Þjóðviljinn - 29.03.1987, Side 16

Þjóðviljinn - 29.03.1987, Side 16
Úr Konungsbréfi frá árinu 1738: „Það myndi hneyksla menn allmikið ef að Vér tækjum til greina í hvert skipti...bænaskjöl þau er nú um tíma hafa tíðar en áður komið til Vor frá stúdentum og jafnvel prestum, um að eigi verði á þeim tekiö, þótt konur þeirra hafi orðið lóttari of snemma eftir brúðkaupið.." „Ef hrútr kemr til sauða eða hafr til geita ok gerir spell á, bæti skaða allan, ef hann er heimtr áðr....“. Svo segir í rétt- arbót Eiríks konungs sem giidi tók annan dagjúlímánaðar það herrans ár 1294. Enda þó ekki sé fullljóst af lagatextanum hvort það er hrút- urinn eða einhver annar sem á að bæta skaðann þá hafa þessi lög verið í gildi á Islandi í tæpar sjö aldir. í*au eiga þó ekki aldurs- metið í lagasafninu íslenska. Elstu gildandi lög hérlendis eru kristinréttur Árna biskups Þor- lákssonar frá árinu 1275, af hon- um eru að vísu aðeins eftir tvær greinar. Þær skylda landeigendur til „at láta gera ícirkju á bæ sínum, hverr sem fyrr lét gera“ og endur- gjöra kirkju sem „brenn upp eða annars kosta spillist svá at niðr fellr öll eða meiri hlutr.“ Um virðing á hrossi í lagasafninu íslenska er margt fróðlegt að finna, það er hreint ótrúlegt hvað enn er í gildi af gömlum lögum. Langir bálkar úr Jónsbók frá 1281 eru í fullu gildi enn þó af þeim hafi verið skorið hér og þar. Sem dæmi má nefna lög sem skýra hvernig bregðast skal við „ef hey rekr á annars jörðu,“ eða „ef löggarðr er brot- inn.“ Þá eru einnig í gildi lög „um óðs manns víg ok hversu með hann skal fara,“ „um virðing á hrossi ok meðferð,“ „hvat má veiða á annars manns jörðu,“ og „um skips lán eða hross“ svo að- eins örfá dæmi séu tekin. Fjölmörg konungsbréf eru skráð í íslenska lagasafnið, þar á meðal eitt sem fjallar um aldur presta frá árinu 1621. Þar segir konungur: „..Viljum Vér hér með allranáðarsamlegast banna léns- mönnum Vorum, biskupum og hverjum öðrum, að dirfast þess hér eftir, að veita eða krefjast þess að nokkrum manni sé veitt prestakall, sem eigi hefur náð 25 ára aldri, nema því aðeins að eigi sé völ á öðrum dugandi mönnum, er fullum aldri hafa náð, því ef svo er, munum Vér náðarsam- legast veita undanþágu til þess.“ Prestar í frillulifnaði Flest konungsbréfanna lúta að kirkjunnar málefnum og mönnum. ítarlega er til dæmis til- greint í hinum fornu lögum, sem nota bene enn eru í gildi, hvað prestar mega og hvað ekki, enda ættu þeir að vera safnaðarbörn- unum til fyrirmyndar í hegðun allri. í Konungsbréfi frá 1646 um legorð presta er til að mynda náð- arsamlegast boðið og skipað al- varlega, „að allir prestar, er ger- ast þannig sekir um hórdóm eða frillulifnað...skuli hafa þegar að undangengnum dómi settir af og hafa fyrirgert kalli sínu, og fá eigi annað embætti fyrr en þeir hafa fengið þar til allranáðarsamlegast leyfi Vort.“ Já, það er vandlifað fyrir prest- ana, en þetta er ekki allt. í Dönsku lögunum hans Kristjáns 5., frá árinu 1683, nánar tiltekið 2.bók 11. kapítula, 13.grein segir svo: „Hver sá prestur, er gengur að eiga konu, er annar maður hefur legið, eða hefur samrekkt konu sinni áður en þau voru gefin sam- an, skal, að undangenginni lög- legri málsókn, hafa fyrirgert embætti." Og hana nú! Það myndl hneyksla... Samkvæmt konungsbréfi frá árinu 1738 er það ekki að ástæðu- lausu að konungur setur ofan- greint í lög. Þar segir nefnilega: „Það myndi vafalaust hneyksla menn allmikið, ef Vér allramildi- legast tækjum til greina í hvert skipti og án nokkurs geinarmun- ar allra þegnsamlegust bænaskjöl þau, er nú um tíma hafa tíðar en áður komið til Vor frá stúdentum og jafnvel stundum prestum, um að eigi verði á því tekið, þótt kon- ur þeirra hafi orðið léttari of snemma eftir brúðkaupið, og veittum þeim allramildilegast uppreisn Vora..“ Og svo oft hafa slík bænaskjöl borist að kóngi þykir bersýnilega nóg um lauslætið og tekur af skarið: „Fyrir því gefum Vér hér með til vitundar, að til þess að stemma stigu fyrir slíku hneyksli framvegis, höfum Vér ákveðið að eftirleiðis skuli farið svo sem nú skal sagt með slík bænaskjöl, hvort sem þau koma frá prestum eða stúdentum.“ Og svo segir kóngur afdráttar- laust: „1) Um presta þá, er verða brotlegir gegn guðs lögum og 2.bók 11.kap.,13.gr. Vorra allramildilegustu Laga, fer beinlínis eftir því sem ákveðið er í Lögunum." Liðir 2 og 3 greina síðan frá því hvernig fara skal með stúdenta sem sækjast eftir prestsembættum og hvenær skal veita þeim uppreist. Það skal fara eftir hegðan næstu tvö árin, en „einkum hverjum alvarlegar til-'1 raunir hann hafi gert til að bæta ráð sitt..“ Forordning um confirmation Árið 1736 var gefin út „For- ordning áhrærandi uppvaxandi ungdómsins confirmation og staðfesting í hans skírnarnáð" og er úrdráttur úr henni látinn hér fljóta með þó ekki væri nema til annars en að gefa lesendum sýn- ishom af því hvemig íslenskt lagamálfar var fyrir 250 ámm. (Punktasetningin var greinilega aukaatriði.): „Þegar líður að þeirri ársins tíð, sem confirmati- onin og staðfestingin uppá skím- arnáðina skal haldast, skulu for- eldramir láta kennimanninn vita í tíma, að þeir eiga börn, sem ætl- uð em til að confirmerast, hver hann láti koma til sín, heim í sitt hús, að hann vita fái, hvemig þau grundvölluð em í sínum kristin- dómi,yfirheyriþau og uppfræði; en hvað mörgum vikum fýrir con- firmationina þvílíkt skuli gerast, er hvers eins kennimanns góðri og gegnilegri skynsemi tiltrúað að athuga, svo og að hann hegði sér eftir þeim kringumstæðum, sem viðkoma hans söfnuði, og eftir því sem þeirra nauðþurft út- krefur, að minnsta kosti skal því- líkt ske hálfu missiri áður og tvisvar í hveri viku..“ og svona áfram í það óendanlega. 1 /3 fyrir uppljóstrun Ekki er hægt að skiljast við lög um kirkjunnar menn og málefni án þess að geta hins merka bréfs kansellíisins um tilhögun á Það á að svipta presta embœtti ef konur þeirra verða léttari ofsnemma eftir brúðkaupið. Kirkjudyreiga að opnastút. Kaupmenn eiga að selja salteftirvigt. Hérareru friðaðirá íslandi kirkjuhurðum frá árinu 1828 en það hljóðar svo: „Hinn 7.þ.m. hefir Hans Há- tign allramildilegast þóknast að úrskurða, að þegar kirkjur eru byggðar að nýju, þá skuli öllum hurðum þannig hagað, að þeim verði lokið upp að innan og gangi út.“ Margt fleira skondið og skemmtilegt er skráð sem gild- andi lög í lagasafninu og sumt ekki mjög gamalt. Þar á meðal má nefna lög sem sett voru skömmu eftir síðustu aldamót um að salt skuli selt eftir vigt af öllum þeim kaupmönnum og verslunar-umboðsmönnum sem reka verslun, hvort sem er á sjó eða landi. Svo ströng eru þessi lög að nákvæmlega er tiltekin ref- singin við því að brjóta þau: „Brjóti nokkur gegn fyrstu grein, skal hann sæta 100-500 króna sektum, er renna að 2/3 í lands- sjóð og að 1/3 til uppljóstrunar- manns.“ Það ætti ekki að verða erfitt fyrir útsjónarsama og löghlýðna borgara að bæta kjör sín svo um munar með því að kanna hve margar verslanir hafa brotið þessi lög, því sé sektarupphæðin fram- reiknuð til dagsins í dag þá ætti þar að fást dálagleg féfúlga fyrir uppljóstranir! Friðun héra Öllu erfiðara er að gera sér lög númer 23 frá 1914 að féþúfu enda þótt þar sé svipað ákvæði um þóknun til uppljóstrunarmanna. Þau kveða nefnilega á um að Stjómarráð íslands geti ákveðið að hérar (já, hérar) skuli friðaðir vera, nokkum hluta árs eða allt árið. Brot gegn þessum lögum kostar þann sem uppvís er að drepa þetta dýr eða veiða heilar 20 krónur per stykki og rennur helmingur sektar í sjóð þeirrar sveitar sem brotið var framið, en helmingur til uppljóstmnar- manns... Og hér með látum við þessarri samantekt um gömul og gildandi íslensk lög vera lokið. Texti Vilborg Davíðsdóttir. Atvinna Laus er til umsóknar staöa hafnarvarðar við Ól- afsfjarðarhöfn. Um er að ræða framtíðarstarf og starfsaðstaða er mjög góð. Æskilegt er að umsækjandi hafi skipstjóraréttindi eða starfsreynslu í sjómennsku. Nánari upplýsingar gefa form. hafnarnefndar Óskar Þór Sigurbjörnsson í s. 62134 og bæjar- stjóri í s. 62214. Frestur til að skila inn umsóknum á bæjarskrif- stofuna í Ólafsfirði rennur út 31.03. 1987. Ólafsfirði, 10.03. 1987 ^------------------------------------- Atvinna Laus ertil umsóknar staða bæjarritara hjá Ólafs- fjarðarkaupstað. Nánari upplýsingar gefa form. bæjarráðs Óskar Þór Sigurbjörnsson í s. 62134 og bæjarstjóri í s. 62214. Frestur til að skila inn umsóknum á bæjarskrif- stofuna í Ólafsfirði rennur út 15.04. 1987. Ólafsfirði 19.03. 1987. ^JRARIK RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja útvirki aðveitustöðvar í Grundarfirði. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf- magnsveitna ríkisins við Hamraenda 2, Stykkis- hólmi og Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 31. mars 1987 gegn kr. 5.000 í skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins við Hamraenda í Stykkishólmi fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn 15. apríl 1987, og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu RARIK 87001 aðveitustöð í Grundarfirði. Reykjavík 27. mars 1987 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS 16 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.