveitinni. Það var nú einhver mis-
brestur á því. Svo held ég nú að
margir sem gengu í þennan klúbb
hafi verið... Já, sleppum því. En
einhverjir bjuggu víst þarna -
vinstra megin, þú veist á leiðinni
upp í Breiðholt...
Rafn: En fólk er alltaf fólk.
Mestu máli skiptir að það kaupi
plötuna og líki tónlistin.
Hjörtur: Annars er þetta engin
plötusala. Við höfum selt síðustu
plötur í svona tæplega 3000 ein-
tökum. Það er ekki nema fimmti
hver maður í Hafnarfirði!
-hj
Sunnudagur 15. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5