Þjóðviljinn - 29.03.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 29.03.1987, Side 3
Frjóvguð egg í „útungurT - þetta er ósiðlegt og ætti að banna, segir kirkjan. Kaþólska kirkjan Setur strangar reglur um náttúrulegar barneignir Hátœkniaðferðir við gerfifrjóvgun fordœmdar Kaþólska kirkjan hefurfyrir skömmu lýst þeirri afstöðu sinni að hún telji ýmsar há- tæknilegar aðferðir við getn- að nákvæmlega jafn synd- samlegarog getnaðarvarnir. Eftir þriggja ára umhugsuin hafa talsmenn Páfagarðs for- dæmt ýmis þau ráð ófrjósemi sem hafa verið að breiðast út á síðari misserum - til að mynda gerfi- frjóvgun, leigu á móðurlífi og einnig frjóvgun eggs utan líkama konu - jafnvel þegar um er að ræða sæði eiginmanns viðkom- andi konu. Auk þess hafa sér- fræðingarnir fordæmt ýmsar til- raunir með fóstur sem þeir telja bera vott um ósiðlega afstöðu til helgi lífsins. Ekki einir ó bóti Eins og búast mátti við hafa margir brugðist illa við þessum tíðindum - til dæmis segir eitt á- hrifamesta dagblað hins rammkaþólska írlands, Irish Times, í forystugrein, að með þessu sé \ rið að bjóða barnlausu fólki upp á þá huggun eina að því sé með sérstökum hætti ætlað að bera krossinn með Frelsaranum. Yfirlýsing Vatíkansins um þessi eftii hefur þó ekki vakið upp annan eins úlfaþyt og við mátti búast. Má vera að ein helsta ástæðan sé sú, að hátæknilegar aðferðir við frjóvgun eru svo dýr- ar, að þær eru alls ekki á dagskrá nema hjá litlum minnihluta ka- þólskra manna í heiminum. í öðru lagi eru sérfræðingar Vatíkansins ekki einir á báti í við- brögðum sínum við ýmsum ný- legum möguleikum líffræðinnar til íhlutunar um framvindu lífs á fósturskeiði. Mjög margir eru Ratzinger kardínaáli lagði skýrsluna fram: allt er bannað nema það sem er „náttúrulegt“. andvígir því að gerðar séu ýmsar tilraunir á fóstrum. Þegar hafa nokkur hundruð börn fæðst, einkum í Bandaríkjunum, eftir að leigumóðir hefur verið frjóvg- uð með sæði eiginmanns óbyrju. En lögfræðileg og siðferðileg vandamál sem fylgja slíkum samningum hafa reynst hin erfið- ustu og dregið mjög úr hrifningu á þessum möguleikum. Það hefur líka reynst tvíræð blessun að geta leitað til sæðisbanka til að hjálpa upp á sakimar þegar eiginmaður- inn reynist ófrjór. En hvað um barnlaus hjón? Eins og víð mátti búast vekur það mesta gremju, að kirkjan fordæmir þá tækni sem höfð er til að yfirstíga líkamlega ágalla sem koma í veg fyrir að hjón geti átt bam saman. En í fyrmefndu skjali er það m.a. fordæmt, að egg konunnar sé frjóvgað með sæði eiginmannsins utan líkama hennar og því síðan komið fyrir í kviði hennar. Mörg hundmð böm hafa til orðið með þessum hætti í Bandaríkjunum einum. Og kaþólskir siðfræðingar hafa margir hverjir lagt blessun sína yfir þessa aðferð - hún sé að vísu ekki æskilegasta aðferðin til að eignast börn en alls ekki ósiðleg. En kirkjufeður segja nú að þessi aðferð brjóti gegn hinni „réttu fullkomnun" ástalífsins. í skjali þeirra segir m.a.: „Frjóvg- un sem tekst utan líkama hjón- anna er af sjálfu sér svipt þeirri merkingu og þeim gildum sem fram koma í tungumáli líkamans og í sameiningu mannlegra vera“ Samhengið í tilverunni Þótt einkennilegt kunni að virðast er þessi afstaða Vatikans- ins til gervifrjóvgunar byggð á ýmsu sem kirkjan hefur áður sagt getnaðarvömum til fordæming- ar. Rétt eins og getnaðarvamir skilja á milli kynlífs og bameigna, segir kirkjan, þannig skilur gervi- fjróvgun að barneignir og kynlíf. Og þar með neítar kirkjan að gefa bamlausum foreldmm já- kvæð svör í þeirra vanda. Hjónabandið, segir í marg- nefndu skjali, gefur hjónum ekki sjálfkrafa rétt til að eignast bam heldur aðeins réttinn til að fremja þær náttúrulegu (m.ö.o. án getn- aðarvarna) athaftiir sem til getn- aðar vom ætlaðar frá öndverðu. Mörgum finnst vitanlega, að hér rekist hvað á annars horn : kirkjan vill banna getnaðarvamir en hún vill einnig takmarka möguleika til getnaðar. Sumir telja að þessi afstaða muni enn ýta undir það, að kaþólskir menn láti fyrirmæli kirkjunnar um kynlíf enn frekar en áður sem vind um eyrun þjóta. Aðrir reyna að sjá í sícjali Vatíkansins þarfa áminningu um að menn taki í al- vöm til meðferðar þau siðferði- legu vandamál sém nýjungar í læknavísindum erfðafræði og líf- fræði eru nú sem óðast að leggja fyrir menn með nýjum hætti. áb byggði á Newsweek. ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3 Sonur okkar, bróðir og mágur Tómas Kolbeinn Hauksson Birtingakvísl 15 verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 31.mars kl. 15. Haukur Tómasson Karitas Jónsdóttir Slgrún Hauksdóttir Loftur Atll Eiríksson Georg Guðni Hauksson Sigrún Jónasdóttir ^RARIK N RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja útvirki aðveitustöðvar við Vogaskeiðí Helgavellssveit. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf- magnsveitna ríkisins við Hamraenda 2, Stykkis- hólmi og Laugavegi 118, Reykjavík frá og með þriðjudeginum 31. mars 1987 gegn kr. 5.000 í skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins við Hamraenda í Stykkishólmi fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn 15. apríl 1987, og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu um slagi, merktu „RARIK 87002 aðveitustöð við Vogaskeið." Reykjavík 27. mars ,1987 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS K3RARIK ^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja aðveitustöð við Þórshöfn. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf- magnsveitna ríkisins við Glerárgötu 24, Akureyri og Laugavegi 118, Reykjavík frá og með fimmtudeginum 2. apríl 1987 gegn kr. 5.000 í skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á Akureyri fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn 15. apríl 1987, og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK 87004 aðveitustöð við Þórshöfn“. Reykjavík 27. mars 1987 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS A ÚTBOÐ Malbikun - viðgerðir Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum í yfir- lagnir og viðgerðir á eldri götum sumarið 1987. Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Kópa- vogsbæjar, Fannborg 2, frá og með 30. mars n.k. gegn 5 þús. kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. apríl n.k. kl. 11.30. Bæjarverkfræðingur Aðalfundur Iðju Aðalfundur Iðju, félags verksmiðjufólks verður haldinn á Hótel Esju 2. hæð fimmtudaginn 2. apríl 1987 kl. 5 síðdegis. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Breyting á reglugerð orlofssjóðs. 3. Breytingá reglugerð vinnudeilusjóðs. 4. önnur mál. Kaffiveitingar. Reikningar félagsins fyrir árið 1986 liggja frammi á skrifstofu Iðju, Skólavörðustíg 16. Stjórn Iðju

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.