Þjóðviljinn - 29.03.1987, Síða 4
HJAKONA
MORÐS
P. D. James höfundur skáldsagnanna um Adam Dalgliesh, er af
mörgum álitin arftaki Agöthu Christie
Roy Marsden í hlutverki Adam Dalgliesh í Svarta turninum.
Kvenstúdentafélag
íslands
Félag íslenskra
háskólakvenna
Fundur verður haldinn 31. mars kl. 20.30 í Litlu
Brekku hjá Sveini.
Katrín Árnadóttir snyrtifræðingur talar um lit-
greiningu.
Fjölmennið. Stjórnin
Drungalegur turn á ystu nöf
þverhnípts bjargs. Undir drynur
eilífur söngur haföldunnar sem í
gegnum árþúsundir hefur brotið
skörð í bjargið. Á brúninni yfir-
gefinn maður í hjólastól. Inní
turnherberginu aldraður, góð-
legur klerkur að skrá dagbók
sína. Franskir gluggar byrgja sýn.
Lítil rifa út í umheiminn. Klerk-
urinn stendur upp og kíkir út. Sér
ekkert. Fannst hann þó hafa séð
eitthvað. Einhverju bregða fyrir.
Líklega þó engu. Snýr sér við. Pá
þýtur hjólastóllinn af stað. Eykur
hraðann niður slakkann að
bjargbrúninni. í gegnum loftið.
Inn í dauðann. í grýttri fjörunni.
Sagan gerist í lokaðri veröld
heilsuhælis sem hálfheilagur
maður rekur. Persónur leiksins
eru hver með sínu sniði, sumar
kaldrifjaðar, aðrar viðkvæmar en
allar hafa eitthvað að fela úr for-
tíð sinni. Og áður en langt um
líður fylgja fleiri dularfullir at-
burðir og morð í kjölfarið.
Hver er hinn seki? Það er
spumingin sem sjónvarpsáhorf-
endur á íslandi velta nú fyrir sér
með Dalgliesh rannsóknarlög-
reglumaður frá Scotland Yard.
Amma býr
til morðflœkjur
Handan hafsins, f höfuðborg
Breska heimsveldisins, Lundún-
um, er 66 ára gömul amma að
taka pastarétt út úr ofninum.
Hún heitir Phyllis Dorothy James
White, þekktari undir nafninu P.
D. James. Metsöluhöfundur um
víða veröld. Skapari hins ljóðel-
ska rannsóknarlögreglumanns
Adams Dalgliesh sem þekktur er
allt frá Grímsey til Tokyo.
Þegar P. D. James er ekki upp-
tekin við matseldina eða að hafa
ofan af fyrir fimm barnabömum
sínum, rennur penni hennar eftir
auðum örkum og vefur vand-
ráðnar morðflækjur. Úr penna
hennar hafa þegar runnið níu
slíkar gátur, sem hafa skipað
nafni hennar á stall með
sakamálahöfundum á borð við
Sir Arthur Conan Doyle og Ag-
öthu Christie.
Sterk persónusköpun og þrótt-
mikill stíll höfundarins, auk þess
sem sögusviðið þykir óvenju
raunvemlegt, hefur lyft
sakamálasögunni upp úr þeirri
lægð sem hún hefur verið í unda-
nfarna áratugi. Henni nægir ekki
í sögum sínum að uppljóstra hver
morðinginn er heldur kafar hún
dýpra og leitar að sálrænum
ástæðum á bakvið morðin. Hvað
er það í sál mannsins sem fær
hann til þess að fremja slík ódæð-
isverk sem morð er?
Rithöfundurinn og gagnrýn-
andinn Kingsley Amis hefur sagt
um skáldsöguna Svarti tuminn að
hún minni sig á skáldsögu eftir
Iris Murdoch, munurinn sé bara
sá að í Svarta tuminum sé fjallað
um morð.
ök herstöðvaandstæðinga
Baráttufundur
Að Hótel Borg sunnudaginn 29. mars klukkan 15
Á DAGSKRÁ ER:
Setning fundarins:
Ingibjörg Haraldsdóttir formaður SHA
Söngur:
Guðrún Hólmgeirsdóttir
Ávarp:
Vigfús Geirdal
Tónlist:
Hjörleifur Valsson leikur á fiðly
Upplestur og söngur:
Aðalsteinn Bergdal leikari
Baráttulög:
Bubbi Morthens
Ræða dagsins:
Birna Gunnlaugsdóttir háskólanemi
Þorvaldur Örn Arnason
stjórnar fjöldasöng á fundinum
Fundarstjóri er
Jón Múli Árnason
Inglbjörg
Guðrún
Vlgfús
Hjörlelfur
Aðalstelnn
Bubbl
Birna
Þorvaldur
Jón Múli
Nýjasta skáldsaga P. D. James
nefnist A Taste for Death eða
Dauðalyst. Bókin hefur selst bet-
ur en allar fyrri skáldsögur henn-
ar.
Morðlyst
Sagan hefst á því að fyrrver-
andi ráðherra finnst skorinn á
háls á bakvið altarið í St. Matt-
hews kirkju í Paddington. Annar
maður finnst einnig myrtur á
sama hátt í kirkjunni. Dalgliesh
tekur að sér rannsókn málsins og
einsog vera ber liggja ýmsir undir
grun. Meðal þeirra má telja
fyrrnrn eiginkonu stjórnmála-
mannsins og viðhald hennar,
móður stjórnmálamannsins og
fleiri.
Gátan snýst ekki síður um
ráðherrann sjálfan. Hversvegna
hafði hann hætt í stjórnmálum og
frelsast. Einnig þykir lýsing höf-
undar á Englandi nútímans mjög
trúverðug.
Fékk ekki að lœra
P. D. James hætti í skóla þegar
hún var 16 ára að aldri. Ástæðan
var erfiður fjárhagur á heimilinu.
„Þó faðir minn hefði haft efni á
Markús öm Antonsson