Þjóðviljinn - 28.03.1987, Page 14
MINNING
Þórnnn Elíasdóttir Hansen
Amma var fædd á Eskifirði,
foreldrar hennar voru Elías
Hansen frá Suðurey í Færeyjum
og Guðfríður Guðmundsdóttir
fædd á Túni í Mýrdal. Elías fórst
með skipi þegar amma var á
fyrsta ári. Elías og Guðfríður
eignuðust tvö börn saman, en
Guðfríður eignaðist síðan fjögur
böm með seinni manni sínum
Magnúsi. Guðfríður flutti til
Reykjavíkur þegar amma var á
fyrsta ári, en amma varð eftir hjá
móðursystir sinni Rannveigu
Guðmundsdóttur sem ól hana
upp. 1913 fluttist svo Guðfríður
til Kanada með böm sín fjögur úr
seinna hjónabandi og eftir það
sáust þær mæðgur Þórunn og hún
aldrei aftur. Þær skrifuðust á allt
til andláts Guðfríðar árið 1943.
Amma átti því fimm systkini,
eina albróður sinn sá amma að-
eins tvisvar á æfinni en hann var
búsettur í Englandi alla sína tíð,
og einn hálfbróður sinn hitti hún í
fyrsta skipti þegar hún var 80 ára.
Þetta vom einu skiptin sem hún
Fœdd 12. janúar 1897
hitti eitthvert af systkinum sín-
um. Amma stofnaði heimili með
afa mínum Sigurbergi Benedikts-
syni 1924 og bjuggu þau öll sín
búskaparár í Vestmannaeyjum,
eignuðust þau fjögur böm, tvö
þeirra komust á legg, drengimir
Benedikt Sigurbergsson og Rafn
Sigurbergsson.
Afi og amma bjuggu á Bergi í
Vestmannaeyjum, en í janúar
1965 lést afi og bjó amma ein í tvö
ár eftir það og árið 1967 fluttist
amma til okkar í Faxatún 36
Garðabæ. Amma var hjá okkur í
8 ár. Við systkinin eigum þess
vegna margar ógleymanlegar
stundir með henni ömmu. Alltaf
var gott að fara inn til ömmu með
námsbækumar. Hún átti alltaf
aflögu tíma fyrir mig og systkini
mín. Okkur þótti gaman að fara
inn og spjalla við ömmu. Hún
hafði alltaf frá einhverju
skemmtilegu að segja.
Ég minnist ömmu sem rólegri
og yfirvegaðri konu og mikil reisn
var yfir henni. Hún stóð alltaf
- Dáin 20. mars 1987
föst á sínu og einstaklega orð-
heppin. Við amma fórum margar
ferðirnar saman til Reykjavíkur
og ég þá 7 ára beið með mikilli
eftirvæntingu eftir þeim degi í
viku hverri að fara með ömmu að
selja peysur, en í þá daga prjón-
aði hún fyrir Álafoss, hún var
handlagin við þá iðn. Við
systkinin fengum heimsins bestu
sokka og vettlinga há ömmu Þór-
unni, hún átti alltaf hlýja sokka
handa okkur þegar kalt var úti.
Ein af mörgu góðu stundunum
með ömmu átti ég fyrir jólin ár
hvert, þá kallaði hún mig inn til
sín og bað mig að pakka inn jóla-
gjöfunum og skrifa á jólakort
fyrir sig. Þetta var mikil upplifun
fyrir mig sem krakka, þessa jóla-
stemmningu sem við amma átt-
um saman saknaði ég í mörg ár
eftir að amma fluttist á Sólvang.
Um þetta leyti fór sjónin að dapr-
ast hjá ömmu og hún hætti að
geta prjónað, það var mikiil miss-
ir hjá henni því ömmu féll illa að
sitja aðgerðarlaus því hún var
mikil dugnaðarkona. 1975 flutti
amma á Sólvang í Hafnarfirði
vegna þess að heilsan var farin að
bregðast henni. Hún vildi koma á
framfæri sérstöku þakklæti til alls
starfsfólks Sólvangs fyrir góða
umönnun. Hún nefndi þetta oft
þegar hún heimsótti foreldra
mína á Selfoss og kallaði hún Sól-
vang alltaf heimili sitt og hversu
gott væri þar að vera.
Þegar ég heimsótti ömmu á
Sólvang tók amma alltaf á móti
mér brosandi með útbreiddum
faðmi, svo falieg þegar hún kom
gangandi á móti mér með tinnu-
svart hár og teinrétt bak. Og þó
ég sæi að hún væri eitthvað veik
þá sagðist hún alltaf vera bara
hress, og aldrei heyrði ég ömmu
kvarta yfir einu eða neinu. Svona
var hún fram á síðasta dag æfi
sinnar.
Elsku amma, ég vil fyrir hönd
foreldra minna, systkina og fjöl-
skyldna okkar þakka þér innilega
allar þær stundir sem þú gafst
okkur, þær stundir eru okkur
ómetanlegar og mun minning þín
lifa meðal okkar. Guð blessi þig
og geymi handan móðunnar
miklu.
Legg ég nú bœði líf og önd
Ijúfi Jesús, í þína hönd
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(sb 1945 - H. Pétursson).
Birna S. Benediktsdóttir
Hafnarfjörður
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður í bæjarmálaráði laugardaginn 28. mars kl. 10.00 í
Skálanum, Strandgötu 41.
Fundarefni: 1) Staðan í umhverfis- og náttúruverndarmálum,
Jóhann Guðjónsson formaður gróðurverndarnefndar og Erling
Ólafsson fulltrúi í náttúruverndarnefnd reifa málin. 2) Staðan í
bæjarmálunum: Magnús Jón Árnason. 3) Vegamót: Lúðvík
Geirsson. 4) Önnnur mál.
Félagar fjölmennið og mætið stundvíslega. - Stjórnln.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Morgunkaffi
hjá 2. deild
2. deild ABR heldur félagsfund að
Hverfisgötu 105, laugardaginn 28.
mars kl. 11.00. Álfheiður Ingadóttir
mætir á fundinn. Fjölmennum. -
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Opið hús á sunnudaginn
Opið hús verður í Kosningamiðstöðinni á Hverfisgötu 105 f rá kl.
I4 á sunnudaginn og næstu sunnudaga.
Frambjóðendur G-listans (Reykjavík sitja fyrir svörum og boðið
verður uppá ýmsa skemmtan. Á sunnudaginn situr Guðrún
Helgadóttir alþm. fyrir svörum og kl. I6.00 mun Jóhanna Linnet
söngkona syngja nokkur lög við undirleik Amar Magnússonar.
Allir velkomnir. ABR.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Hafnfirðingar!
Opið hús og kosningavinna (Skálanum, Strandgötu 41, á laug-
ardag frá kl. I4.00. Mætum öll og skoðum í kjörskrár - spjall -
kaffi - meðlæti og skemmtun. Fjölmennum. Sfminn á skrifstof-
unni er 54171. Stjórnln.
—ALÞÝÐUBANDALAGIЗ
Alþýðubandalagið Kópavogi
Bæjarmáiaráðsfundur
Fundur! bæjarmálaráði mánudaginn 30. mars kl. 20.30 i Þing-
hóli, Hamraborg 11. Dagskrá: Skólamál. Önnur mál.
Stjórnln.
Vestfirðir
Kosningaskrifstofan í Hæstakaupstað, Aðalstræti 42, ísafirði, er
opin allan daginn. Sími: 94-4242 og -4298. Kosningastjóri er
Gísll Þór Guömundsson. Alltaf heitt á könnunni.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Laugardaginn 28. mars kl. I0 -12 verður Heimir Pálsson bæjar-
fulltrúi ásamt Pétri Má Ólafssyni og Unni S. Björnsdóttur fulltrú-
um í tómstundaráði með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg
11. Allir velkomnir.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
Alþýðubandalagið
Utankjörfundarkosning
Utankjörfundarskrifstofa Alþýðubandalagsins er að Hverfisgötu
105. Ópið frá kl 9 á morgnana og fram eftir á kvöldin. Síminn er
91-22335 og 91-22361. Símsvari 91-623484.
Norðurlandskjördæmi vestra
Hvammstangi: Kosningaskrifstofan er að Spítalastíg 16.
Opið virka daga frá kl. 20.30 - 21.30 og um helgar frá kl. I5 -18.
Síminn er 95-1460. Lítið inn eða hafið samband.
Blönduós: Kosningaskrifstofan er á Aðalgötu 1 sími 95-4561.
Opin frá kl. 15 -18 alla daga nema laugardaga. Starfsmaður er
Þorleifur Ingvarsson.
Siglufjörður
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Siglufirði er að
Suðurgötu 10, og verður opin fyrst um sinn kl. 14-19 mánudaga
til föstudaga. Sfmi 96-71294 og 71934.
Norðurlandskjördæmi eystra
Aðalkosningaskrifstofan er á Akureyri í Lárusarhúsi, Eiðsvalla-
götu 18. Opið alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-18. Síminn er
96-25875 og -27413. Kosningastjóri er Gunnar Helgason. Fra-
mlögum veitt móttaka á skrifstofunni og á tékkareikning nr.
8790 í Alþýðubankanum Akureyri.
^(jrSítéurtendSI •
Suðurland
Aðalkosningaskrifstofan er að Sigtúni 1 Selfossi (gamla Iðn-
skólanum). Opnunartími er alla virka daga kl. 14 -19. Síminn er
99-1006. Kosningastjóri er Guðvarður Kjartansson. Alla laugar-
daga fram að kosningum er opið hús í kosningamiðstöðinni kl.
I4 - 17. Frambjóðendur verða á staðnum.
VESTMANNAEYJAR: Kosningaskrifstofan er á Bárugötu 9
(Kreml). Fyrst um sinn verður skrifstofan opin sunnudaga-
mánudaga og föstudaga frá kl. 16-18. Síminn er 98-1570.
Kosningamiðstöðin
Reykjavík
Kosningamiðstöðin er að Hverfisgötu
105. Þar er opið alla virka daga til kl.
22.00 á kvöldin. Á laugardögum kl.
10- 18ogásunnudögum kl. 14-18.
Síminn er 17500.
Kíkið inn og fáið ykkur kaffi og styrkið
kosningastarfið með kaupum á
happdrættismiðum.
Vesturland
Aðalkosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Vesturlandi er í
Rein á Akranesi. Skrifstofan verður opin fyrst um sinn mánu-
daga kl. I5 -19, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl.
16-19, föstudaga frá kl. 15- 19og laugardaga frá kl. 13-17.
Síminn er 93-3174 og -3175.
Austfirðir
Aðalskrifstofa Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi er
á Reyðarfirði, Heiðarvegi 22, neðri hæð. Opið alla virka daga frá
kl. 10-18 og á kvöldin frá kl. 20-22. Um helgar fyrst um sinn frá
kl. 14-17. Síminn er 97-4361. Kosningastjóri er Jóhanna III-
ugadóttlr, heimasími: 97-4377. Alltaf heitt á könnunni.
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Kosningaskrifstofan er á Búðavegi 6
Sími 97-5444. Opið á fimmtudagskvöldum frá kl. 20.00 fyrst um
sinn.
Neskaupstaður: Kosningaskrifstofan er að Egilsbraut 11.
S(mi: 97-7571 og -7804. Opið milli 15-17 fyrst um sinn.
Kosningastjóri er Lilja Huld Auðunsdóttir.
Egilsstaðir: Kosningaskrifstofan er að Selási 9. Sími 97-
1425. Skrifstofan er opin milli kl. 20 - 22 um helgar.
HÖFN í HORNAFIRÐI: Kosningaskrifstofan er á Hafnarbraut
26 (neðri hæð). Opið frá kl. 17-19.30 og 20-22 virka daga og
13-19 um helgar. Síminn er 97-81426.
G-listinn Reykjanesi
Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er í
Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þar er opið alla virka daga
frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir
Valþór, Asdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir
eru 41746 og 46275.
Þá hefur einnig verið opnuð kosningaskrifstofa í Keflavík, að
Hafnargotu 34. Síminn þar er 92-4286. - G-listlnn Reykjanesi.
Hafnarfjörður: Kosningaskrifstofan er í Skálanum, Strand-
götu 41. Opið alla virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl.
I4.00. Sfminn er 54171.
Keflavík - Suðurnes: Kosningaskrifstofan er að Hafnargötu
34 í Keflavík. Síminn er 92 -4286.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. mars 1987