Þjóðviljinn - 26.05.1987, Síða 4

Þjóðviljinn - 26.05.1987, Síða 4
LEIÐARI Grípum þjófinn! Frelsi er vandmeðfarið hugtak og tekur í ým- issa munni á sig furðulegar myndir, einkum í samtengingum við verslun og viðskipti. Hið for- takslausa jákvæði sem í orðinu felst gerir að verkum að stjórnmálaöfl, hagsmunasamtök og þrýstihópar keppast við að rita það sem gullnustu letri á gunnfána sína. Verður stundum úr afar sérkennilegur grautur, einsog þegar krafist er frelsis handa kjúklingum og knúið á um frjálsar kartöflur. Frjáls álagning hefur lengi verið skýlaus krafa kaupmanna, og nú hefur um nokkurt skeið verið gerð sú tilraun að opinberir aðilar skipta sér ekki af vöruverði í von um að hin fræga markaðshönd muni standa frammúr sinni ósýnilegu ermi. Björgvinjarskýrsla Verðlagsráðs sýnir svo ekki verður um villst að heildsalar hafa fallið á prófinu. Þar kemur til dæmis í Ijós að frjáls hrær- ivél er um þriðjungi dýrari í Reykjavík en í Björg- vin, frjálst litasjónvarp kostar 91 prósenti meira hér en handan hafs, frjáls Ijósmyndavél er tæp- lega helmingi dýrari hér en þar, og frjáls filma í frjálsu myndavélina kostar Reykvíking um 60 prósent meira en Björgvinjarmann. Og miðað við hinn regnhrjáða Norðmann er rúmlega tvö- falt dýrara fyrir frjálsan íslending að sneiða af sér sitt frjálsa skegg með frjálsri rakvél. Inní þessum tölum er að vísu meiri flutnings- kostnaður hingað en til Bergen, og einnig meiri opinber gjöld hér en í Noregi þarsem beinir skattar eru hærri. En þessir liðir eru léttvægir. Innkaupsverðið er í öllum tilvikum miklu hærra hér, sömuleiðis álagningin, - þessi frjálsa. í fjölmiðlum og manna á milli eru aðrar skýr- ingar nefndar. Talið er víst að íslenskir stór- kaupmenn stundi enn þann sið að þiggja um- boðslaun ytra og leggja þau ofaná innkaupsverðið þannig að allur verðgrunnurinn hækkar um leið. Rætt er um að íslenskir stór- kaupmenn sætti sig við einhverskonar nýlendu- afstöðu gagnvart erlendum umboðsfyrirtækj- um, einkum skandínavískum, og kaupi vörur hærra verði en sæmilegt er. Kannski fá þeir umboðslaunin fyrir það viðvik? Það vekur einnig athygli að hin frjálsa heildverslun virðist sem atvinnugrein afar ófrjó. Féð sem þangað rennur festist í gríðarlegum stórhýsum, og þessi iðja tekur til sín ótrúlega mikinn hluta vinnuafls á landinu. Samkvæmt tölum frá Þjóðhagsstofnun starfar rúmlega tí- undi hver vinnandi karlmaður á höfuðborgar- svæðinu við heildverslun, og ársverk í heildverslun í Reykjavík og nágrenni eru talin um 5-6 þúsund ársverkum meira en í smá- sölu, tvöfalt fleiri ársverken þau sem unnin eru í öllum bönkum og sparisjóðum samanlagt. Þó er rætt um að á mörgum sviðum sé í raun um að ræða samtryggingu um vöruverð milli heildsalanna og nánast einokun á ákveðnum innflutningi, þvert á allar ræðurnar um blessun samkeppninnar og hinnar alfrjálsu verslunar. Það er vert að vekja athygli á því að það háttalag stórkaupmanna sem Björgvinjar- skýrslan hefur sýnt frammá með óyggjandi hætti getur ekki flokkast undir mistök, klaufa- skap eða glappaskot. Gagnvart fólkinu í landinu er auðvitað ekki um neitt annað að ræða en hreinan þjófnað. Því miður er víst ekki hægt að draga hina ábyrgu fyrir formlega dómstóla, en það er hægt að kreppa að þeim með öðru móti. Formaður Neytendasamtakanna hefur til dæmis komið fram með þá hugmynd að setja aftur á hámarksálagningu á þeim sviðum þar- sem okrið er illskeyttast. Og forseti ASÍ hefur lagt til þá opinberu rassskellingu aðalþjófanna að hámarksverð útúr búð á allra frjálsustu vör- unum verði ákveðið það sama í Reykjavík og í Björgvin. Gangi þetta ekki mætti ósköp einfaldlega hugsa sér að reka þessa viðsjárverðu menn úr því starfi sem þeir gegna fyrir þjóðina, og taka að nýju upp beint verslunarsamband við hina fornu viðskiptavini okkar í Hansaborginni nor- sku. Við verðum að grípa þjófinn. r Islenskur heimsmeistari Hannes Hlífar Stefánsson hefur gert garðinn frægan í Austurríki og kom heim nú um helgina nýkrýndur heimsmeistari unglinga í skák. Þjóð- viljinn óskar hinum unga skákmanni til ham- ingju, og þjóðinni til hamingju með hann. Afrek Hannesar Hlífars er auðvitað fyrst og fremst frábær árangur einstaklings, en það beinir einnig athygli að traustu starfi í skák- hreyfingunni, ekki síst að því gagni sem hún vinnur æskulýð um leið og til verða íslenskir skákmenn í fremstu heimsröð. Fréttir berast af því að félagar og forystu- menn í Taflfélagi Reykjavíkur og Skáksam- bandinu hugi nú að byggingu skákhallar, sem orðið gæti vegleg miðstöð þessarar þjóðarí- þróttar. Á sama tíma kemur í Ijós að ágóði af lottói er meiri en nokkurn óraði fyrir. Því ekki að heiðra Hannes Hlífar og aðra unga skákmenn með því að bæta Skáksambandinu í þann hóp félagasamtaka sem lottóið styrkir? -m KLIPPT OG SKORIÐ íslenska í grunn- skólum Blöðin hafa verið að velta því töluvert fyrir sér hvernig á því stendur að meðaleinkunn í sam- ræmdu íslenskuprófi í níunda bekk grunnskóla fór niður í 4,8, en hafði þó skriðið eitthvað yfir fimm undanfarin tvö ár. Eins og komið hefur fram í fréttum hafa m.a. ýmsir íslensku- kennarar kvartað yfir því að prófíð hafi verið of þungt. Sá sem ekki hefur fylgst með nemendum í grunnskóla sjálfur um nokkra hríð og þá enn síður prófum undanfarinna ára veit að sjálf- sögðu fátt um það, hvað hann á að gera við slíka staðhæfingu. Fyrir nú utan það, að seint verður úr því leyst hvað það er sem próf einkum mæla - kunnáttu eða vissa þjálfun í því að taka próf kannski? Kennarar ávíttir En hvað um það - einna leiðin- legust hafa viðbrögð Morgun- blaðsins orðið við þessu próf- máli. Þar á bæ er tækifærið nefni- lega notað til þess að gera allt í senn - sá efasemdum um frammi- stöðu kennara, ítreka andúð á þeim tilraunum sem uppi hafa verið hér á landi til endurnýjunar námsefnis og vinnubragða í skólum, og halda eina ferðina enn á lofti þeirri eftirlætiskenn- ingu Morgunblaðsins að best sé kennsla komin í höndum einka- framtaksins. Til dæmis að taka segir í leiðara Morgunblaðsins í þeim spurnar- tón sem þykist vera kurteis en geymir sína illkvittni og vel það : „Oneitanlega vaknar sú spurning hvort slakað hafi verið á kröfum á undanförnum árum eða kennarar misst áhuga á efninu?" Og svo er klykkt út með þessari athuga- semd hér: „Það þarf auðvitað ekki að taka fram, að sé áhugi kennara ekki til staðar vaknar ekki áhugi hjá nemendum.“ Þetta hjal hlýtur að benda til þess að Morgunblaðinu sé ekki runnin reiði í garð kennara fyrir þeirra kjarabaráttu - ykkur hefði verið nær, er þar undan skilið, að keppa að þeim kennaraorðstír sem deyr aldregi, í stað þess að falla í synd verkfallsins eins og aðrir dauðlegir menn. Einkaskólinn enn Morgunblaðið gerði líka tölu- vert úr þeirri frétt, að í Tjarnar- skólanum margrædda hafí nem- endur fengið meðaleinkunn sem var rúmlega einum hærri en út kom þegar litið er á alla skóla landsins. í framhaldi af þessu er svo spurt í leiðara Morgunblaðs- ins: „Getur til dæmis verið að yfir- burðir Tjarnarskóla stafi beinlín- is af því, að hann er rekinn af einstaklingum en ekki ríkinu?“ Satt best að segja er þessi spurning út í hött. Það er í fyrsta lagi rangt að bera saman einn lítinn skóla og svo meðaltal allra hinna - það er vitað að aðrir skólar hafa ekki sömu útkomu, sumir lakari en meðaltalið og aðrir skárri, og því eru áreiðan- lega til skelfilegir „ríkisskólar" sem hafa náð svipuðum árangri og Tjarnarskólinn. í annan stað getur ekki farið hjá því, eins og allt er í pottinn búið, að skóli sem með forskot eins og Tjarnar- skólinn fær skili að einhverju leyti betri árangri á prófum. Hann hefur fé og aðstöðu til að velja úr kennurum og nemendum (og foreldrum - en þeir foreldrar íem eru tilbúnir að borga með börnum sínum í skóla eru að öðru jöfnu líklegri til að fylgjast með heimavinnu þeirra). Auk þess sem skólinn getur leyft sér hag- kvæmari stundaskrá og minni bekki en aðrir skólar. Sjónvarps- kynslóð Miklu skárri var leiðari sem DV skrifaði um prófmál þessi og móðurmálskennslu. Vitanlega var þar lýst áhyggjum af því að rúmur helmingur nemenda í grunnskóla fellur á móðurmáls- prófí. En það er tekinn nokkuð annar póll í hæðina að því er varðar leitun á skýringum: „Ekki getur það verið að kenn- arastéttin skili sínu hlutverki verr en áður þegar á heildina er litið. Skýringin getur heldur ekki verið sú að nemendur séu upp til hópa lakari en gengur og gerist. Ástæðurnar hljóta að vera aðrar og alvarlegri“ Og hvað er þá átt við? Leiðari DV segir sem svo: Sú kynslóð unglinga sem nú gengur undir samræmt próf hefur hlotið sjónvarpsuppeldi. Hún hefur alist upp við gláp á sjón- varp, minni bóklestur og afþrey- ingu sem að flestu er á einn veg. Sjónvarpið matreiðir, áhorfand- inn tekur á móti. Tjáskipti eru einhliða, orðaskipti eru óþörf .... Möguleikarnir til að þroska ís- lenskukunnáttu sína fara þverr- andi, orðaval og orðaforði sömu- leiðis, tilfinningin fyrir íslen- skunni dvínar" ( hér er m.a vísað til þess hve mikið af sjónvarps- efni er á erlendum málum og þá fyrst og síðast ensku). Hvað skal gera? Þeir sem kallaðir hafa verið sjálfskipaðir menningarvitar hafa fengið að heyra það sl. 20-30 ár, að þeir væru á móti frelsinu af því að þeir væru tortryggnir á fagnað- arboðskap sjónvarpsins og svo vanstillingu þeirra sem halda að á því sviði gildi lögmálið því meira þeim mun betra. En því miður er það svo, að þetta leiðinlega „vandamálalið", sem hefur ekki síst átt athvarf hér í Þjóðviljan- um, hefur um alltof margt á réttu að standa. Allt hefur gengið til- tölulega vel fram til þessa í að- lögun íslendinga að veruleik sjónvarps. En þegar notkunin nær vissu stigi og mótar börnin áður en þau muna eftir sér, þá vitum við frá örðum löndum, að það geta orðið mjög skyndilegar breytingar á hæfni nýrrar kyn- slóðar til að tjá sig, lesa, muna, tengja saman. I einu grann- landinu dettur t.d. allur bóka- og blaðalestur hjá börnum niður um meira en helming á örfáum árum. f ríkasta landi heims er sáran kvartað yfir „hinu nýja ólæsi“ sem muni sundra samfélaginu enn frekar en orðið er. Og svo framvegis. í þeim leiðurum um móður- málskennslu sem hér var vitnað til eru settar fram kröfur um aukna íslenskukennslu, betri vinnubrögð í skólum og fleira þesslegt. Réttmætar kröfur sem sjálfsagt er að taka undir - um. leið og menn verða að gera sér grein fyrir að átak kostar sitt í tíma og fé. En þar fýrir utan er rétt að spyrja enn og aftur, hvað menn ætli sér í mótun íslenskrar sjonvarpsstefnu, sem vinni með skólum en ekki gegn þeim. í stað þess að yppa öxlum eins og Morg- unblaðið gerir, segjandi sem svo í sínum leiðara „ekki verður fjöl- miðlunin stöðvuð". þlÓÐyiUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandl: Útgáfufólag Þjóðviijans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Berteisson, össur Skarphéðinsson. Fróttasfjórl: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur RúnarHeiðarsson, Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjömsson, IngunnÁsdísardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁmason, OlafurGíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, StefánÁsgrímsson, Vil- borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handríta- og prófarfcalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: EinarÓlason, SigurðurMarHalldórsson. Utlltsteiknarar: SævarGuðbjömsson, GarðarSigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfstofustjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guörún Guðvaröardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurtjörnsdóttir. Auglýsingar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guðmunda Kristins- dóttír. Símvarsla: Katrín Anna Lund, SigríðurKristjánsdóttir. Húsmóðlr: Soffía Björgúlfsdóttir. Bflstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbrelðslu-og afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson. Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, rltstjórn: Sfðumúla 6, Reyfcjavfk, sfmi 681333. Auglý8ingar: Sfðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviijans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð f lausasölu: 55 kr. Helgarblöð: 60kr. Áskrlftarverö á mánuði: 550 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 26. maí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.