Þjóðviljinn - 15.03.1987, Qupperneq 16
FLUGLEIÐIR/V
Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn föstudaginn 20. mars 1987 í Krist-
alsal Hótel Loftleiða og hefst þar kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins, tillaga um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðal-
fundi, skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli,
frá og með 12rmars nk. frá kl. 9.00 til 17.00.
Afhendingu atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundar-
dags.
Stjórn Flugteiða hf.
1 >q< Ilúsnæðisslolnun ríkisins
Tæknideild
Laugavegi 77. R. Sími 28500
Útboð
Ölfushreppur
Stjórn verkamannabústaða Ölfushrepps óskar
eftir tilboðum í byggingu tveggja íbúða í parhúsi,
byggðu úr steinsteypu. Verk nr. U.05.01 úr
teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 195m2
Brúttórúmmál húss 675m3
Húsið verður byggt við götuna Norðurbyggð 1 a
og 1b Þorlákshöfn og skal skila fullfrágengnu,
sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrif-
stofu Ölfushrepps, Selvogsbraut 2, Þorlákshöfn
og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá
þriðjudeginum 17. mars 1987 gegn kr. 5.000.-
skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en
þriðjudaginn 7. apríl kl. 11.00 og verða þau opn-
uð viðstöddum bjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
> r
Utboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir til- f boðum í verkið:
Höfftastrandarvegur, Enni - Þrastarstaðir, 1987.
(Lengd 3,3 km, magn 14.000 rúmmetrar).
Verki skal lokið 30. september 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 16. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 30. mars 1986.
Vegamálastjóri
Sendill óskast
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða röskan og
áreiðanlegan ungling til sendiferða, hálfan eða
allan daginn.
Nánari upplýsingar eru veittar í afgreiðslu ráðu-
neytisins.
Utanríkisráðuneytið
Gegn einokun FIDE
Viðtal við Kasparov heimsmeistara
um nýsamtökstórmeistara
Á dögunum birti Pravda
viðtal við Garri Kasparov
heimsmeistara í skák um ný
samtök stórmeistara sem hafa
um stund verið í bígerð en eru
nú orðin veruleiki.
Kasparov segir í upphafi við-
talsins, að gífurlegur áhugi á skák
hafi skapað forsendur fyrir því að
lyfta hinum forna leik á nýtt stig
og eðlilegt að stórmeistarar taki
að sér það verkefni. Þeir hafi svo
notað tækifærið á ólympíuskák-
mótinu í Dubai, rætt sín mál og
árangurinn farið fram úr öllum
vonum. Næstum því 30 stórmeist-
arar skrifuðu undir stefnuskrá og
er það í sjálfu sér sögulegur við-
burður í skáklistinni. Við höfum
skrifað FIDE og boðið upp á
samstarf, og þeir geta vitanlega
hvorki hundsað samtökin né okk-
ar tilboð.
Fleiri sterk mót
Það var ekki einfalt mál, segir
Kasparov ennfremur, að stofna
stórmeistarasamtök. Því hver
stórmeistari hugsar sitt, þeir eru í
mismunandi landssamtökum og
hafa ekki áður komið fram sem
skipuleggjandi afl. Samt trúum
við á framtíð slíkra samtaka.
í fyrsta lagi vegna þess að stór-
meistarar hafa sameiginlegra
hagsmuna að gæta, allir hafa þeir
hag af því að sterkum mótum
fjölgi, af því að þeir séu efnahags-
lega og pólitískt óháðari FIDE en
áður var, en forysta FIDE hefur
að mínu viti framið ýmsar geð-
þóttayfirsjónir. í öðru lagi eru
vinsældir skáklistarinnar svo
miklar, að samtökin gátu búist
við stuðningi um heim allan.
Við kusum okkur sjö manna
ráð, sem í sitja þeir Nun (Bret-
landi), Portisch (Ungverjalandi),
Timman (Hollandi), Kasparov
og Karpov (Sovétríkjunum),
Seirawan (Bandaríkjunum) og
Ljuboevic (Júgóslavíu). Ákveðið
var að kjósa ráðið til þeirra þrig-
gja ára sem hver umferð í átökum
um heimsmeistaratitilinn tekur,
en forseta til eins árs í senn. Ég
var svo valinn til að vera í fyrir-
svari samtaka stórmeistara fyrsta
kjörtímabilið.
Ágreiningsmól
Spurning: Nú hafið þið svipuð
markmið og FIDE. í hverju er
ágreiningur milli ykkar og FIDE
fólginn ?
Mér sýnist að forysta FIDE
hafi á seinni árum gert tilkall til
algjörrar einokunar í skák-
hreyfingunni, hún reynir að segja
stórmeisturum fyrir um það hvað
þeir eigi að gera og hvernig, að
hvaða mótum þeir skuli standa.
Það er meira að segja búið að
sveipa talsverðri þoku fram-
kvæmd átakanna um heimsmeist-
aratitilinn.
Nýr sjóður
Hvort sem mönnum líkar betur
æða ver streyma allmiklir pening-
ar inn í skákina. Gert er ráð fyrir
því að FIDE eigi að stýra þeim
fyrst og fremst til að aðstoða þró-
unarlönd. Mótahald, sendiferðir
sérfræðinga, skipulagning fjöl-
tefla og fyrirlestra - þetta telja
skákmenn að peningarnir eigi að
fara í. Til þessa hvetja og samtök
stórmeistara, en það eru fyrst og
fremst þeir sem afla FIDE fjár.
Samtökin hafa m.a. tekið
ákvörðun um að stofna sinn eigin
sjóð. Við erum reiðubúnir til þess
að láta FIDE deila með okkur
yfirumsjón með honum. Það sem
skiptir máli er að sjóðnum sé í
raun og veru varið til þróunar
skáklistinni í öllum heimi.
Pravda: Þegar Capomanes,
forseti FIDE var í Moskvu fyrir
skemmstu kvaðst hann reiðubú-
inn til samstarfs við stórmeistara-
samtökin...
Kasparov: Enda er ekki hægt
að neita þýðingu slíkra samtaka
fyrir skáklistina. Auk þess er
búið að stofna þau. Þau hafa
bækistöðvar í Bruxelles.
Allir sem hafa unnið sér til
stórmeistaratitils, konur sem
karlar, viðurkenna lög samtak-
anna og borga 20 dollara á ári í
félagsgjöld geta tekið þátt í starfi
samtakanna og kosningum til
stjórnarráðs. Heimsmeistarinn á
þar sjálfkrafa sæti og auk þess má
kjósa landa hans, svo að nú eiga
Sovétríkin tvo fulltrúa í ráðinu og
það eykur virðingu Sovéska
skáksambandsins á alþjóðlegum
vettvangi.
Hvers konar mót?
Við ætlum til dæmis að halda
hraðskákmót þar sem gert er ráð
fyrir 25 mínútum mest í hverja
skák. Slíku móti mætti sjónvarpa
til miljóna manna. Þannig mætti
á hverju ári skipuleggja keppni
um Grand Prix - fyrst yrði safnað
saman mörgum sterkum
mönnum, tveir-þrír dagar færu í
undanrásir, en síðan kepptu 16
sterkustu sín á milli í fjórum um-
ferðum.
Meiri metnaður fylgir keppni
um Heimsbikarinn, sem ég hefi
áður minnst á.
Með þessu móti kæmum við
upp heilu kerfi sterkra móta -
mestu skiptir bardaginn um
heimsmeistaratitilinn. Síðan
kæmu Heimsbikarinn og Grand
Prix
Ekki undir FIDE
Við höfum sett saman áætlun
um samstarfið við FIDE til hags-
bóta fyrir alla aðila og gert er ráð
fyrir samráði alþjóðasamabands-
ins og stórmeistarasambandsins
um öll mál er varða mót. Einnig
er gert ráð fyrir því að ekki sé
hægt að breyta neinu um reglur er
varða heimsmeistaratitilinn án
þess að báðir aðilar samþykki.
Þetta er eitt af því sem mestu
skiptir og ætti ekki að vekja sér-
stakan ágreining. Við ætlum ekki
að setja okkur á hærri hest en
FIDE eins og sumir eru að ýja að,
en mér finnst að leiðandi skák-
menn hafi rétt til að búast við því
að án þeirra samþykkis sé reglum
ekki breytt.
Við höfum lagt fram okkar
hugmyndir og að nokkru tekið
tillit til álits Capomanesar, en
hann hefur frestað ákvörðunum
fram að næsta þingi FIDE sem
verður haldið að ári liðnu.
Framkvæmdanefnd FIDE hef-
ur samþykkt allar leiðréttingar
sem stórmeistarasamtökin vilja
gera á fyrirkomulagi heimsmeist-
arakeppninnar og keppni um
Heimsbikarinn. En um leið var
okkur boðið að gerast einskonar
nefnd undir stjórn FIDE og það
kæra stórmeistarar sig ekki um.
Þeir stofnuðu sín samtök til að
auka lýðræði í alþjóðlegri
skákhreyfingu. Og ég tel að þetta
sé fullkomlega í anda stefnu og
hagsmuna Sovéska skáksamb-
andsins. Ég veit ekki betur en
okkar stórmeistarar styðji sam-
tökin.
Pravda: Nú er ár fram að þingi
FIDE. Ætla samtök stórmeistar-
ar að fresta sínum áformum
þangað til?
Við ætlum ekki að hætta við
okkar plön. Það verður haldið
mót um Heimsbikarinn. Milli-
svæðamótin verða notuð sem
undanrásir og svo hefst fyrsta
umferð í Bruxelles í apríl 1988.
Þar og þá ætlum við líka að halda
næssta ráðsfund stórmeistara.
Við vonum að þangað til muni
okkur berast margar inntöku-
beiðnir frá helstu skákmönnum
heims og að við höfum þá tekið
inn fyrsta stórmeistarahundraðið
áb þýddi og stytti.
16 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. mars 1987