Þjóðviljinn - 29.03.1987, Síða 20
Leikur allrar fjölskyldunnar.
Rólegan œsing
Nú á tímum Lottós og tölvu-
leikja mætti ætla að leikir
einsog Lúdó séu á hverfanda
hveli. En Rólegan æsing,
einsog ieikurinn heitir í heima-
landi sínu, Þýskalandi.tekur
þessu rólega. Leikurinn á um
þessar mundir 75 ára afmæli
og verður sjálfsagt lifandi
ennþá þegar flestir tölvuleikir
nútímans eru gleymdir og
grafnir.
Um 55 milljón Lúdó hafa veriö
seld um allan heim síðan 1912
þegar leikurinn kom fyrst á mark-
aðinn. í dag seljast um milljón
leikir árlega og helmingur þeirra
til útflutnings. í Þýskalandi sjálfu
er Lúdó til á þremur af hverjum
fjórum heimilum.
Það var Josef Friedrich
Schmidt sem bjó leikinn til. Það
var árið 1905 að fyrsta Lúdóið sá
dagsins ljós. Þremur árum seinna
voru allir ættingjar, vinir og ná-
grannar Josefs famir að spila
Lúdó. Árið 1912 fékk leikurinn
svo nafnið Rólegan æsing og Jos-
ef opnaði verksmiðju í Munchen
og hóf fjöldaframleiðslu á
leiknum. Salan gekk þó ekki vel
til að byrja með og árið 1914,
þegar fyrri heimsstyrjöldin skall
á, var verksmiðjan á barmi
gjaldþrots. Þá voru fleiri þúsund
leikir á lager í verksmiðjunni.
Skerandi
tónlist
Sjúklingar eru ekki alltaf
svæfðir við skurðaðgerðir og
þurfa þá að hlusta á spjall lækn-
anna sem eru að krukka í þá.
Slíkt er ekki það uppbyggilegasta
sem hægt er að hugsa sér fyrir
sjúkling sem veit oftast minna en
ekkert um hvað verið er að gera.
„Réttu mér saxið. Er ekki hak-
inn nálægur,“ og þar fram eftir
götunum.
Þjóðverjar hafa gert sér grein
fyrir þessu og bjóða nú sjúk-
lingum að hlusta á kasettur í
heyrnartólum á meðan þeir eru
skomir upp. Geta þeir annað-
hvort komið með eigin tónlist
með sér eða valið úr safni sjúkra-
hússins.
Þá greip Josef til sinna ráða og
gaf Rauða krossinum 3000 leiki,
með þeim tilmælum að leiknum
yrði dreift til særðra á sjúkrahús-
um. Til er bréf sem hjúkmnar-
kona sendi Josef: „Þú getur ekki
ímyndað þér hvflíka ánægju spil-
ið hefur veitt þeim særðu. Þeir
hafa meðal annars efnt til móts í
leiknum.
Stærsti kosturinn við leikinn er
sá að allir standa jafnfætis í hon-
um, jafnt ungir sem aldnir, allir
eiga sömu möguleika á að vinna.
Leikurinn varð því leikur fjöl-
skyldunnar. Gjöf Josefs varð til
þess að orðstír leiksins barst víða
og jókst sala hans mjög eftir að
styrjöldinni lauk. Árið 1920flutti
Josef í stærra húsnæði með verk-
smiðjuna. Sú verksmiðja var
eyðilögð í loftárásum banda-
manna á Þýskaland 1945.
Einn sona Josefs, Frans, hóf
sjálfur framleiðslu á svipuðum
leikjum og lenti í beinni sam-
keppni við föður sinn. Salan
dróst mjög saman hjá báðum árið
1948. Sama ár lést Josef en ekkja
hans, dóttir og tengdasonur tóku
við fyrirtækinu. Árið 1970 sam-
einuðust bæði fyrirtæki fjölskyld-
unnar.
Samkvæmt Metabók Guinness
stóð einn Lúdó-leikur yfir í 119
klukkutíma og 58 mínútur. Það
var árið 1983. Árið 1985 léku
fjórir menn Lúdó í 24 tíma og 12
mínútur í áltanki 3,5metra undir
yfirborði vatns.
-Sáf
Byggt á The German Tribune
Opiðhús
í KOSNINGAMIÐSTQÐINNI
í dag sunnudag kl. 16.00-18.00
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
alþingismaður tekur á móti gestum og
situr fyrir svörum um atburði líðandi
stundar í þjóðmálum í Kosningamiðstöð-
inni Hverfisgötu 105,4. hæð.
Jóhanna Linnet söngkona og öm
Magnússon píanóleikari flytja nokkur góð
lög.
Bamahomið öllunr opið.
Kaffi og meðlæti.
Húsið opnað kl. 14.00.
ALLIR VELK0MNIR
í Reykjavík
Alþýðiibandalagið
Reykjavík
G-LISTINN REYKJANESI
HÁDEGtSFUNDUR
UM KOSNINGABARÁTTUNA
Á REYKJANESI
á aðalkosningaskrifstofu G-listans
að Hamraborg 11, Kópavogi
í dag, laugardag, frá kl. 12-14.
Frambjóðendur mæta. Heitt á könnunni.
Hádegisfundir verða á sama tíma, sama stað alla laugardaga fram að kosningum.
ALLIR VELKOMNIR! G-LISTINN REYKJANESI