Þjóðviljinn - 29.03.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 29.03.1987, Qupperneq 15
setning væntanlegs ráöhúss á- kveðin í samkeppni um skipulag kvosarinnar. Allir fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði gegn skipulaginu utan Sigrún Magnúsdóttir fulltrúi Framsókn- arflokks. Ráðhús við höfnina Skiptar skoðanir eru um stað- arval ráðhússins. Nokkrir arki- tektar sem Þjóðviljinn talaði við töldu að staðsetningin væri ágæt og það væri vel mögulegt að fella ráðhús inní umhverfið. Aðrir voru svartsýnni og töldu að það hefði átt að athuga betur aðra staðsetningarmöguleika áður en efnt var til samkeppni. „Hér er um að ræða of mikið mannvirki á einu fallegasta og viðkvæmasta svæði borgarinnar," sagði og t.d. Hildigunnur Haraldsdóttir arki- tekt og benti á að lóðimar við hafnarsvæðið, sem væru jafn fall- egar, hefðu verið betur fallnar fyrir ráðhús. Umferðarstraumur- inn að ráðhúsinu og bílastæðun- um í kjallara þess hefði tengst Sætúninu og m.a. þess vegna hefði ráðhúsbygging þar fallið vel inní heildarskipulagið. Umferð- arþunginn sem kemur til með að vera í kringum Tjörnina eftir að ráðhús er risið þar með öllum þeim bflageymslum sem því kem- ur til með að fylgja, hefur valdið fólki áhyggjum. M.a. hafa arki- tektar bent á það að með ráðhús- byggingu á Bámlóðinni og um- ferðarstraumnum á Vonarstræt- inu sem þá verður, sé hætta á að sú heild sem kvosin og Tjamar- svæðið ætti að vera, brotni upp, og úr verði tvö nokkuð aðskilin svæði. Ráðhúsið verði hús fólskins Eins og fyrr segir rann skila- frestur arkitekta sem taka þátt í samkeppninni um hönnun ráð- húss út nýverið og að sögn Þor- valds S. Þorvaldssonar dóm- nefndarmanns stefnir dómnefnd að því að skila áliti sínu ekki miklu síðar en að mánuði liðnum. Fyrst þá mun liggja fyrir hvort ráðhús við Tjömina verður til prýði eða ekki, burt séð frá öllum vandamálum sem staðsetning- unni kunna að fylgja. Eitt er víst að hönnun ráðhúss á þessu svæði hlýtur að vera erfitt verkefni, vegna þess hversu margbreytilegt umhverfið er. Einn þátttakand- inn í keppninni staðfesti í samtali við Þjóðviljann að verkefnið væri mjög erfitt og krefjandi, en þó alls ekkert óleysanlegt. „Það er að sjálfsögðu algerlega hægt að klúðra þessu svæði með slæmri teikningu, en með góðri teikningu er líka hægt að gera það betra,“ sagði þátttakandinn. Að sögn Þorvaldar S. Þor- valdssonar stefnir meirihlutinn að því að hefja framkvæmdir á byggingu ráðhússins eins fljótt og mögulegt er en á síðustu fjárhags- áætlun borgarinnar voru 60 milljónir settar í ráðhússjóðinn. Það er því ekki ólíklegt að innan tveggja ára eða svo verði komin einhver ráðhúsmynd á Bámlóð- ina, nema svo fari að menn sannfærist um það, eins og Geir Hallgrímsson segir að þeir hafi gert hér áður fyrr, að önnur verk- efni séu brýnni en ráðhúsbygg- ing. Af nógu er að taka... Það væri ekki nema í ráðhúsinu yrði komið fyrir dagvistarheimili, da- gvistun aldraðra, félagsmiðstöð unglinga, aðstaða fyrir íbúa- samtök hverfanna, o.s.frv. Þá yrði Ráðhúsið það sem það ætti að vera, eða hvað? Hús fólksins. —K.Ól. Forhliðin í skugganum Hugmyndirum ráðhús íTjörninni eru ekki nýjar af nálinni. Fyrir röskum 30 árum var slík hug- mynd rædd í bæjarstjórn Reykja- víkur. Elías Mar, rithöfundur, rit- aði þá grein gegn fyrirhuguðu ráðhúsi. Hvort sem það var nú vegna hennar eða einhvers ann- ars reis ráðhúsið aldrei. Með góðfúslegu leyfi Elíasarendur- prentum við hér upphafskaflann úr grein hans, sem birtist 5. jan- úar1956: í tilefni af því sem lesa má í blöðum undanfarna daga, að búið sé að ákveða stað fyrir vænt- anlegt ráðhús Reykjavíkur í Tjöminni norðanverðri, finn ég mig knúinn til að senda þeim aðil- um sem að þessu standa fáein að- vörunarorð í fyllstu vinsemd, meðan það enn er ekki of seint. Ég býst reyndar við því, að sprenglærðir sérfræðingar og sómakærir valdamenn telji sig ekki þurfa að gefa gaum orðum leikmanns í þessu efni; einnig að þeir andstæðingar „kommún- ista“, sem standa fyrir Tjamar- hugmyndinni, þykist of reyndir í faginu til að ljá eym aðfinnslum „úr þeirri átt“. En því er til að svara, að ég fæ hvorki séð að mál þetta þurfi að vera flokkspólitískt né sé það í eðli sínu, enda sný ég orðum mínum alveg eins til þeirra sósíalista sem annarra, er veitt hafa samþykki sitt ofan- greindri ráðstöfun. Ég vil þá fyrst biðja hina hug- sjónaríku Tjarnarráðhúsmenn að reyna að skyggnast andartak fram í tímann, staldra við stutta stund undir suðurvegg Alþingis- ELÍASMAR, RITHÖFUNDUR, SKRIFAR hússins og ímynda sér, að búið sé að reisa húsbákn það sunnanvert við Vonarstræti, sem ráðgert er með samþykki þeirra. Geram ráð fyrir, að þetta sé á sólbjörtum sumardegi og borgin og umhverfi hennar í sínu fegursta skrúði. Hvað blasir þá við augum okkar, sem stöndum þama innan um leifamar af þinghúsgarðinum? Jú, margt hefur breytzt frá því sem áður var - og sumt til batnað- ar, mikil ósköp. Búið er að rífa öll hús fyrir sunnan Alþingishúsið og Dómkirkjuna; gamla Gúttó er horfið, sömuleiðis Iðnó og aðrir nálægir timburhjallar. Svæðið milli Oddfellowhússins og Lækj- argötu er óbyggt (Er þó ekki sem okkur sýnist Iðnaðarbankinn gnæfa þarna?); nokkuð af því er slétt og hellulagt torg, en sum- staðar grasreitir og blómabeð, auk áðurnefndra leifa af þinghús- garðinum. Mestan hlutann hafa menn þó neyðst til að taka undir bflastæði. Allt er þetta kannski gott og blessað svo langt sem það nær. Gömlu byggingarnar máttu svo sem hverfa, og einhverstaðar verður að hafa bflana. En hvað er það sem blasir við framundan okkur og veldur því, að þrátt fyrir sumarblíðuna og sólskinið er engu líkara en við stöndum hér í forsælu? - ÞaS er steinbáknið sunnan við Vonarstræti, þetta blessaða ráðhús, prýðilegasta bygging út af fyrir sig (vonandi), en af skammsýni og næsta furðu- legri fijótfærni sett á stað, þar sem aldrei hefði átt að reisa hús. - Sólin blindar augu okkar, þegar við viljum athuga það nánar, því enda þótt skuggamir af bygging- unni nái næstum alveg þangað sem við stöndum, er birtan það mikil ofanvert við húsið og á bakvið það, að húsið sjálft, for- hjið þess og línur („með öndvegis- súlur í svipnum" samkv. tillögu borgarstjórans), hverfur í sinn eigin skugga, því það snýr undan sólu - gegnt norðri. Torgið fram- anvið, þar sem áður var Vonar- stræti, garðar og fáein hús, er einnig í forsælu; sömuleiðis leifarnar af Alþingishúss- garðinum. En óhagganlegt stendur ráðhúsbáknið úr því sem komið er; og tjóar ekki lengur að deila um það, hvorki útlit þess og innréttingu né hvemig það sé í sveit sett, því þarna er það niður komið og mun standa þar bjarg- fast um aldur og ævi. En okkur langar til að virða húsið betur fýrir okkur (það hafði nefnilega verið svo anzi fallegt frá Tjörninni séð), og göngum því norðurfyrir þinghúsið og nyrzt út á Austurvöll til að athuga „próffl“ þess þaðan. Og hvað sjáum við? - Að þrátt fyrir ýms mistök og fljótfæmi hafa ráða- menn bæjarins haft vit á að varð- veita (alltént ennþá) fommenjar eins og Dómkirkjuna og Alþing- ishúsið, og við reynum að gera okkur ánægða með það. - En hvernig njóta þau sín nú, þessi gömlu lágreistu hús í skugga ráð- hússins, - og hvemig nýtur sjálft ráðhúsið sín að baki þeim? Kann- ski vefst okkur tunga um tönn. En svo mikið er víst, að í hjarta okkar sannfærumst við um það, þótt seint sé, að húsbákn sem þetta hefði aldrei átt að reisa norðanvert við Tjörnina, hvorki ráðhús né annarskonar hús. Sunnudagur 29. mars 1987 ÞJÓÐVILJtNN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.