Þjóðviljinn - 26.05.1987, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN
Til sölu
sófi, skrifborð og 2 eldhússtólar.
Komið og skoðið og gerið tilboð.
Upplýsingar í síma 20145.
Kisa
3 ára gömul, blíð og góð læða fæst
gefins. Hún hefur verið gerð ófrjó.
Upplýsingar í síma 20145.
Til leigu
góð 5 herbergja íbúð frá 7. júní til
15. ágúst. Leigist með húsgögnum.
Sanngjörn leiga. Upplýsingar í síma
71880 í kvöld og næstu kvöld.
Atvinna óskast
15 ára stúlka óskar eftir atvinnu í
júní og júlí. Upplýsingar í síma
79649.
Bamavagn
til sölu Emmaljunga barnavagn,
Ijósgrár, aðeins notaður af einu
barni. Verð 10 þús. kr. Upplýsingar í
síma 19331 e. kl. 18.
Barnapössun
Óska eftir stelpu eða strák til að
passa 2 ára strák. Nánari upplýs-
ingar í síma 29545.
íbúð óskast
2ja herb. íbúð óskast til leigu, helst í
vestur-, mið- eða austurbæ, þó er
staðsetning þessi ekki skilyrði.
Fyrirframgreiðsla. Reglusemi,
góðri umgengni og öruggum mán-
aðargreiðslum heitið. Meðmæli ef
óskað er. Upplýsingar í síma
74147.
Wartburg ’80
Til sölu er Wartburg '80 station.
Þarfnast viðgerðar og fæst fyrir lítið.
Upplýsingar í síma 74147.
Barnagarðhús
Okkur vantar gamalt hús fyrir börn
að leika sér í - ódýrt eða gefins -
má vera í stærra lagi. Upplýsingar í
síma 77393.
Sumarbústaður
Sumarbústaður í Kjós til sölu. Gott
verð. Upplýsingar í síma 43473 eða
42215.
Síamskettlingur
Til sölu er síamskettlingur (læða) af
„Seal point" kyni. Upplýsingar í
síma 13462 eftir kl. 18..
Saab '99 árg. ’71
til sölu. Gangfær en þarfnast við-
gerðar. Verð 9 þús. kr. Upplýsingar
í síma 73803.
Garðplöntur til sölu
Birki 40-80 cm verð 170-300 kr.
ösp 70-100 cm 400-500 kr. Reyni-
viður 80-100 cm 200-300 kr. Fjölær
dagstjarna sem blómstrar rauðu á
25 kr. stk. o.fl. Upplýsingar í síma
681455.
Ertu að skipta um
á gólfinu?
Mig vantar gefins notað gólftepi -
því stærra því betra. Má vera slitið
og óhreint ef það er þétt í botninn.
Einnig þigg ég með þökkum aflögð
leikföng, smá og stór. Hafðu sam-
band í síma 97-3010.
Kafarabúningur
óskast
Óska eftir að kaupa blautbúning.
Hafið samband við Jón Pál í síma
11204 eða 76243.
Nú er tiltektartíminn
í skápum og geymslum
Við þiggjum með þökkum það sem
þið getið ekki notað. Sækjum ef
óskað er. Flóamarkaður Sam-
bands dýraverndunarfélaga Is-
lands Hafnarstræti 17 kjallara.
Opið máudaga, þriðjudaga og mið-
vikudaga kl. 14-18.
Norsk stúlka 21 árs
óskar eftir vinnu á Islandi. Stú-
dentspróf og eins árs reynsla á
barnaheimili. Margt kemur til
greina. Skrifið til Anne Guri Solen,
Gamle Kongevei 2, 7600 Levan-
ger, Norge.
Mótatimbur -
uppistöður
Óska eftir að kaupa mótatimbur ca
1000 m. Einnig uppistöður. Má vera
ónaglhreinsað. Upplýsingar í síma
667098.
Langar ykkur til Oslóar?
Til leigu er ný tveggja herbergja
íbúð með öllum þægindum á 1.
hæð í hjarta borgarinnar á tímabil-
inu 1. júnf-1. september, til lengri
eða skemmri dvalar. Góð verönd,
öll heimilistæki. Verð 1300 Nkr. á
viku. Upplýsingar í síma 23124 í
Reykjavík.
Telpureiðhjól
Vel með farið Winther 24“ telpu-
reiðhjól til sölu. Verð 8 þús. kr. Upp-
lýsingar í síma 25793 eftir kl. 19.
Píanókennsla
Tek að mér pianókennslu yfir
sumarmánuðina. Er búsett í mið-
bænum. Hafið samband við Elínu í
síma 13686.
HælHæ!
Okkur vantar íbúð til leigu helst í
Vesturbænum. Sértu með eina á
lausu láttu þá Önnu vita í síma
19567.
Til sölu
fallegt, plussklætt sófasett 4+2+1
fyrir 5 þús. kr. Einnig vel útlítandi
skenkur úr tekki fyrir 2 þús. kr. Upp-
lýsingar í síma 76229.
Til sölu
3 stk. sumardekk undir Austin mini
(eitt á felgu) til sölu. Einnig til sölu
sportstýri og stuðarahorn. Upplýs-
ingar í síma 54178.
Til sölu
Subaru station '82 grænn að lit. Bíll í
toppstandi. Upplýsingar í síma
54417.
Notaðir ofnar óskast
sem alldra ódýrastir, af stærðunum
100x60 cm 2 stk. og 50x60 cm 1
stk. Upplýsingar í síma 19055 milli
kl. 1 og 5 alla virka daga.
Páfagaukabúr úr áli
óskast keypt. Upplýsingar í síma
74508.
Herbergi til leigu
strax, við Tómasarhaga. Aðgangur
að snyrtingu, eldhúsi og þvottahúsi.
Upplýsingar í síma 622829.
Borðstofuborð óskast
Vil kaupa gott borðstofuborð með
stólum. Borðstofusett kemur til
greina. Upplýsingar í síma 24149
næstu daga.
Óska eftir vinnu,
allt kemur til greina
Á sama stað óskast þvottavél, eld-
húsborð og stólar gefins. Hafið
samband við Helgu í síma 16502.
íbúð óskast
Vantar tveggja herbergja íbúð frá 1.
sept. eða fyrr. Góð umgengni og
skilvísar greiðslur. Upplýsingar í
síma 11528 kl. 18-20 næstu daga.
ísskápur óskast
Mig bráðvantar góðan en ekki dýr-
an ísskáp. Vinsamlegast hringið í
síma 75875.
Tl sölu
Skrifborð til sölu, selst ódýrt. Upp-
lýsingar í síma 21799 e. kl. 20.
Meinatæknar!
Meinatækna vantar til sumarafleysinga á Heilsu-
gæslustööina Egilsstöðum. Góð laun, fríar ferðir
og húsnæði í boði.
Nánari upplýsingar hjá Guðrúnu Tryggvadóttur
meinatækni í síma 97-1400
Auglýsið í Þjóðviljanum
Á samyrkjubúi; fjölskyldur taka að sér vissan rekstur með láns- og leigukjörum.
Hanskar eru ekki til, en þú gætir kannski notað þetta hér? (Skopmynd úr
Krokodil.)
leið og samkeppnin milli „lög-
leyfðra” þjónustumanna mun
lækka verðið á þjónustunni.
Upp á þína
Það gæti svo orðið afdrifarík-
ara fyrir Sovétríkin í heild, hvern-
ig löggjöf og umræða Ieikur
sjálfsprottna samvinnuhreyf-
ingu. Sem fyrr segir hafa margir
góðir menn kvartað yfir því, að
ekki skyldi boðið upp á aðra sam-
vinnuhreyfingu en nauðungar-
samyrkjubú Stalíns. Nú er í vax-
andi mæli tekið upp „ábyrgðar-
kerfi“ sem um margt minnir á
Kína - fj ölsky lda tekur að sér t. d.
landskika og kýr (án þess að eiga
kýrnar), semur við ríkið eða
ríkisbúið um að selja ákveðið
magn af mjólk á föstu verði en
fær svo allt sjálf sem þar er um-
fram. Þá er þessu ábyrgðarformi
og beitt á nokkrum matsölustöð-
um og kaffihúsum. Nokkrir
menn taka sig saman um að reka
slíkt fyrirtæki. Þeir leigja hús-
næði og búnað, borga fyrsta árið
10% veltuskatt - sem síðar mun
fara upp í 35 % - en ráða því svo
sjálfir á hvaða verði þeir selja
sína þjónustu. Hún reynist kann-
ski tvisvar - þrisvar sinnum dýrari
en sú sem viðskiptavinur ætti von
á í ríkisgeiranum - en hann hefur
þá það frelsi að kaupa betri mat
og þjónustu ef hann telur aurum
sínum skemmtilegar varið með
þeim hætti.
Nú munu margir spyrja
hversu útbreitt er þetta fyrir-
komulag?
Óttinn við gróðann
Satt best að segja er þetta allt á
byrjunarstigi, og miklu skemur á
veg komið en t.d. í Ungverja-
landi eða Kína. Það er líka ljóst
að fjöldi Sovétborgara eru and-
vígir þessari tilraun - einna helst
á þeim forsendum að í þessum
einkageira eða samvinnugeira án
eftirlits verði til tekjur, sem skipi
þeim einstaklingum sem þar
vinna langt fyrir ofan sovésk
meðallífskjör. Þessu svara þá
hugmyndafræðingar perestrojku
með því, að samkeppni milli
þessara aðila muni draga úr
þeirra ofsagróða. Það er líka
auðséð af sovéskum blöðum
þessa daga, að yfirvöld á hverjum
stað vita hreint ekki hvað þau
eiga að gera við þá möguleika á
úthlutun starfsleyfa til einstak-
linga eða til að stofna til sam-
vinnurekstrar, sem nú eru upp
komnir. Um leið og ýtt er undir
fjölskylduábyrgð ílandbúnaði, er
hert á lögum hér og þar sem
banna mönnum að selja á borg-
armarkaði aðrar kartöflur eða
jarðarber en þau sem koma úr
eigin garði ( m.ö.o. sá sem selur
sína vöru er nytasamlegur, sá sem
um leið kaupir af öðrum og fer
með á markað er að brjóta lög).
Óviss framtíð
Nú fer mér sem mörgum öðr-
um: sé ég spurður um framtíð
einkageirans og samvinnugeirans
í Sovétríkjunum, þá verður fátt
um svör. Það sem breyst hefur er
viðurkenning á nauðsyn þess að
sú starfsemi, sú þjónusta, sem
ekkert ríkisfyrirtæki getur veitt í
snatri, fái að vera til án þess að
hún sé talin til glæpa. Það væri
mjög merkilegt og fróðlegt ef upp
úr þessu spryttu merkar hug-
myndir um t.d. lítil framleiðslus-
amvinnufélög (ísovéskri umræðu
ber tölvert á því núna að menn
trúa ekki sem fyrr á töfra stærðar-
innar). En þessi umræða er, sem
fyrr segir, varla af stað farin,
hvað sem síðar verður.
Á morgun birtum við
næstsíðustu greinina í þessari
lotu, hún fjallar um stjórn hins
þjóðnýtta efnahagsgeira, um
möguleika á að kjósa forstjóra og
fleira þesslegt.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN þriðjudagur 26. maí 1987