Þjóðviljinn - 28.04.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 28.04.1987, Blaðsíða 15
Alit flokksfoimanna Alþýðuflokkurinn Vil endurmat á samskiptum smáflokkanna Jón Baldvin Hannibals- son: Bœttsamskipti við Alþýðubandalagið for- senda öflugs jafnaðar- mannaflokks „Við jafnaðarmenn þykjumst mega alí vel við una. Alþýðufl- okkurinn var sá eini hinna hefð- bundnu fjögurra flokka sem bætti hlut sinn verulega. Við horfum björtum augum til framtíðarinn- ar,„ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson formaður Alþýðuflok- ksins m.a. um kosningaúrslitin. „Þessar kosningar eiga að gefa smáflokkum tilefni til þess að endurmeta sín samskipti. Það er yfirlýst markmið okkar að vinna að uppbyggingu öflugs jafnaðar- mannaflokks og það er augljóst að það gerist ekki nema með samstarfi við ýmsa þá sem styðja Alþýðubandalagið og ég vona að okkur takist að halda þannig á málum að samskipti okkar fari batnandi." Aðspurður um hvort það þýddi að Alþýðuflokkurinn myndi vilja fara í stjórnarmynd- unarviðræður með Alþýbanda- laginu sagði Jón Baldvin að það væri vel inní myndinni og hann hefði þegar rætt við formann Al- þýðubandalagsins Svavar Gests- son. Hins vegar væri rétt, £ ljósi kosningaúrslitanna, að kanna fyrst stjórnarmyndun Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Kvenna- lista. K.Ói. S iálfstœðisflokkurinn Mikið áfall Porsteinn Pálsson: Höfðum vœnst að það yrði minna en raun varð á „Við lítum á úrslitin sem býsna mikið áfall fyrir okkur Sjálfstæð- ismenn. Við gerðum okkur auðvitað grein fyrir því að eftir klofning flokksins yrði það eitthvað, en við höfðum hins veg- ar vænst þess að það yrði minna en raun varð á,„ sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðis- flokksins um úrslitin. Aðspurður um hvort í kjölfarið fylgdi afsögn hans sem formaður sagði Þorsteinn að hann myndi ekki segja af sér á meðan hann nyti trausts til þess að vera for- maður Þá sagði Þorsteinn að fram- undan væri erfið stjórnarmyndun og að Sjálfstæðisflokkurinn úti- lokaði enga möguleika í þeim efnum. -K.Ól. Framsóknar flokkurinn Ánægður með úrslitin Steingrímur Hermanns- son: „Égfékk meiri stuðning en ég þorði að vona Ég er eftir atvikum ánægður með úrslitin. Það er vel að staðið að halda sínum hundraðshluta þegar hafðir eru í huga þeir fjöl- mörgu nýju flokkar sem taka at- kvæði frá öllu hinum. Ég er líka sérstaklega ánægður með útkom- una hjá mér, sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra um úrslitin. Aðspurður um hvort Fram- sóknarflokkurinn hafi tekið þátt í þeim stjórnarmyndunarþreiy- fingum sem nú þegar eru farnar af stað sagði Steingrímur að hann hafi lítillega rætt málin við menn, en það hafi ekki verið stjórnar- myndunarviðræður. Fyrst ætli hann að biðjast lausnar og bíða eftir að umboð forseta liggi fyrir. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé rétt að fara hægt í sakirnar í þess- um málum. Það á ekki að mynda stjórn í óðagoti heldur að vinna að góðum málefnasamningi. sagði Steingrímur. Loks sagði hann að úrslit kosninganna væru stuðningur við það að flokkur hans héldi áfram í stjórn og að Framsóknarflokkurinn væri til- búinn til þess að ræða þátttöku í ríkisstjórn. -K.Ól. Samtök um Kvenna- lista Félagshyggju- flokkarnir okkur næstir Kristín Halldórsdóttir: Útilokum samt enga möguleika „Úrslitin eru okkur að sjálf- sögðu mikið gleðiefni og við finn- um vitaskuld til þeirrar ábyrgðar sem þau hafa í för með sér. En ég vil leggja áherslu á það að þessi úrslit eru afskaplega skýr og skil- merkileg skilaboð til þeirra sem ráða og koma til með að ráða, að þeir geti ekki vikið sér lengur undan því að bæta kjör kvenna í þjóðfélaginu og annarra sem minna mega sín,„ sagði Kristín Halldórsdóttir sem var í fyrsta sæti Kvennalistans í Reykjanes- kjördæmi. „Af okkar hálfu var stærsti kosningasigurinn unninn áður en kosningadagurinn rann upp. Hann var fólgin í því að geta rek- ið málefnalega, heiðarlega og einlæga kosningabaráttu. Eg dá- ist sérstaklega af þeim konum sem að báru þessa stefnu fram úti á landi og ekki síst þeim sem komu inn í baráttuna á síðustu stundu. Þrátt fyrir takmarkaðan tíma þá virtust þær hafa átt ákaf- lega létt með að ná til fólksins,“ sagði Kristín. Um hvort leitað hafi verið til Kvennalistans í þeim óformlegu viðræðum sem nú eru hafnar um stjórnarmyndun, sagði Kristín að Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins hefði beðið um viðræður við Kvenna- listakonur og fóru þær fram í gær. „Frá okkar sjónarmiði er ekkert í þessum viðræðum sem hægt er að túlka sem undirbúning að stjórn- armyndunarviðræðum. Þar til umboð frá forseta íslands liggur fyrir erum við ekki virkir þátttak- endur í stjórnarmyndunarvið- ræðum,“ sagði Kristín. Þá sagði Kristín að Kvennalistakonur væru ekki búnar að útiloka neina möguleika hvað stjórnarmynd- unarmöguleika varðaði. „Mér þykir að vísu líklegast að þeir flokkar sem kenna sig við félags- hyggju geti best borið fram okkar mál með okkur. -K.Ól. Borgaraflokkurinn Mikið afrek hjá Þorsteini Albert Guðmundsson: Þarflíka sterka stjórnar- andstöðu eins og sterka stjórn ,,-Ég er afskaplega ánægður með þessa útkomu. Þetta er heldur meira en ég átti von á en ég vissi að hún yrði góð,„ sagði Albert Guðmundsson um úrslit kosning- anna. ,,-Þegar Þorsteinn rak mig úr Sjálfstæðisflokknum varð vakn- ing meðal fólksins sem gerði það kleift að bjóða alls staðar fram. Slíkt gerist ekki nema réttlætis- kennd fólks sé misboðið. Fylgis- tap Sjálfstæðisflokksins er meira en ég átti von á og það er fyrst og fremst framkoma formannsins sem er orsök þessa. Hann er bú- inn að afreka að kljúfa flokkinn, hrista af honum fylgið og fella ríkisstjórnina. Það er ekki lítið afrek. Ég á ekki von á því að byrja stjórnarmyndunarviðræður þrátt fýrir þennan góða árangur. Við munum ekki láta okkar eftir liggja í þeim efnum og það er ekkert lögmál að menn þurfi að hafa flokksskírteini í Sjálfstæðis- flokknum til að komast í ríkis- stjórn. Ég hef ekki hugsað enn um neina óskastjórn og ekki heldur gert upp minn hug til þess hvort við eigum að stefna að stjórnarþátttöku eða ekki. Það þarf líka að vera til sterk stjórnar- andstaða eins og sterk stjórn, sagði Albert Guðmundsson.,, Þriðjudagur 28. apríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd gatnamálastjórans í Reykjavík óskar eftir tilboð- um í steyptar gangstéttir, gerð stíga og ræktun Víðsvegar í Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 5 þúsund kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag- inn 6. maí kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 LAUSAR STÖÐUR HJÁ W REYKJAVIKURBORG Starfsmaður óskast í fullt starf við Áfangastaðinn Amtmannsstíg 5A, sem er heimili fyrir konur sem hafa farið í áfengismeðferð. Félagsráðgjafamenntun eða sambærileg há- skólamenntun áskilin eða reynsla á sviði áfeng- ismeðferðar. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 26945, f.h. virka daga. Umsóknarfrestur er til 18. maí n.k. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. PIÚÐVUJINN 4? 68 13 33 Tíminn 0 68 18 66 0 68 63 00 Blaðbera vantar víðsvegar um borgina Blaðburður er Hafðu samband við okkur Síðumúla 6 þJÓÐVIUINN Áskriftarsími (91)68 13 33 Vinningstölurnar 25. apríl 1987. Heildarvinningsupphæ&: 4.396.408.- 1. vinningur var kr. 2.200.508,- Aðeins einn þátttakandi var með fimm réttar tölur. 2. vinningur var kr. 658.952,- og skiptist hann á 164 vinnings- hafa, kr. 4.018,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.536.948,- og skiptist á 6099 vinningshafa, sem fá 252 krónur hver.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.