Þjóðviljinn - 29.03.1987, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 29.03.1987, Qupperneq 7
barátta gengur en aðalatriðið er að vinna að afvopnun í heimin- um. Hvemig það er gert og á hvaða vígstöðvum verður að ráð- ast með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Stjórnmál eiga ekki að staðna. Afstaða íslendinga innan NATO hefur verið til skammar. Nægir að nefna að á síðasta ári mótmæltu íslendingar ekki niðursetningu eiturefnavopna, svokallaðra tvíþátta eiturefna- vopna, í Evrópu. Undirlægju- háttur og ósjálfstæði af þessu tæi er til háborinnar skammar. Verði það úr að íslendingar taki þátt í embættismannanefnd- inni er það ótvíræður sigur okkar Alþýðubandalagsmanna innan utanríkismálanefndar Alþingis." Dagdraumar Nú óttast menn að þau skilyrði og þeir fyrirvarar sem Matthías setur fram verði til þess að emb- œttismannanefndin verði í sjálfu sér óvirk. „Auðvitað munu íslendingar þvælast fyrir í þessu máli eins lengi og þeir geta. Nú hefur þjóð- in svarað því hvað hún vill. Um það bil 90% hennar vill að ísland sé lýst kjarnorkuvopnalaust svæði. Annaðhvort verður Matt- hías að hlusta á það eða að fólk skiptir um utanríkisráðherra samkvæmt óskum sínum í þessu máli. í kosningunum 25. apríl eiga menn alla möguleika á því. Ef íslendingar vilja hafa ráðherra sem ekki mótmælir niðursetn- ingu tvíþátta eiturefnavopna, ekki mótmælir því að hér kunni að verða kjarnorkuvopn, þá kýs það vitaskuld Sjálfstæðisflokk- inn, en þá þýðir ekki að hafa ein- hverja dagdrauma um að landið verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði. Menn verða að átta sig á samhengi hlutanna." Efling norrœns samstarfs Þú hefur verið ötull talsmaður um nauðsyn Norrœns samstarfs. Jafnframt hefur þú viljað víkka það samstarf út og láta það ná til utanríkismála. „Að mínu viti er Norðurlanda- ráð mjög merkileg samkoma sem á sér enga líka í veröldinni. Fimm ólíkum þjóðum hefur tekist að vinna sameiginlega að mörgum málum, t.d. gagnkvæmri tryg- gingalöggjöf, málum sem varða félagsleg réttindi fólks og margt fleira. Eg veit ekki hvort fólk sem á t.d. börn í námi á hinum Norðurlöndunum, heldur að það sé einhver tilviljun að börn þeirra fái dagheimilsrými, barnabætur, hússtyrki og miklu betri þjónustu en þau myndu fá hér heima. Þetta er afleiðing af Norrænu sam- starfi. Hinsvegar hefur heimurinn breyst frá því að Norðurlandaráð var stofnað. Nú eru vikulega teknar ákvarðanir innan Efna- hagsbandalagsins, EFTA og ann- arra bandalaga, sem stórlega varða líf fólks á Norðurlöndun- um. Þess vegna held ég að sú tíð sé liðin að Norðurlandaþjóðirnar ræði ekki utanríkismál innan vé- banda sinna einsog upphaflega var gert ráð fyrir. Norðurlöndin geta því aðeins orðið sú eining í heiminum, sem skiptir einhverju máli, að við þjöppum okkur sam- an og komum fram á alþjóðavett- vangi sem sameinað afl. Fáum er það nauðsynlegra en íslending- um að taka þátt í slíku samstarfi. Vitrœn eining Ég kom inn á þetta í almennu umræðunni á Norðurlandaráðs- þinginu nú í Helsinki og varð vör við að ýmsir voru mér sammála. Norðurlandaráð á að koma sér upp mögnuðu liði hámenntaðra stjórnmálafræðinga og fólks sem er vel að sér í alþjóða viðskipta- og fjárhagsmálum. Norðurlönd- unum er nauðsyn að styrkja sig meira en nokkru sinni fyrr gagnvart umheiminum. Norður- löndin hafa t.d. Iagt mikið af mörkum til verndunar auðlinda jarðarinnar. Ég lagði fram tillögu á Norðurlandaráðsþingi nú um að ýtarleg áætlun verði gerð til að hreinsa höf og strendur á norður- slóðum. Ég á fastlega von á því að sú tillaga verði samþykkt á næsta þingi. Það er verkefni lítiilar þjóðar einsog íslendinga, að koma fram sem vitræn eining í heiminum. Það skiptir ákaflega miklu máli einsog hefur sýnt sig í starfi Ólafs Ragnars Grímssonar á alþjóða- vettvangi. Þá er mikilvægt að við höldum alþjóðasáttmála. Við átt- um mikinn þátt í alþjóðahafrétt- arsáttmálanum og nýttum okkur hann í landhelgismálunum. Þess- vegna hef ég harmað frá fyrstu byrjun að við skyldum ekki una því að hvalveiðibann yrði haldið til 1990. Það var þó sárabót að Alþingi mótmælti því ekki einsog Norðmenn gerðu. Ég tel að við hefðum átt að koma fram af meiri heilindum í því máli og vera þar öðrum þjóðum til fyrirmyndar. Það er mjög mikilvægt að huga að framgöngu íslenskra stjórnmálamanna á alþjóðavett- vangi og ég vona að við eigum ekki eftir að horfa upp á það að það verði íslendingar sem standi í vegi fyrir því að Norðurlöndin verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði.“ Tllvistarkreppa, þjóðarsátt Þorsteinn Pálsson hefur lýst því yfir að Alþýðubandalagið eigi í tilvistarkreppu. Guðrún skellir uppúr; „Mér sýnist Þorsteinn hafa nóg með sína eigin tilvistarkreppu." Að sögn hans er Alþýðubanda- lagið ekki lengur höfuðóvinur- inn. Þarsem Alþýðubandalagið hafi skrifað upp á þjóðarsátt... „Alþýðubandalagið hefur ekki skrifað upp á neina þjóðarsátt. Einungis um 16% innan verka- lýðshreyfingarinnar kjósa Al- þýðubandalagið, því miður. Þeir sem gerðu þjóðarsáttina við Þor- stein Pálsson voru hin 84%. Okkar ágæti flokksfélagi, Ás- mundur Stefánsson, hefur reynt að komast með kjarabætur eins langt og honum var framast unnt. Hann kemst auðvitað ekki eins langt og við vildum með einungis 16% stuðningsmanna okkar innan ASÍ. Þessvegna er fjar- stæða að halda því fram að verka- lýðshreyfingin og Alþýðubanda- lagið séu eitt og hið sama. Sú var tíðin fyrir 40-50 árum, að Al- þýðusambandið samanstóð af sósíalistum, en sú tíð er löngu, löngu liðin. Á meðan íslenskir launþegar átta sig ekki betur á hverjir eru líklegir til að berjast fýrir hagsmunum þeirra er ekki von á góðu. Það eina sem getur bætt kjör fólksins í landinu er að styrkja Alþýðubandalagið innan ASÍ. Guðrún Helgadóttir, þingmaður og rit- höfundur, rœðir við- horfsitt til stjórnmála Það er gjörólíkt að vera forseti þverpólitískra samtaka þar sem obbi félagsmanna kýs afturhalds- öflin en að vera í forsvari fyrir Alþýðubandalagið. Ein heildar- samtök launþega Sennilega er það mikil ógæfa að verkalýðshreyfingunni skuli vera skipt upp í mörg launþega- sambönd. Auðvitað ættu að vera ein heildarlaunþegasamtök. Munurinn á kjörum fólks í BSRB og ASÍ er í mörgum tilfellum sáralítill. Því miður hefur skort á samstöðu milli þessara tveggja aðila. Sú samstaða tókst 1978 en síðan hefur hún verið vanrækt. Það er því hætta á að þessi samtök liðist í enn smærri eining- ar. Við höfum séð að kennarar hafa sagt sig úr BSRB. Það besta sem getur komið fyrir íhaldsöflin í landinu er að verkalýðshreyf- ingin liðist í sundur. Ihaldið leikur sér að því að falsa tölur. Sú var tíðin að menn mældu kaupmátt taxtakaups. Þegar það fór niður úr öllu valdi var farið að mæla kaupmátt launa, en í því var innifalið ómælt vinnuálag. Þegar það dugði ekki til var farið að mæla kaupmátt fjölskyldutekna, sem þýðir laun tveggja aðila og ómælda yfir- vinnu þeirra beggja. Það segir sig sjálft hverjir líða fyrir þetta yfir- gengilega vinnuálag, sem er óþekkt í nálægum löndum. Það eru auðvitað börnin. Samverutími fjölskyldunnar er kominn niður úr öllu valdi og þjóðfélagið hefur ekki komið til móts við það á nokkurn hátt. Þús- undir íslenskra barna eru ein heima frá því að þau koma úr skóla, umhirðulaus með öllu. Þau hafa engan til að tala við og það er lagt í hendur þeirra sjálfra hvernig þau fæða sig. Börn vanrœkt Það segir sig sjálft að þetta er stórhættulegt. Það er ekk hægt að ala sama barnið upp .ema einu sinni. Hvert einasta sem misheppnast er að eilífu glatað, það verður ekki bætt. Smábörnum er hent milli ólíkra aðila á allra fyrstu mánuð- um æfinnar og það liggur í augum uppi hverskonar tengslamyndun verður milli foreldra og barna. Á sama tíma halda menn lærða fyrirlestra um hvert undirstöðu- atriði það sé ungum börnum að fá hlýju og ást aðstandenda sinna. Við vanrækjum uppeldi barna okkar. Það er sama hvort við tölum um dagvistarmál eða skó- lamál. Ég held að þarna sé á ferð- inni eitthvert brýnasta verkefni stjórnmálamanna á næstunni.“ Að lokum Guðrún. Það leynir sér ekki að þér þykir gaman að pólitíkinni. „Mér finnst alveg hryllilega gaman. Það er gaman að vera í pólitík ef ástæða þess að maður er í henni er sú að maður vill að heimurinn verði betri. Svo einfalt er það. Ég lít á mig sem vinnukonu fyrir þjóðina og ég ætla mér að vera dugleg vinnukona. Hún Ranka gamla í Broddanesi fékk silfurskeið frá Búnaðarfélaginu fyrir trúmennsku, þegar hún hafði verið vinnukona í 50 ár. Svoleiðis skeið vil ég fá. -Sáf Sunnudagur 29. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.