Þjóðviljinn - 28.04.1987, Síða 13

Þjóðviljinn - 28.04.1987, Síða 13
wmm ÖRFRÉTTIR m Fjögur hundruð skæruliðar Tamíla kváðu hafa fallið á umliðnum fimm dögum í mikilli sókn stjórnarhersins á hendur þeim. Er bæði beitt stór- skotaliði og orustuþotum af hálfu stjórnarhersins í átökunum sem segir árásina hefnd fyrir hryðju- verk Tamíla á óbreyttum borgur- um undanfarið. Indlandsstjórn ætlar að taka stefnu sína í kjarn- orkumálum til endurskoðunar. Fram að þessu hefur það verið yfirlýst markmið hennar að brúka kjarnorku eingöngu til friðsam- legra hluta en „í Ijósi kjarnorku- ógnunarinnar frá Pakistan" verði nú að söðla um. Klámsýning á vegum frönsku stjórnarinnar var opnuð í gær. Þar ber fyrir augu mikið úrval tímarita og ber- söglisljósmynda sem franska stjórnin telur að spilli landslýð um skör fram. Jack Lang, fyrrum menningarmálaráðherra, bauðst til að láta ekki sitt eftir liggja og sendi nektarmynd eftir Píkassó en hún fékk ekki náð fyrir augum sýningarstjórnar. Friðarverðlaunahafi Nóbels, Elie Wiesel, sem lifði af vist í útrýmingarbúðum nasista barn að aldri, hyggst vera við- staddur réttarhöldin í máli stríðsglæpamannsins Klaus Bar- bie. Hann lét ennfremur uppi að þeir Francois Mitterrand, forseti Frakklands, ynnu nú saman að ritun bókar um ýms siðferðileg efni, svo sem dauðann, trúna og vináttuna. Stræti Rómaborgar eru heimili tvöþúsund umrenn- inga á ýmsum aldri þó yngra fólk sé í meirihluta að sögn félagsráð- gjafa í borginni. Einkum eru það atvinnuleysingjar, eiturlyfjasjúk- lingar og ofdrykkjufólk sem á hvergi höfði sínu að halla. Pólverjar og Rúmenar hafa selt Contralið- um, sem herja á Nicaragua, um- talsvert magn hergagna að sögn sænsks starfsmanns Alþjóðlegu friðarstofnunarinnar í Stokk- hólmi. Segir hann Bandaríkja- menn hafa greitt fyrir vopnin og sé þetta dæmi um hvernig gróð- asjónarmið beri pólitísk viðhorf ofurliði. Kurt Waldheim er óheimilt að stíga fæti á banda- ríska grundu sem prívatpersóna. Það var bandaríska dómsmála- ráðuneytið sem kvað uppúr um þetta f gær og sagði heimilda- maður aö fyrir þessari ákvörðun væru fullgild rök því hann hefði gert sig sekan um óhæfuverk f síðari heimsstyrjöld. Hinsvegar nyti hann úrlendisréttar og dip- lómatfskrar friðheigi sem forseti Austurríkis en harla ólfklegt væri að honum bærist opinbert heimboð frá kollega sínum ve- stra. Ketilsmiður í Ástralfu komst í hann krappan á dögunum þegar krókódfll skreið uppá ströndina þar sem hann lá við vinnu sfna, læsti skoltinum um herðar hans og dró hann útí sjó. Ketill sá sína sæng út breidda en hugkvæmdist þó að kýla kauða beint á snoppuna og, viti menn, það hreif! Kjafturinn opnaðist og smiðurinn svam á vit lífsins. Gorbatsjof Sovétbóndi nýtur meira trausts vesturþýskra kjósenda en starfsbróðir hans vestan Atlants- ála ef marka má viðhorfskönnun sem unnin var fyrir vikuritið „Der Spiegel". Þrjátíu og sjö af hundr- aði telja Gobba heiðarlegri og heilli til orðs og æðis en fimmtán prósent nefndu Reagan í því sambandi. ERLENDAR FRÉTTIR Þjóðarráð Palestínu Eining í röðum PLO Sýrlandsvinir ganga á ný til liðs við Arafatsem endurkjörinn var leiðtogi Frelsisamtaka Palestínumanna. Óvíst um viðbrögð Sýrlendinga en sárgramir Egyptar loka skrifstofum PLO í landi sínu Um helgina lauk þingi Þjóðar- ráðs Palestínumanna sem haldið var í Alsír. Þjóðarráðið er framkvæmdanefnd Frelsissam- taka Palestínumanna og fer með æðstu völd í samtökunum á milli þinga. Sem kunnugt er tókst nú að fá fulltrúa fjögurra klofningshópa palestínskra Sýrlandsvina, undir forystu Georgs Habash, til að sækja þingið en á undanförnum árum hafa þeir látið hjá líða að sækja þær samkundur vegna and- stöðu sinnar við forystu Jassírs Arafats og þá viðleitni hans að reyna til þrautar að ná samkomu- lagi um málefni Palestínumanna með fulltingi Egypta og Jórdana. Niðurstaða þingsins hlýtur að vera sigur fyrir Arafat því liðs- menn Habash ákváðu að ganga að nýju í raðir samtakanna og féllust á áframhaldandi forystu Arafats. Á móti kom að Arafat lýsti því yfir að hann hefði gefist upp á að reyna að vinna með Jór- daníumönnum að lausn vanda Palestínumanna og hefði í hyggju að stórauka hernaðarumsvif sam- takanna á svæðum sem ísraels- menn hefðu tekið herskildi. Að öðru leyti virðist Arafat hafa nokkurt olnbogarými til að ráðskast með ýmis mál og ber þar hæst hugsanlega ráðstefnu um frið í löndum fyrir botni Mið- jarðarhafs. Þingið féllst á að halda ekki til streitu kröfu um að fulltrúar samtakanna sætu stefn- una þótt þau hefðu hönd í bagga með tillöguflutningi sameigin- legrar sendisveitar arabaland- anna. Á þinginu var veist all harka- lega að Egyptum, að kröfu Ha- bash og félaga, vegna málamiðl- ana þeirra í skiptum við ísrael og varð það til þess að sendifulltrúar þeirra fóru heim í fússi. í gær kom í ljós að þeim var enn ekki runnin reiðin því þá var öllum skrifstof- um PLO í Egyptalandi lokað. Hver verði viðbrögð Sýrlands- stjórnar er enn á huldu en víða í arabalöndunum hefur því verið fagnað að öndverðar fylkingar' innan PLO skuli hafa slíðrað sverðin og tekið höndum saman að nýju. -ks. Jassfr Arafat er á ný óumdeildur leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna. Finnland Hægrimenn og kratar í stjóm Holkeri myndar stjórn fjögurra flokka Mauno Koivisto Finnlandsfor- seti fól á laugardaginn Harri Holkeri, seðlabankastjóra úr Sameiningarflokknum, að mynda í Helsinki stjórn ásamt jafnaðarmönnum, Sænska þjóð- arflokknum og Landsbyggðarf- lokknum. Talið er víst að Holkeri takist ætlunarverkið og eru þá hægrimenn úr Sameiningarflokki f flnnskum ráðherrastólum í fyrsta sinn í rúma tvo áratugi. Stjórn Holkeris er hin fyrsta sinnar tegundar í Finnlandi, þar- sem flestar ríkisstjórnir hafa jafn- an byggst á samvinnu Miðflokks- ins, hins gamla flokks Kekkonen forseta, til vinstri eða hægri. Holkeri hefur haft forsetaum- boð til stjórnarmyndunarvið- ræðna í rúman hálfan mánuð, og verður sjálfur forsætisráðherra stjórnarinnar. Formaður Sam- einingarflokksins, Ilkka Suomin- en, er hinsvegar forseti þingsins. Jafnaðarmenn og hægrimenn hafa saman hreinan þingmeiri- hluta, 109 menn af 200, en ætla engu að síður að taka með sér í stjórnina Sænska þjóðarflokk- inn, sem hefur átt aðild að mörg- um finnskum ríkisstjórnum, og Landsbyggðarflokkinn. Er gert ráð fyrir að Sameiningarflokkur- inn fái sjö ráðherra, jafnaðar- menn átta, Sænski þjóðarflokk- urinn tvo og Landsbyggðarmenn einn. Stjórn Holkeris tekur við af samsteypustjórn jafnaðarmanns- ins Kalevi Sorsa, sem innihélt auk flokks hans Miðflokkinn, Sænska þjóðarflokkinn og Landsbyggðarmenn. -m Mið-Ameríka Nicaragua ógnað Bandaríkjamenn efna til mikilla herœfinga í Hondúr- as. Er innrás í Nicaragua á nœsta leiti? Leiðtogar Sandinista f Nicarag- ua hafa nú af þvf miklar áhyggjur að Bandaríkjamenn hyggist ráðast inn f landið vegna mjög umsvifamikilla heræflnga þeirra á næstunni f nágrannarík- inu Hondúras. Um fimmtíu þúsund hermenn munu taka þátt í stríðsleiknum sem kallaður er „Skjöldurinn trausti“. Æfðir verða liðsflutn- ingar á lofti, láði og legi, bardag- ar af öllum tegundum og gerðum auk loftárása orustuflugvéla og sprengjuþyrla. „Aldrei fyrr hefur verið jafn opinskátt verið haft í hótunum við okkur, allar æfingarnar eru sniðnar sem um innrás í Nicarag- ua væri að ræða,“ sagði Daniel Ortega forseti landsins í fyrra- dag. Ráðamenn í Nicaragua höfðu á orði að augljóst væri að Banda- ríkjamenn væru farnir að átta sig á því að útilokað væri að Contra- liðarnir þeirra bæru hærra hlut frá viðureignum við stjórnarher- inn og því myndu þeir á næstunni reyna að semja einhverja átyllu til að hafa að yfirskini innrásar. Bandarísk hernaðaryfirvöld hafa sjálf bent á líklega tylliá- stæðu en hún er einnig notuð til að réttlæta stríðsleikinn. Sumsé að Nicaraguaher ráðist inn í Hondúras og Sámur frændi komi litla bróður til bjargar. Auðvelt gæti náttúrlega verið að túlka átök Sandinista og Contraliða á landamærum ríkjanna sem „innrás" því þeir síðamefndu hafa helstu bækistöðvar sínar í Hondúras. En hvað sem heræfingunum líður eru margir þeirrar skoðunar að Reagan forseti þori ekki að gefa fyrirskipun um innrás í Nic- aragua. Stefna hans í málefnum Mið-Ameríku hafi beðið hnekki í augum landa hans er upp komst um Íran/Contrahneykslið. Til marks um það er til að mynda sá mikli fjöldi Bandaríkjamanna sem efndi til mótmæla í Washing- ton á laugardag gegn stefnu hans í málefnum Mið-Ameríku. Áætl- að er að þar hafi komið saman um sjötíu og fimm þúsund manns. -ks. LANDSVIRKJUN Landsvirkjun auglýsirtil sölu og brottflutnings tvo olíugeyma við Elliðaár. Þvermál Hæð Plötuþykktir Eigin þungi Rúmmál hvors um sig Smíðaár 14,63 m 11,25 m 4,7-6,6 mm Um 40 tonn hvor 1.892 m3 1946 Kaupandi skal fjarlægja geymana á sinn kostnað og skila tímaáætlun um verkið með tilboði sínu. Nánari upplysingar veitir innkaupastjóri Lands- virkjunar. Tilboðum skal skilatil Landsvirkjunar, Háaleitisb- raut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 14:00, 8. maí 1987. Vegna jarðarfarar Guðmundar Magnussonar verkfræðings verða skrifstofur Alþýðubandalagsins lokað- ar eftir hádegi í dag. Alþýðubandalagið Aðalheimild: REUTER ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.